23. maí 2012 - 09:00Elín Helga Egilsdóttir
Galdurinn að góðu salati

Ella Helga
Jah, dressingin, aukahlutirnir og salatskurðurinn.
Eins og t.d. möndlur, hnetur, fræ, brauðteningar (eeeeekki blautir og subbulegir brauðteningar þó). Eitthvað sem gefur knús og kram í hvern bita.
*crunch**crunch*
Munið, ís verður alltaf skemmtilegri til átu ef honum fylgir t.d. Nóakropp!!
Rúslur!
Rúsínur í salati er ofur! Ofur, ofur, ofur, rúsínuofur! Trúið mér og treystið.
Einn og einn biti þar sem með læðist dísæt, karamellukennd rúsla?? Hiimnaríki!

Próteingjafinn er alltaf skemmtilegur líka. Kjúlli, eggjahvítur, fiskibitar, nautakjöt, baunir. Hann gefur gleðilega áferð í salatbitann svo ég tali nú ekki um fyllingu.
Dressing getur svo tekið hvaða salat sem er og umbreytt því í mikla átgleði gott fólk.
Dressinging skapar salatið! Amen!
Ef þið eruð t.d. að nota afgangs kjúlla/fisk/kjöt síðan deginum áður gætuð þið látið dressinguna taka mið af því hafi kjötið t.d. legið í einhvurslags marineringu ofr.
• Rauðvínsedik, dill, dijon sinnep, salt, pipar, smávegis hunang
• Hvítvínsedik, salt, pipar
• Dijon, hunangs dijon, hvítvínsedik, salt, pipar, hvítlaukur
• Sýrður rjómi, salt, pipar, rauðvínsedik, smátt skorinn rauðlaukur
• Grænmetis-/og eða kjúklingakraftur. Soðið niður nokkuð þykkt.
• Basilika, oregano, cumin, smá kanill, örlítil salsa
• Sítróna, ólífu olía, hunang, smá salt
Hvaaað sem er.
Og númer 1, 2 og 3 mín kæru. Galdurinn að góðu salatáti.... ég segi ykkur það. Grænmetisjapl mun breytast fyrir ykkur héðanaf.
GALDURINN!!
SMÁTT... SKORIÐ Jebb. Er bara svo miiikið skemmtilegra að borða mjög vel niðursneitt grænmeti!
Svo að sjálfsögðu bætið þið við og betrumbætið eins og ykkur lystir hvað krydd og aðra hamingju varðar. Engifer, avocado, ávöxtir, grasker, kartöflur...
Ekkert annað. Skerið salatið í muss og spað. Bætið próteingjafanum út í og borðið með skeið! HAHH!
Já, þetta er matskeið sem þið sjáið á myndinni hér að neðan.
Þannig að, til að taka þetta saman:
- SMÁTT SKORIÐ
- Góð dressing
- Próteingjafi, crunch og sæta
Einföld leið til að fá grænmetisskamtinn ofan í sig og ég lofa jafn stíft og ég elska ís, að ykkur kemur ekki til með að mislíka átið!
Fáið ykkur risasalat í kvöld og njótið lífsins. Það er djöðveikt!
19.maí 2013 - 19:00
Helgi Skúlason hefur á síðustu árum getið sér mjög gott orð fyrir náttúrumyndir sínar og hefur sérhæft sig í fuglamyndum. Hann hefur haldið nokkrar sýningar á myndum sínum, til dæmis í Ráðhúsi Reykjavíkur, sem vakið hafa mikla athygli. Sérstaka eftirtekt vekur hve persónulegar fuglamyndir Helga eru, enda leggur hann sig fram um að komast í mikið návígi við fuglana.
19.maí 2013 - 18:00
Öll þroskumst við á lífsleiðinni. Við prófum margt og lærum á því sem við gerum. Sumt gengur upp, annað ekki … En, það sem gerir lífið svo skemmtilegt og fallegt er einmitt að horfa til baka og sjá að við prófuðum þó. Hér eru nokkrir hlutir sem allar konur ættu að prófa fyrir þrítugt:
19.maí 2013 - 11:00
Björn Bragi Arnarsson er fæddur árið 1984. Hann er stúdent frá Verzlunarskóla Íslands og þá er hann með BSc-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Björn var fyrr í vetur kosinn sjónvarpsmaður ársins fyrir frammistöðu sína sem stjórnandi Týndu kynslóðarinnar og hlaut hann Edduna fyrir.
18.maí 2013 - 23:30
Í kvöld lék David Beckham sinn síðasta fótboltaleik á ferlinum þegar hann leiddi lið PSG til 3-1 sigurs gegn Brest í franska boltanum. Beckham, sem bar fyrirliðaband PSG í leiknum í kvöld, var tekinn útaf á 83. mínútu og táraðist þá öll stúkan, líkt og Englendingurinn sjálfur.
18.maí 2013 - 22:25
Eins og flestir Íslendingar vita fór Söngvakeppni Evrópskra Sjónvarpsstöðva fram í kvöld. Eyþór Ingi söng fyrir Íslands hönd og stóð sig frábærlega en það var hinsvegar Emelie de Forrest sem söng sig inn í hjörtu Evrópubúa með framlagi Danmerkur
Only Tearsdrop.
18.maí 2013 - 22:00
Samskiptasíðurnar Twitter og Facebook loguðu á meðan söngvarar stigu á svið í Eurovision-keppninni. Líflegar umræður fóru fram um lögin og á báðum samskiptasíðunum mátti finna skemmtilega gullmola um hina ýmsu listamenn í keppninni.
18.maí 2013 - 18:30
Eyþór Ingi sem í kvöld flytur lagið Ég á líf í Eurovision-keppninni spjallaði á léttu nótunum við Davíð Lúther Sigurðarson. Þá sýndi hann skartið sem hann ber og ræddi um fataval fyrir stóru stundina.
17.maí 2013 - 21:34
Hér er á ferðinni bráðskemmtilegt myndskeið þar sem í aðalhlutverki eru persónur úr hinum vinsæla uppvakningaþætti Walking Dead. Við getum lofað því að þú hefur aldrei séð þessa útgáfu áður.
17.maí 2013 - 18:30
Það er ekki óalgengt að verðmætustu vörumerkjum heims sé stolið og þau seld undir breyttum nöfnum. Hér eru nokkur áhugaverð dæmi:
17.maí 2013 - 15:30
Eyþór Ingi sem í gær söng sig inn í hug og hjörtu margra Evrópubúa þakkaði Íslendingum og þá sérstaklega fólkinu í heimabæ sínum á Dalvík fyrir stuðninginn í gærkvöldi. Þá sagðist hann hafa orðið meyr í miðju lagi þegar honum varð hugsað til dætra sinna og eiginkonu.
17.maí 2013 - 14:30
Víking sumaröl er nýi sumarbjórinn sem Vífilfell framleiðir. Hreiðar Þór Jónsson, markaðsstjóri hjá Vífilfelli, segir að fyrst var farið af stað með söluna á Sumarölinu árið 2011, en þá var það til sölu á nokkrum veitingastöðum eins og Rósenberg og Kex. Skemmst er frá því að segja að bjórinn sló algjörlega í gegn.
17.maí 2013 - 11:30
Hljómsveitin Sigur Rós bregður fyrir í Simpsons þættinum The Saga of Carl Carlsson sem sýndur verður í Bandaríkjunum á sunnudaginn. Nú hefur fyrsta myndskeiðið verið sett á netið og það má sjá hér fyrir neðan.
17.maí 2013 - 08:00
Tæknin mun bjarga þeim sem ekki komast í miðbæinn í dag til að sjá einstakt átta mínútna skipaflautuverk Lilju Birgisdóttur. Lilja lofar tilkomumikilli sjón þegar hún stýrir verki sínu, Vessel Orchestra, í höfninni á Listahátíð í Reykjavík, en það er opnunarverk hátíðarinnar.
16.maí 2013 - 22:17
Enginn á að þurfa að missa af Eurovision - hvorki leikarar né leikhúsgestir. Englar alheimsins gerðu stutt hlé á sýningu kvöldsins og sungu ,,Ég á líf" með Eyþóri og áhorfendum í beinni útsendingu á stóra sviðinu
16.maí 2013 - 15:50
Hvað eiga Eyþór og brúðan Terry Vision sameiginlegt? Jú, þeir hafa báðir leikið í Rocky Horror. Eyþór lék Riff Raff en Terry var sögumaður. Hér má sjá skemmtilegt myndskeið með þeim félögum.
16.maí 2013 - 14:02
Lagið
Önnur sjónarmið sem Edda Heiðrún Bachmann leikkona söng svo eftirminnilega var kveikjan að styrktartónleikum sem þrír kórar á Seltjarnarnesi stóðu fyrir á Uppstigningardag en þar söfnuðust 130.000 krónur. Ákveðið var að ágóðinn skyldi renna til Endurhæfingardeildar Grensás.
16.maí 2013 - 13:55
David Beckham hefur gefið það út að hann sé hættur allri knattspyrnuiðkun. Sportsmail greindi fyrst frá þessu um klukkan tvö í dag en nú hefur Beckham sjálfur staðfest þessar sögusagnir. Þessi 38 ára gamli Englendingur hefur því spilað sinn síðasta fótboltaleik á ferlinum.
16.maí 2013 - 11:00
Mynd dagins birti Örlygur Smári á Facebook-síðu Nýherja en þar segir:
15.maí 2013 - 20:10
Í tilefni þess að Eurovision söngkeppnin fer fram í þessari viku í Malmö í Svíþjóð, ákváðum við að spyrja nokkra þjóðþekkta Íslendinga um álit sitt á framlagi Íslendinga til keppninnar í ár, en eins og allir Íslendingar vita keppir Dalvíkingurinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson fyrir hönd Íslendinga með lagið „Ég á Líf“ eftir þá Örlyg Smára og Pétur Örn Guðmundsson
15.maí 2013 - 16:48
Caine Smith er 11 ára strákur búsettur í Bandaríkjunum. Hann mátti þola grimmilegt einelti af hendi skólafélaga sinna. Á hverju degi var hann barinn og kallaður öllum illum nöfnum. Ástæðan? Jú, Caine litli er síðhærður og á tvær mömmur.
15.maí 2013 - 12:38
Dalvíkingar eru afar stoltir af Eyþóri Inga sem syngur fyrir Íslands hönd í Eurovision-keppninni. Í myndskeiðinu hér fyrir neðan má hlusta á kveðjur frá kennurum, vinum og börnum.
15.maí 2013 - 11:52
Gillian Flynn er einn flottasti rithöfundur samtímans. Þessi þriðja skáldsaga höfundar kom út sumarið 2012 og hefur setið á metsölulista New York Times síðan þá. Bókin kom út á Bretlandi í vor og rauk beint á topp metsölulistans – og sömuleiðis í Noregi.
15.maí 2013 - 10:05
15.maí 2013 - 07:00
Skráning í hina árlegu hjólreiðakeppni WOW Cyclothon, þar sem hjólað er 1332 kílómetra hringinn í kringum Ísland með boðsveitarformi, hefur gengið framar björtustu vonum. Nú þegar hafa 25 lið staðfest þátttöku en liðsfjöldi verður takmarkaður við 30 lið. Áheitasöfnun mun fara fram í kringum keppnina og mun allur ágóði renna til Barnaheilla.
14.maí 2013 - 17:00
„Ég steig mín fyrstu skref sem viðskiptavinur í líkamsræktarheiminum í
Hreyfingu og mér leið alltaf mjög vel þar. Ég sló síðan til og fór í prufu í apríl árið 2011.“ Karen segir hópatímana í
Hreyfingu frábæra. „Kennararnir voru í raun það sem dreif mig áfram og á endanum lét ég slag standa. Þegar tækifærið kom til þess að vera hluti af þessum flotta hópi fagmanna gat ég ekki annað en freistað gæfunnar.“
14.maí 2013 - 14:00
Einar Ágúst Víðisson sem söng lagið Tell me ásamt Telmu Ágústsdóttur í Eurovision keppninni fyrir þrettán árum síðan segir að það hafi verið virkilega ánægjulegt en taugatrekkjandi að taka þátt í keppninni. Í skemmtilegu myndskeiði sem birt var á heimasíðu Vodafone segir hann frá sögunni á bak við pilsið fræga og af hverju hann valdi að klæðast því á úrslitakvöldinu.
14.maí 2013 - 09:15
Angelina Jolie hefur látið fjarlægja bæði brjóst sín af ótta við fá krabbamein. Frá þessu greinir leikkonan heimsþekkta pistli í New York Times. Móðir Angelinu lést úr brjóstakrabbameini einungis 56 ára.
12.maí 2013 - 20:50
Tveir írskir bræður, 13 og 14 ára, stigu á stokk í Britains Got Talent í gærkvöldi og fluttu lagið Little Talks með Of Monsters and Men. Óhætt er að segja að þeir hafi slegið í gegn með flutningi sínum á laginu.
11.maí 2013 - 08:40
Mannsaugað er eins og svo mörg önnur líffæri búið til úr mismunandi vefjum. Augað sjálft er knöttur úr þremur lögum og er um 2,5 cm í þvermál. Hér fyrir neðan eru átta myndir sem armenski ljósmyndarinn Suren Manvelyan hefur tekið af augum hinna ýmsu dýra. Í þeim hópi eru m.a. maður, tígrisdýr, slanga, hundur og lemúr.
10.maí 2013 - 19:00
Mjög áhrifaríkt myndband sem nemendur í kynjafræði í háskóla í Kanada gerðu. Hvernig myndu auglýsingar líta út ef karlmenn myndu vera í hlutverkum sem konur eru látnar vera í? Á milli auglýsinga eru sláandi staðreyndir sem koma öllum við! Deilið þessu myndbandi á dætur ykkar og syni, vini og vinkonur…
10.maí 2013 - 12:30
Dionne Warwick er ein skærasta stjarna poptónlistarsögunnar. Hún hefur unnið til 5 Grammy verðlauna, gefið út 35 breiðskífur sem selst hafa í yfir 100 milljón eintökum og hefur átt 85 lög á topp 100 í Bandaríkjunum, fleiri en nokkur önnur söngkona. Dionne Warwick hefur notið meiri velgengni á vinsældalistum en nokkur önnur söngkona í sögunni að Arethu Franklin undanskilinni.
09.maí 2013 - 11:40
Nú er Komið að því að velja Gyllta glasið 2013. Vínþjónasamtökin hafa staðið fyrir valinu ár hvert og hafa verðlaunin verið veitt síðan 2005. Valin eru tíu bestu tegundirnar af bæði rauðvíni og hvítvíni.
07.maí 2013 - 20:40
Á hverjum degi sjáum við myndir af frekar mjóum módelum í fjölmiðlum. Það er svo sem ekkert að því en þar sem að módel í „yfirstærð“ hafa verið í auknum mæli að koma fram á forsíðum alþjóðlegra tímarita, fannst okkur sniðugt að sýna nokkrar gullfallegar og glæsilegar konur sem eru með meiri „raunverulegri“ tölur þegar kemur að meðalstærð kvenna út um allan heim.
07.maí 2013 - 15:27
Ruth Ásdísardóttir
Keep Calm and Carry on var slagorð sem bresk stjórnvöld létu prenta á veggspjald árið 1939, stuttu eftir að seinni heimstyrjöldin hófst. Veggspjaldinu var ætlað að stappa stálinu í íbúa landsins sem stóðu frammi fyrir miklum hörmungum.
07.maí 2013 - 13:30
Grammy verðlaunahafinn fyrrverandi, Lauryn Hill, var nýverið dæmt í fangelsi vegna skattaskuldar. Söngkonan sem eitt sinn gerði garðinn frægan með sveitinni Fugees, játaði í fyrra að hafa ekki greitt skatt af tæplega 2 milljónum dollara sem hún hafði í tekjur á árunum 2005 til 2007.
06.maí 2013 - 18:00
Stormurinn er ný plata frá Bubba en kappinn er hér á gamalkunnum slóðum, en á plötunni er hann að miklu leyti einn á ferð með kassagítarinn einan að vopni. Stormurinn er að sögn Bubba ljúf plata en einnig pólítísk. Hún er beitt og einföld í senn og kemur í verslanir á morgun, þriðjudaginn 7. maí.
06.maí 2013 - 15:57
Nú er árleg álfasala að hefjast til styrktar SÁÁ. Sjálfboðaliðar um land allt eru nú að fara af stað og ætla að heimsækja Íslendinga og bjóða þeim SÁÁ álfinn til sölu.
05.maí 2013 - 15:00
Það tekur aðeins um tíu daga að verða kynþokkafyllri í augum kvenna og það er aðeins eitt sem þú mátt alls ekki gera, og það er að raka þig. Samkvæmt nýrri ástralskri rannsókn finnst konum karlmenn kynþokkafyllri ef þeir hafa ekki rakað sig í um viku tíma og kjósa þá framyfir þá sem eru nýrakaðir.
05.maí 2013 - 10:15
Poppstjörnurnar í íslensku hljómsveitinni Of Monsters and Men komu fram í gamanþættinum vinsæla Saturday Night Live (SNL) í gærkvöldi og uppskáru góðar viðtökur áhorfenda.
04.maí 2013 - 22:00
Árið 1975 tók ljósmyndarinn Nicholas Nixon mynd af Bebe eiginkonu sinni og þrem systrum hennar. Þá kviknaði sú hugmynd að gera það að árlegum viðburði og ákváðu þau að taka mynd af systrum fjórum saman allt til ársins 2010.
04.maí 2013 - 15:30
Það er alltof mikil áhersla á leggöng kvenna og of lítil áhersla á annað mikilvægt svæði kynfæra kvenna, snípinn, þegar kemur að kynlífi. Þetta er að minnsta kosti skoðun samtakanna
Clitoraid sem starfa í Las Vegas. Þetta kemur fram í Huffington Post.
04.maí 2013 - 12:30
Nóg er til af lúxushúsnæði í landinu og þeir sem eiga frá 100 til 200 milljónir aflögu til fasteignakaupa eru í góðum málum. Sala á dýrari fasteignum er komið á svipað ról og var fyrir bankahrun og þá virðist ríkja nokkur bjartsýni hjá hluta þjóðarinnar eftir kosningarnar.
04.maí 2013 - 09:00
Rebekka, átta ára einhverf stúlka sem ákvað upp á sitt einsdæmi að safna 100 þúsund krónum fyrir útigangsfólk hefur náð takmarki sínu og gott betur en það. Hún hefur nú sett sér nýtt markmið og er hvergi nærri hætt. Hún hefur safnað rúmum 300 þúsund krónum.
03.maí 2013 - 17:00
Ég er ansi spennt fyrir nákvæmlega þessu andlitsbaði, vegna þess að vinkona mín mælti sérstaklega með nýju
VOR snyrtivörulínunni sem
Dekurhornið er að bjóða upp á, en það er rammíslensk lína sem heitir
VOR. Sigrún Sigurðardóttir snyrtifræðingur og starfsmaður
Dekurhorsnins tekur ljúflega á móti mér og býður mig velkomna, og svei mér þá, mér líður næstum því eins og hún viti hversu stressuð ég er. Kannski sést það utan á mér?
03.maí 2013 - 14:00
Á morgun, laugardaginn 4. Maí, verður Sunnlenski sveitadagurinn haldinn hátíðlegur á Selfossi. Hátíðin verður á sama stað og undanfarið, en það er á svæðinu fyrir utan Jötunn Vélar ehf og Vélaverkstæði Þóris við Austurveg á Selfossi. Er þetta í fimmta sinn sem þessi skemmtilegi dagur er haldin, en hann hefur fest sig í sessi sem einn stærsti viðburður á Suðurlandi. Gestir hátíðarinnar hafa undanfarið verið um tíu þúsund, enda ávallt mikið um að vera og margt að sjá.
03.maí 2013 - 11:25
Rithöfundurinn Þorgrímur Þráinsson er ósáttur við marga kynbræður sína og vill að böndum verði komið á karlmenn sem nota almenningssalerni.
02.maí 2013 - 21:50
Vantar ekki meiri gleði og fjör í lífið? Fer þetta sumar ekki að koma?! Ört vaxandi hópur fólks hefur sést stöðva bíla hér og þar og dansa við dúndrandi tónlist og höfðum við mikinn áhuga á að kanna þetta betur!
02.maí 2013 - 13:31
Ruth Ásdísardóttir
„Gott í kroppinn“, heita 20 ára sögutónleikar Vina vors & blóma. Þeir ætla að fara eð okkur í ferðalag aftur í tímann, þegar X-kynslóðin (1961-1981) réði ríkjum á Gauknum og Astro ... Hlöllabátur þótti hollur og KóKó í Kringlunni var búðin.
02.maí 2013 - 09:53
Ruth Ásdísardóttir
Költ mynda hópurinn Svartir sunnudagar ætla að kveðja veturinn með glæsibrag um næstu helgi, 4. og 5. maí í Bíó Paradís. Laugardaginn 4. maí verður opnuð yfirlitssýning veggspjalda sem hönnuð voru á liðnum vetri fyrir sýningar Svartra sunnudaga.
01.maí 2013 - 19:00
Fyrir meira en 50 árum síðan kynntust Xu og Liu. Árið var 1956 og Xu var ekkja með fjögur börn en Liu var tíu árum yngri en hún. Í litla þorpinu sem þau bjuggu urðu illar tungur og slúður til þess að þau flúðu til að hefja nýtt líf hátt upp í fjöllum í suðvestur Chongquinghéraði.