08. júl. 2009 - 10:00Marta María

Heimatilbúið pestó með kryddjurtum úr garðinum. Mynd: MM
Heitasta sumartrendið 2009 er að rækta sínar eigin kryddjurtir. Það er að sjálfsögðu frábært framtak en til þess að ræktunin borgi sig þarf fólk að vera sérlega duglegt við að nýta sér uppskeruna. Að gera pestó úr ferskum kryddjurtum er ekki bara bragðgott heldur einnig frekar hollt því með því að nota pestó út á salöt eða pasta þá þarf enga aðra sósu. Einnig er hægt að nota pestóið til að búa til litla krúttlega brauðteninga sem notaðir eru út á salöt.
Handfylli af ferskri basilíku
Handfylli af kóríander
1 dl ólífuolía
4 hvítlauksrif, marin
3 msk salthnetur
Rifinn parmesanostur eftir smekk
Safi úr hálfri límónu
Allt sett í blandara og þeytt saman þangað til hráefnið er orðið vel maukað. Ef þú ætlar að nota pestóið sem salatsósu er best að hafa það sér þannig að hver og einn geti fengið sér. Þetta pestó er líka mjög gott út á pasta.
Brauðteningar með pestó
Ef þú átt mikið af brauði sem liggur undir skemmdum skaltu skera það niður í teninga. Svo skaltu setja það í ofnskúffu og hella pestóinu yfir. Hrærðu vel í brauðteningunum áður en þú setur brauðteningana inn í ofn. Bakið við 150 gráður í sirka 30 mínútur eða þangað til brauðteningarnir eru orðnir stökkir og girnilegir.