04. feb. 2010 - 09:00Björg Magnúsdóttir

Áfram hraunað yfir frú Beckham við Idol-dómarastörf

VB við dómarastörf.

VB við dómarastörf. Daily Mail

Eins og áður hefur komið fram hér á Pressunni gegnir Victoria Beckham afleysingarstörfum sem American Idol-dómari. Nú hefur hún gegnt hlutverkinu tvisvar sinnum og áhorfendur hafa gagnrýnt hana talsvert eftir bæði skiptin

Hún er meðal annars sögð hafa of hræðileg svipbrigði fyrir nærmynd í sjónvarp, vera allt of grönn og láta út úr sér leiðinlega og  óspennandi hluti. The Sun sagði hana hafa fengið sér andlitslyftingu með fasta hársnúðnum sem hún hafði á höfðinu. Netverjar fóru á kreik eftir þátt númer tvö, sögðu breska hreim hennar ekki að gera sig og ítrekuðu að hún hefði sagt rosalega mikið af rosalega óspennandi hlutum.

Eftir seinni þáttinn sagði New York Times hana hafa beint sjónum í meira mæli að klæðnaði og útliti keppenda heldur en sönghæfileikum. „Hefur hún ekki miklu betri skilning á tísku heldur en tónlist?“ spurði gagnrýnandi NYT. Sá hefur að minnsta kosti rétt fyrir sér með skilning hennar á tísku þar sem hún hyggst koma á fót eigin tískuhúsi.

Frú Beckham var tíðrætt um tiltekinn keppanda sem henni fannst líta út eins og fyrirsæta - og pressaði því á aðra dómara að hann skyldi sendur áfram. Sjá myndir af Beckham að störfum í bandaríska Idolinu sem og keppandanum sem þótti líta út eins og fyrirsæta hér að neðan.
Left Right


17.mar. 2010 - 16:30 Marta María

Eru Jennifer Aniston og Gerard Butler bara að feik‘aða?

Er þetta ást? Jennifer Aniston og Gerard Butler eru önnum kafin þessa dagana við að kynna kvikmyndina, The Bounty Hunter, en þau fara með aðalhlutverk í myndinni. Myndin verður einmitt frumsýnd hérlendis um helgina. Í gær voru þau á ferð í New York og þar fór Jennifer á kostum í húðlitum kjól frá drottningunni Donnu Karan. Jennifer Aniston fer yfirleitt öruggu leiðina þegar hún velur sér fatnað og er oftast í svörtum kjólum.
17.mar. 2010 - 15:00 Marta María

Michael Kors hannaði vorlínu Esteé Lauder: Hreinræktaður Hollywood glamúr

Hollywood glamúrinn er allsráðandi í nýjustu línu Esteé Lauder, Very Hollywood Color Collection. Hönnuðurinn Michael Kors hannaði línuna í samvinnu við Aerin Lauder, en sagan segir að þau séu perluvinir. Hönnun hans hefur hlotið mikið lof. Hann er nú þegar með fata-og gleraugnalínu þar sem hann leggur mikið upp úr einfaldleikanum. Þegar kemur að förðunarlínunni vill Michael Kors að konan líti sem best út.

17.mar. 2010 - 12:00 Marta María

Vertu með puttana á púlsinum: Hermannaáhrifin eru ríkjandi í vortískunni – MYNDIR

Úr vor-og sumarlínu Balmain. Hermannaáhrifin voru áberandi þegar tískumerkin Balmain og Chloé sýndu vorlínur sínar síðasta haust. Þessi merki er funheit um þessar mundir enda elska stjörnurnar að klæðast flíkum frá þessum merkjum. Kvenlegir hermannajakkar, dömulegar hermannabuxur og sandalar eru algerlega málið núna. Khaki liturinn kemur sterkur inn í fatnaði, en fallegt er að blanda honum við gráa tóna.
17.mar. 2010 - 09:00 Björg Magnúsdóttir

Svalasti maðurinn í Kína er heimilislaus: Elskaður fyrir klæði sín og tískuvit - MYNDIR

Sá svalasti í Kína. Svalasti maðurinn í Kína, samkvæmt miðlum og netverjum um allan heim, er þessi gæi til hægri á myndinni. Um er að ræða heimilisleysingja sem býr á götum borgarinnar Ningbo. Sá sem um ræðir hefur vakið mikla athygli fyrir stílíseringu og glöggt auga fyrir bóhem tískuklæðum, þar sem hann eyðir dögunum á götum úti.
17.mar. 2010 - 08:00 Marta María

Katrín Ólína sýnir veggspjöld og postulínsdiska í Crymogeu

Katrín Ólína. Katrín Ólína er án efa einn þekktasti hönnuður Íslendinga á alþjóðavettvangi. Verk hennar hafa verið framleidd af fyrirtækjum á borð við DuPont®, Rosenthal, Swedese, Toshiba og Fornarina og hún hefur búið til merkingar og útlit fyrir alþjóðlegar listahátíðir og hönnunarsýningar. Katrín Ólína hefur hlotið virt alþjóðleg hönnunarverðlaun svo sem norrænu Forum AID-verðlaunin í flokki innanhússhönnunar fyrir hönnun sína á Cristal Bar í Hong Kong.
17.mar. 2010 - 07:00 Björg Magnúsdóttir

