08.feb. 2010 - 15:00
Marta María
Burton Baldridge arkitektarnir fengu það verkefni að hanna lítið og krúttlegt hótel árið 2005. Lagt var upp með að stemningin yrði heimilisleg og að gestir hótelsins gætu droppað þar við, gist og borðað morgunverð og haft það huggulegt. Mikið var lagt upp úr því að hótelið og allt umhverfi þess væri fallegt og heillandi.
Eftir skraf, skissur og miklar vangaveltur varð útkoman Kimber Modern hótelið í Texas.
08.feb. 2010 - 12:00
Marta María
Leikkonan Jennifer Aniston hefur verið mikið á milli tannanna á fólki eftir að fréttir bárust af því að Brad Pitt væri að hætta með Angelinu Jolie. Nú kveður hins vegar við annan tón því um helgina var Jennifer Aniston í faðmi leikarans Gerard Butler. Þau fóru saman í frí og létu vel að hvort öðru. Þótt þau segist bara vera vinir þá segja kunnugir að það sé eitthvað á milli þeirra. Með í för voru vinkonur Jennifer Aniston þær Courtney Cox og Sheryl Crow.
08.feb. 2010 - 09:00
Björg Magnúsdóttir
Eins og Pressan hefur greint frá er maður að nafni Ian Halperin að rita bók um samband Angelinu Jolie og Brad Pitt. Halperin hefur fylgst grannt með stjörnunum undanfarin ár og telur sig vita betur en aðrir hvað er í gangi þar á bæ.
08.feb. 2010 - 07:00
Björg Magnúsdóttir
Tímaritið Maxim hélt heljarinnar boð í partíborginni Miami síðastliðið laugardagskvöld. Það sem var áberandi í partíinu voru gellur, og nóg af þeim (þó inn hafi slæðst herramenn). Það þarf engum að koma á óvart, því blaðið er sniðið að karlmönnum. Í því eru jafnan að finna viðtöl og myndaseríur af vinsælum leikkonum, söngkonum og fyrirsætum. Blaðið kemur út í fjöldamörgum löndum, þar á meðal Argentínu, Ísrael, Þýskalandi, Kóreu og Mexíkó.
07.feb. 2010 - 15:56
Hera Björk Þórhallsdóttir, nývalinn Eurovision-fari fyrir Íslands hönd sagði að tilfinning væri yndisleg, þegar Pressan náði sambandi við hana í dag. Þá var hún á leið í vöffluboð til móður sinnar til þess að fagna sigri með sínum nánustu. Hera segir að gleði og íslenska þrautsegja verði sín leynivopn og lofar að vera í einhverri „fabulous“ íslenskri hönnun á sviðinu í Osló.
07.feb. 2010 - 15:00
Marta María
Þegar vora tekur breytast áherslurnar í förðun. Litapallettan er silkimjúk og heillandi. Pastellitir og berjatónar eru áberandi og lagt er upp með náttúrulega förðun í stað stríðsmálningar. Clinique aðstoðar konur við að ná fram því besta í eigin útliti og leggur mikið upp úr vel nærðum og glossuðum vörum, tælandi augum og frísklegum kinnum.
07.feb. 2010 - 12:00
Marta María
Það er gott að halda í gamlar og góðar hefðir. Ein af þeim er að bera ætíð fram girnilega eftirrétti á sunnudögum. Til að fullkomna sunnudaginn á að borða eftirréttinn í sparifötunum og að sjálfsögðu í spariskapinu.
07.feb. 2010 - 09:00
Björg Magnúsdóttir
Kim Kardashian er ein heljarinnar Súper-Bowl's Wife (fyrir utan ýmislegt annað) en hún er á föstu með Reggie Bush, leikmanni í liðinu New Orleans Saint. Bush er einmitt einn af þeim sem leikur um Ofurskálina á morgun, eins og Pressan hefur þegar greint frá.
07.feb. 2010 - 07:00
Björg Magnúsdóttir
Safn helgað kynlífi á Manhattan í New York hefur nýopnað sýninguna sem ber heitið Gúmmí. Um er að ræða sýningu tileinkaða smokkum, en þar verður meðal annars til sýnis kjóll búinn til úr 1.200 handlituðum smokkum.
06.feb. 2010 - 15:00
Marta María
Hugsaðu út fyrir rammann þegar þú útbýrð helgarsteikina. Það er vel hægt að borða steikur án þess að hafa stórar kartöflur og rjómasósur með. Ferskur aspas er ljúffengur með nautakjöti ásamt fersku salati. Myntusósan setur punktinn yfir i-ið. Ég notaði Roast-beef og lét skera það í tvær vænar sneiðar en að sjálfsögðu er hægt að hafa aðrar tegundir af nautakjöti.
06.feb. 2010 - 12:00
Marta María
Hönnuðurinn Kelly Wearstler er Íslendingum að góðu kunn en hún er ein af dómarateyminu í þáttunum Top Design sem sýndir eru á Skjá einum við miklar vinsældir. Kelly er innanhúsarkitekt að mennt en til þess að komast áfram á framabrautinni sat hún fyrir hjá Playboy. Það er þó ekki hægt að segja að það hafi komið niður á verkum hennar því hún er mjög frumleg og djörf í hönnun. Kelly Wearstler rekur fyrirtæki undir eigin nafni og er með meira en 20 manns í vinnu.
06.feb. 2010 - 09:00
Björg Magnúsdóttir
Þegar kemur að skóbúnaði telja margir að kvenfólk geri hvað sem er fyrir skó sem þær telja þess virði útlitslega séð. Hér að neðan er að finna myndir af mörgum af óþægilegstuu skóm sem búnir hafa verið til og án efa finnast í öllum tilfellum einhverjar sem eru til í að misþyrma fótum sínum fyrir þá.
06.feb. 2010 - 07:00
Björg Magnúsdóttir
Eins og venjan er, þegar mikilvægar tískusýningar fara fram, sitja stórstjörnur á fremsta bekk og fylgjast með nýjustu tísku. Einhverjir gætu haldið að stórstjörnurnar hefðu brennandi áhuga á tísku og væru þess vegna á fremsta bekk. Sannleikurinn er hins vegar sá að tískuhús greiða fúlgur fjár til stjarna um leið og þær eru fengnar til þess að fylgjast með frá 1. bekk.
05.feb. 2010 - 21:39
Í dag var hulunni svipt af áður óséðum myndum af hinni ofurfögru Marilyn Monroe. Um er að ræða myndasyrpu sem tekin var af ljósmyndaranum Len Stackler árið 1961. Myndirnar voru teknar þegar Monroe sótti heim Carl Sandburg, skáldið sem m.a. vann til Pulitzer-verðlauna.
05.feb. 2010 - 15:00
Marta María
Pastellitir, grafísk mynstur og stutt pils eru áberandi í sumartísku Versace. Það er ekki laust við að það sé svolítill hippafílingur í línunni þótt hún sé á sama tíma kvenleg og kynþokkafull. Eitthvað af fötunum hefði sómað sér vel í ekta „seventísteiti“ í strandhúsi í Kaliforníu. Þar sem skvísurnar og stælgæjarnir skemmtu sér líkt og enginn væri morgundagurinn við dúndrandi diskótónlist.
05.feb. 2010 - 12:00
Björg Magnúsdóttir
Hér til hliðar má sjá Noah Mills sem er 26 ára gömul fyrirsæta sem þegar hefur unnið fyrir tískuhús á borð við Tom Ford, Dolce & Gabbana og Michael Kors. Nýjasta hlutverk hans er af annars konar listfræðilegum toga, en Mills hefur hreppt mjög mikilvægt kvikmyndahlutverk; hann er nýjasti ungkærasti Samönthu Jones í Sex and the City kvikmyndinni sem verður frumsýnd með vorinu.
05.feb. 2010 - 09:00
Marta María
Langar þig stundum í sætindi en villt gæta þess að neyta ekki of mikils sykurs? Þá er þessi uppskrift tilvalin fyrir þig. Það tekur ekki nema tíu mínútur að útbúa þetta lostafulla súkkulaðikonfekt.
05.feb. 2010 - 07:00
Björg Magnúsdóttir
Ofurfyrirsætan Naomi Campbell er þessa dagana að setja saman All-Star tískusýningu fyrir fórnarlömb jarðskjálftans á Haiti. Campbell hefur verið lengi í fyrirsætubransanum þannig að hún hefur ýmis góð símanúmer hjá sér sem munu án efa koma sér vel við útfærsluna.
04.feb. 2010 - 15:00
Marta María
Það er fátt meira lostæti en heimagerðar fiskibollur sem matreiddar eru frá hjartanu. Prófaðu að hakka fiskinn í blandaranum eða matvinnsluvélinni því þá verður fiskhakkið svo ógurlega lekkert. Í þessa uppskrift má leika sér með fisktegundir en sjálf fór ég hefðbundna leið og valdi ýsu.
04.feb. 2010 - 12:00
Marta María
Það er fátt sem toppar það að sitja á huggulegum veitingastað í New York. Nú hefur enn einn smartheitastaðurinn bæst í hópinn. Hann ber nafnið ROBERT og er staðsettur á efstu hæð safnsins Museum of Arts and Design. Af staðnum er óborganlegt útsýni yfir Columbus Circle, Central Park, Broadway og Central Park West.