29.maí 2012 - 19:00
Sjóarinn síkáti í Grindavík hefur fest sig í sessi sem öflugasta sjómannadagshátíð landsins. Á sama tíma og hefðbundin hátíðarhöld sjómannadagsins hafa víða verið lögð niður undanfarin ár hafa Grindvíkingar tekið þá stefnu af efla Sjóarann síkáta enn frekar enda Grindavík einn öflugasti sjávarútvegsbær landsins.
11.maí 2012 - 11:05
Casa Playa Las Lomas I-05 í Perú eftir Vértice architects - sérstakt hús sem er komið er fyrir á einhvers konar kletti! Þetta hús var hannað í fyrstu röðinni á Lomas del Mar ströndinni í Cerro Azul, 120 km suður af Lima.
02.maí 2012 - 09:30
Það eru ekki mjög mörg kaffihús í heiminum sem henta allri fjölskyldunni. Þetta kaffihús heitir Phill og er í Búkarest og er alveg kjörið fjölskyldukaffihús.
29.apr. 2012 - 10:18
MPR Design Group sýnir okkur hérna þvílíkt flotta Penthouse íbúð sem væri svosem allveg ljúft að eiga.
Að utan sjáum við gamla byggingu sem svo geymir þessa nútíma paradís á þakinu.
27.apr. 2012 - 13:30
Stundum er hægt að breyta heilu herbergi í aðeins nokkrum handtökum. Hér fékk gamalt herbergi í risi yfirhalningu með frábærri útkomu.
26.apr. 2012 - 13:32
Það er alltaf gaman að gefa gömlum og góðum húsgögnum nýtt líf með smá málningu og pússi. Hér fær gamall stofuskápur andlitslyftingu og útkoman er hreinlega mögnuð.
23.apr. 2012 - 11:00
Tískurisarnir Marni og Diesel tóku þátt í húsgagnahátíðinni „Salone Del Mobile“ í ár með glæsilegum húsgögnum og flottum málefnum.
20.apr. 2012 - 11:00
Í Tortona svæðinu, sem er skemmtilegt svæði þar sem mikið líf er og margt um unga hönnuði, er yfirleitt að finna heilan helling af skemmtilegum hugmyndum.
16.apr. 2012 - 11:20
Þeir kalla hann The Book Club þó svo að í rauninni sé þetta alls ekki einhver “bókaklúbbur“.
13.apr. 2012 - 11:00
Baðherbergi eru eins mismunandi og þau eru mörg! Mér finnst ótrúlega gaman að koma inná fallegt baðherbergi og virkilega skemmtilegt þegar fólk persónugerir þau alveg eftir sínum stíl.
10.apr. 2012 - 11:35
Fernanda Marques sló heldur betur í gegn árið 2010 með þetta Loft 24/7 sem er 250 fermetrar í heildina og á náttúran sjálf stóran hlut í því að gera þessa hönnun stórkostlega. Marques notar þvílíkt magn af sólarljósi þar sem rýminu er haldið mjög opnu, gluggum er komið fyrir bæði í lofti sem og í næst öllum útveggjum. Tilfinningin að vera inni í þessu rými á að vekja upp tilfinningu eins og þú sért í raun utanhúss.
06.apr. 2012 - 17:00
Hér höfum við fallegt minímalískt hús þar sem æðisleg blanda af efnum og opin rými ráða ríkjum. Léttar timburplötur klæða part hússins að utanverðu sem á sama tíma myndar næði en hleypir einnig náttúrulegu ljósi inn. Húsið er á 3 hæðum, en á neðstu hæð er eldhúsi og stofu haldið mjög opnu sem liggur svo út að veröndinni sem er allveg hreint dásamleg með ílangri sundlaug.
03.apr. 2012 - 18:00
Bolla Pop hillurnar eru virkilega skemmtileg húsgögn sem gefa lit og geometrísk form inn í rýmið, en hillurnar eru bæði hugsaðar sem geymslupláss sem og veggur til að skipta rými niður í tvö eða fleiri.
01.apr. 2012 - 17:00
Hildur Gunnarsdóttir
Þegar við viljum fegra umhverfið í kringum okkur þá þarf breytingin ekki alltaf að vera mikil. Hægt er að fegra og breyta alveg ótrúlega mikið með aðeins einum hlut sem er í áberandi lit, en rauður er litur sem getur hreinlega gert kraftaverk.
30.mar. 2012 - 11:00
Ef þig langar að gefa líkama og sál algjört frí frá öllu stressi sem daglegt líf býður uppá, skelltu þér þá til Suðaustur Asíu þar sem þeir eru snillingar í því að bjóða uppá lúxus afslöppun!