20. ágú. 2010 - 11:50Marta María

Langar þig á mála þig eins og Angelina Jolie? Hér eru leiðbeiningarnar

Angelina Jolie er með skvísulega förðun í myndinni Salt.

Angelina Jolie er með skvísulega förðun í myndinni Salt.

Leikkonan Angelina Jolie skartaði flottri förðun þegar hún mætti á frumsýningu kvikmyndarinnar Salt í Berlín í vikunni. Förðunin er með svipuðu sniði og förðunin sem notuð var á leikkonuna í myndinni Salt. Katla Einarsdóttir, förðunarmeistari í Make Up Store, veit nákvæmlega hvernig á að ná fram þessu útliti.

Til að ná fram svipuðu útliti og Angelina er með er gott að leggja áherslu á húðina, jafna hana út, og hafa hana smá „dewy“ eða með náttúrulegum ljóma. Ég myndi byrja á að setja skin serum á húðina því það hjálpar alltaf að hafa góðan grunn undir farða. Það gerir áferðina jafnari og sléttari. Yfir þetta myndi ég setja léttan farða eins og sport foundation frá Make Up Store sem er einstaklega þægilegur í notkun þar sem hann kemur með áföstum pensli og pumpu.

Til að fá fullkomnari áferð mælir Katla með því að nota undrapúður eða wonder powder yfir allt andlitið. Katla segir að það þurfi að leggja mikla áherslu á augun.

Byrjið á því að nota blýant á augun til dæmis Remember The Times. Hann er svartur með smá glimmerögnum í. Setjið línu af honum allan hringinn en þykkja ytri helming ofan á og milda svo línuna með smudger blýanti. Að setja þetta á augun er svolítið dökkt en mjúkt á sama tíma. Ég myndi setja svartan pollution og setja ofan á línuna og dreifa örlítið meira úr ofan á augnlokið.

Hún mælir með því að setja Crow augnskuggann, sem er grár sanseraður, á augnlokið við innri augnkrók og aðeins ofan á augnbeinið til að milda. Katla mælir með því að nota hreinan blöndunarpensil til að milda öll skil.

Til að fullkomna útlitið væri fallegt að setja mercury eyedust inn í augnkrókinn til að fá svolítið meira glitur. Angelina er oftast með stök augnhár til að auka aðeins kisulóru-lookið. Það væri sniðugt að nota kannski 4-5 stykki sitthvoru megin, eða hugsanlega hálf augnhár eins og petite. Angelina skilur augabrúnirnar eftir mjög náttúrulegar og bara rétt svo mótar með smá lit sem er ljósari (til að móta og þetta aðeins en ekki dekkja).

Varirnar eru nokkuð beige til að draga úr náttúrulegum roða hennar í vörunum, nokkrir litir koma til greina eins og cute (mattur og þekur nokkuð vel) Baby eða Pretty eru aðeins gegnsærri.

Með þessar leiðbeiningar ættu allar heimsins skvísur að geta verið kisulórulegar um helgina.

Left Right