03. feb. 2010 - 15:00Marta María
Mexíkósk eggjapönnukaka með tómata, kartöflu og sveppafyllingu – UPPSKRIFT

Glaðleg eggjapönnukaka með góðri fyllingu. Mynd: Marta María
Stundum langar mann í eitthvað gott en nennir ómögulega að fara út í mikla eldamennsku. Ef þú átt egg og tómata og svolítið krydd þá er málið að búa sér til eggjapönnuköku og fylla hana með gúmmúlaði.
Hér kemur uppskrift fyrir einn. Hafði þó í huga að það má leika sér óendanlega með hráefnið og hver og einn getur valið það hráefni sem viðkomandi finnst gott. Í staðinn fyrir kartöflur má nota sætar kartöflur. Ef þú átt til dæmis afgang af kjúklingi eða öðru kjöti má setja það út í.
2 egg
1 msk mjólk/hrísmjólk/sojamjólk
Þetta er pískað vel saman og geymt á kantinum meðan fyllingin er búin til.
Olía til steikingar
3 litlar kartöflur, skornar í smáa teninga
4 sveppir, smátt skornir
¼ salatlaukur, smátt skorinn
2 sneiðar af reyktri kjúklingaskinku
2 vel þroskaðir tómatar, smátt skornir
½ tsk oregano
½ kóríander
Reykt paprika af hnífsoddi
½ tsk cayanne pipar
1 tsk hunang
Settu olíu á pönnu og skerðu kartöflurnar í smáa teninga. Settu lok á pönnuna á meðan þær eru að steikjast. Láttu þær steikjast á pönnunni í sjö mínútur áður en þú bætir lauknum og sveppunum út í. Þá er kryddinu bætt út í ásamt kjúklingaskinkunni. Að lokum eru tómötunum settir út í ásamt hunanginu. Látið þetta malla allt saman í fimm mínútur.
Þá er fyllingin tekin af pönnunni og sett í skál. Settu lok yfir og láttu hana taka sig á meðan eggjapönnukakan sjálf er búin til.
Settu örlitla olíu í viðbót á pönnuna. Þá er eggjahrærunni hellt út á. Settu lok á pönnuna á meðan hún er að steikjast. Láttu hana malla í fimm mínútur á háum hita og snúðu henni svo við og bakaðu á hinni hliðinni í þrjár mínútur.
Þá er eggjapönnukakan tilbúin. Leggðu hana á disk og settu fyllinguna inn í. Lokaðu eggjapönnukökunni með tannstöngli eða skrautpinna. Gott er að borða örlítið salat til að gera máltíðina fullkomna.
16.mar. 2010 - 17:00
Marta María
Í góðærinu skipti enginn um eldhús hjá sér, nema það kostaði margar milljónir. Fólki hættir hinsvegar ekki að langa í falleg eldhús þó svo að það eigi minni peninga í buddunni. Þegar eldhúsið er endurbætt er hægt að fara margar heillandi leiðir án þess að það kosti of mikið. Þegar skipt er um eldhús, eða gamla eldhúsið er hresst við, skiptir miklu máli að hafa góðan smið með sér.
16.mar. 2010 - 15:00
Marta María
Vorið er á næsta leiti ef fatastíll stjarnanna er skoðaður síðustu vikuna. Brad Pitt og fjölskylda dvelja á Ítalíu núna. Hann var myndaður í góðum fíling í Flórens. Bóhem-útlitið var allráðandi, gallabuxur, hippalegur jakki, húfa og hliðartaska. Svo ekki sé minnst á skeggið, ætli hann sé að taka þátt í átaki?
16.mar. 2010 - 11:30
Björg Magnúsdóttir
Brjóst kvenna fara óðum stækkandi og verður stækkunin ekki eingöngu skýrð með aukinni líkamsþyngd kvenna. Verslunin Selfridges á Bretlandseyjum hefur aukið sölu á brjóstahöldurum í stærðum D til G um 50% síðan árið 2005. Nú hefur sama verslun tilkynnt um sölu á enn stærri stærð en verið hefur hingað til, stærð K.
16.mar. 2010 - 10:47
HönnunarMars, íslensk hönnunarhátíð fer fram í annað skipti á Íslandi, frá næsta fimmtudegi til sunnudags. Markmið hátíðarinnar er að kynna fyrir gestum nýjustu strauma og stefnur í íslenskri hönnun. Grasrót íslenska hönnunarsamfélagsins, yfir 500 einstaklingar, tekur þátt á hátíðinni og við skipulagningu ríflega 100 viðburða hennar.
16.mar. 2010 - 09:00
Marta María
Í þriðja skipti stendur Fatahönnunarfélag Íslands fyrir viðburðinum SHOWROOM REYKJAVÍK sem er hluti af HönnunarMars. Þar koma saman valinkunnir íslenskir fatahönnuðir og kynna nýjustu vörur sínar fyrir innkaupaaðilum og fagfólki í tískuheiminum. Lovísa Óladóttir, sem situr í stjórn Fatahönnunarfélags Íslands, segir í samtali við Pressuna að stemning meðal fatahönnuða á Íslandi sé svakalega mikil - svo ekki sé meira sagt.
16.mar. 2010 - 07:00
Marta María
Leikkonan Kate Winslet og kvikmyndaleikstjórinn, Sam Mendes, eru skilin eftir tæplega sjö ára hjónaband. Parið er sagt hafa tekið sameiginlega ákvörðun um að fara í sitthvora áttina. Saman eiga Kate og Sam sex ára gamlan son, Joe Alfie Winslet Mendes, en Kate átti dótturina Miu Honey fyrir, sem er níu ára.
15.mar. 2010 - 16:00
Marta María
Söngkonan Cheryl Cole er endanlega búin að segja skilið við eiginmann sinn, Ashley Cole. Þau hittust um helgina til að ræða málin. Ashley hélt að hann gæti hugsanlega unnið hana til baka enda hefur mamma hans reynt að hjálpa honum með því að tala Cheryl til. Það var hinsvegar allt annað uppi á teningnum.
15.mar. 2010 - 13:00
Marta María
Það var mikið um dýrðir þegar stuðpinninn Páll Óskar hélt upp á 40 ára afmælið sitt. Veislan fór fram á skemmtistaðnum Nasa síðastliðinn laugardag og komust færri að en vildu. Páll Óskar var eins og sönn rokkstjarna í pallíettuskreyttum jakkafötum. Glamúrinn var allsráðandi og ekki sást fýlusvipur á neinum.
15.mar. 2010 - 12:00
Marta María
Það skiptir miklu máli að borða fisk allavega einu sinni í viku, helst oftar. Steiktur fiskur og steiktur fiskur er ekki það sama. Prófaðu að skipta raspinu út fyrir sesamfræ. Sesamfræ eru ekki bara bragðgóð heldur innihalda þau góða fitu og eru einnig auðug af járni. Í þessa uppskrift er notaður karfi en auðvitað má skipti fisktegundinni út.
15.mar. 2010 - 09:00
Björg Magnúsdóttir
Geisladiskur stúlknanna í söngsveitinni Sugababes (í. Sykurbeibin) kemur í verslanir á Bretlandseyjum í dag. Þrír meðlimir sveitarinnar virðast vera í fantaformi og til í tuskið ef marka má myndirnar af þeim sem koma til með að prýða gripinn. Nýi diskurinn heitir Sweet 7.
15.mar. 2010 - 07:00
Björg Magnúsdóttir
Opnunarhátíð L'Oreal tískuhátíðarinnar var vægast sagt fríkuð, litrík og sannkallast listaverk fyrir augað. Þar strolluðu um módel í stórundarlegum klæðum; túberað hár, risastórar hárkollur, horn á höfði og beinagrinda-brimbretti. Umræddur atburður fór fram í Melbourne um liðna helgi.
14.mar. 2010 - 17:00
Marta María
Geggjaðir litir eru áberandi í vor-og sumarlínunni frá naglalakksframleiðandanum OPI. Þessi naglalökk eru íslenskum konum að góðu kunn enda hægt að fá þau á góðu verði. Hönnuðir OPI sóttu innblástur í austurlensk fræði með örlitlum áhrifum frá Feng Shui. Innblástur línunnar koma aðallega frá borginni Hong Kong en sú borg er ákaflega litrík og heillandi.
14.mar. 2010 - 14:00
Marta María
Áttu afgang af kjúklingi sem þú veist ekki hvað þú átt að gera við eða langar þig bara í eitthvað gott? Það getur leynst mikill matur á heilum kjúklingum þótt búið sé að borða bringurnar og lærin. Þá er um að gera að búa til gómsæta pottrétti. Til að fá fullkomna nýtingu á heilum kjúklingi er búið til soð úr beinunum. Með heimagerðu soði er hægt að búa til kraftmiklar súpur án nokkurra aukefna. Meira um þær síðar.
14.mar. 2010 - 12:19
Marta María
Leikkonunni Liz Hurley er annt um sjö ára son sinn og vill alls ekki að hann horfi á hvaða bíómyndir sem er. Nú hefur hún sett blátt bann við myndum fyrrverandi kærastans, Hugh Grant, því hún segir að myndirnar sem hann hefur leikið í séu ekki á nógu góðu máli.
14.mar. 2010 - 09:00
Björg Magnúsdóttir
Bandaríska söng- og leikkonan Jessica Simpson burstar ekki tennurnar. Þar hafið þið það. Eða hún burstar alltaf öðru hvoru og stundum nýtir hún peysu sína til þess að þurrka mesta skítinn af.
14.mar. 2010 - 07:00
Björg Magnúsdóttir
Brjóst voru mjög áberandi á tískusýningu Louis Vuitton í París fyrir haust- og vetur 2010-2011. Í sem fæstum orðum var lína tískuhússins náttúruleg, gamaldags eða klassísk (eftir því hvernig litið er á málin) og elegant.
13.mar. 2010 - 16:34
Marta María
Fjórði áratugurinn með öllum sínum glamúr er þema vorlínu sænska snyrtivörumerkisins, Make Up Store. Línan er kvenleg og heillandi, enda lögðu konur fjórða áratugarins mikið á sig til að líta vel út fyrir eiginmennina. Í dag geta konur tekið það besta frá þessu tímabili, eins og förðun, hárgreiðslur og fatastíl. Það er enginn að segja að þær þurfi að fara alla leið í áhrifunum, eins og að strauja skyrtur eiginmanna sinna eða vera hlekkjaðar við eldavélar. Það er allt önnur saga. Í dag hugsa konur um útlitið til að efla sjálfstraustið og líða betur í eigin skinni.
13.mar. 2010 - 12:00
Marta María
Það væsir ekki um fjölskylduna sem fékk stjörnuarkitektastofuna A-Cero til að teikna heimili sitt. Blankheit eru ekki að þvælast fyrir íbúum hússins og fengu arkitektarnir að hluta til frjálsar hendur þegar þeir komu þessu sköpunarverki sínu á koppinn. Eigandinn krafðist þess að línurnar yrðu tærar og ekkert myndi skyggja á fegrunarskynið. Það er óhætt að segja að það hafi tekist.
13.mar. 2010 - 09:00
Björg Magnúsdóttir
Leikkonan Amanda Seyfried situr fyrir í kynþokkafullum myndaþætti hjá tímaritinu Esquire. Er hún meðal annars klædd í blúndugalla, háa sokka og nærföt.
13.mar. 2010 - 07:00
Björg Magnúsdóttir
Nýjasta myndband söngkonunnar Lady Gaga við lagið Telephone var frumsýnt í gær en í því nýtur hún liðsinnis Beyoncé Knowles. Aðeins fáeinum klukkustundum eftir að það var sent á internetið hafði það fengið ríflega 2 milljón áhorf.