06. feb. 2010 - 15:00Marta María
Hoi Sin nautasteik með ferskum aspas og myntusósu – UPPSKRIFT

Nautakjöt í Hoi Sin sósu. Mynd: Marta María
Hugsaðu út fyrir rammann þegar þú útbýrð helgarsteikina. Það er vel hægt að borða steikur án þess að hafa stórar kartöflur og rjómasósur með. Ferskur aspas er ljúffengur með nautakjöti ásamt fersku salati. Myntusósan setur punktinn yfir i-ið. Ég notaði Roast-beef og lét skera það í tvær vænar sneiðar en að sjálfsögðu er hægt að hafa aðrar tegundir af nautakjöti.
Uppskrift fyrir tvo fullorðna og eitt lystugt barn
700 gr Roast –beef nautakjöt
2 msk Hoi Sin sósa
Leggið sneiðarnar í fat og setjið sósuna yfir á báðum hliðum. Látið kjötið marinerast í Hoi Sin sósunni á meðan aspasinn og sveppirnir eru steiktir.
Olía til steikingar
12 ferskir aspasstönglar
12 sveppir
1 tsk Maldon salt
Setjið allt á pönnu og steikið. Látið sveppina og aspasinn veltast upp úr olíunni og kryddið með Maldon salti. Látið þetta malla í tíu mínútur. Þá er aspasinn og sveppirnir fjarlægðir af pönnunni og settir á disk. Gott er að láta lok yfir svo þetta kólni ekki.
Þá er kjötið sett á sömu pönnu. Steikið í fimm mínútur á hvorri hlið. Það fer eftir því hvernig þið viljið hafa kjötið. Mér finnst best að hafa það örlítið rautt í miðjunni. Þegar búið er að steikja kjötið er það sett í nokkrar mínútur inn í ofn eða á meðan salatið og myntusósan eru útbúin. Takið Hoi Sin soðið sem myndast og hellið yfir kjötið áður en það er borið fram.
Myntusósa
1 og ½ dl Létt AB mjólk
1 msk af saxaðri myntu
1 tsk fljótandi hunang
Safi úr ½ límónu
Allt sett í skál og hrært saman.
Berið nautakjötið fram með góðu og matarmiklu salati. Notið til dæmis ferskt spínat, klettasalat, 1 rauða paprika (smátt skorna), ½ rauðlauk (smátt skorinn), ferska steinselju og fetaost.
Salatið er sett á diskinn. Svo er kjötið sett ofan á það og aspasnum raðað snyrtilega yfir. Að lokum er myntusósunni hellt yfir. Hafið steiktu sveppina til hliðar og borðið þá með.
14.mar. 2010 - 14:00
Marta María
Áttu afgang af kjúklingi sem þú veist ekki hvað þú átt að gera við eða langar þig bara í eitthvað gott? Það getur leynst mikill matur á heilum kjúklingum þótt búið sé að borða bringurnar og lærin. Þá er um að gera að búa til gómsæta pottrétti. Til að fá fullkomna nýtingu á heilum kjúklingi er búið til soð úr beinunum. Með heimagerðu soði er hægt að búa til kraftmiklar súpur án nokkurra aukefna. Meira um þær síðar.
14.mar. 2010 - 12:19
Marta María
Leikkonunni Liz Hurley er annt um sjö ára son sinn og vill alls ekki að hann horfi á hvaða bíómyndir sem er. Nú hefur hún sett blátt bann við myndum fyrrverandi kærastans, Hugh Grant, því hún segir að myndirnar sem hann hefur leikið í séu ekki á nógu góðu máli.
14.mar. 2010 - 09:00
Björg Magnúsdóttir
Bandaríska söng- og leikkonan Jessica Simpson burstar ekki tennurnar. Þar hafið þið það. Eða hún burstar alltaf öðru hvoru og stundum nýtir hún peysu sína til þess að þurrka mesta skítinn af.
14.mar. 2010 - 07:00
Björg Magnúsdóttir
Brjóst voru mjög áberandi á tískusýningu Louis Vuitton í París fyrir haust- og vetur 2010-2011. Í sem fæstum orðum var lína tískuhússins náttúruleg, gamaldags eða klassísk (eftir því hvernig litið er á málin) og elegant.
13.mar. 2010 - 16:34
Marta María
Fjórði áratugurinn með öllum sínum glamúr er þema vorlínu sænska snyrtivörumerkisins, Make Up Store. Línan er kvenleg og heillandi, enda lögðu konur fjórða áratugarins mikið á sig til að líta vel út fyrir eiginmennina. Í dag geta konur tekið það besta frá þessu tímabili, eins og förðun, hárgreiðslur og fatastíl. Það er enginn að segja að þær þurfi að fara alla leið í áhrifunum, eins og að strauja skyrtur eiginmanna sinna eða vera hlekkjaðar við eldavélar. Það er allt önnur saga. Í dag hugsa konur um útlitið til að efla sjálfstraustið og líða betur í eigin skinni.
13.mar. 2010 - 12:00
Marta María
Það væsir ekki um fjölskylduna sem fékk stjörnuarkitektastofuna A-Cero til að teikna heimili sitt. Blankheit eru ekki að þvælast fyrir íbúum hússins og fengu arkitektarnir að hluta til frjálsar hendur þegar þeir komu þessu sköpunarverki sínu á koppinn. Eigandinn krafðist þess að línurnar yrðu tærar og ekkert myndi skyggja á fegrunarskynið. Það er óhætt að segja að það hafi tekist.
13.mar. 2010 - 09:00
Björg Magnúsdóttir
Leikkonan Amanda Seyfried situr fyrir í kynþokkafullum myndaþætti hjá tímaritinu Esquire. Er hún meðal annars klædd í blúndugalla, háa sokka og nærföt.
13.mar. 2010 - 07:00
Björg Magnúsdóttir
Nýjasta myndband söngkonunnar Lady Gaga við lagið Telephone var frumsýnt í gær en í því nýtur hún liðsinnis Beyoncé Knowles. Aðeins fáeinum klukkustundum eftir að það var sent á internetið hafði það fengið ríflega 2 milljón áhorf.
12.mar. 2010 - 14:30
Marta María
Á HönnunarMars streymir þaulreynt fjölmiðlafólk frá Japan, New York, Stokkhólmi, Brussel og Bretlandseyjum. Fjölmiðlafólkið á það sameiginlegt að ætla að kynna sér nýjustu strauma og stefnur í íslenskri hönnun sem verður í fyrirrúmi á hönnunarhátíðinni HönnunarMarsi sem stendur yfir 18. – 21. mars næstkomandi. Á HönnunarMarsi verða yfir hundrað hönnunartengdir viðburðir. Sem dæmi fyrirlestrar, sýningar, nýsköpun, innsetningar, kynningar og margt fleira.
12.mar. 2010 - 13:10
Marta María
Guðný Hilmarsdóttir, ljósmyndari og móðir tveggja ungra barna, er búsett í Barcelona. Á dögunum flikkaði hún upp á herbergi dóttur sinnar. Hana langaði til að leyfa kjólunum og sætum stelpufötum að njóta sín og brá þá á það ráð að útbúa snaga sem hún hengdi á vegginn.
12.mar. 2010 - 09:00
Björg Magnúsdóttir
Hráefnið sem hönnunarlínan INSA nýtti í skóna hér til hliðar er hvorki ferskt né algengt í hælaskóm: nefnilega fíla-úrgangur. Hælaskórnir eru ríflega 25 sentímetra háir, með heljarinnar pinnahæl og fíla-úrgangs-platform, skreyttan fjölmörgum perlum að neðanverðu.
12.mar. 2010 - 07:00
Björg Magnúsdóttir
Rússneski vefmiðilinn Pravda sendir stjörnum þar í landi tóninn fyrir hallærislegan klæðaburð. Miðillinn hefur tekið saman myndir af þeim stjörnum sem þykja ekki smart. Þær eiga það flestar sameiginlegt að láta skína í húð á óvenjulegum stöðum. Til dæmis afturenda, bringu eða maga.
11.mar. 2010 - 17:00
Marta María
Íslenski fatahönnuðurinn Birna Einarsdóttir hefur gert það gott í hönnunarbransanum. Nú hefur splunkuný lína frá Birnu litið dagsins ljós. Línan skartar kvenlegum en jafnframt svolítið rokkuðum fötum sem henta vel fyrir íslenskar konur.
12.mar. 2010 - 12:00
Marta María
Unnur Þorsteinsdóttir var búin að eyðileggja húð sína vegna ljósabekkjanotkunar. Hrukkustraujárnið hjálpaði henni að laga húðina og í dag er ekki að sjá á henni að hún hafi legið í ljósum. Unnur kynntist ljósabekkjunum þegar hún var 15 ára. Næstu tíu árin stundaði hún bekkina þrisvar til fjórum sinnum í viku þrátt fyrir fortölur móður sinnar, sem sagði bekkina stórhættulega.
11.mar. 2010 - 14:00
Marta María
Austurlenski veitingastaðurinn Nings hafa sett tvo holla og nýja sushi rétti á markað. Um er að ræða sushi sem gert er úr hýðishrísgrjónum og sushi með Multi Grain trefjablöndu. Báðar þessar tegundir eiga það sameiginlegt að vera án sykurs, salts og ediks. Þær henta því vel fyrir þá sem huga að heilbrigði og hollustu.
11.mar. 2010 - 13:00
Björg Magnúsdóttir
Á snekkjusýningu í Abu Dhabi kenndi ýmissa grasa. Meðal annars sviptu hönnuður hulunni af snekkju sem gengur unnir vinnuheitinu færanlega eyjan. Verðið á henni eru litla 160 milljónir Bandaríkjadala sem eru allt of margar íslenskar krónur til þess að umreikna þá.
11.mar. 2010 - 09:00
Björg Magnúsdóttir
Óskarsverðlaunahafinn Marion Cotillard er farin í herberð gegn bandarískum karlmönnum sem stara á brjóst hennar þegar þeir ræða við hana. Cotillard kynnir lausn á vandamálinu, sem hún telur að fleiri konur eigi við að etja, í nýju myndbandi sem hún hefur sent frá sér. Lausnin er fólgin í gervibrjóstum sem setja skal upp á enni við komandi konu og kallast Forehead Tittaes. Gervibrjóstin eiga að valda því að karlmenn horfi í augu kvenna þegar þeir ræða við þær, en ekki á efri hluta bringunnar.
11.mar. 2010 - 07:00
Björg Magnúsdóttir
Jennifer Aniston og Gerard Butler eru framan apríl-eintaki tímaritsins W sem út kemur seint í mars. Innan í blaðinu er síðan myndaþáttur þar sem skötuhjúin fara með aðalhlutverkin í, í tilefni frumsýningu kvikmyndarinnar Bounty Hunter, sem þau eru einmitt líka í aðalhlutverkum í. Bounty Hunter verður frumsýnd vestanhafs 18. mars næstkomandi.
10.mar. 2010 - 17:00
Marta María
Ástralski arkitektinn Bojan Simic hannaði stórskemmtilegt hús í Melbourne í heimalandi sínu. Hann fékk algerlega frjálsar hendur við hönnunina og minnir húsið svolítið á geimskip en framhlið hússins er nánast úr gleri, uppúr og niðurúr.
10.mar. 2010 - 14:00
Marta María
Langar þig í eitthvað fljótlegt og ljúffengt í morgunmat? Ef þú ert með blandara við höndina tekur innan við fimm mínútur að búa til þennan ljúffenga drykk. Það góða við þennan er að hann bragðast nánast eins og rjómaís. Bananinn gerir morgunhristinginn mjúkan og sætan. Kókosvatnið er mikið notað í hráfæðisuppskriftir og inniheldur góða næringu.