01. sep. 2010 - 18:00Marta María

Vertu æðisleg í framan með undrapúðrinu sem allar eru að tala um

Wonder púðrin frá Make Up Store eru að gera góða hluti.

Wonder púðrin frá Make Up Store eru að gera góða hluti. Mynd: Make Up Store

Reglulega koma vörur sem allar konur verða að eignast. Nú er komið undrapúður á markað sem allar skvísur eru að tala um núna. Púðrið heitir Wonder Kit og er frá sænsku pæjubúðinni Make Up Store. Eins og nafnið gefur til kynna geta þessi púður framkallað algera fantaflotta áferð á húðina.

Wonder Kit kassinn inniheldur fjögur mismunandi púður sem hægt er að blanda saman við serum eða dagkrem. Með því að blanda púðrinu út í færðu þekjandi farða sem er einnig hægt að nota sem hyljara, púður, kinnalit, highligter eða augnskugga.

Það er tilvalið að skyggja andlitið með Wonder púðrinu og náta þá stóran mjúkan púðurbursta eða handhægan meik/hyljarabursta.

Það er einnig hægt að kaupa Wonder púðrið í stærri dósum og þá er hægt að velja á milli 4 mismunandi húðlita. Katla Einarsdóttir hjá Make Up Store hafði þetta að segja um púðrið.

“Oftast er einn litur nóg fyrir andlitið, en kosturinn við að eiga kit, og fleiri liti, er að þá er hægt að blanda litunum. Með því er hægt að fá sem eðlilegastan lit auk þess er hægt að skyggja og lýsa svæði líka.

Wonder púðrið er steinefnapúður og býður upp á marga möguleika. Katla mælir með púðrinu fyrir viðkvæma húð og sérstaklega ef konur fá gjarnan ofnæmi. Wonder púðrið er náttúrulegur og hægt er að vera með það í ræktinni og jafnvel sofið með það án þess að húðin mótmæli með einum eða öðrum hætti. Það vita þó flestir að það borgar sig að þrífa andlitið áður en farið er í háttinn.

Left Right