06. apr. 2012 - 17:00
Hér höfum við fallegt minímalískt hús þar sem æðisleg blanda af efnum og opin rými ráða ríkjum. Léttar timburplötur klæða part hússins að utanverðu sem á sama tíma myndar næði en hleypir einnig náttúrulegu ljósi inn. Húsið er á 3 hæðum, en á neðstu hæð er eldhúsi og stofu haldið mjög opnu sem liggur svo út að veröndinni sem er allveg hreint dásamleg með ílangri sundlaug.
Á efri hæðum eru svefnherbergi þar sem mikið er lagt upp úr næði sem og góðu útsýni.
Gólf er alls staðar lökkuð steypa, bæði inni og úti og önnur efni sem notuð eru, er ferskt basalt, timbur og stál. Öll þessi efni eru notuð inni sem og úti til þess að tengja flæði á milli svæðanna.
Innréttingar eru virkilega vandaðar hvað varðar öll smáatriði og mikið er um óbeina lýsingu sem gefur húsinu fágað yfirbragð.
Bruce Stafford Architects hittu algjörlega í mark hér að mínu mati!!
Jónína Þóra Einarsdóttir, innanhússarkítekt