07. feb. 2010 - 12:00Marta María
Himnesk sunnudagssæla – UPPSKRIFT

Himnesk sunnudagssæla. Mynd: Marta María
Það er gott að halda í gamlar og góðar hefðir. Ein af þeim er að bera ætíð fram girnilega eftirrétti á sunnudögum. Til að fullkomna sunnudaginn á að borða eftirréttinn í sparifötunum og að sjálfsögðu í spariskapinu.
Eftirréttur fyrir 8 manns
5 eggjarauður
100 gr hrásykur
100 gr púðursykur
1 pakki af Lady fingers
5 msk Baileys líkjör
½ lítri rjómi
100 gr rjómaostur
100 gr appelsínu súkkulaði
70 gr cashew hnetur
Settu cashew hneturnar á pönnu og ristaðu þær.
Rjóminn er þeyttur og svo er rjómaostinum blandað út í. Þegar búið er að blanda þessu vel saman er rjómablandan tekin úr hrærivélaskálinni og sett til hliðar í aðra skál. Þá eru eggjarauðurnar, hrásykurinn og púðursykurinn sett í skál og þeytt vel í fimm mínútur. Skerið súkkulaðið og cashew hneturnar smátt og bætið út í eggjahræruna.
Rjómanum er blandað varlega út í eggjahræruna.
Takið veglegt form og leggið Lady fingers kexið í botninn. Takið Baileys líkjörið og vætið upp í kökunum. Setjið rjómagúmmúlaðið yfir og setjið inn í frysti eða ísskáp.
Best er að hafa svolítið frost í eftirréttinum þegar hann er borinn fram.
15.mar. 2010 - 16:00
Marta María
Söngkonan Cheryl Cole er endanlega búin að segja skilið við eiginmann sinn, Ashley Cole. Þau hittust um helgina til að ræða málin. Ashley hélt að hann gæti hugsanlega unnið hana til baka enda hefur mamma hans reynt að hjálpa honum með því að tala Cheryl til. Það var hinsvegar allt annað uppi á teningnum.
15.mar. 2010 - 13:00
Marta María
Það var mikið um dýrðir þegar stuðpinninn Páll Óskar hélt upp á 40 ára afmælið sitt. Veislan fór fram á skemmtistaðnum Nasa síðastliðinn laugardag og komust færri að en vildu. Páll Óskar var eins og sönn rokkstjarna í pallíettuskreyttum jakkafötum. Glamúrinn var allsráðandi og ekki sást fýlusvipur á neinum.
15.mar. 2010 - 12:00
Marta María
Það skiptir miklu máli að borða fisk allavega einu sinni í viku, helst oftar. Steiktur fiskur og steiktur fiskur er ekki það sama. Prófaðu að skipta raspinu út fyrir sesamfræ. Sesamfræ eru ekki bara bragðgóð heldur innihalda þau góða fitu og eru einnig auðug af járni. Í þessa uppskrift er notaður karfi en auðvitað má skipti fisktegundinni út.
15.mar. 2010 - 09:00
Björg Magnúsdóttir
Geisladiskur stúlknanna í söngsveitinni Sugababes (í. Sykurbeibin) kemur í verslanir á Bretlandseyjum í dag. Þrír meðlimir sveitarinnar virðast vera í fantaformi og til í tuskið ef marka má myndirnar af þeim sem koma til með að prýða gripinn. Nýi diskurinn heitir Sweet 7.
15.mar. 2010 - 07:00
Björg Magnúsdóttir
Opnunarhátíð L'Oreal tískuhátíðarinnar var vægast sagt fríkuð, litrík og sannkallast listaverk fyrir augað. Þar strolluðu um módel í stórundarlegum klæðum; túberað hár, risastórar hárkollur, horn á höfði og beinagrinda-brimbretti. Umræddur atburður fór fram í Melbourne um liðna helgi.
14.mar. 2010 - 17:00
Marta María
Geggjaðir litir eru áberandi í vor-og sumarlínunni frá naglalakksframleiðandanum OPI. Þessi naglalökk eru íslenskum konum að góðu kunn enda hægt að fá þau á góðu verði. Hönnuðir OPI sóttu innblástur í austurlensk fræði með örlitlum áhrifum frá Feng Shui. Innblástur línunnar koma aðallega frá borginni Hong Kong en sú borg er ákaflega litrík og heillandi.
14.mar. 2010 - 14:00
Marta María
Áttu afgang af kjúklingi sem þú veist ekki hvað þú átt að gera við eða langar þig bara í eitthvað gott? Það getur leynst mikill matur á heilum kjúklingum þótt búið sé að borða bringurnar og lærin. Þá er um að gera að búa til gómsæta pottrétti. Til að fá fullkomna nýtingu á heilum kjúklingi er búið til soð úr beinunum. Með heimagerðu soði er hægt að búa til kraftmiklar súpur án nokkurra aukefna. Meira um þær síðar.
14.mar. 2010 - 12:19
Marta María
Leikkonunni Liz Hurley er annt um sjö ára son sinn og vill alls ekki að hann horfi á hvaða bíómyndir sem er. Nú hefur hún sett blátt bann við myndum fyrrverandi kærastans, Hugh Grant, því hún segir að myndirnar sem hann hefur leikið í séu ekki á nógu góðu máli.
14.mar. 2010 - 09:00
Björg Magnúsdóttir
Bandaríska söng- og leikkonan Jessica Simpson burstar ekki tennurnar. Þar hafið þið það. Eða hún burstar alltaf öðru hvoru og stundum nýtir hún peysu sína til þess að þurrka mesta skítinn af.
14.mar. 2010 - 07:00
Björg Magnúsdóttir
Brjóst voru mjög áberandi á tískusýningu Louis Vuitton í París fyrir haust- og vetur 2010-2011. Í sem fæstum orðum var lína tískuhússins náttúruleg, gamaldags eða klassísk (eftir því hvernig litið er á málin) og elegant.
13.mar. 2010 - 16:34
Marta María
Fjórði áratugurinn með öllum sínum glamúr er þema vorlínu sænska snyrtivörumerkisins, Make Up Store. Línan er kvenleg og heillandi, enda lögðu konur fjórða áratugarins mikið á sig til að líta vel út fyrir eiginmennina. Í dag geta konur tekið það besta frá þessu tímabili, eins og förðun, hárgreiðslur og fatastíl. Það er enginn að segja að þær þurfi að fara alla leið í áhrifunum, eins og að strauja skyrtur eiginmanna sinna eða vera hlekkjaðar við eldavélar. Það er allt önnur saga. Í dag hugsa konur um útlitið til að efla sjálfstraustið og líða betur í eigin skinni.
13.mar. 2010 - 12:00
Marta María
Það væsir ekki um fjölskylduna sem fékk stjörnuarkitektastofuna A-Cero til að teikna heimili sitt. Blankheit eru ekki að þvælast fyrir íbúum hússins og fengu arkitektarnir að hluta til frjálsar hendur þegar þeir komu þessu sköpunarverki sínu á koppinn. Eigandinn krafðist þess að línurnar yrðu tærar og ekkert myndi skyggja á fegrunarskynið. Það er óhætt að segja að það hafi tekist.
13.mar. 2010 - 09:00
Björg Magnúsdóttir
Leikkonan Amanda Seyfried situr fyrir í kynþokkafullum myndaþætti hjá tímaritinu Esquire. Er hún meðal annars klædd í blúndugalla, háa sokka og nærföt.
13.mar. 2010 - 07:00
Björg Magnúsdóttir
Nýjasta myndband söngkonunnar Lady Gaga við lagið Telephone var frumsýnt í gær en í því nýtur hún liðsinnis Beyoncé Knowles. Aðeins fáeinum klukkustundum eftir að það var sent á internetið hafði það fengið ríflega 2 milljón áhorf.
12.mar. 2010 - 14:30
Marta María
Á HönnunarMars streymir þaulreynt fjölmiðlafólk frá Japan, New York, Stokkhólmi, Brussel og Bretlandseyjum. Fjölmiðlafólkið á það sameiginlegt að ætla að kynna sér nýjustu strauma og stefnur í íslenskri hönnun sem verður í fyrirrúmi á hönnunarhátíðinni HönnunarMarsi sem stendur yfir 18. – 21. mars næstkomandi. Á HönnunarMarsi verða yfir hundrað hönnunartengdir viðburðir. Sem dæmi fyrirlestrar, sýningar, nýsköpun, innsetningar, kynningar og margt fleira.
12.mar. 2010 - 13:10
Marta María
Guðný Hilmarsdóttir, ljósmyndari og móðir tveggja ungra barna, er búsett í Barcelona. Á dögunum flikkaði hún upp á herbergi dóttur sinnar. Hana langaði til að leyfa kjólunum og sætum stelpufötum að njóta sín og brá þá á það ráð að útbúa snaga sem hún hengdi á vegginn.
12.mar. 2010 - 09:00
Björg Magnúsdóttir
Hráefnið sem hönnunarlínan INSA nýtti í skóna hér til hliðar er hvorki ferskt né algengt í hælaskóm: nefnilega fíla-úrgangur. Hælaskórnir eru ríflega 25 sentímetra háir, með heljarinnar pinnahæl og fíla-úrgangs-platform, skreyttan fjölmörgum perlum að neðanverðu.
12.mar. 2010 - 07:00
Björg Magnúsdóttir
Rússneski vefmiðilinn Pravda sendir stjörnum þar í landi tóninn fyrir hallærislegan klæðaburð. Miðillinn hefur tekið saman myndir af þeim stjörnum sem þykja ekki smart. Þær eiga það flestar sameiginlegt að láta skína í húð á óvenjulegum stöðum. Til dæmis afturenda, bringu eða maga.
11.mar. 2010 - 17:00
Marta María
Íslenski fatahönnuðurinn Birna Einarsdóttir hefur gert það gott í hönnunarbransanum. Nú hefur splunkuný lína frá Birnu litið dagsins ljós. Línan skartar kvenlegum en jafnframt svolítið rokkuðum fötum sem henta vel fyrir íslenskar konur.
12.mar. 2010 - 12:00
Marta María
Unnur Þorsteinsdóttir var búin að eyðileggja húð sína vegna ljósabekkjanotkunar. Hrukkustraujárnið hjálpaði henni að laga húðina og í dag er ekki að sjá á henni að hún hafi legið í ljósum. Unnur kynntist ljósabekkjunum þegar hún var 15 ára. Næstu tíu árin stundaði hún bekkina þrisvar til fjórum sinnum í viku þrátt fyrir fortölur móður sinnar, sem sagði bekkina stórhættulega.