02. feb. 2010 - 15:00Marta María

Svona klæddust stjörnurnar síðustu vikuna – MYNDIR

Scarlett Johansson.

Scarlett Johansson. Mynd: GettyImages

Stjörnurnar þvældust mest um París, Los Angeles og New York síðustu vikuna. Það var mikið að gerast í París en þar sýndu nokkrir hönnuðir hátískulínur sínar. Stjörnurnar sjást gjarnan á vappi um Los Angeles og New York þar sem þessar tvær borgir eru vinsælir staðir til að búa á.

Alexa Chung var smart til fara þegar hún mætti á hátískusýningu Chanel í París. Hún skartaði að sjálfsögðu Chanel kjól og Chanel skóm til að vera örugglega smörtust.

Leikkonan Charlotte Gainsbourg var í tryllingslegum pels þegar hún mætti á Chanel sýninguna í París. Við pelsinn var hún í gallabuxum og kúrekaskóm úr rúskinni.

Söngkonan Gwen Stefani var eins og kotbóndi þegar hún arkaði um götur Los Angeles í vikunni. Hún braut eina mikilvæga reglu þegar kemur að fatasamsetningum. Aldrei klæðast víðu við vítt. Víða kápan hefði notið sín mun betur ef hún hefði verið í þröngum buxum við, eða verið í þröngum jakka við víðu buxurnar.

Marion Cotillard skartaði kjól frá Elie Saab þegar hún mætti á SAG verðlaunin í Los Angeles í síðustu viku. Kjóllinn vakti athygli enda mikið fyrir augað.

Lou Doillon sem er dóttir Jane Birkin mætti á Givenchy sýninguna í París í hvítri skyrtu. Með henni var hönnuðurinn Riccardo Tisci.

Nicole Richie er orðin dökkhærð og komin með þykkan og síðan topp eins og Inga Lind. Hún klæddist ljósum gallabuxum og síðri skræpóttri skyrtu. Um hálsinn var hún með hippalegan klút.

Enska tískupían Peaches Geldof klæddist lekkerri Dolce&Gabbana skyrtu þegar hún mætti á South Bank Show verðlaunin sem haldin voru á Dorchester hótelinu í Lundúnum. Við skyrtuna var hún í níðþröngu pilsi sem var alveg að gera góða hluti.

Stílistinn Rachel Zoe klæddist klofstígvélum og Chanel jakka þegar hún fór út að borða í Los Angeles í vikunni. Undir jakkanum var hún í stuttum svörtum kjól.

Scarlett Johansson var blómleg í rósóttum kjól þegar hún mætti í teiti í New York. Þegar vora tekur verða pottþétt allar skvísurnar komnar í svona kjóla. Við kjólinn var hún í einföldum flugfreyjuskóm. Hvað er það?

Christina Aguilera var þokkafull í prjónakjól þegar hún var mynduð í Los Angeles.

Naomi Watts var dúðuð þegar labbaði um stræti New York borgar með synina tvo, Alexander tveggja ára og Samuel 13 mánaða. Hún skartaði hnésíðri dúnkápu og stígvélum. Svona eiga skvísumömmur að klæða sig.

Demi Moore er ekki orðin að neinu. Hún var mynduð ásamt leikaranum Kevin Bacon í New York á mánudaginn á góðgerðarsamkomu.

Left Right


14.mar. 2010 - 17:00 Marta María

Naglalökk í geggjuðum litum er það sem koma skal: Vertu með puttana á púlsinum

OPI línan er undir asískum áhrifum. Geggjaðir litir eru áberandi í vor-og sumarlínunni frá naglalakksframleiðandanum OPI. Þessi naglalökk eru íslenskum konum að góðu kunn enda hægt að fá þau á góðu verði. Hönnuðir OPI sóttu innblástur í austurlensk fræði með örlitlum áhrifum frá Feng Shui. Innblástur línunnar koma aðallega frá borginni Hong Kong en sú borg er ákaflega litrík og heillandi.
14.mar. 2010 - 14:00 Marta María

Ljúffengur kjúklingur í hnetusósu – UPPSKRIFT

Kjúklingur í hnetusósu er lostæti. Áttu afgang af kjúklingi sem þú veist ekki hvað þú átt að gera við eða langar þig bara í eitthvað gott? Það getur leynst mikill matur á heilum kjúklingum þótt búið sé að borða bringurnar og lærin. Þá er um að gera að búa til gómsæta pottrétti. Til að fá fullkomna nýtingu á heilum kjúklingi er búið til soð úr beinunum. Með heimagerðu soði er hægt að búa til kraftmiklar súpur án nokkurra aukefna. Meira um þær síðar.
14.mar. 2010 - 12:19 Marta María

Liz Hurley bannar syni sínum að horfa að kvikmyndir með Hugh Grant

Liz og Damian. Leikkonunni Liz Hurley er annt um sjö ára son sinn og vill alls ekki að hann horfi á hvaða bíómyndir sem er. Nú hefur hún sett blátt bann við myndum fyrrverandi kærastans, Hugh Grant, því hún segir að myndirnar sem hann hefur leikið í séu ekki á nógu góðu máli.
14.mar. 2010 - 09:00 Björg Magnúsdóttir

Jessica Simpson: Ég bursta ekki tennurnar - í alvöru! MYNDBAND

Sæmilega hvítar tennur miðað við litla burstun. Bandaríska söng- og leikkonan Jessica Simpson burstar ekki tennurnar. Þar hafið þið það. Eða hún burstar alltaf öðru hvoru og stundum nýtir hún peysu sína til þess að þurrka mesta skítinn af.
14.mar. 2010 - 07:00 Björg Magnúsdóttir

Munúðarleiki og brjóst með „come back“ í París - MYNDIR

Brjóst voru mjög áberandi á tískusýningu Louis Vuitton í París fyrir haust- og vetur 2010-2011. Í sem fæstum orðum var lína tískuhússins náttúruleg, gamaldags eða klassísk (eftir því hvernig litið er á málin) og elegant.
13.mar. 2010 - 16:34 Marta María

Funheit förðun í anda fjórða áratugarins: Lærðu réttu trixin

Fjórði áratugurinn með öllum sínum glamúr er þema vorlínu sænska snyrtivörumerkisins, Make Up Store. Línan er kvenleg og heillandi, enda lögðu konur fjórða áratugarins mikið á sig til að líta vel út fyrir eiginmennina. Í dag geta konur tekið það besta frá þessu tímabili, eins og förðun, hárgreiðslur og fatastíl. Það er enginn að segja að þær þurfi að fara alla leið í áhrifunum, eins og að strauja skyrtur eiginmanna sinna eða vera hlekkjaðar við eldavélar. Það er allt önnur saga. Í dag hugsa konur um útlitið til að efla sjálfstraustið og líða betur í eigin skinni.
13.mar. 2010 - 12:00 Marta María

1600 fermetra villa í Madrid er nýjasta verkefni A-Cero arkitektanna – MYNDIR

Það væsir ekki um fjölskylduna sem fékk stjörnuarkitektastofuna A-Cero til að teikna heimili sitt. Blankheit eru ekki að þvælast fyrir íbúum hússins og fengu arkitektarnir að hluta til frjálsar hendur þegar þeir komu þessu sköpunarverki sínu á koppinn. Eigandinn krafðist þess að línurnar yrðu tærar og ekkert myndi skyggja á fegrunarskynið. Það er óhætt að segja að það hafi tekist.
13.mar. 2010 - 09:00 Björg Magnúsdóttir

Svona halda þær sér mjóum: Hádegismaturinn í gær? Spínat og fræ!

Amanda Seyfried. Leikkonan Amanda Seyfried situr fyrir í kynþokkafullum myndaþætti hjá tímaritinu Esquire. Er hún meðal annars klædd í blúndugalla, háa sokka og nærföt.
13.mar. 2010 - 07:00 Björg Magnúsdóttir

Ótal faldar auglýsingar og tískumerki í nýja myndbandi Gaga - MYNDIR

Beyoncé til hægri er í kjól eftir Oscar Olima. Nýjasta myndband söngkonunnar Lady Gaga við lagið Telephone var frumsýnt í gær en í því nýtur hún liðsinnis Beyoncé Knowles. Aðeins fáeinum klukkustundum eftir að það var sent á internetið hafði það fengið ríflega 2 milljón áhorf.
12.mar. 2010 - 14:30 Marta María

Erlent fjölmiðlafólk streymir á HönnunarMars: Guardian, Coolhunting, Dazed & Confused meðal gesta.

Hönnun eftir Hrafnkel Birgisson. Á HönnunarMars streymir þaulreynt fjölmiðlafólk frá Japan, New York, Stokkhólmi, Brussel og Bretlandseyjum. Fjölmiðlafólkið á það sameiginlegt að ætla að kynna sér nýjustu strauma og stefnur í íslenskri hönnun sem verður í fyrirrúmi á hönnunarhátíðinni HönnunarMarsi sem stendur yfir 18. – 21. mars næstkomandi. Á HönnunarMarsi verða yfir hundrað hönnunartengdir viðburðir. Sem dæmi fyrirlestrar, sýningar, nýsköpun, innsetningar, kynningar og margt fleira.
12.mar. 2010 - 13:10 Marta María

Poppaðu barnaherbergið upp með litlum tilkostnaði - MYNDIR

Fallegu kjólarnir fá að njóta sín á herbergisveggnum. Guðný Hilmarsdóttir, ljósmyndari og móðir tveggja ungra barna, er búsett í Barcelona. Á dögunum flikkaði hún upp á herbergi dóttur sinnar. Hana langaði til að leyfa kjólunum og sætum stelpufötum að njóta sín og brá þá á það ráð að útbúa snaga sem hún hengdi á vegginn.
12.mar. 2010 - 09:00 Björg Magnúsdóttir

Mega-pæjuskór búnir til úr úrgangi fíla - MYNDIR

Það þarf kjörkugan kvenmann til þess að ganga um á þessum skóm. Hráefnið sem hönnunarlínan INSA nýtti í skóna hér til hliðar er hvorki ferskt né algengt í hælaskóm: nefnilega fíla-úrgangur. Hælaskórnir eru ríflega 25 sentímetra háir, með heljarinnar pinnahæl og fíla-úrgangs-platform, skreyttan fjölmörgum perlum að  neðanverðu.
12.mar. 2010 - 07:00 Björg Magnúsdóttir

Rússar velja sínar allra hallærislegustu stjörnur - MYNDIR

Rússneski vefmiðilinn Pravda sendir stjörnum þar í landi tóninn fyrir hallærislegan klæðaburð. Miðillinn hefur tekið saman myndir af þeim stjörnum sem þykja ekki smart. Þær eiga það flestar sameiginlegt að láta skína í húð á óvenjulegum stöðum. Til dæmis afturenda, bringu eða maga.
11.mar. 2010 - 17:00 Marta María

Kvenleg og sportleg lína frá Birnu vekur athygli

Íslenski fatahönnuðurinn Birna Einarsdóttir hefur gert það gott í hönnunarbransanum. Nú hefur splunkuný lína frá Birnu litið dagsins ljós.  Línan skartar kvenlegum en jafnframt svolítið rokkuðum fötum sem henta vel fyrir íslenskar konur.
12.mar. 2010 - 12:00 Marta María

Eyðilagði húðina í ljósabekkjum: Hrukkustraujárnið kom henni til bjargar

Unnur Þorsteinsdóttir hefur notað Hrukkustraujárnið í nokkur ár. Unnur Þorsteinsdóttir var búin að eyðileggja húð sína vegna ljósabekkjanotkunar. Hrukkustraujárnið hjálpaði henni að laga húðina og í dag er ekki að sjá á henni að hún hafi legið í ljósum. Unnur kynntist ljósabekkjunum þegar hún var 15 ára. Næstu tíu árin stundaði hún bekkina þrisvar til fjórum sinnum í viku þrátt fyrir fortölur móður sinnar, sem sagði bekkina stórhættulega.
11.mar. 2010 - 14:00 Marta María

Smakkaðu sushi með hýðishrísgrjónum eða trefjablöndu

Austurlenski veitingastaðurinn Nings hafa sett tvo holla og nýja sushi rétti á markað. Um er að ræða sushi sem gert er úr hýðishrísgrjónum og sushi með Multi Grain trefjablöndu. Báðar þessar tegundir eiga það sameiginlegt að vera án sykurs, salts og ediks. Þær henta því vel fyrir þá sem huga að heilbrigði og hollustu.
11.mar. 2010 - 13:00 Björg Magnúsdóttir

Þessi snekkja setur L-ið í lúxus: Tilbúin strönd, þyrlupallur og bókasafn - MYNDIR

Snekkjan á siglingu. Á snekkjusýningu í Abu Dhabi kenndi ýmissa grasa. Meðal annars sviptu hönnuður hulunni af snekkju sem gengur unnir vinnuheitinu færanlega eyjan. Verðið á henni eru litla 160 milljónir Bandaríkjadala sem eru allt of margar íslenskar krónur til þess að umreikna þá.
11.mar. 2010 - 09:00 Björg Magnúsdóttir

Leikkona kynnir töfralausn: Fær karla til þess að horfa í augu en ekki á brjóst - MYNDBAND

Marion Cotillard. Óskarsverðlaunahafinn Marion Cotillard er farin í herberð gegn bandarískum karlmönnum sem stara á brjóst hennar þegar þeir ræða við hana. Cotillard kynnir lausn á vandamálinu, sem hún telur að fleiri konur eigi við að etja, í nýju myndbandi sem hún hefur sent frá sér. Lausnin er fólgin í gervibrjóstum sem setja skal upp á enni við komandi konu og kallast Forehead Tittaes. Gervibrjóstin eiga að valda því að karlmenn horfi í augu kvenna þegar þeir ræða við þær, en ekki á efri hluta bringunnar.
11.mar. 2010 - 07:00 Björg Magnúsdóttir

Heitt stöff: Jennifer Aniston og Gerard Butler í hlutverkaleikum - MYNDIR

Apríl 2010: Butler og Aniston framan á.

Jennifer Aniston og Gerard Butler eru framan apríl-eintaki tímaritsins W sem út kemur seint í mars. Innan í blaðinu er síðan myndaþáttur þar sem skötuhjúin fara með aðalhlutverkin í, í tilefni frumsýningu kvikmyndarinnar Bounty Hunter, sem þau eru einmitt líka í aðalhlutverkum í. Bounty Hunter verður frumsýnd vestanhafs 18. mars næstkomandi.

10.mar. 2010 - 17:00 Marta María

Bojan Simic hannaði eigulegt einbýli í Melbourne - MYNDIR

Ástralski arkitektinn Bojan Simic hannaði stórskemmtilegt hús í Melbourne í heimalandi sínu. Hann fékk algerlega frjálsar hendur við hönnunina og minnir húsið svolítið á geimskip en framhlið hússins er nánast úr gleri, uppúr og niðurúr.

skipuleggur ýmislegt skemmtileg.

Pistillmartamaria@pressan.is

Karlrembur á konubílum

Mitt femíníska hjarta tók kipp þegar þriggja ára sonur minn benti á litla krúttlega Suzuki bifreið í bílablaði og tilkynnti að þetta væri „konubíll“.



Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit