16. apr. 2012 - 11:20
Þeir kalla hann The Book Club þó svo að í rauninni sé þetta alls ekki einhver “bókaklúbbur“.
Þetta er bar sem er opin allan daginn og skiptist í nokkur í svæði: Sýningarsvæði (þar sem ýmis hönnun er sýnd), borðtennis svæði, barinn sjálfur og svo “lounge“ svæði í opnu og vel lýstu rými þar sem viðskiptavinir geta spjallað og haft það notalegt.
Það var Shai Akram sem stjórnaði þessari rýmisskipan hússins en áður fyrr var þetta vöruhús og því fann Akram leið til þess að nota mismunandi hæðirnar í húsinu í þessi skiptu rými.
Hönnunin er öll mjög hrá og skemmtileg blanda af alls kyns efnum notuð, flísar, múrsteinar, viður og fleira. Ljósin eru á flestum stöðum svokölluð “barn lights“ en það þykir mjög töff um þessar mundir. Í “lounge“ svæðinu er rosalega skemmtileg lýsing, en þar er búið að fylla loftið af ljósaperum og kemur falleg lýsing fram þegar kveikt er á þeim.
Stólarnir í því svæði eru einnig ekki allir þeir sömu en mér finnst það einmitt rosalega töff þegar blandað er saman mismunandi stólum. Þetta er eins konar skipulagður óreiðu bar og nær hönnuðurinn virkilega að búa til sjarmerandi andrúmsloft sem ætti svo sannarlega að laða viðskiptavinina að.
Hrá og flott hönnun en heimilisleg á sama tíma!
Jónína Þóra Einarsdóttir, innanhússarkítekt