05. feb. 2010 - 21:39

Áður óséðar myndir birtar af Marilyn Monroe: Hún var engri lík, segir ljósmyndari - MYNDIR

Í dag var hulunni svipt af áður óséðum myndum af hinni ofurfögru Marilyn Monroe. Um er að ræða myndasyrpu sem tekin var af ljósmyndaranum Len Stackler árið 1961. Myndirnar voru teknar þegar Monroe sótti heim Carl Sandburg, skáldið sem m.a. vann til Pulitzer-verðlauna.

Steckler lýsir atburðinum á stöðinni MSNBC í dag þannig að hann hafi verið heima hjá Sandburg, sem hafi sagt að von væri á gesti. Nokkrum tímum síðar var barið að dyrum.

„Ég fer til dyra, ég opna dyrnar og ég stend andspænis Marilyn Monroe! Hún var engu lík,“ segir Steckler um kynni sína af henni. Steckler var að sjálfsögðu með myndavélina á sér og smellti nokkrum góðum af þeim Monroe og Sandburg, sem má skoða hér að neðan. Hann hefur geymt þær í 49 ár en hyggst selja þær hæstbjóðanda undir yfirskriftinni „Marilyn Monroe: Heimsóknin.“

Left Right


10.mar. 2010 - 17:00 Marta María

Bojan Simic hannaði eigulegt einbýli í Melbourne - MYNDIR

Ástralski arkitektinn Bojan Simic hannaði stórskemmtilegt hús í Melbourne í heimalandi sínu. Hann fékk algerlega frjálsar hendur við hönnunina og minnir húsið svolítið á geimskip en framhlið hússins er nánast úr gleri, uppúr og niðurúr.
10.mar. 2010 - 14:00 Marta María

Ljúffengur morgunhristingur fyrir unga sem aldna – UPPSKRIFT

Morgunhristingur með múslí. Langar þig í eitthvað fljótlegt og ljúffengt í morgunmat? Ef þú ert með blandara við höndina tekur innan við fimm mínútur að búa til þennan ljúffenga drykk. Það góða við þennan er að hann bragðast nánast eins og rjómaís. Bananinn gerir morgunhristinginn mjúkan og sætan. Kókosvatnið er mikið notað í hráfæðisuppskriftir og inniheldur góða næringu.
10.mar. 2010 - 12:00 Marta María

Stjörnufans á tískusýningu Stellu McCartney í París - MYNDIR

Paul McCartney var stoltur af dóttur sinni, Stellu. Tískuhönnuðurinn Stella McCartney sýndi haustlínu sína 2010 á tískuvikunni í París. Áhorfendapallarnir voru þéttsetnir af aðaltískuliðinu og var pabbi hönnuðarins, Paul McCartney,  fremstur í flokki og stoltið leyndi sér ekki. Hann mætti með kærustuna, Nancy Shevell. Þau leyndu ekki hrifningu sinni og voru alsæl með stelpuna. Tískubomban, Anna Wintour, ritstýra ameríska Vogue lét sig heldur ekki vanta, en eins og henni einni er lagið sýndi hún ekki mikil viðbrögð. Þau viðbrögð voru kannski í takt við hennar karakter enda rignir yfirleitt upp í nefið á henni.
10.mar. 2010 - 09:00 Marta María

Íslenskur fatahönnuður færir út kvíarnar: Ný fylgihlutalína fyrir börn - MYNDIR

Dóttirin, Stella Reykdal Hallgrímsdóttir, sinnir fyrirsætustörfum. Fatahönnuðurinn Hlín Reykdal kynnir til sögunnar nýja línu frá sér sem er fylgihlutalína fyrir börn. Í línunni má finna slaufur, klúta, hárbönd og húfur fyrir ungviðið. Hlín er útskrifaður fatahönnuður frá Listaháskóla Íslands og hefur hingað til einbeitt sér að fylgihlutahönnun fyrir fullorðna. Vörur hennar voru seldar í versluninni Bellevile og hjá hinum danska hönnuði Henrik Vibskov.
10.mar. 2010 - 07:00 Björg Magnúsdóttir

Íklædd límbandi einum fata bakvið lás og slá: Hver önnur en Lady Gaga?

Lady Gaga skemmtir sér vel í fangelsinu. Nýjasta myndbands Lady Gaga, Telephone, er beðið með eftirvæntingu um heim allan. Til þess að lina þjáningar aðdáenda hafa aðstandendur lekið nokkrum vel völdum myndum við gerð myndbandsins út. Þar er Gaga meðal annars íklædd límband einum fata í fangelsi!
09.mar. 2010 - 17:00 Marta María

Svöl sumarlína Karls Lagerfeld vekur athygli - MYNDIR

Hönnuðurinn Karl Lagerfeld var í stuði þegar hann hannaði sumarlínu sína. Það er stutt í hinn klassíska Lagerfeld þar sem svarti og hvíti liturinn er áberandi. Þó fá aðrir tónar að vera með eins og grár og ferskjubleikur. Herra Lagerfeld spáir líklega heitu sumri því stuttbuxur og stutt pils eru áberandi í línunni.
09.mar. 2010 - 14:00 Marta María

Saffran kjúklingavængir með funheitu gulrótarsalati – UPPSKRIFT

Saffrankjúklingur með gulrótarsalati. Þegar ég fræddi eiginmann minn um að Saffran væri dýrasta krydd veraldar horfði hann á mig og spurði undrandi af hverju í ósköpunum ég notaði það á kjúklingavængi. Honum fannst það alls ekki passa saman. Ég sagði að þetta væri svolítið eins og að blanda húsgögnum úr Epal saman við húsgögn úr IKEA, það gæti ekki klikkað. Þegar hann var hinsvegar búinn að smakka fyrsta bitann skildi hann galdurinn. Nú eru kjúklingavængir víða á tilboði og um að gera að nýta sér þau.
09.mar. 2010 - 12:20 Marta María

Yas hótelið í Abu Dhabi er góðærið holdi klætt - MYNDIR

Í Abu Dhabi er hótelið Yas staðsett en það var opnað í byrjun nóvember 2009. Eins og flest í arabísku furstadæmunum er ekkert til sparað og íburðurinn er gríðarlegur. Á þessum slóðum er allt risastórt og glæsilegt. Arkitektarnir Jestico + Whiles eiga heiðurinn af innanhússhönnuninni en þeir hafa unnið til margra verðlauna. Þeir eru með skrifstofur í Lundúnum og í Prag og liggja verk eftir þá um allan heim. Þeir hafa verið sterkir í hönnun á hótelum, verslunum og heimilum.
09.mar. 2010 - 09:00 Björg Magnúsdóttir

Afar sérstök höfuðföt kynnt til sögunnar á tískuviku í París - MYNDIR

Jean Paul Gaultier. Það er nóg af stórundarlegum hátískuhöttum til sýnis á tískuvikunni í París sem nú fer fram. Á sýningum helgarinnar var áberandi hve mörg tískuhús höfðu búið fyrirsætur sínar með höfuðfötum sem venjulegar manneskjur hafa að öllum líkindum ekki oft séð úti á götu. Línurnar eru haust- og vetrarlínur 2010-2011.
09.mar. 2010 - 07:00 Björg Magnúsdóttir

Brittany Murphy og Michael Jackson minnst á Óskarnum en gleymdist Farrah Fawcett?

Farrah Fawcett. Athygli vakti að leikkonan Farrah Fawcett var ekki í sérstakri minningarstund Óskarsverðlaunanna sem fram fóru aðfararnótt mánudags í Hollywood. Fawcett var bandarísk leikkona og listamaður sem og handhafi nokkurra Golden Globe-verðlauna. Fawcett hún lést síðasta sumar.
08.mar. 2010 - 17:00 Marta María

Tískuslysin á Óskarnum – MYNDIR

Charlize Theron.

Þó allir heimsins stílistar séu reiðubúnir að hjálpa og ekki skorti fé til fatakaupa gerast slysin samt. Tískuslysin voru ekki sérlega mörg þetta árið en inni á milli mátti þó glitta í þau. Charlize Theron var í ruglinu þegar hún valdi sér kjól fyrir Óskarinn. Blómin sem skreyta brjóststykkið áttu vafalaust að draga athygli að barminum og gera meira úr honum. Útkoman var kjánaleg og svo virðist sem kjóllinn hafi ekki verið úr nógu skemmtilegu efni. Hann kipraðist sumstaðar á saumunum sem er afleitt.

08.mar. 2010 - 15:00 Marta María

Vandað og sjarmerandi hús í Singapore – MYNDIR

Það fer lítið fyrir asískum áhrifum í húsi sem Dlab arkitektastofan hannaði. Húsið er vestrænt í útliti og smekkpassar inn í umhverfið. Húsið er staðsett í borginni Singapore í Asíu. Í húsinu er að hluta til tvöföld lofthæð, sem er notuð til að skapa stemningu í stofunni. Þegar vel viðrar er hægt að opna nánast allan glervegginn sem skilur að stofu og garð. Með því að opna glervegginn er sundlaugin komin inn í stofu. Það er ekki amalegt.
08.mar. 2010 - 12:00 Marta María

Hverjar voru best klæddar á Óskarsverðlaununum? - MYNDIR

Flottustu kjólarnir á Óskarnum voru flestir í ljósum litum. Það er alltaf jafn mikill spenningur fyrir klæðaburði stjarnanna á Óskarsverðlaunahátíðinni. Glamúrinn hefur sjaldan verið meiri en í nótt þegar verðlaunin voru veitt í 82 skipti. Leikkonurnar Kate Winslet, Cameron Diaz, Helen Mirren og Sandra Bullock röðuðu sér í efstu sætin yfir best klæddu stjörnurnar. Allar voru þær óaðfinnanlegar til fara og geisluðu á þessari hátíðarstundu.
08.mar. 2010 - 09:00 Björg Magnúsdóttir

Sagði einhver að Norðmenn væru púkó? Alveg vitlausir í þennan heilgalla - MYNDIR

Þægindi í fyrirrúmi hjá Norðmönnum.

Norska fyrirtækið OnePiece framleiðir aðeins eina flík. Um er að ræða heilgalla sem hægt er að fá í fjölda gerða. Hægt er að smella sér í heilgalla í fánalitum þjóða, röndóttan eða tví-litaskiptan.

08.mar. 2010 - 05:34 Björg Magnúsdóttir

82. Óskarsverðlaunahátíðin yfirstaðin: Kathryn Bigelow og Hurt Locker með sexu - MYNDIR

Kvikmynd Kathryn Bigelow, sem er 59 ára, hlaut 6 styttur. 82. Óskarsverðlaunahátíðin fór fram í Kodak-höllinni í Hollywood í gærkvöldi. Eins og búast mátti við sópuðu kvikmyndirnar The Hurt Locker eftir Kathryn Bigelow og Avatar eftir James Cameron að sér verðlaunum. The Hurt Locker hennar Bigalow hirti þó helmingi fleiri eða 6 styttur og fékk meðal annars verðlaun fyrir bestu kvikmyndina og fyrir bestu leikstjórnina. Kathryn Bigelow er fyrsta konan í sögu verðlaunanna til þess að hirða leikstjóraverðlaunin.
07.mar. 2010 - 15:00 Marta María

Suðræn sunnudagsmarinering á lambið – UPPSKRIFT

Lamba prime með oregano kartöflum. Lamba prime er fitusprengt kjöt sem er silkimjúkt og gott. Settu það í sunnudagsmarineringu og farðu með bragðlaukana á suðrænar slóðir. Gott er að bera lambið fram með fersku salati og ofnbökuðum oregano kartöflum.
07.mar. 2010 - 13:20 Marta María

Innlit til danska rithöfundarins John Volmer - MYNDIR

Í Vesterbro í Kaupmannahöfn hefur rithöfundurinn John Volmer komið sér fyrir í stíhreinni íbúð. Danska húsbúnaðarblaðið Bolig tók hús á John og segir að hann hafi sótt innblástur í listmálarann William Hammershøi. Íbúðin er hvítmáluð í hólf og gólf, en svarti liturinn kemur sterkur inn í húsgögnum. Í stofunni er flottur einfaldur sófi og borðstofuborð er sérstakt. Það er smíðað af vini Johns og lakkað með krítarmálningu. Ef John leiðist við matarborðið getur hann tekið krít í hönd og teiknað myndir eða skrifað ódauðlegan texta.

07.mar. 2010 - 10:40 Björg Magnúsdóttir

Ógleymanlegustu, vandræðalegustu og fallegustu Óskars-augnablikin - MYNDIR

Gwyneth Paltrow ætlaði ekki að hætta að skæla. Óskarsverðlaunahátíðin fer fram í kvöld í Kodak-höllinni í Hollywood í 82. skipti. Eins og endranær ríkir eftirvænting í herbúðum kvikmynda- og tískuáhugamanna um allan heim. Enda er klæðaburður stjarnanna
yfirleitt jafnmikið fréttaefni og það hver fer heim með gullstytturnar.
07.mar. 2010 - 07:00 Björg Magnúsdóttir

Þetta eru heimsins bestu rassar af 1.368 innsendum - MYNDIR

Sigurvegari. Eins og Pressan hefur áður greint frá efndi bandaríska fatafyrirtækið American Apparel til samkeppni um besta rass í heimi. Skilafrestur á „rassi“ var til 21. febrúar síðastliðinn og bárust fyrirtækinu samtals 1.368 myndir af keppendum.
06.mar. 2010 - 15:00 Marta María

Peter Thomas de Cruz hannaði spennandi höll á Spáni - MYNDIR

Breski arkitektinn, Peter Thomas de Cruz, datt í lukkupottinn þegar hann  fékk hið skemmtilega verkefni að hanna höll í La Zagaleta á Spáni. Húsið er engin smá smíði en það er byggt á kletti með útsýni út á sjóinn. Götumegin fer ekki mikið fyrir húsinu en þegar komið er sjávarmegin er allt að gerast. Garðurinn er sérstaklega heillandi með öllum þeim ævintýrum sem hann hefur upp á að bjóða.  Allt innviði hússins er vandað og flott eins og lúxusheimili sæmir.

skipuleggur ýmislegt skemmtileg.

Pistillmartamaria@pressan.is

Karlrembur á konubílum

Mitt femíníska hjarta tók kipp þegar þriggja ára sonur minn benti á litla krúttlega Suzuki bifreið í bílablaði og tilkynnti að þetta væri „konubíll“.



Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit