08. des. 2009 - 14:00Marta María

Jarðþrúður Ásmundsdóttir er hér fremst í flokki ásamt gestum í opnunarteiti Meniga. Mynd: Úr einkasafni
Meniga hélt vel heppnað partý í Hugmyndahúsinu að Grandagarði 2, síðastliðinn fimmtudag, í tilefni af opnun heimilisfjármálavefsins Meniga.is. Á annað hundrað gesta, einkum úr sprotaheiminum, mættu á staðinn og hlýddu á kynningu frá aðstandendum Meniga en vefurinn www.meniga.is veitir fjármálaþjónustu fyrir einstaklinga með flottari og nýstárlegri hætti en áður hefur þekkst.