05. feb. 2010 - 15:00Marta María
Kynþokkafull og tælandi sumarlína Versace - MYNDIR

Mynd: GettyImages
Pastellitir, grafísk mynstur og stutt pils eru áberandi í sumartísku Versace. Það er ekki laust við að það sé svolítill hippafílingur í línunni þótt hún sé á sama tíma kvenleg og kynþokkafull. Eitthvað af fötunum hefði sómað sér vel í ekta „seventísteiti“ í strandhúsi í Kaliforníu. Þar sem skvísurnar og stælgæjarnir skemmtu sér líkt og enginn væri morgundagurinn við dúndrandi diskótónlist.
Línan er í heild sinni heillandi og það er fátt sem stingur í stúf. Skórnir eru þykkbotna líkt og tíðkaðist á hippatímanum. Slíkir skór eru himnasending fyrir lágvaxnar konur en líka fallegir á fæti enda gera þeir mikið fyrir fótlegginn. Hárið og förðunin er í anda hippatímans. Sítt hár skipt í miðju sem flaksast í vindinum á ströndinni var algerlega greiðsla sýningarinnar.
Eigandi Versace tískuveldisins og hönnuður línunnar, Donatella Versace, segir að hún hafi sótt innblásturinn í kvikmynd Tim Burton, Alice in Wonderland, sem frumsýnd verður í mars. Það verður spennandi að sjá hvort það sé samhljómur þar á milli en hún getur þó ekki þrætt fyrir hippaáhrifin.
Línan er full af glamúr og stuði. Þó svo að stutter kjólar og pils séu áberandi þá kemur síðkjólalínan sterk inn. Línan er sérlega klæðileg og gerir mikið fyrir kvenlíkamann. Mikið er lagt upp úr smáatriðum sem gera fötin falleg og eftirsóknarverð.
02.sep. 2010 - 17:35
Marta María
Ár hvert fær sænska móðurskipið, H&M, fræga hönnuði til að hanna fyrir sig tískulínur. Í fyrra var það Jimmy Choo en nú er það franska tískumerkið Lanvin. Merkið er þekkt fyrir súpersvöl skvísuföt sem fá hverja konu til að emja af kæti.
02.sep. 2010 - 15:00
Marta María
Síðan Kelly Osbourne losaði sig við 18 kíló hefur hún gjörbreyst. Hún fór úr því að vera nettur pönkari í það að vera nett skinka eða hvað? Svart stutt hárið vék fyrir ljósum lokkum og ýkti andlitsfarðinn vék fyrir dömulegri förðun. Það er þó spurning hvað hún getur lifað lengi sem skinka því eitt sinn pönkari ávallt pönkari.
02.sep. 2010 - 11:00
Marta María
Kjólarnir á rauða dreglinum í ár eru kvenlegir og rómantískir. Það voru samt tvær leikkonur sem báru af á rauða dreglinum á Kvikmyndahátíðinni í Feneyjum. Um það sáu Jessica Alba og Natalie Portman. Kjólarnir þeirra voru ævintýralegir en samt kynþokkafullir. Er hægt að sameina þetta tvennt?
02.sep. 2010 - 08:23
Marta María
Kynþokkafulla leikkonan, Kim Cattrall, segist hafa átt í mesta barsli við að finna sér föt þegar fyrir þættina, Beðmál í borginni og samnefndar kvikmyndir. Hún passi einfaldlega ekki í föt hátískuhönnuðanna því hún sé svo „stór“.
02.sep. 2010 - 07:50
Marta María
Margrét Rósa Einarsdóttir staðarhaldari í Iðnó, eigandi Pisa og húsfrú í Tjaldanesi, gerir hlutina yfirleitt með stæl eða sleppir þeim. Um síðustu helgi var efnt til árlegrar sultukeppni á útimarkaðnum Mosskógum í Mosfellsdalnum. Hún segist aldrei ætla að gera sultu aftur.
02.sep. 2010 - 13:00
Marta María
Innblástur línunnar Calanques frá L'Occitane er sótt í fyrrnefnt svæði í suðurhluta Provence. Calanques einkennist af litlum víkum og hvítum klettum. Grænn og kryddaður ilmur gróðursins myndar andstæðu við djúpan bláan lit hafsins og himinsins.
01.sep. 2010 - 18:00
Marta María
Reglulega koma vörur sem allar konur verða að eignast. Nú er komið undrapúður á markað sem allar skvísur eru að tala um núna. Púðrið heitir Wonder Kit og er frá sænsku pæjubúðinni Make Up Store. Eins og nafnið gefur til kynna geta þessi púður framkallað algera fantaflotta áferð á húðina.
01.sep. 2010 - 16:00
Marta María
Það er ekki á hverjum degi sem Íslendingar sjá myndir frá heimilum í Póllandi. Hér er eitt súpersmart sem hannað er af Marek Rytych. Húsið er í Varsjá í Póllandi og sérlega skemmtilegt.
01.sep. 2010 - 14:00
Marta María
Það eru örugglega margar sem myndu vilja vera jafn flottar á baðfötum og Julia Roberts. Það var því ekkert að undra að hún hafi brosað hringinn þegar hún baðaði sig í sjónum við strendur Hawaii á dögunum. Leikkonan fer einmitt með hlutverkið í myndinni Borða, biðja, elska sem sýnd verður á Íslandi síðar í þessum mánuði.
01.sep. 2010 - 12:00
Marta María
Það eru alltaf einhverjir sem gefast upp á líkamsræktarátakinu áður en kílóin fara að hrynja af fyrir alvöru. Margir halda að það eitt og sér að æfa markvisst leiði til minni líkamsþyngdar. Það er því miður ekki rétt, því að markvissar og erfiðar æfingar geta leitt til þess að fólk þyngist, ef það borðar ekki rétt.
01.sep. 2010 - 09:00
Marta María
Partýskvísan og villikisan, Peaches Geldof, hefur náð því að vera í hálft ár með leikstjóranum Eli Roth, sem nota bene hefur oft djammað á Kaffibarnum. Síðan parið byrjaði saman hefur gengið á ýmsu en einn mesti skandallinn er án efa þegar kynlífsmyndir af henni í eiturlyfjavímu láku á netið.
01.sep. 2010 - 07:00
Marta María
Leikkonan Lindsay Lohan er nýkomin úr meðferð en eins og Veröldin greindi frá á dögunum kostaði meðferðin um 16 milljónir. Einhverju hefur meðferðin skilað því í viðtali við Vanity Fair segist hún vera gjörbreytt manneskja og játar að hún iðrist.
31.ágú. 2010 - 17:00
Marta María
Söngkonan Björk Guðmundsdóttir hlaut Polar-verðlaunin í Svíþjóð í gær. Karl Gústaf Svíakonungur afhenti verðlaunin sem veitt eru af Konunglegu sænsku tónlistarakademíunni. Allt fína fólkið í Svíþjóð var viðstatt þegar hún fékk verðlaunin.
31.ágú. 2010 - 14:59
Marta María
Það er beinlínis óyfirstíganlegt að fara eftir öllum þeim megrunarkúrum og ráðleggingum sem fólk sér í hinum ýmsu ljósvakamiðlum nú til dags. Það getur verið erfitt fyrir fólk að vita hvort það er raunverulega að leggja sér holla fæðu til munns.
31.ágú. 2010 - 12:43
Marta María
Það er ekki hægt að segja að aukakílóin séu að trufla söngkonuna Lady GaGa. Á meðan á tónleikaferðalagi hennar stendur gætir hún þess vel hvað hún setur ofan í sig svo hún hafi næga orku í öllum djöfulganginum.
31.ágú. 2010 - 09:40
Marta María
Einhverja dreymir um húsbíl, kannski ekki marga, en allavega nokkra. Sögurnar af þeim sem dreymir um húsbát eru fátíðari. Húsbáturinn sem Rost Niderehe arkitektastofan hannaði gæti þó breytt viðhorfi fólks til húsbáta. Fyrrnefndur bátur er með því svalara sem siglir um.
31.ágú. 2010 - 07:00
Marta María
Hárið er prýði hverrar konur og skiptir máli að það sé í lagi. Á Emmy verðlaununum voru hárgreiðslurnar miklar um sig, hvort sem hárið á stjörnunum var uppsett eða slegið. Eitt er víst og það er að krullur eru að koma sterkar inn.
30.ágú. 2010 - 18:00
Marta María
Snyrtivörudívan Bobbi Brown lofar því að nýjasta förðunarlínan, Denim & Rose, geti framkallað störnuútlit á aðeins fimm mínútum. Þegar kittið er skoðað kemur í ljós að það er ekki svo langt frá raunveruleikanum.
30.ágú. 2010 - 16:00
Marta María
Hvernig er hægt að sameina heimili, bókasafn og listagallerí? Það eru örugglega ekki margir sem gætu sameinað þetta þrennt án þess að útkoman yrði klúðursleg. UNStudio arkitektastofan náði að gera þetta á smekklegan og flottan hátt.
30.ágú. 2010 - 14:00
Marta María
Emmy verðlaunin fóru fram um helgina og var rauði dregillinn þéttsetinn af vel klæddum stjörnum. Leikkonurnar úr Mad Man þáttunum, sem sýndir eru á Stöð 2, stálu senunni hvað klæðaburð varðar og voru lang flottastar enda sigraði þátturinn þriðja árið í röð.