29. jan. 2010 - 07:00Björg Magnúsdóttir

Victoria Beckham: Ég er í sömu fatastærð og J. Lo!

Victoria Beckham, sem er þekkt fyrir agnarsmátt mitti, tálgaðar hendur og tággrannan líkama segist vera í sömu fatastærð og söngdívan Jennifer Lopez, sem er einmitt þekkt fyrir munúðarlegan líkamsvöxt og ávalar línur.

Beckham lét orðin falla þegar hún ræddi opinberlega um tískulínu sína.

„Fötin mín eru fyrir konur af öllum stærðum og gerðum. Reyndar prófaði ég kjól í gær, það var einmitt sami kjóll og Jennifer Lopez klæddist.. og hann smellpassaði. Hver hefði trúað því að ég passaði í sömu stærð og hún!?“ Beckham ku vera ákaflega áhugasöm um tískuhönnun nú og til framtíðar.

Lesendur Pressunnar geta glöggvað sig á myndum hér að neðan til þess að dæma fyrir sig fullyrðingu frú Beckham. Betur sjá jú augu en auga.



Left Right


12.mar. 2010 - 14:30 Marta María

Erlent fjölmiðlafólk streymir á HönnunarMars: Guardian, Coolhunting, Dazed & Confused meðal gesta.

Hönnun eftir Hrafnkel Birgisson. Á HönnunarMars streymir þaulreynt fjölmiðlafólk frá Japan, New York, Stokkhólmi, Brussel og Bretlandseyjum. Fjölmiðlafólkið á það sameiginlegt að ætla að kynna sér nýjustu strauma og stefnur í íslenskri hönnun sem verður í fyrirrúmi á hönnunarhátíðinni HönnunarMarsi sem stendur yfir 18. – 21. mars næstkomandi. Á HönnunarMarsi verða yfir hundrað hönnunartengdir viðburðir. Sem dæmi fyrirlestrar, sýningar, nýsköpun, innsetningar, kynningar og margt fleira.
12.mar. 2010 - 13:10 Marta María

Poppaðu barnaherbergið upp með litlum tilkostnaði - MYNDIR

Fallegu kjólarnir fá að njóta sín á herbergisveggnum. Guðný Hilmarsdóttir, ljósmyndari og móðir tveggja ungra barna, er búsett í Barcelona. Á dögunum flikkaði hún upp á herbergi dóttur sinnar. Hana langaði til að leyfa kjólunum og sætum stelpufötum að njóta sín og brá þá á það ráð að útbúa snaga sem hún hengdi á vegginn.
12.mar. 2010 - 09:00 Björg Magnúsdóttir

Mega-pæjuskór búnir til úr úrgangi fíla - MYNDIR

Það þarf kjörkugan kvenmann til þess að ganga um á þessum skóm. Hráefnið sem hönnunarlínan INSA nýtti í skóna hér til hliðar er hvorki ferskt né algengt í hælaskóm: nefnilega fíla-úrgangur. Hælaskórnir eru ríflega 25 sentímetra háir, með heljarinnar pinnahæl og fíla-úrgangs-platform, skreyttan fjölmörgum perlum að  neðanverðu.
12.mar. 2010 - 07:00 Björg Magnúsdóttir

Rússar velja sínar allra hallærislegustu stjörnur - MYNDIR

Rússneski vefmiðilinn Pravda sendir stjörnum þar í landi tóninn fyrir hallærislegan klæðaburð. Miðillinn hefur tekið saman myndir af þeim stjörnum sem þykja ekki smart. Þær eiga það flestar sameiginlegt að láta skína í húð á óvenjulegum stöðum. Til dæmis afturenda, bringu eða maga.
11.mar. 2010 - 17:00 Marta María

Kvenleg og sportleg lína frá Birnu vekur athygli

Íslenski fatahönnuðurinn Birna Einarsdóttir hefur gert það gott í hönnunarbransanum. Nú hefur splunkuný lína frá Birnu litið dagsins ljós.  Línan skartar kvenlegum en jafnframt svolítið rokkuðum fötum sem henta vel fyrir íslenskar konur.
12.mar. 2010 - 12:00 Marta María

Eyðilagði húðina í ljósabekkjum: Hrukkustraujárnið kom henni til bjargar

Unnur Þorsteinsdóttir hefur notað Hrukkustraujárnið í nokkur ár. Unnur Þorsteinsdóttir var búin að eyðileggja húð sína vegna ljósabekkjanotkunar. Hrukkustraujárnið hjálpaði henni að laga húðina og í dag er ekki að sjá á henni að hún hafi legið í ljósum. Unnur kynntist ljósabekkjunum þegar hún var 15 ára. Næstu tíu árin stundaði hún bekkina þrisvar til fjórum sinnum í viku þrátt fyrir fortölur móður sinnar, sem sagði bekkina stórhættulega.
11.mar. 2010 - 14:00 Marta María

Smakkaðu sushi með hýðishrísgrjónum eða trefjablöndu

Austurlenski veitingastaðurinn Nings hafa sett tvo holla og nýja sushi rétti á markað. Um er að ræða sushi sem gert er úr hýðishrísgrjónum og sushi með Multi Grain trefjablöndu. Báðar þessar tegundir eiga það sameiginlegt að vera án sykurs, salts og ediks. Þær henta því vel fyrir þá sem huga að heilbrigði og hollustu.
11.mar. 2010 - 13:00 Björg Magnúsdóttir

Þessi snekkja setur L-ið í lúxus: Tilbúin strönd, þyrlupallur og bókasafn - MYNDIR

Snekkjan á siglingu. Á snekkjusýningu í Abu Dhabi kenndi ýmissa grasa. Meðal annars sviptu hönnuður hulunni af snekkju sem gengur unnir vinnuheitinu færanlega eyjan. Verðið á henni eru litla 160 milljónir Bandaríkjadala sem eru allt of margar íslenskar krónur til þess að umreikna þá.
11.mar. 2010 - 11:50 Marta María

Birgitta Haukdal fær uppreisn æru: Chanel sýnir loðstígvél í París -MYNDIR

Haustlína Chanel var sýnd á tískuvikunni í París á dögunum. Það var norðurpólsþema á tískusýningunni og var jökull notaður í sviðsmyndina. Sagan segir að ísjakinn hafi komið frá Skandínavíu. Gestum sýningarinnar brá þegar fyrstu fyrirsæturnar gengu á sviðið, en sumar þeirra voru klæddar hálfgerða bangsabúninga. Fyrstu flíkurnar á sýningunni voru nánast heilgallar en svo varð fatnaðurinn léttari eftir því sem leið á sýninguna.
11.mar. 2010 - 09:00 Björg Magnúsdóttir

Leikkona kynnir töfralausn: Fær karla til þess að horfa í augu en ekki á brjóst - MYNDBAND

Marion Cotillard. Óskarsverðlaunahafinn Marion Cotillard er farin í herberð gegn bandarískum karlmönnum sem stara á brjóst hennar þegar þeir ræða við hana. Cotillard kynnir lausn á vandamálinu, sem hún telur að fleiri konur eigi við að etja, í nýju myndbandi sem hún hefur sent frá sér. Lausnin er fólgin í gervibrjóstum sem setja skal upp á enni við komandi konu og kallast Forehead Tittaes. Gervibrjóstin eiga að valda því að karlmenn horfi í augu kvenna þegar þeir ræða við þær, en ekki á efri hluta bringunnar.
11.mar. 2010 - 07:00 Björg Magnúsdóttir

Heitt stöff: Jennifer Aniston og Gerard Butler í hlutverkaleikum - MYNDIR

Apríl 2010: Butler og Aniston framan á.

Jennifer Aniston og Gerard Butler eru framan apríl-eintaki tímaritsins W sem út kemur seint í mars. Innan í blaðinu er síðan myndaþáttur þar sem skötuhjúin fara með aðalhlutverkin í, í tilefni frumsýningu kvikmyndarinnar Bounty Hunter, sem þau eru einmitt líka í aðalhlutverkum í. Bounty Hunter verður frumsýnd vestanhafs 18. mars næstkomandi.

10.mar. 2010 - 17:00 Marta María

Bojan Simic hannaði eigulegt einbýli í Melbourne - MYNDIR

Ástralski arkitektinn Bojan Simic hannaði stórskemmtilegt hús í Melbourne í heimalandi sínu. Hann fékk algerlega frjálsar hendur við hönnunina og minnir húsið svolítið á geimskip en framhlið hússins er nánast úr gleri, uppúr og niðurúr.
10.mar. 2010 - 14:00 Marta María

Ljúffengur morgunhristingur fyrir unga sem aldna – UPPSKRIFT

Morgunhristingur með múslí. Langar þig í eitthvað fljótlegt og ljúffengt í morgunmat? Ef þú ert með blandara við höndina tekur innan við fimm mínútur að búa til þennan ljúffenga drykk. Það góða við þennan er að hann bragðast nánast eins og rjómaís. Bananinn gerir morgunhristinginn mjúkan og sætan. Kókosvatnið er mikið notað í hráfæðisuppskriftir og inniheldur góða næringu.
10.mar. 2010 - 12:00 Marta María

Stjörnufans á tískusýningu Stellu McCartney í París - MYNDIR

Paul McCartney var stoltur af dóttur sinni, Stellu. Tískuhönnuðurinn Stella McCartney sýndi haustlínu sína 2010 á tískuvikunni í París. Áhorfendapallarnir voru þéttsetnir af aðaltískuliðinu og var pabbi hönnuðarins, Paul McCartney,  fremstur í flokki og stoltið leyndi sér ekki. Hann mætti með kærustuna, Nancy Shevell. Þau leyndu ekki hrifningu sinni og voru alsæl með stelpuna. Tískubomban, Anna Wintour, ritstýra ameríska Vogue lét sig heldur ekki vanta, en eins og henni einni er lagið sýndi hún ekki mikil viðbrögð. Þau viðbrögð voru kannski í takt við hennar karakter enda rignir yfirleitt upp í nefið á henni.
10.mar. 2010 - 09:00 Marta María

Íslenskur fatahönnuður færir út kvíarnar: Ný fylgihlutalína fyrir börn - MYNDIR

Dóttirin, Stella Reykdal Hallgrímsdóttir, sinnir fyrirsætustörfum. Fatahönnuðurinn Hlín Reykdal kynnir til sögunnar nýja línu frá sér sem er fylgihlutalína fyrir börn. Í línunni má finna slaufur, klúta, hárbönd og húfur fyrir ungviðið. Hlín er útskrifaður fatahönnuður frá Listaháskóla Íslands og hefur hingað til einbeitt sér að fylgihlutahönnun fyrir fullorðna. Vörur hennar voru seldar í versluninni Bellevile og hjá hinum danska hönnuði Henrik Vibskov.
10.mar. 2010 - 07:00 Björg Magnúsdóttir

Íklædd límbandi einum fata bakvið lás og slá: Hver önnur en Lady Gaga?

Lady Gaga skemmtir sér vel í fangelsinu. Nýjasta myndbands Lady Gaga, Telephone, er beðið með eftirvæntingu um heim allan. Til þess að lina þjáningar aðdáenda hafa aðstandendur lekið nokkrum vel völdum myndum við gerð myndbandsins út. Þar er Gaga meðal annars íklædd límband einum fata í fangelsi!
09.mar. 2010 - 17:00 Marta María

Svöl sumarlína Karls Lagerfeld vekur athygli - MYNDIR

Hönnuðurinn Karl Lagerfeld var í stuði þegar hann hannaði sumarlínu sína. Það er stutt í hinn klassíska Lagerfeld þar sem svarti og hvíti liturinn er áberandi. Þó fá aðrir tónar að vera með eins og grár og ferskjubleikur. Herra Lagerfeld spáir líklega heitu sumri því stuttbuxur og stutt pils eru áberandi í línunni.
09.mar. 2010 - 14:00 Marta María

Saffran kjúklingavængir með funheitu gulrótarsalati – UPPSKRIFT

Saffrankjúklingur með gulrótarsalati. Þegar ég fræddi eiginmann minn um að Saffran væri dýrasta krydd veraldar horfði hann á mig og spurði undrandi af hverju í ósköpunum ég notaði það á kjúklingavængi. Honum fannst það alls ekki passa saman. Ég sagði að þetta væri svolítið eins og að blanda húsgögnum úr Epal saman við húsgögn úr IKEA, það gæti ekki klikkað. Þegar hann var hinsvegar búinn að smakka fyrsta bitann skildi hann galdurinn. Nú eru kjúklingavængir víða á tilboði og um að gera að nýta sér þau.
09.mar. 2010 - 12:20 Marta María

Yas hótelið í Abu Dhabi er góðærið holdi klætt - MYNDIR

Í Abu Dhabi er hótelið Yas staðsett en það var opnað í byrjun nóvember 2009. Eins og flest í arabísku furstadæmunum er ekkert til sparað og íburðurinn er gríðarlegur. Á þessum slóðum er allt risastórt og glæsilegt. Arkitektarnir Jestico + Whiles eiga heiðurinn af innanhússhönnuninni en þeir hafa unnið til margra verðlauna. Þeir eru með skrifstofur í Lundúnum og í Prag og liggja verk eftir þá um allan heim. Þeir hafa verið sterkir í hönnun á hótelum, verslunum og heimilum.
09.mar. 2010 - 09:00 Björg Magnúsdóttir

Afar sérstök höfuðföt kynnt til sögunnar á tískuviku í París - MYNDIR

Jean Paul Gaultier. Það er nóg af stórundarlegum hátískuhöttum til sýnis á tískuvikunni í París sem nú fer fram. Á sýningum helgarinnar var áberandi hve mörg tískuhús höfðu búið fyrirsætur sínar með höfuðfötum sem venjulegar manneskjur hafa að öllum líkindum ekki oft séð úti á götu. Línurnar eru haust- og vetrarlínur 2010-2011.

skipuleggur ýmislegt skemmtileg.

Pistillmartamaria@pressan.is

Karlrembur á konubílum

Mitt femíníska hjarta tók kipp þegar þriggja ára sonur minn benti á litla krúttlega Suzuki bifreið í bílablaði og tilkynnti að þetta væri „konubíll“.



Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit