16. okt. 2010 - 14:00Snæfríður Ingadóttir

Smart og einfalt. 15 fm sumarhús sem auðvelt er að stækka í takt við vaxandi fjárhag. Mynd: addaroom.se
Í Svíþjóð er leyfilegt að byggja 15 fm sumarhús án strangra byggingarleyfa. Ótrúlegt en satt þá virðist þessi stærð duga til að skapa hina fullkomnu sumarhúsasælu og sannast þar með hið fornkveðna að „less is more.“
Svona 15 fm sumarhús, svokölluð „friggebod“, eru mjög vinsæl í Svíþjóð og er gaman að sjá hversu mikið Svíarnir geta gert úr litlu.
Sænska fyrirtækið
add-a-room sérhæfir sig í framleiðslu á svona húsum sem þeir kalla one+. Það sem er gaman við one+ húsin er að það er hægt að púsla þeim saman í stærra hús. Grunneining er alltaf 15 fm en ef fjárhagurinn vænkast þá er hægt að bæta við. Þetta er afar sniðugt því þannig getur sumarhúsið vaxið í takt við efni og aðstæður. Kerfið er einfaldlega eins og lego fyrir fullorðna.
Kíkið á myndirnar hér fyrir neðan af þessarri skemmtilegu hönnun.