30. jan. 2010 - 07:00Björg Magnúsdóttir

Leitin að besta rassi í heimi stendur yfir - MYNDIR

American Apparel

Bandaríska fyrirtækið American Apparel leitar að besta rassi í heimi til þess að vera „andlit“ nýrra nærbuxna sem fyrirtækið hyggst framleiða. Flogið verður með besta rassinn, sigurvegarann til höfuðstöðva AA í Los Angeles, þar sem myndataka, umfjöllun og verðlaunaafhending fer fram.

Á heimasíðu fyrirtækisins
má skoða alla innsendu rassana, en þegar Pressan kannaði málið höfðu 233 sent inn mynd af rassinum á sér. Einu skilyrðin er að þátttakandi sé 18 ára eða eldri og sé klæddur að neðan í fatnað frá American Apparel, sem hefur hannað ýmiss konar bikini, nær- og þægindafatnað. Skila má inn rassi sínum til og með 21. febrúar næstkomandi.

Þau sem ekki vilja senda inn mynd af rassinum á sjálfum sér geta kosið um besta rassinn - kosið er á netinu og atkvæðin uppfærast um leið. Þegar þetta er ritað hafa íturvaxnir kvenmanns-afturendað raðað sér í fyrstu sætin, en mögru rassarnir og karlarassarnir sitja á botninum.

Nokkrar vel valdar myndir úr keppni AA hér að neðan, sjá má bæði þann besta og versta samkvæmt þátttakendum hingað til.
Left Right


16.mar. 2010 - 17:00 Marta María

Ertu í eldhúspælingum? Innlit í sex seiðandi eldhús - MYNDIR

Túrkisliturinn kemur vel út í fyrsta eldhúsinu. Í góðærinu skipti enginn um eldhús hjá sér, nema það kostaði margar milljónir. Fólki hættir hinsvegar ekki að langa í falleg eldhús þó svo að það eigi minni peninga í buddunni. Þegar eldhúsið er endurbætt er hægt að fara margar heillandi leiðir án þess að það kosti of mikið. Þegar skipt er um eldhús, eða gamla eldhúsið er hresst við, skiptir miklu máli að hafa góðan smið með sér.
16.mar. 2010 - 15:00 Marta María

Götutíska stjarnanna í Hollywood – MYNDIR

Brad Pitt. Vorið er á næsta leiti ef fatastíll stjarnanna er skoðaður síðustu vikuna. Brad Pitt og fjölskylda dvelja á Ítalíu núna. Hann var myndaður í góðum fíling í Flórens. Bóhem-útlitið var allráðandi, gallabuxur, hippalegur jakki, húfa og hliðartaska. Svo ekki sé minnst á skeggið, ætli hann sé að taka þátt í átaki?
16.mar. 2010 - 11:30 Björg Magnúsdóttir

Brjóst kvenna fara sífellt stækkandi: Stærð K kynnt á markað

Brjóst kvenna fara stækkandi. Brjóst kvenna fara óðum stækkandi og verður stækkunin ekki eingöngu skýrð með aukinni líkamsþyngd kvenna. Verslunin Selfridges á Bretlandseyjum hefur aukið sölu á brjóstahöldurum í stærðum D til G um 50% síðan árið 2005. Nú hefur sama verslun tilkynnt um sölu á enn stærri stærð en verið hefur hingað til, stærð K.
16.mar. 2010 - 10:47

500 íslenskir hönnuðir taka þátt: HönnunarMars hefst á fimmtudag, 100 viðburðir í boði

Greipur Gíslason, verkefnisstjóri HönnunarMars og Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar kynntu dagskrána. HönnunarMars, íslensk hönnunarhátíð fer fram í annað skipti á Íslandi, frá næsta fimmtudegi til sunnudags. Markmið hátíðarinnar er að kynna fyrir gestum nýjustu strauma og stefnur í íslenskri hönnun. Grasrót íslenska hönnunarsamfélagsins, yfir 500 einstaklingar, tekur þátt á hátíðinni og við skipulagningu ríflega 100 viðburða hennar.
16.mar. 2010 - 09:00 Marta María

Gróska og stemning hjá íslenskum fatahönnuðum: SHOWROOM á HönnunarMars - MYNDIR

Frá SHOWROOM REYKJAVÍK í fyrra. Í þriðja skipti stendur Fatahönnunarfélag Íslands fyrir viðburðinum SHOWROOM REYKJAVÍK sem er hluti af HönnunarMars. Þar koma saman valinkunnir íslenskir fatahönnuðir og kynna nýjustu vörur sínar fyrir innkaupaaðilum og fagfólki í tískuheiminum. Lovísa Óladóttir, sem situr í stjórn Fatahönnunarfélags Íslands, segir í samtali við Pressuna að stemning meðal fatahönnuða á Íslandi sé svakalega mikil - svo ekki sé meira sagt.
16.mar. 2010 - 07:00 Marta María

Kate Winslet er skilin við eiginmanninn: Tóku sameiginlega ákvörðun

Sam og Katie meðan allt lék í lyndi.

Leikkonan Kate Winslet og kvikmyndaleikstjórinn, Sam Mendes, eru skilin eftir tæplega sjö ára hjónaband. Parið er sagt hafa tekið sameiginlega ákvörðun um að fara í sitthvora áttina. Saman eiga Kate og Sam sex ára gamlan son, Joe Alfie Winslet Mendes, en Kate átti dótturina Miu  Honey fyrir, sem er níu ára.

15.mar. 2010 - 16:00 Marta María

Cheryl Cole hendir Asley endanlega út: Komin með sama skilnaðarlögfræðing og Paul McCartney

Ashley og Cheryl Cole meðan allt lék í lyndi. Söngkonan Cheryl Cole er endanlega búin að segja skilið við eiginmann sinn, Ashley Cole. Þau hittust um helgina til að ræða málin. Ashley hélt að hann gæti hugsanlega unnið hana til baka enda hefur mamma hans reynt að hjálpa honum með því að tala Cheryl til. Það var hinsvegar allt annað uppi á teningnum.
15.mar. 2010 - 13:00 Marta María

Stanslaust stuð að eilífu: 40 ára afmæli Páls Óskars - MYNDIR

Það var mikið um dýrðir þegar stuðpinninn Páll Óskar hélt upp á 40 ára afmælið sitt. Veislan fór fram á skemmtistaðnum Nasa síðastliðinn laugardag og komust færri að en vildu. Páll Óskar var eins og sönn rokkstjarna í pallíettuskreyttum jakkafötum. Glamúrinn var allsráðandi og ekki sást fýlusvipur á neinum.
15.mar. 2010 - 12:00 Marta María

Sesamsteiktur karfi með gulróta- og mangósalati – UPPSKRIFT

Sesamsteiktur karfi. Það skiptir miklu máli að borða fisk allavega einu sinni í viku,  helst oftar. Steiktur fiskur og steiktur fiskur er ekki það sama. Prófaðu að skipta raspinu út fyrir sesamfræ. Sesamfræ eru ekki bara bragðgóð heldur innihalda þau góða fitu og eru einnig auðug af járni. Í þessa uppskrift er notaður karfi en auðvitað má skipti fisktegundinni út.
15.mar. 2010 - 09:00 Björg Magnúsdóttir

Sugababes með nýja plötu og stílista: Ný ímynd, gærulegri - byggir á nekt okkar - MYNDIR

Koverið: Sweet 7 á vegum Sugababes. Geisladiskur stúlknanna í söngsveitinni Sugababes (í. Sykurbeibin) kemur í verslanir á Bretlandseyjum í dag. Þrír meðlimir sveitarinnar virðast vera í fantaformi og til í tuskið ef marka má myndirnar af þeim sem koma til með að prýða gripinn. Nýi diskurinn heitir Sweet 7.
15.mar. 2010 - 07:00 Björg Magnúsdóttir

Tjúllandi gleði á tískuhátíð: Rautt, túberað hár í bland við tjull-pils - MYNDIR

Opnunarhátíð L'Oreal tískuhátíðarinnar var vægast sagt fríkuð, litrík og sannkallast listaverk fyrir augað. Þar strolluðu um módel í stórundarlegum klæðum; túberað hár, risastórar hárkollur, horn á höfði og beinagrinda-brimbretti. Umræddur atburður fór fram í Melbourne um liðna helgi.
14.mar. 2010 - 17:00 Marta María

Naglalökk í geggjuðum litum er það sem koma skal: Vertu með puttana á púlsinum

OPI línan er undir asískum áhrifum. Geggjaðir litir eru áberandi í vor-og sumarlínunni frá naglalakksframleiðandanum OPI. Þessi naglalökk eru íslenskum konum að góðu kunn enda hægt að fá þau á góðu verði. Hönnuðir OPI sóttu innblástur í austurlensk fræði með örlitlum áhrifum frá Feng Shui. Innblástur línunnar koma aðallega frá borginni Hong Kong en sú borg er ákaflega litrík og heillandi.
14.mar. 2010 - 14:00 Marta María

Ljúffengur kjúklingur í hnetusósu – UPPSKRIFT

Kjúklingur í hnetusósu er lostæti. Áttu afgang af kjúklingi sem þú veist ekki hvað þú átt að gera við eða langar þig bara í eitthvað gott? Það getur leynst mikill matur á heilum kjúklingum þótt búið sé að borða bringurnar og lærin. Þá er um að gera að búa til gómsæta pottrétti. Til að fá fullkomna nýtingu á heilum kjúklingi er búið til soð úr beinunum. Með heimagerðu soði er hægt að búa til kraftmiklar súpur án nokkurra aukefna. Meira um þær síðar.
14.mar. 2010 - 12:19 Marta María

Liz Hurley bannar syni sínum að horfa að kvikmyndir með Hugh Grant

Liz og Damian. Leikkonunni Liz Hurley er annt um sjö ára son sinn og vill alls ekki að hann horfi á hvaða bíómyndir sem er. Nú hefur hún sett blátt bann við myndum fyrrverandi kærastans, Hugh Grant, því hún segir að myndirnar sem hann hefur leikið í séu ekki á nógu góðu máli.
14.mar. 2010 - 09:00 Björg Magnúsdóttir

Jessica Simpson: Ég bursta ekki tennurnar - í alvöru! MYNDBAND

Sæmilega hvítar tennur miðað við litla burstun. Bandaríska söng- og leikkonan Jessica Simpson burstar ekki tennurnar. Þar hafið þið það. Eða hún burstar alltaf öðru hvoru og stundum nýtir hún peysu sína til þess að þurrka mesta skítinn af.
14.mar. 2010 - 07:00 Björg Magnúsdóttir

Munúðarleiki og brjóst með „come back“ í París - MYNDIR

Brjóst voru mjög áberandi á tískusýningu Louis Vuitton í París fyrir haust- og vetur 2010-2011. Í sem fæstum orðum var lína tískuhússins náttúruleg, gamaldags eða klassísk (eftir því hvernig litið er á málin) og elegant.
13.mar. 2010 - 16:34 Marta María

Funheit förðun í anda fjórða áratugarins: Lærðu réttu trixin

Fjórði áratugurinn með öllum sínum glamúr er þema vorlínu sænska snyrtivörumerkisins, Make Up Store. Línan er kvenleg og heillandi, enda lögðu konur fjórða áratugarins mikið á sig til að líta vel út fyrir eiginmennina. Í dag geta konur tekið það besta frá þessu tímabili, eins og förðun, hárgreiðslur og fatastíl. Það er enginn að segja að þær þurfi að fara alla leið í áhrifunum, eins og að strauja skyrtur eiginmanna sinna eða vera hlekkjaðar við eldavélar. Það er allt önnur saga. Í dag hugsa konur um útlitið til að efla sjálfstraustið og líða betur í eigin skinni.
13.mar. 2010 - 12:00 Marta María

1600 fermetra villa í Madrid er nýjasta verkefni A-Cero arkitektanna – MYNDIR

Það væsir ekki um fjölskylduna sem fékk stjörnuarkitektastofuna A-Cero til að teikna heimili sitt. Blankheit eru ekki að þvælast fyrir íbúum hússins og fengu arkitektarnir að hluta til frjálsar hendur þegar þeir komu þessu sköpunarverki sínu á koppinn. Eigandinn krafðist þess að línurnar yrðu tærar og ekkert myndi skyggja á fegrunarskynið. Það er óhætt að segja að það hafi tekist.
13.mar. 2010 - 09:00 Björg Magnúsdóttir

Svona halda þær sér mjóum: Hádegismaturinn í gær? Spínat og fræ!

Amanda Seyfried. Leikkonan Amanda Seyfried situr fyrir í kynþokkafullum myndaþætti hjá tímaritinu Esquire. Er hún meðal annars klædd í blúndugalla, háa sokka og nærföt.
13.mar. 2010 - 07:00 Björg Magnúsdóttir

Ótal faldar auglýsingar og tískumerki í nýja myndbandi Gaga - MYNDIR

Beyoncé til hægri er í kjól eftir Oscar Olima. Nýjasta myndband söngkonunnar Lady Gaga við lagið Telephone var frumsýnt í gær en í því nýtur hún liðsinnis Beyoncé Knowles. Aðeins fáeinum klukkustundum eftir að það var sent á internetið hafði það fengið ríflega 2 milljón áhorf.

nýtur hversdagsins.

Pistillmartamaria@pressan.is

Karlrembur á konubílum

Mitt femíníska hjarta tók kipp þegar þriggja ára sonur minn benti á litla krúttlega Suzuki bifreið í bílablaði og tilkynnti að þetta væri „konubíll“.



Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit