19. mar. 2012 - 11:00
Nú fer senn að líða að því að Mílanó borg fyllist af hugmyndaþyrstum og flottum hönnuðum! Í apríl ár hvert er haldin rosalega stór húsgagna hönnunarsýning sem heitir Salone Del Mobile, en þar sjást alla vega hönnuðir sýna hvað það nýjasta og ferskasta er í bransanum í dag.
Sýningin skiptist á mismunandi svæði en það stærsta heitir Rho Fiera, sem er aðeins út fyrir miðborgina.
Þar er alveg hægt að eyða heilum degi að labba á milli bása og sjá hinar ýmsu hugmyndir, en minni svæðin eru örlítið meira sjarmerandi því þar getur maður gengið á kvöldin og labbað á milli sýningasvæða sem mörg hver bjóða uppá svokallað aperitivo (drykk og snarl) og gera kynninguna á sinni hönnun aðlaðandi og skemmtilega.
Þessi vika er ótrúlega skemmtileg og lífleg í borginni og fólk flykkist allstaðar að úr heiminum til að koma og upplifa þetta allt saman.
Þar sem borgin er einnig full af hönnunarnemendum, þá er þetta þvílíkt spennandi fyrir þá líka þar sem þvílíkt magn af hugmyndum líta dagsins ljós!
Ég set hérna myndir frá Salone frá 2011 og svo koma ferskar myndir frá 2012 eftir sýninguna þetta árið!
Jónína Þóra Einarsdóttir, innanhúsarkitekt.