30. jan. 2010 - 15:00Marta María

Er athyglissýkin að fara með Kim Kardashian? Setti baðfatamyndir af sjálfri sér á Twitter

Kim Kardashian.

Kim Kardashian. Mynd: Twitter

Megabeibið Kim Kardashian elskar frægðina og alla athylgina. Hún er snillingur í að koma sér á framfæri  og gerir allt til þess að við gleymum henni örugglega ekki. 

 Í vikunni sat hún fyrir á baðfötum fyrir tímarit. Ljósmyndarinn var varla búinn að hlaða myndunum inn í tölvuna þegar hún var búin að pósta þeim á Twitter.

Kim Kardashian er komin í þrusuform. Þegar hún var að byrja fyrirsætuferil sinn var hún gagnrýnd fyrir að vera með of mjúkar línur. Upp á síðkastið hefur hún tálgað líkamann með stöðugum æfingum og heilbrigðu mataræði.

Það er frábært að Kim Kardashian sé ánægð með sig en er ekki svolítið gróft að pósta myndum sem hafa ekki verið birtar opinberlega? Hvað sem því líður skortir hana ekki aðdáendur og þá skiptir ekki máli hvort þeir séu átta ára eða áttræðir.

Þess má til gamans geta að tímaritið People greindi frá því á dögunum að Maddox, sonur Angelinu Jolie og Brad Pitt, sé yfir sig hrifinn af Kim Kardashian. Þegar hann sá hana á fótboltaleik um daginn átti hann í erfiðleikum með að horfa á leikinn, svo hugfanginn var hann.



Left Right


11.mar. 2010 - 17:00 Marta María

Kvenleg og sportleg lína frá Birnu vekur athygli

Íslenski fatahönnuðurinn Birna Einarsdóttir hefur gert það gott í hönnunarbransanum. Nú hefur splunkuný lína frá Birnu litið dagsins ljós.  Línan skartar kvenlegum en jafnframt svolítið rokkuðum fötum sem henta vel fyrir íslenskar konur.
11.mar. 2010 - 14:00 Marta María

Smakkaðu sushi með hýðishrísgrjónum eða trefjablöndu

Austurlenski veitingastaðurinn Nings hafa sett tvo holla og nýja sushi rétti á markað. Um er að ræða sushi sem gert er úr hýðishrísgrjónum og sushi með Multi Grain trefjablöndu. Báðar þessar tegundir eiga það sameiginlegt að vera án sykurs, salts og ediks. Þær henta því vel fyrir þá sem huga að heilbrigði og hollustu.
11.mar. 2010 - 13:00 Björg Magnúsdóttir

Þessi snekkja setur L-ið í lúxus: Tilbúin strönd, þyrlupallur og bókasafn - MYNDIR

Snekkjan á siglingu. Á snekkjusýningu í Abu Dhabi kenndi ýmissa grasa. Meðal annars sviptu hönnuður hulunni af snekkju sem gengur unnir vinnuheitinu færanlega eyjan. Verðið á henni eru litla 160 milljónir Bandaríkjadala sem eru allt of margar íslenskar krónur til þess að umreikna þá.
11.mar. 2010 - 11:50 Marta María

Birgitta Haukdal fær uppreisn æru: Chanel sýnir loðstígvél í París -MYNDIR

Haustlína Chanel var sýnd á tískuvikunni í París á dögunum. Það var norðurpólsþema á tískusýningunni og var jökull notaður í sviðsmyndina. Sagan segir að ísjakinn hafi komið frá Skandínavíu. Gestum sýningarinnar brá þegar fyrstu fyrirsæturnar gengu á sviðið, en sumar þeirra voru klæddar hálfgerða bangsabúninga. Fyrstu flíkurnar á sýningunni voru nánast heilgallar en svo varð fatnaðurinn léttari eftir því sem leið á sýninguna.
11.mar. 2010 - 09:00 Björg Magnúsdóttir

Leikkona kynnir töfralausn: Fær karla til þess að horfa í augu en ekki á brjóst - MYNDBAND

Marion Cotillard. Óskarsverðlaunahafinn Marion Cotillard er farin í herberð gegn bandarískum karlmönnum sem stara á brjóst hennar þegar þeir ræða við hana. Cotillard kynnir lausn á vandamálinu, sem hún telur að fleiri konur eigi við að etja, í nýju myndbandi sem hún hefur sent frá sér. Lausnin er fólgin í gervibrjóstum sem setja skal upp á enni við komandi konu og kallast Forehead Tittaes. Gervibrjóstin eiga að valda því að karlmenn horfi í augu kvenna þegar þeir ræða við þær, en ekki á efri hluta bringunnar.
11.mar. 2010 - 07:00 Björg Magnúsdóttir

Heitt stöff: Jennifer Aniston og Gerard Butler í hlutverkaleikum - MYNDIR

Apríl 2010: Butler og Aniston framan á.

Jennifer Aniston og Gerard Butler eru framan apríl-eintaki tímaritsins W sem út kemur seint í mars. Innan í blaðinu er síðan myndaþáttur þar sem skötuhjúin fara með aðalhlutverkin í, í tilefni frumsýningu kvikmyndarinnar Bounty Hunter, sem þau eru einmitt líka í aðalhlutverkum í. Bounty Hunter verður frumsýnd vestanhafs 18. mars næstkomandi.

10.mar. 2010 - 17:00 Marta María

Bojan Simic hannaði eigulegt einbýli í Melbourne - MYNDIR

Ástralski arkitektinn Bojan Simic hannaði stórskemmtilegt hús í Melbourne í heimalandi sínu. Hann fékk algerlega frjálsar hendur við hönnunina og minnir húsið svolítið á geimskip en framhlið hússins er nánast úr gleri, uppúr og niðurúr.
10.mar. 2010 - 14:00 Marta María

Ljúffengur morgunhristingur fyrir unga sem aldna – UPPSKRIFT

Morgunhristingur með múslí. Langar þig í eitthvað fljótlegt og ljúffengt í morgunmat? Ef þú ert með blandara við höndina tekur innan við fimm mínútur að búa til þennan ljúffenga drykk. Það góða við þennan er að hann bragðast nánast eins og rjómaís. Bananinn gerir morgunhristinginn mjúkan og sætan. Kókosvatnið er mikið notað í hráfæðisuppskriftir og inniheldur góða næringu.
10.mar. 2010 - 12:00 Marta María

Stjörnufans á tískusýningu Stellu McCartney í París - MYNDIR

Paul McCartney var stoltur af dóttur sinni, Stellu. Tískuhönnuðurinn Stella McCartney sýndi haustlínu sína 2010 á tískuvikunni í París. Áhorfendapallarnir voru þéttsetnir af aðaltískuliðinu og var pabbi hönnuðarins, Paul McCartney,  fremstur í flokki og stoltið leyndi sér ekki. Hann mætti með kærustuna, Nancy Shevell. Þau leyndu ekki hrifningu sinni og voru alsæl með stelpuna. Tískubomban, Anna Wintour, ritstýra ameríska Vogue lét sig heldur ekki vanta, en eins og henni einni er lagið sýndi hún ekki mikil viðbrögð. Þau viðbrögð voru kannski í takt við hennar karakter enda rignir yfirleitt upp í nefið á henni.
10.mar. 2010 - 09:00 Marta María

Íslenskur fatahönnuður færir út kvíarnar: Ný fylgihlutalína fyrir börn - MYNDIR

Dóttirin, Stella Reykdal Hallgrímsdóttir, sinnir fyrirsætustörfum. Fatahönnuðurinn Hlín Reykdal kynnir til sögunnar nýja línu frá sér sem er fylgihlutalína fyrir börn. Í línunni má finna slaufur, klúta, hárbönd og húfur fyrir ungviðið. Hlín er útskrifaður fatahönnuður frá Listaháskóla Íslands og hefur hingað til einbeitt sér að fylgihlutahönnun fyrir fullorðna. Vörur hennar voru seldar í versluninni Bellevile og hjá hinum danska hönnuði Henrik Vibskov.
10.mar. 2010 - 07:00 Björg Magnúsdóttir

Íklædd límbandi einum fata bakvið lás og slá: Hver önnur en Lady Gaga?

Lady Gaga skemmtir sér vel í fangelsinu. Nýjasta myndbands Lady Gaga, Telephone, er beðið með eftirvæntingu um heim allan. Til þess að lina þjáningar aðdáenda hafa aðstandendur lekið nokkrum vel völdum myndum við gerð myndbandsins út. Þar er Gaga meðal annars íklædd límband einum fata í fangelsi!
09.mar. 2010 - 17:00 Marta María

Svöl sumarlína Karls Lagerfeld vekur athygli - MYNDIR

Hönnuðurinn Karl Lagerfeld var í stuði þegar hann hannaði sumarlínu sína. Það er stutt í hinn klassíska Lagerfeld þar sem svarti og hvíti liturinn er áberandi. Þó fá aðrir tónar að vera með eins og grár og ferskjubleikur. Herra Lagerfeld spáir líklega heitu sumri því stuttbuxur og stutt pils eru áberandi í línunni.
09.mar. 2010 - 14:00 Marta María

Saffran kjúklingavængir með funheitu gulrótarsalati – UPPSKRIFT

Saffrankjúklingur með gulrótarsalati. Þegar ég fræddi eiginmann minn um að Saffran væri dýrasta krydd veraldar horfði hann á mig og spurði undrandi af hverju í ósköpunum ég notaði það á kjúklingavængi. Honum fannst það alls ekki passa saman. Ég sagði að þetta væri svolítið eins og að blanda húsgögnum úr Epal saman við húsgögn úr IKEA, það gæti ekki klikkað. Þegar hann var hinsvegar búinn að smakka fyrsta bitann skildi hann galdurinn. Nú eru kjúklingavængir víða á tilboði og um að gera að nýta sér þau.
09.mar. 2010 - 12:20 Marta María

Yas hótelið í Abu Dhabi er góðærið holdi klætt - MYNDIR

Í Abu Dhabi er hótelið Yas staðsett en það var opnað í byrjun nóvember 2009. Eins og flest í arabísku furstadæmunum er ekkert til sparað og íburðurinn er gríðarlegur. Á þessum slóðum er allt risastórt og glæsilegt. Arkitektarnir Jestico + Whiles eiga heiðurinn af innanhússhönnuninni en þeir hafa unnið til margra verðlauna. Þeir eru með skrifstofur í Lundúnum og í Prag og liggja verk eftir þá um allan heim. Þeir hafa verið sterkir í hönnun á hótelum, verslunum og heimilum.
09.mar. 2010 - 09:00 Björg Magnúsdóttir

Afar sérstök höfuðföt kynnt til sögunnar á tískuviku í París - MYNDIR

Jean Paul Gaultier. Það er nóg af stórundarlegum hátískuhöttum til sýnis á tískuvikunni í París sem nú fer fram. Á sýningum helgarinnar var áberandi hve mörg tískuhús höfðu búið fyrirsætur sínar með höfuðfötum sem venjulegar manneskjur hafa að öllum líkindum ekki oft séð úti á götu. Línurnar eru haust- og vetrarlínur 2010-2011.
09.mar. 2010 - 07:00 Björg Magnúsdóttir

Brittany Murphy og Michael Jackson minnst á Óskarnum en gleymdist Farrah Fawcett?

Farrah Fawcett. Athygli vakti að leikkonan Farrah Fawcett var ekki í sérstakri minningarstund Óskarsverðlaunanna sem fram fóru aðfararnótt mánudags í Hollywood. Fawcett var bandarísk leikkona og listamaður sem og handhafi nokkurra Golden Globe-verðlauna. Fawcett hún lést síðasta sumar.
08.mar. 2010 - 17:00 Marta María

Tískuslysin á Óskarnum – MYNDIR

Charlize Theron.

Þó allir heimsins stílistar séu reiðubúnir að hjálpa og ekki skorti fé til fatakaupa gerast slysin samt. Tískuslysin voru ekki sérlega mörg þetta árið en inni á milli mátti þó glitta í þau. Charlize Theron var í ruglinu þegar hún valdi sér kjól fyrir Óskarinn. Blómin sem skreyta brjóststykkið áttu vafalaust að draga athygli að barminum og gera meira úr honum. Útkoman var kjánaleg og svo virðist sem kjóllinn hafi ekki verið úr nógu skemmtilegu efni. Hann kipraðist sumstaðar á saumunum sem er afleitt.

08.mar. 2010 - 15:00 Marta María

Vandað og sjarmerandi hús í Singapore – MYNDIR

Það fer lítið fyrir asískum áhrifum í húsi sem Dlab arkitektastofan hannaði. Húsið er vestrænt í útliti og smekkpassar inn í umhverfið. Húsið er staðsett í borginni Singapore í Asíu. Í húsinu er að hluta til tvöföld lofthæð, sem er notuð til að skapa stemningu í stofunni. Þegar vel viðrar er hægt að opna nánast allan glervegginn sem skilur að stofu og garð. Með því að opna glervegginn er sundlaugin komin inn í stofu. Það er ekki amalegt.
08.mar. 2010 - 12:00 Marta María

Hverjar voru best klæddar á Óskarsverðlaununum? - MYNDIR

Flottustu kjólarnir á Óskarnum voru flestir í ljósum litum. Það er alltaf jafn mikill spenningur fyrir klæðaburði stjarnanna á Óskarsverðlaunahátíðinni. Glamúrinn hefur sjaldan verið meiri en í nótt þegar verðlaunin voru veitt í 82 skipti. Leikkonurnar Kate Winslet, Cameron Diaz, Helen Mirren og Sandra Bullock röðuðu sér í efstu sætin yfir best klæddu stjörnurnar. Allar voru þær óaðfinnanlegar til fara og geisluðu á þessari hátíðarstundu.
08.mar. 2010 - 09:00 Björg Magnúsdóttir

Sagði einhver að Norðmenn væru púkó? Alveg vitlausir í þennan heilgalla - MYNDIR

Þægindi í fyrirrúmi hjá Norðmönnum.

Norska fyrirtækið OnePiece framleiðir aðeins eina flík. Um er að ræða heilgalla sem hægt er að fá í fjölda gerða. Hægt er að smella sér í heilgalla í fánalitum þjóða, röndóttan eða tví-litaskiptan.


skipuleggur ýmislegt skemmtileg.

Pistillmartamaria@pressan.is

Karlrembur á konubílum

Mitt femíníska hjarta tók kipp þegar þriggja ára sonur minn benti á litla krúttlega Suzuki bifreið í bílablaði og tilkynnti að þetta væri „konubíll“.



Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit