04. feb. 2010 - 12:00Marta María

ROBERT er splunkunýr og vel hannaður veitingastaður í New York – MYNDIR

Mynd: GettyImages

Það er fátt sem toppar það að sitja á huggulegum veitingastað í New York. Nú hefur enn einn smartheitastaðurinn bæst í hópinn. Hann ber nafnið ROBERT og er staðsettur á efstu hæð safnsins Museum of Arts and Design. Af staðnum er óborganlegt útsýni yfir Columbus Circle, Central Park, Broadway og Central Park West.

Veitingastaðurinn ROBERT er þokkafullur og rómantískur en mikið var lagt í innviði hans. Staðurinn skartar glannalegum litum eins og bleikum og rauðum. Mikið er lagt upp úr lýsingu staðarins og er loftið skreytt litríku plexígleri til að ýta undir ævintýralega lýsingu. Arkitektinn Johanna Grawunder hannaði lýsinguna. Hún notar díóður. Að hluta til er lýsingin eins og í farsíma. Frumleikinn er allsráðandi.

Á veggjunum eru risastórir flatskjáir. Þeir eru þó ekki í þeim tilgangi að hægt sé að fylgjast með íþróttaleikjum heldur eru video-innsetningar eftir fræga listamenn sýndar á staðnum. Þegar staðurinn opnaði var videoverkið, Orbit 2, eftir listakonuna Jennifer Steinkamp frumsýnt.

Hönnun staðarins var í höndum Schefer Design arkitektastofunnar. Eins og sést á myndunum er mikið gert úr útsýni staðarins. Meðfram gluggunum eru langborð og geta gestir þeirra notið útsýnisins. Í hjarta staðarins ríkir svolítið önnur stemning en þar eru borðin lág með notalegum sófum og stólum. Þarna er tilvalið að fara og fá  sér einn drykk áður en sest er til borðs.

 

Left Right



02.sep. 2010 - 17:35 Marta María

Hvar ætlar þú að vera 23.nóvember? Haltu þér fast, Lanvin mætir í sænska móðurskipið

Alber Elbaz, hönnður Lanvin. Ár hvert fær sænska móðurskipið, H&M, fræga hönnuði til að hanna fyrir sig tískulínur. Í fyrra var það Jimmy Choo en nú er það franska tískumerkið Lanvin. Merkið er þekkt fyrir súpersvöl skvísuföt sem fá hverja konu til að emja af kæti.
02.sep. 2010 - 15:00 Marta María

Kelly Osbourne sýnir grannan kroppinn: Elskar að vera mjó – MYNDIR

Kelly Osbouren og Robin Antin. Síðan Kelly Osbourne losaði sig við 18 kíló hefur hún gjörbreyst. Hún fór úr því að vera nettur pönkari í það að vera nett skinka eða hvað? Svart stutt hárið vék fyrir ljósum lokkum og ýkti andlitsfarðinn vék fyrir dömulegri förðun. Það er þó spurning hvað hún getur lifað lengi sem skinka því eitt sinn pönkari ávallt pönkari.
02.sep. 2010 - 11:00 Marta María

Jessica Alba og Natalie Portman stálu senunni í Feneyjum: Sjáið kjólana – MYNDIR

Alba og Portman voru flottastar á rauða dreglinum. Kjólarnir á rauða dreglinum í ár eru kvenlegir og rómantískir. Það voru samt tvær leikkonur sem báru af á rauða dreglinum á Kvikmyndahátíðinni í Feneyjum. Um það sáu Jessica Alba og Natalie Portman. Kjólarnir þeirra voru ævintýralegir en samt kynþokkafullir. Er hægt að sameina þetta tvennt?
02.sep. 2010 - 08:23 Marta María

Kim Cattrall átti í mestu vandræðum með klæðaburð í SATC2: Allt of „stór“ fyrir hönnunarföt

Það kostaði blóð svita og tár að velja fötin á þessar prinsessur. Kynþokkafulla leikkonan, Kim Cattrall, segist hafa átt í mesta barsli við að finna sér föt þegar fyrir þættina, Beðmál í borginni og samnefndar kvikmyndir. Hún passi einfaldlega ekki í föt hátískuhönnuðanna því hún sé svo „stór“.
02.sep. 2010 - 07:50 Marta María

Margrét Rósa sigraði árlega sultukeppni í Mosfellsdalnum: Hér er leyniuppskriftin

Margrét Rósa Einarsdóttir er hér með blómvönd í fanginu. Margrét Rósa Einarsdóttir staðarhaldari í Iðnó, eigandi Pisa og húsfrú í Tjaldanesi, gerir hlutina yfirleitt með stæl eða sleppir þeim. Um síðustu helgi var efnt til árlegrar sultukeppni á útimarkaðnum Mosskógum í Mosfellsdalnum. Hún segist aldrei ætla að gera sultu aftur.
02.sep. 2010 - 13:00 Marta María

Langar þig á ströndina en kemst ekki? Færðu ströndina heim til þín

Calanques línan er frískandi. Innblástur línunnar Calanques frá L'Occitane er sótt í fyrrnefnt svæði í suðurhluta Provence. Calanques einkennist af litlum víkum og hvítum klettum. Grænn og kryddaður ilmur gróðursins myndar andstæðu við djúpan bláan lit hafsins og himinsins.
01.sep. 2010 - 18:00 Marta María

Vertu æðisleg í framan með undrapúðrinu sem allar eru að tala um

Wonder púðrin frá Make Up Store eru að gera góða hluti. Reglulega koma vörur sem allar konur verða að eignast. Nú er komið undrapúður á markað sem allar skvísur eru að tala um núna. Púðrið heitir Wonder Kit og er frá sænsku pæjubúðinni Make Up Store. Eins og nafnið gefur til kynna geta þessi púður framkallað algera fantaflotta áferð á húðina.
01.sep. 2010 - 16:00 Marta María

Innlit í heillandi einbýí í Varsjá í Póllandi – MYNDIR

Það er ekki á hverjum degi sem Íslendingar sjá myndir frá heimilum í Póllandi. Hér er eitt súpersmart sem hannað er af Marek Rytych. Húsið er í Varsjá í Póllandi og sérlega skemmtilegt.
01.sep. 2010 - 14:00 Marta María

Julia Roberts er hamingjusöm á baðfötum: Smá augnkrem getur gert kraftaverk

Það eru örugglega margar sem myndu vilja vera jafn flottar á baðfötum og Julia Roberts. Það var því ekkert að undra að hún hafi brosað hringinn þegar hún baðaði sig í sjónum við strendur Hawaii á dögunum. Leikkonan fer einmitt með hlutverkið í myndinni Borða, biðja, elska sem sýnd verður á Íslandi síðar í þessum mánuði.
01.sep. 2010 - 12:00 Marta María

Erfiðar líkamsæfingar auka vöðvamassann: Þú verður að passa skammtastærðina

Ert þú að borða of mikið eftir æfingar? Það eru alltaf einhverjir sem gefast upp á líkamsræktarátakinu áður en kílóin fara að hrynja af fyrir alvöru. Margir halda að það eitt og sér að æfa markvisst leiði til minni líkamsþyngdar. Það er því miður ekki rétt, því að markvissar og erfiðar æfingar geta leitt til þess að fólk þyngist, ef það borðar ekki rétt.
01.sep. 2010 - 09:00 Marta María

Allt getur gerst: Villikisan Peaches Geldof er búin að breyta algerlega um stíl - MYNDIR

Partýskvísan og villikisan, Peaches Geldof, hefur náð því að vera í hálft ár með leikstjóranum Eli Roth, sem nota bene hefur oft djammað á Kaffibarnum. Síðan parið byrjaði saman hefur gengið á ýmsu en einn mesti skandallinn er án efa þegar kynlífsmyndir af henni í eiturlyfjavímu láku á netið.
01.sep. 2010 - 07:00 Marta María

Lindsay Lohan þráir gamla ferilinn: Segist vera gjörbreytt manneskja eftir meðferðina

Ný kona? Lindsay Lohan lofar bót og betrun í nýjasta Vanity Fair. Leikkonan Lindsay Lohan er nýkomin úr meðferð en eins og Veröldin greindi frá á dögunum kostaði meðferðin um 16 milljónir. Einhverju hefur meðferðin skilað því í viðtali við Vanity Fair segist hún vera gjörbreytt manneskja og játar að hún iðrist.
31.ágú. 2010 - 17:00 Marta María

Svona var Björk á Polar-verðlaununum: Skipti um föt í miðju boði – MYNDIR

Söngkonan Björk Guðmundsdóttir hlaut Polar-verðlaunin í Svíþjóð í gær. Karl Gústaf Svíakonungur afhenti verðlaunin sem veitt eru af Konunglegu sænsku tónlistarakademíunni. Allt fína fólkið í Svíþjóð var viðstatt þegar hún fékk verðlaunin.
31.ágú. 2010 - 14:59 Marta María

Ertu nokkuð að blekkja þig? Borðar þú eins holla fæðu og þú heldur?

Það er beinlínis óyfirstíganlegt að fara eftir öllum þeim megrunarkúrum og ráðleggingum sem fólk sér í hinum ýmsu ljósvakamiðlum nú til dags. Það getur verið erfitt fyrir fólk að vita hvort það er raunverulega að leggja sér holla fæðu til munns.
31.ágú. 2010 - 12:43 Marta María

Hvernig fer Lady GaGa að því að vera svona mjó? Svarið er hérna!

Það skiptir miklu máli fyrir Lady GaGa að borða hollan mat svo hún hafi kraft til að dansa og syngja á sviðinu. Það er ekki hægt að segja að aukakílóin séu að trufla söngkonuna Lady GaGa. Á meðan á tónleikaferðalagi hennar stendur gætir hún þess vel hvað hún setur ofan í sig svo hún hafi næga orku í öllum djöfulganginum.
31.ágú. 2010 - 09:40 Marta María

Innlit í svalasta húsbát allra tíma: Vel hægt að dansa á þilinu – MYNDIR

Einhverja dreymir um húsbíl, kannski ekki marga, en allavega nokkra. Sögurnar af þeim sem dreymir um húsbát eru fátíðari. Húsbáturinn sem Rost Niderehe arkitektastofan hannaði gæti þó breytt viðhorfi fólks til húsbáta. Fyrrnefndur bátur er með því svalara sem siglir um.

31.ágú. 2010 - 07:00 Marta María

Svona lítur Emmy-hárið út á rauða dreglinum: Engar smágreiðslur – MYNDIR

Kim Kardashian og Heidi Klum voru báðar með uppsett hár á Emmy.

Hárið er prýði hverrar konur og skiptir máli að það sé í lagi. Á Emmy verðlaununum voru hárgreiðslurnar miklar um sig, hvort sem hárið á stjörnunum var uppsett eða slegið. Eitt er víst og það er að krullur eru að koma sterkar inn.

30.ágú. 2010 - 18:00 Marta María

Bobbi Brown bjargar málunum: Sótti innblástur í gallabuxur og rósir

Snyrtivörudívan Bobbi Brown lofar því að nýjasta förðunarlínan, Denim & Rose, geti framkallað störnuútlit á aðeins fimm mínútum. Þegar kittið er skoðað kemur í ljós að það er ekki svo langt frá raunveruleikanum.
30.ágú. 2010 - 16:00 Marta María

Innlit í ofursvala „Loft“ íbúð í New York – MYNDIR

Hvernig er hægt að sameina heimili, bókasafn og listagallerí? Það eru örugglega ekki margir sem gætu sameinað þetta þrennt án þess að útkoman yrði klúðursleg. UNStudio arkitektastofan náði að gera þetta á smekklegan og flottan hátt.

30.ágú. 2010 - 14:00 Marta María

Glamúr á Emmy verðlaununum: Kvenlegar línur eru að gera allt vitlaust – MYNDIR

January Jones, Elisabeth Moss og Christina Hendricks.

Emmy verðlaunin fóru fram um helgina og var rauði dregillinn þéttsetinn af vel klæddum stjörnum. Leikkonurnar úr Mad Man þáttunum, sem sýndir eru á Stöð 2, stálu senunni hvað klæðaburð varðar og voru lang flottastar enda sigraði þátturinn þriðja árið í röð.


er búin að finna mojo-ið...

Pistillmartamaria@pressan.is

Hvað gerðist???

Með fullan bíl af börnum, ólétta vinkonu og eggjarauður í krukku, brunaði ég út úr bænum alsæl með tilveruna. Svokallað húsmæðraorlof var við það að hefjast, eða það héldum við vinkonurnar að minnsta kosti



Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit