29. mar. 2010 - 11:20Marta María

Glæsilegur gala-kvöldverður frumkvöðlaráðstefnunnar – MYNDIR

Ari Kristinn Jónsson rekor Háskólans í Reykjavík og Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra.

Ari Kristinn Jónsson rekor Háskólans í Reykjavík og Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra. Mynd: Elínrós Líndal

Í síðustu viku fór frumkvöðlaráðstefnan fram í Reykjavík. Hún var haldin á vegum MIT-háskólans í Boston, Háskólans í Reykjavík og Innovit, nýsköpunar-og frumkvöðlaseturs. Rúmlega fjögur hundruð manns sóttu ráðstefnuna, þar af 200 erlendir gestir frá yfir fjörutíu löndum.

Á fimmtudagskvöldið var ráðstefnunni fagnað með gala-kvöldverði sem fram fór í Perlunni. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra flutti þar hátíðarræðu. Aðalsteinn Leifsson var veislustjóri og boðið var upp á þriggja rétta kvöldverð.

Hrafnhildur Mooney, verkefnastjóri ráðstefnunnar, segir að koma Robin Chase hafi verið hápunktur ráðstefnunnar. Robin er stofnandi Zipcar fyrirtækisins og var valin ein af „100 Most Influential People“ af Time Magazine 2009.

Robine er forstjóri Meadow Networks; fyrirtækis sem sérhæfir sig í ráðgjöf til borgaryfirvalda og opinberra stofnana um vistvænar lausnir í samgöngum.  Robin er þekktur fyrirlesari og hefur hlotið fjölda viðurkenninga og verðlauna á sviði nýsköpunar, sjálfbærni og umhverfismála, til dæmis Fast Company Fast 50 Innovators og Business Week Top 10 Designers.

Robin Chase er mögnuð kona. Eftir heimsókn hennar elskar hún Ísland. Það er gaman að segja frá því að hún keypti mikið af íslensku garni og er örugglega nú þegar byrjuð að prjóna sokka úr því.

Left Right