Ný lína frá American Apparel fyrir trans-gender einstaklinga - MYNDBAND

Ný lína frá American Apparel hefur verið kynnt til sögunnar, sérstök fatalína til handa þeim sem eru í miðri kynleiðréttingaraðgerð - eða hvað? Línan er vissulega merkt American Apparel, þó það sé bandaríska vefsíðan Funny or Die sem stendur fyrir hrekk á stórfyrirtækið með því að útbúa herferð í nafni þess.
16.mar. 2010 - 17:00 Marta María

Ertu í eldhúspælingum? Innlit í sex seiðandi eldhús - MYNDIR

Túrkisliturinn kemur vel út í fyrsta eldhúsinu. Í góðærinu skipti enginn um eldhús hjá sér, nema það kostaði margar milljónir. Fólki hættir hinsvegar ekki að langa í falleg eldhús þó svo að það eigi minni peninga í buddunni. Þegar eldhúsið er endurbætt er hægt að fara margar heillandi leiðir án þess að það kosti of mikið. Þegar skipt er um eldhús, eða gamla eldhúsið er hresst við, skiptir miklu máli að hafa góðan smið með sér.
16.mar. 2010 - 15:00 Marta María

Götutíska stjarnanna í Hollywood – MYNDIR

Brad Pitt. Vorið er á næsta leiti ef fatastíll stjarnanna er skoðaður síðustu vikuna. Brad Pitt og fjölskylda dvelja á Ítalíu núna. Hann var myndaður í góðum fíling í Flórens. Bóhem-útlitið var allráðandi, gallabuxur, hippalegur jakki, húfa og hliðartaska. Svo ekki sé minnst á skeggið, ætli hann sé að taka þátt í átaki?
16.mar. 2010 - 11:30 Björg Magnúsdóttir

Brjóst kvenna fara sífellt stækkandi: Stærð K kynnt á markað

Brjóst kvenna fara stækkandi. Brjóst kvenna fara óðum stækkandi og verður stækkunin ekki eingöngu skýrð með aukinni líkamsþyngd kvenna. Verslunin Selfridges á Bretlandseyjum hefur aukið sölu á brjóstahöldurum í stærðum D til G um 50% síðan árið 2005. Nú hefur sama verslun tilkynnt um sölu á enn stærri stærð en verið hefur hingað til, stærð K.
16.mar. 2010 - 10:47

500 íslenskir hönnuðir taka þátt: HönnunarMars hefst á fimmtudag, 100 viðburðir í boði

Greipur Gíslason, verkefnisstjóri HönnunarMars og Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar kynntu dagskrána. HönnunarMars, íslensk hönnunarhátíð fer fram í annað skipti á Íslandi, frá næsta fimmtudegi til sunnudags. Markmið hátíðarinnar er að kynna fyrir gestum nýjustu strauma og stefnur í íslenskri hönnun. Grasrót íslenska hönnunarsamfélagsins, yfir 500 einstaklingar, tekur þátt á hátíðinni og við skipulagningu ríflega 100 viðburða hennar.
16.mar. 2010 - 09:00 Marta María

Gróska og stemning hjá íslenskum fatahönnuðum: SHOWROOM á HönnunarMars - MYNDIR

Frá SHOWROOM REYKJAVÍK í fyrra. Í þriðja skipti stendur Fatahönnunarfélag Íslands fyrir viðburðinum SHOWROOM REYKJAVÍK sem er hluti af HönnunarMars. Þar koma saman valinkunnir íslenskir fatahönnuðir og kynna nýjustu vörur sínar fyrir innkaupaaðilum og fagfólki í tískuheiminum. Lovísa Óladóttir, sem situr í stjórn Fatahönnunarfélags Íslands, segir í samtali við Pressuna að stemning meðal fatahönnuða á Íslandi sé svakalega mikil - svo ekki sé meira sagt.
16.mar. 2010 - 07:00 Marta María

Kate Winslet er skilin við eiginmanninn: Tóku sameiginlega ákvörðun

Sam og Katie meðan allt lék í lyndi.

Leikkonan Kate Winslet og kvikmyndaleikstjórinn, Sam Mendes, eru skilin eftir tæplega sjö ára hjónaband. Parið er sagt hafa tekið sameiginlega ákvörðun um að fara í sitthvora áttina. Saman eiga Kate og Sam sex ára gamlan son, Joe Alfie Winslet Mendes, en Kate átti dótturina Miu  Honey fyrir, sem er níu ára.

15.mar. 2010 - 16:00 Marta María

Cheryl Cole hendir Asley endanlega út: Komin með sama skilnaðarlögfræðing og Paul McCartney

Ashley og Cheryl Cole meðan allt lék í lyndi. Söngkonan Cheryl Cole er endanlega búin að segja skilið við eiginmann sinn, Ashley Cole. Þau hittust um helgina til að ræða málin. Ashley hélt að hann gæti hugsanlega unnið hana til baka enda hefur mamma hans reynt að hjálpa honum með því að tala Cheryl til. Það var hinsvegar allt annað uppi á teningnum.
15.mar. 2010 - 13:00 Marta María

Stanslaust stuð að eilífu: 40 ára afmæli Páls Óskars - MYNDIR

Það var mikið um dýrðir þegar stuðpinninn Páll Óskar hélt upp á 40 ára afmælið sitt. Veislan fór fram á skemmtistaðnum Nasa síðastliðinn laugardag og komust færri að en vildu. Páll Óskar var eins og sönn rokkstjarna í pallíettuskreyttum jakkafötum. Glamúrinn var allsráðandi og ekki sást fýlusvipur á neinum.
15.mar. 2010 - 12:00 Marta María

Sesamsteiktur karfi með gulróta- og mangósalati – UPPSKRIFT

Sesamsteiktur karfi. Það skiptir miklu máli að borða fisk allavega einu sinni í viku,  helst oftar. Steiktur fiskur og steiktur fiskur er ekki það sama. Prófaðu að skipta raspinu út fyrir sesamfræ. Sesamfræ eru ekki bara bragðgóð heldur innihalda þau góða fitu og eru einnig auðug af járni. Í þessa uppskrift er notaður karfi en auðvitað má skipti fisktegundinni út.
15.mar. 2010 - 09:00 Björg Magnúsdóttir

Sugababes með nýja plötu og stílista: Ný ímynd, gærulegri - byggir á nekt okkar - MYNDIR

Koverið: Sweet 7 á vegum Sugababes. Geisladiskur stúlknanna í söngsveitinni Sugababes (í. Sykurbeibin) kemur í verslanir á Bretlandseyjum í dag. Þrír meðlimir sveitarinnar virðast vera í fantaformi og til í tuskið ef marka má myndirnar af þeim sem koma til með að prýða gripinn. Nýi diskurinn heitir Sweet 7.
15.mar. 2010 - 07:00 Björg Magnúsdóttir

Tjúllandi gleði á tískuhátíð: Rautt, túberað hár í bland við tjull-pils - MYNDIR

Opnunarhátíð L'Oreal tískuhátíðarinnar var vægast sagt fríkuð, litrík og sannkallast listaverk fyrir augað. Þar strolluðu um módel í stórundarlegum klæðum; túberað hár, risastórar hárkollur, horn á höfði og beinagrinda-brimbretti. Umræddur atburður fór fram í Melbourne um liðna helgi.
14.mar. 2010 - 17:00 Marta María

Naglalökk í geggjuðum litum er það sem koma skal: Vertu með puttana á púlsinum

OPI línan er undir asískum áhrifum. Geggjaðir litir eru áberandi í vor-og sumarlínunni frá naglalakksframleiðandanum OPI. Þessi naglalökk eru íslenskum konum að góðu kunn enda hægt að fá þau á góðu verði. Hönnuðir OPI sóttu innblástur í austurlensk fræði með örlitlum áhrifum frá Feng Shui. Innblástur línunnar koma aðallega frá borginni Hong Kong en sú borg er ákaflega litrík og heillandi.
14.mar. 2010 - 14:00 Marta María

Ljúffengur kjúklingur í hnetusósu – UPPSKRIFT

Kjúklingur í hnetusósu er lostæti. Áttu afgang af kjúklingi sem þú veist ekki hvað þú átt að gera við eða langar þig bara í eitthvað gott? Það getur leynst mikill matur á heilum kjúklingum þótt búið sé að borða bringurnar og lærin. Þá er um að gera að búa til gómsæta pottrétti. Til að fá fullkomna nýtingu á heilum kjúklingi er búið til soð úr beinunum. Með heimagerðu soði er hægt að búa til kraftmiklar súpur án nokkurra aukefna. Meira um þær síðar.
14.mar. 2010 - 12:19 Marta María

Liz Hurley bannar syni sínum að horfa að kvikmyndir með Hugh Grant

Liz og Damian. Leikkonunni Liz Hurley er annt um sjö ára son sinn og vill alls ekki að hann horfi á hvaða bíómyndir sem er. Nú hefur hún sett blátt bann við myndum fyrrverandi kærastans, Hugh Grant, því hún segir að myndirnar sem hann hefur leikið í séu ekki á nógu góðu máli.

nýtur hversdagsins.

Pistillmartamaria@pressan.is

Finnst ykkur þetta í lagi?

Myndarskapurinn drýpur af hverju mannsbarni þessa dagana. Ef fólk er ekki að þreifa fyrir sér í eldhúsinu og prófa sig áfram við matreiðslu á framandi réttum, er fólk að sinna handavinnu



Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit