01. feb. 2010 - 14:00Marta María

Vandað og heillandi tréhús í Sviss – MYNDIR

Mynd: CDA arkitektar

Árið 2007 fengu nokkrir arkitektar það verkefni að hanna fallegt fjölskylduhús í Sviss. Rolf Carl Nimmrichter og Dennis Clayton Matthiesen sáu um hönnunina á húsinu sjálfu en innanhúshönnunin var í höndum Teo Jakob Colombo. Útkoman er nánast fullkomin enda var vandað til verksins á öllum sviðum.

Að utan er húsið klætt gegnheilum við. Tréverkið er sérlega vel smíðað og vandað. Að hluta til ná spýturnar yfir glugga sem skapar fallega heildarmynd.

Garðurinn kringum húsið er svolítið villtur en á sama tíma heillandi. Vegleg sundlaug snýr til suðurs og gerir garðinn ævintýralegan. Stór grasflöt og svæðið í kringum sundlaugina gera garðinn fjölskylduvænan. Takið eftir hringnum sem er utan um stóra tréð. Kassalaga formið er ríkjandi í hönnuninni, bæði innanhúss og utan. 

Þegar inn í húsið er komið er vönduð smíði mest áberandi. Stiginn á milli hæða er völdunarsmíð en við hann er búið að gera innfellda skápa. Hver fermetri er nýttur til hins ýtrasta. Húsið er að hluta til stúkað af með innréttingum, ekki hefðbundnum veggjum.

Mikið er um falda lýsingu sem gerir húsið sjarmerandi. Flest viðarverk í húsinu er ljóst en þegar komið er inn í eldhús er annað upp á teningnum. Þar ræður svarti liturinn ríkjum ásamt rauðum veggjum. Þetta býr til andstæður sem lífga upp á húsið.

 

Left Right


15.mar. 2010 - 16:00 Marta María

Cheryl Cole hendir Asley endanlega út: Komin með sama skilnaðarlögfræðing og Paul McCartney

Ashley og Cheryl Cole meðan allt lék í lyndi. Söngkonan Cheryl Cole er endanlega búin að segja skilið við eiginmann sinn, Ashley Cole. Þau hittust um helgina til að ræða málin. Ashley hélt að hann gæti hugsanlega unnið hana til baka enda hefur mamma hans reynt að hjálpa honum með því að tala Cheryl til. Það var hinsvegar allt annað uppi á teningnum.
15.mar. 2010 - 13:00 Marta María

Stanslaust stuð að eilífu: 40 ára afmæli Páls Óskars - MYNDIR

Það var mikið um dýrðir þegar stuðpinninn Páll Óskar hélt upp á 40 ára afmælið sitt. Veislan fór fram á skemmtistaðnum Nasa síðastliðinn laugardag og komust færri að en vildu. Páll Óskar var eins og sönn rokkstjarna í pallíettuskreyttum jakkafötum. Glamúrinn var allsráðandi og ekki sást fýlusvipur á neinum.
15.mar. 2010 - 12:00 Marta María

Sesamsteiktur karfi með gulróta- og mangósalati – UPPSKRIFT

Sesamsteiktur karfi. Það skiptir miklu máli að borða fisk allavega einu sinni í viku,  helst oftar. Steiktur fiskur og steiktur fiskur er ekki það sama. Prófaðu að skipta raspinu út fyrir sesamfræ. Sesamfræ eru ekki bara bragðgóð heldur innihalda þau góða fitu og eru einnig auðug af járni. Í þessa uppskrift er notaður karfi en auðvitað má skipti fisktegundinni út.
15.mar. 2010 - 09:00 Björg Magnúsdóttir

Sugababes með nýja plötu og stílista: Ný ímynd, gærulegri - byggir á nekt okkar - MYNDIR

Koverið: Sweet 7 á vegum Sugababes. Geisladiskur stúlknanna í söngsveitinni Sugababes (í. Sykurbeibin) kemur í verslanir á Bretlandseyjum í dag. Þrír meðlimir sveitarinnar virðast vera í fantaformi og til í tuskið ef marka má myndirnar af þeim sem koma til með að prýða gripinn. Nýi diskurinn heitir Sweet 7.
15.mar. 2010 - 07:00 Björg Magnúsdóttir

Tjúllandi gleði á tískuhátíð: Rautt, túberað hár í bland við tjull-pils - MYNDIR

Opnunarhátíð L'Oreal tískuhátíðarinnar var vægast sagt fríkuð, litrík og sannkallast listaverk fyrir augað. Þar strolluðu um módel í stórundarlegum klæðum; túberað hár, risastórar hárkollur, horn á höfði og beinagrinda-brimbretti. Umræddur atburður fór fram í Melbourne um liðna helgi.
14.mar. 2010 - 17:00 Marta María

Naglalökk í geggjuðum litum er það sem koma skal: Vertu með puttana á púlsinum

OPI línan er undir asískum áhrifum. Geggjaðir litir eru áberandi í vor-og sumarlínunni frá naglalakksframleiðandanum OPI. Þessi naglalökk eru íslenskum konum að góðu kunn enda hægt að fá þau á góðu verði. Hönnuðir OPI sóttu innblástur í austurlensk fræði með örlitlum áhrifum frá Feng Shui. Innblástur línunnar koma aðallega frá borginni Hong Kong en sú borg er ákaflega litrík og heillandi.
14.mar. 2010 - 14:00 Marta María

Ljúffengur kjúklingur í hnetusósu – UPPSKRIFT

Kjúklingur í hnetusósu er lostæti. Áttu afgang af kjúklingi sem þú veist ekki hvað þú átt að gera við eða langar þig bara í eitthvað gott? Það getur leynst mikill matur á heilum kjúklingum þótt búið sé að borða bringurnar og lærin. Þá er um að gera að búa til gómsæta pottrétti. Til að fá fullkomna nýtingu á heilum kjúklingi er búið til soð úr beinunum. Með heimagerðu soði er hægt að búa til kraftmiklar súpur án nokkurra aukefna. Meira um þær síðar.
14.mar. 2010 - 12:19 Marta María

Liz Hurley bannar syni sínum að horfa að kvikmyndir með Hugh Grant

Liz og Damian. Leikkonunni Liz Hurley er annt um sjö ára son sinn og vill alls ekki að hann horfi á hvaða bíómyndir sem er. Nú hefur hún sett blátt bann við myndum fyrrverandi kærastans, Hugh Grant, því hún segir að myndirnar sem hann hefur leikið í séu ekki á nógu góðu máli.
14.mar. 2010 - 09:00 Björg Magnúsdóttir

Jessica Simpson: Ég bursta ekki tennurnar - í alvöru! MYNDBAND

Sæmilega hvítar tennur miðað við litla burstun. Bandaríska söng- og leikkonan Jessica Simpson burstar ekki tennurnar. Þar hafið þið það. Eða hún burstar alltaf öðru hvoru og stundum nýtir hún peysu sína til þess að þurrka mesta skítinn af.
14.mar. 2010 - 07:00 Björg Magnúsdóttir

Munúðarleiki og brjóst með „come back“ í París - MYNDIR

Brjóst voru mjög áberandi á tískusýningu Louis Vuitton í París fyrir haust- og vetur 2010-2011. Í sem fæstum orðum var lína tískuhússins náttúruleg, gamaldags eða klassísk (eftir því hvernig litið er á málin) og elegant.
13.mar. 2010 - 16:34 Marta María

Funheit förðun í anda fjórða áratugarins: Lærðu réttu trixin

Fjórði áratugurinn með öllum sínum glamúr er þema vorlínu sænska snyrtivörumerkisins, Make Up Store. Línan er kvenleg og heillandi, enda lögðu konur fjórða áratugarins mikið á sig til að líta vel út fyrir eiginmennina. Í dag geta konur tekið það besta frá þessu tímabili, eins og förðun, hárgreiðslur og fatastíl. Það er enginn að segja að þær þurfi að fara alla leið í áhrifunum, eins og að strauja skyrtur eiginmanna sinna eða vera hlekkjaðar við eldavélar. Það er allt önnur saga. Í dag hugsa konur um útlitið til að efla sjálfstraustið og líða betur í eigin skinni.
13.mar. 2010 - 12:00 Marta María

1600 fermetra villa í Madrid er nýjasta verkefni A-Cero arkitektanna – MYNDIR

Það væsir ekki um fjölskylduna sem fékk stjörnuarkitektastofuna A-Cero til að teikna heimili sitt. Blankheit eru ekki að þvælast fyrir íbúum hússins og fengu arkitektarnir að hluta til frjálsar hendur þegar þeir komu þessu sköpunarverki sínu á koppinn. Eigandinn krafðist þess að línurnar yrðu tærar og ekkert myndi skyggja á fegrunarskynið. Það er óhætt að segja að það hafi tekist.
13.mar. 2010 - 09:00 Björg Magnúsdóttir

Svona halda þær sér mjóum: Hádegismaturinn í gær? Spínat og fræ!

Amanda Seyfried. Leikkonan Amanda Seyfried situr fyrir í kynþokkafullum myndaþætti hjá tímaritinu Esquire. Er hún meðal annars klædd í blúndugalla, háa sokka og nærföt.
13.mar. 2010 - 07:00 Björg Magnúsdóttir

Ótal faldar auglýsingar og tískumerki í nýja myndbandi Gaga - MYNDIR

Beyoncé til hægri er í kjól eftir Oscar Olima. Nýjasta myndband söngkonunnar Lady Gaga við lagið Telephone var frumsýnt í gær en í því nýtur hún liðsinnis Beyoncé Knowles. Aðeins fáeinum klukkustundum eftir að það var sent á internetið hafði það fengið ríflega 2 milljón áhorf.
12.mar. 2010 - 14:30 Marta María

Erlent fjölmiðlafólk streymir á HönnunarMars: Guardian, Coolhunting, Dazed & Confused meðal gesta.

Hönnun eftir Hrafnkel Birgisson. Á HönnunarMars streymir þaulreynt fjölmiðlafólk frá Japan, New York, Stokkhólmi, Brussel og Bretlandseyjum. Fjölmiðlafólkið á það sameiginlegt að ætla að kynna sér nýjustu strauma og stefnur í íslenskri hönnun sem verður í fyrirrúmi á hönnunarhátíðinni HönnunarMarsi sem stendur yfir 18. – 21. mars næstkomandi. Á HönnunarMarsi verða yfir hundrað hönnunartengdir viðburðir. Sem dæmi fyrirlestrar, sýningar, nýsköpun, innsetningar, kynningar og margt fleira.
12.mar. 2010 - 13:10 Marta María

Poppaðu barnaherbergið upp með litlum tilkostnaði - MYNDIR

Fallegu kjólarnir fá að njóta sín á herbergisveggnum. Guðný Hilmarsdóttir, ljósmyndari og móðir tveggja ungra barna, er búsett í Barcelona. Á dögunum flikkaði hún upp á herbergi dóttur sinnar. Hana langaði til að leyfa kjólunum og sætum stelpufötum að njóta sín og brá þá á það ráð að útbúa snaga sem hún hengdi á vegginn.
12.mar. 2010 - 09:00 Björg Magnúsdóttir

Mega-pæjuskór búnir til úr úrgangi fíla - MYNDIR

Það þarf kjörkugan kvenmann til þess að ganga um á þessum skóm. Hráefnið sem hönnunarlínan INSA nýtti í skóna hér til hliðar er hvorki ferskt né algengt í hælaskóm: nefnilega fíla-úrgangur. Hælaskórnir eru ríflega 25 sentímetra háir, með heljarinnar pinnahæl og fíla-úrgangs-platform, skreyttan fjölmörgum perlum að  neðanverðu.
12.mar. 2010 - 07:00 Björg Magnúsdóttir

Rússar velja sínar allra hallærislegustu stjörnur - MYNDIR

Rússneski vefmiðilinn Pravda sendir stjörnum þar í landi tóninn fyrir hallærislegan klæðaburð. Miðillinn hefur tekið saman myndir af þeim stjörnum sem þykja ekki smart. Þær eiga það flestar sameiginlegt að láta skína í húð á óvenjulegum stöðum. Til dæmis afturenda, bringu eða maga.
11.mar. 2010 - 17:00 Marta María

Kvenleg og sportleg lína frá Birnu vekur athygli

Íslenski fatahönnuðurinn Birna Einarsdóttir hefur gert það gott í hönnunarbransanum. Nú hefur splunkuný lína frá Birnu litið dagsins ljós.  Línan skartar kvenlegum en jafnframt svolítið rokkuðum fötum sem henta vel fyrir íslenskar konur.
12.mar. 2010 - 12:00 Marta María

Eyðilagði húðina í ljósabekkjum: Hrukkustraujárnið kom henni til bjargar

Unnur Þorsteinsdóttir hefur notað Hrukkustraujárnið í nokkur ár. Unnur Þorsteinsdóttir var búin að eyðileggja húð sína vegna ljósabekkjanotkunar. Hrukkustraujárnið hjálpaði henni að laga húðina og í dag er ekki að sjá á henni að hún hafi legið í ljósum. Unnur kynntist ljósabekkjunum þegar hún var 15 ára. Næstu tíu árin stundaði hún bekkina þrisvar til fjórum sinnum í viku þrátt fyrir fortölur móður sinnar, sem sagði bekkina stórhættulega.



Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit