30. mar. 2011 - 08:00Þóra Sigurðardóttir

Dásamlega fallegar skandinavískar vörur í barnaherbergið og heimilið: ISAK er málið

ISAK

ISAK er hugarfóstur sænska hönnuðarins Söndru Isaksson sem ólst upp í frumskógum Svíþjóðar eins og hún segir sjálf frá. Undir áhrifum frá tröllum og álfum – og skandinavíska einfaldleikanum hefur hún hannað þessar dásamlega fallegu vörur sem að marga foreldra dreymir um.

Rúmföt, veggfóður, leirtau, dúkar og myndir eru meðal þess sem að ISAK býður upp á en einnig er hægt að sérpanta veggmyndir sem eru ótrúlega fallegar. Þá þarf ekki annað en að mæla vegginn, gefa upp málin á pöntunarsíðu fyrirtækisins og bíða í tvær vikur. Fermetraverðið er um fimm þúsund krónur.

Heimasíðu ISAK má nálgast hér.

Left Right