07. júl. 2010 - 16:00Marta María

Tölvuúr frá Casio og gyllt armband frá Sif Jakobs er mjög smart saman.
Það er engin kona með konum nema að skarta fallegum fylgihlutum. Sumarið kallar á litríka og lekkera fylgihluti sem lífga upp á heildarmyndina. Fylgihluti sem gefa gömlu fötunum nýtt líf og lyftir sálinni upp á hærra plan.
Sólgleraugu eru náttúrlega fylgihlutur númer eitt en strax á eftir þeim koma fallegir eyrnalokkar, úr, armbönd og töskur. Svo má ekki gleyma því að engin kona getur lifað sumarið af án þess að eiga fallegt belti.
Tískan í armbandsúrum er svolítið gamaldags. Gömlu tölvuúrin eru komin aftur í tísku og myndu örugglega margar drepa fyrir gyllt tölvuúr frá Casio. Það góða við þessi úr er að þau eru á sanngjörnu verði.
Það er ótrúlega flott að vera með gyllt úr og nokkur armbönd við. Það er til dæmis geggjað að vera með gyllt armband úr Resin línu Sif Jakobs við úrið.
Beltin sem eru í tísku núna eiga að smellpassa í mittið og þau má setja yfir hvað sem er. Svo er ekki verra að setja þau yfir kjóla og boli. Þær sem eru á leið á útsölur ættu að reyna að finna belti við hæfi.