17. jún. 2012 - 13:24Gunnar Bender

,,Líst vel á sumarið"

,,Það hefur verið töluvert af gera hérna á veiðisafninu við Ferjukot, alltaf einhverjir að koma og skoða," sagði Þorkell Fjeldsted er við hittum hann við Ferjukot í Borgarfirði í gærkveldi en Þorkell sagði í samtali við Veiðipressuna að sér litist vel á sumarið.

,,Ég held að þetta verði gott sumar,"sagði Þorkell og fór að sýna veiðimönnum safnið sem er það merilegasta í veiðisögunni.

 

 

Mynd: Þorkell Fjeldsted í Ferjukoti í Borgarfirði.

 

 




18.maí 2013 - 00:02 Gunnar Bender

Einar aðstoðar veiðifélag Norðurá á næsta ári

Svo virðist sem Veiðifélag Norðurár hafi gefist uppá að finna einhvern til að leigja ána og fengið Einar Sigfússon leigutaka Haffjarðarár til að hjálpa þeim að selja veiðileyfin sumarið 2014.

 

Einar leigir ekki ána heldur aðstoðar veiðifélagið við að selja daga í ánni en yfir þúsund stangir eru til sölu á hverju ári. Veiðifélagið var búið að ræða við helling af aðilum um að leiga en enginn treysti sér í það. Verður fróðlegt að sjá hvernig þetta samstarf gengur og þetta er fyrsta skrefið á breytingum á veiðiheiminum. Hver veit?

 

17.maí 2013 - 23:54 Gunnar Bender

Ein besta silungsveiðibyrjun í fjölda ára

Byrjunin í silungsveiðin núna í vötnum allavega í kringum Reykjavík er sú besta í lengri tíma og þarf að fara mörg ár aftur í tímann til að finna eins  góða byrjun.Veiðin hefur verið frábær í Hlíðarvatni í Selvogi, stórar og fallegar bleikjur hafa verið að gefa sig.

 

 ,,Við sáum stóra og væna fiska í vatninu í vikunni, fiskurinn er fyrir hendi,“ sagði Vilborg Reynisdóttir formaður Stangaveiðifélags Hafnarfjarðar sem var á veiðislóðum í vatninu og veiðimenn voru að fá og sjá stóra fiska.

 

Og veiðin á Þingvöllum hefur verið góð í stóra urriðanum, hver stór fiskur á fætur öðrum hefur verið að veiðast. 10 til 15 punda urriðar. Og veiðimenn sem voru í  Úlfljótsvatni fengu væna fiska og eitt og eitt skot hefur komið í Vífilsstaðavatni. Byrjunin í silungsveiðin lofar svo sannarlega góðu.

15.maí 2013 - 10:26 Gunnar Bender

Þarf 30% lækkun á veiðileyfunum strax

 ,,Það þarf hellingslækkun á veiðileyfum ef ekki á illa að fara í sumar. Markaðurinn stendur ekkert undir þessu lengur. Veiðin hefur minnkað og enginn veit hvernig veiðin verður þegar fyrstu veiðiárnar opna Norðurá og Blanda,“ sagði veiðimaður sem þekkir markaðinn út og inn.

 

,,Leiguverðið er orðið alltof hátt og enginn býður í laxveiðiár sem losna,“ sagði manninum sem var mikið niðri fyrir  og þetta eru orð að sönnu.

 

Veiðileyfi fyrir allavega milljarð ef ekki meira eru laus. Og engin veit hvernig veiðin verður í sumar. Ekki einu sinni fiskifræðingarnir sem allt vita, venjulega.

 

Leiguverð er orðið alltof hátt, veiðimenn bíða og bíða. Eitthvað verður að gerast. Veiðileyfaverð er orðið alltof hátt og sumarið í sumar er það stærsta í veiðinni um árabil. Enginn veit neitt hvað gerist.

 

12.maí 2013 - 21:30 Gunnar Bender

Verður stjórn Stangaveiðifélagsins að neyðast til að opna Norðurá?

Stemningin fyrir stangaveiði hefur oft verið meiri en núna, flestir eru að bíða og sjá hvað gerist í veiðinni. Hvort laxinn muni skila sér í árnar.  Leigutakar segja markaðinn þungan þessa dagana og hefur verið það síðan veiðinni lauk síðasta haust. Veiðin verður að vera góð í sumar annars gæti illa farið

 

Og stjórn Stangaveiðifélags Reykjavíkur segist hafa hug á að selja opnunarhollið í ánni þetta árið.  Holl sem kostar líklega um 2,5 miljónir en áhuginn fyrir að kaupa hollið er víst ekki mikill. Og eins og staðan er núna verður líklega stjórnin að neyðast til að opna ána, áhuginn fyrir að kaupa hollið virðist vera lítill. En það er 23 dagar þangað til áin opnar , svo það er ekki öll nótt úti. Einhverjir vilja kannski kaupa.

12.maí 2013 - 21:20 Gunnar Bender

Halldór heldur áfram að setja í þá stóru

Veiðimenn halda áfram að setja í væna og fallega urriða  á Þingvöllum og einn af þeim er Halldór Gunnarsson, en hann veiddi 15 punda urriða í fyrra dag.

 ,,Við fengum alls þrjá  og misstum einn og allir fengu líf aftur eftir að hafa setið fyrir í myndatök,“ sagði Halldór sem hefur sannarlega verið í stórfiski á Þingvöllum síðustu daga eins og fleiri.

 Það skiptir bara miklu máli að sleppa fisknum aftur, það er ekki svo mikið til að svona stórum fisk og hann er ekki endalaus.

 

10.maí 2013 - 14:03 Gunnar Bender

Halldór gerði fína ferð í Þingvallavatn

,,Þar sem ég var með tvö leyfi ætlaði ég að henda út maðki, og vera á flugu á meðan maðkurinn fengi að liggja úti,” sagði Halldór Gunnarsson sem veiddi vel á Þingvöllum í gær.

,,Urriðinn var hinsvegar alveg sólginn í maðkinn og mátti ég hafa mig allan við. Ég landaði þarna 4 urriðum, 5.5 pund, 7 pund, 9 pund, og 11.5 pund á stuttum tíma. Þarna var einnig maður að veiða við hliðina á mér sem tók nokkra væna líka, auk þess að missa nokkra. Sá stærsti sem sá náungi tók var eitthvað yfir 13pundin. Nú er bara að fara að kíkja á bleikjuna fyrst hún er farin að sig,” sagði Halldór ennfremur.

 

Veiðin er fín á Þingvöllum þessa dagana, stórir urriðar og bleikjan byrjuð að sýna sig, er hægt að hafa þetta betra?

 

09.maí 2013 - 15:27 Gunnar Bender

Enginn vill kaupa opnunarhollið ennþá

Eins og við greindum frá fyrir fáum dögum virðist enginn vilja kaupa opnunarhollið í Norðurá í Borgarfirði en stjórn Stangaveiðifélagsins fékk heimild aðalfundar til að selja hollið .

Hefur stjórn félagsins verið að skoða hvort ekki séu einhverjir áhugasamir sem væru reiðubúnir að greiða sanngjarnt verð  fyrir það. En svo virðist  ekki vera .

Engin almennileg  tilboð  hafa borist  frá þeim sem stjórnin hefur reynt að ræða við Og okkar  heimildir  segja að opnunarhollið verði auglýst  alveg á næstunni og verður spennandi að sjá hvort einhver vill kaupa gull hollið í Norðurá í Borgarfirði. Þetta hefði selst fyrir 5-6 árum síðan STRAX

09.maí 2013 - 14:31 Gunnar Bender

María veiddi boltafisk

Veiðin í Hlíðarvatni í Selvogi hefur verið mjög góð síðan vatnið opnaði fyrir nokkrum dögum og fiskurinn er fallegur og vel haldinn.

 

María Petrína Ingólfsdóttir veiddi 62cm. og 2,650 gr.  bleikju í vatninu í gærmorgun. Tók  bleikjan  Killer og var veiðimaðurinn  óratíma að landa fisknum . Alveg dýrlegt veður sól og fínn hiti í Botnavíkinni. 

 

Þetta er ánægjuleg tíðindi fyrir Hlíðarvatnið og sýnir að fiskurinn er til í vatninu og það verulega vænn.

 

 

09.maí 2013 - 14:25 Gunnar Bender

Bleikjan að hellast inn á hverju flóði

,,Þetta er allt að koma og síðustu daga hafa veiðst á milli 30 og 40 bleikjur, þær stærstu um 4 pund,“ sagði Þröstur Elliðason um stöðuna á silungasvæðinu í Breiðdalsá sem er allt að koma til þessa dagana.

,,Bleikjan er greinilega að hellast inná hverju flóði og það hefur sést töluvert,"sagði Þröstur ennfremur.

09.maí 2013 - 13:40 Gunnar Bender

Feiknagangur í Hlíðarvatni

,, Bleikjan sem ég veiddi var 2,51 kg og 59 cm. löng. Fiskurinn tók toppflugupúpuna hans Engilberts Jensen í Botnavíkinni af Réttarnesinu,“ sagði Árni Árnason sem var á veiðislóðum í Hlíðarvatn þar sem veiðin hefur gengið vonum framar.

,,Ég var þarna seinni part dags í gær í frábæru veðri. Vorflugan var að koma upp og stóra toppflugan sýndi sig einnig ásamt smærra mýi. Himbriminn sýndi sundæfingar, baksund og flugsund í Botnavíkinni eftir að ég fékk bleikjuna þannig að ekki var mikil ró yfir víkinni næst á eftir.“

,,Ég fór um vatnið og ég held að allir hafi verið að fá fisk og yfirleitt vænan,“ sagði Árni ennfremur.

 

05.maí 2013 - 10:14 Gunnar Bender

30 mínútna barátta við urriða í Þingvallavatni

,,Ég er farinn aftur sagði,“ Ríkharður Hjálmarsson en hann veiddi urriða í Þingvallavatni í gær og hann ætlaði að fara strax aftur til veiða.. Fiskurinn í gær var 84 cm og tók  fluguna svarta Skottu. Þetta var barátta í 30 mínútur sagði Ríkharður ennfremur.

 

Veiðin togast áfram á Þingvöllum þessa dagana. Það hefur aðeins hlýnað og veiðimenn mega veiða á næturnar. Til þess er líka leikurinn gerður.

 

04.maí 2013 - 20:55 Gunnar Bender

Fiskurinn gefur sig ekki

,,Við Ólafur höfum urðum ekkert varir en ég missti bleikju hérna í morgun. Skilyrðin eru góð svo þetta hlýtur að koma,“ sagði  Guðjón Pétur Jónsson sem var við veiðar í ósnum í Breiðdalsá þegar við hittum hann í dag við veiðar en silungsveiðin byrjaði fyrir nokkrum dögum í ánni. En Guðjón og Ólafur hafa oft veitt í byrjun veiðitímans í Breiðdalnum og fengið vel í soðið.

 

,,Það búið að reyna hérna þó nokkurn tíma en fiskurinn gefur sig ekki,“ sagði Guðjón og hélt áfram að kasta flugunni. Biðin eftir að fyrsti silungur sumarsins veiðist styttist.

03.maí 2013 - 09:23 Gunnar Bender

Hverjir munu opna Norðurá í Borgarfirði?

Mikil leynd hvílir yfir því hvort stjórn Stangaveiðifélags Reykjavíkur muni opna Norðurá í Borgarfirði þetta árið og fæst lítið uppgefið um málið á þessari stundu.  Eins og allir vita hefur staða félagsins Stangaveiðifélags verið allt annað en góð síðustu tvö árin.

 

02.maí 2013 - 10:53 Gunnar Bender

Frýs í lykkjum veiðimanna

Kuldabolti ætlar að gera veiðimönnum lífið leitt  þessa dagana.  Veiðimaður sem var við veiðar við Þingnesið í Elliðavatni  kvartaði yfir því að það frysi alltaf í lykkjunum hjá honum, enda hitinn aðeins ein gráða. Ekki voru margir við veiðar.  

 

Fréttum hjá þessum fyrrnefnda að það hefði veiðst fallegur þriggja punda urriði fyrr við Þingnesið fyrr um morguninn. 

 

Silungsveiði mátt byrja í Breiðdalsá að morgni verkalýðsdagsins en enginn heilvita maður fór að veiða enda rok og skíta kuldi. Það er spáð hlýnandi svo allt getur gerst fyrir austan.

 

 

 

 

02.maí 2013 - 10:41 Gunnar Bender

Hnýtingarkvöld og opið hús

Fræðslunefnd Stangaveiðifélags Reykjavíkur verður með hnýtingarkvöld í salarkynnum félagsins að Rafstöðvarvegi 14 í kvöld, fimmtudag, klukkan 19:30. Veiðisumarið er handan við hornið og því upplagt að koma og bæta nokkrum vopnum í safnið fyrir komandi átök.

Allir áhugasamir stangaveiðimenn eru hvattir til þess að mæta. Hér er kjörinn vettvangur fyrir vana sem óvana að koma saman, hnýta flugur og spjalla. Allt efni er á staðnum og einnig þau tæki sem þarf til hnýtinganna.


Stjórn og Skemmtinefnd Stangaveiðifélags Reykjavíkur boða til vorfagnaðar föstudaginn 3. maí í húsakynnum SVFR að Rafstöðvarvegi 14. 

Húsið opnar klukkan 19:00 og mun stjórn SVFR standa vaktina við grillið og bjóða upp á pylsur og með því. Formleg dagskrá hefst síðan eftir að menn hafa borðað nægju sína og er sem hér segir:

- Kynning á veiði í Langá fyrir sumarið 2013 verður á boðstólnum og munu þar miklir vitringar fara yfir helstu veiðistaði þessarar mögnuðu perlu.

- Ingimundur frá Veiðikortinu mun kynna Veiðikortið og þau gífurlega skemmtilegu vötn sem veiðimönnum standa til boða sem huga á vatnaveiði í sumar.

- Krafla mun kynna leynivopnin fyrir sumarið og verða með tilboð á flugum.

- Veiðiflugur munu vera með kynningu þar sem kynntar verða stangir, línur og búnaður ásamt því að bjóða upp á kastsýningu.

- Happahylurinn verður að sjálfsögðu á sínum stað og verða vegleg veiðileyfi í boði fyrir heppna, heildarverðmæti vinninga er ríflega 300.000 kr.

25.apr. 2013 - 13:07 Gunnar Bender

Kalt við opnunina í Elliðavatni í morgun

,,Það var ansi kalt út á engjunum í morgun en ég fékk tvo urriða," sagði Geir Thorsteinsson en hann var í opnun Elliðavatn í morgun en mjög kalt var við veiðar en samt mættu margir að veiða.

Fyrir neðan bæinn voru bara Pólverjar að veiða og þeir voru búnir að fá einn urriða. Veiðimenn voru víða að veiða við vatnið. Veiðin var samt lítil og ljóst að það þarf að hlýna töluvert til að koma veiðinni af stað.

 

 

24.apr. 2013 - 13:30 Gunnar Bender

Veiði í Elliðavatni hefst á sumardaginn fyrsta

Veiði byrjar formlega í fyrramálið í Elliðavatni, sumardaginn fyrsta. Yfirleitt hefur vatnið opnað 1.maí en síðustu ár hefur verið breyting  þar á. Verður spennandi að sjá hverning veiðin verður þennan fyrsta dag sem má veiða.

Það hefur verið frekar kalt og það snjóaði í morgun á svæðinu. En veiðimenn eiga ekki eftir að láta það stoppa sig og mæta til veiða galvaskir þennan fyrsta veiðidag sem má renna. Við munum kíkja á stöðuna í fyrramálið og sjá hvort séu að fá hann. Hver fær fyrsta fiskinn?

23.apr. 2013 - 10:24 Gunnar Bender

Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar fagnar sumarkomunni

Veiðimenn bíða spenntir eftir að veiðitíminn hefjist fyrir alvöru en vötnin opna eitt af öðru næstu daga. Enda hafa veiðimenn sjaldan hnýtt eins mikið og síðustu vikurnar. Biðin er næstum því á enda.

Á miðivikudagskvöldið verður  hið árlega lokahóf Stangaveiðifélags Hafnarfjarðar í félagsheimili félagsins í Hafnarfirði en Gunnar Helgason mun fara með gamanmál og segja nokkrar veiðisögur.

Glæsilegt happdrætti verður og eru vinningar margir og góðir. Stangaveiðifélagið veiðileyfi í Hliðarvatni í Selvogi, Kleifarvatni og Djúpavatni.

22.apr. 2013 - 14:49 Gunnar Bender

Rólegt á sjóbirtingsslóðum

,,Við veiddum níu fiska í Húseyjarkvílsl. Þetta var allt í lagi," sagði Halldór Jónsson en hann veiddi lax sem tók skemmtilega í en var auðvitað niðurgöngufiskur og var sleppt aftur í ána. Veiðin  hefur verið upp og ofan á veiðislóðum fyrir norðan í Húseyjarkvíslinni.

Við fréttum af veiðimönnum sem voru í Tungulæk og fengu sjö fiska í gær en aðstæður voru mjög erfiðar. En veiðimenn sáu töluvert mikið af fiski en hann var styggur mjög.

Það eru engar stórar aflatölur af sjóbirtingsveiði þessa dagana en menn eru að reyna. Jú, Varmá er ágæt og mikið af fiski þar.

 

 

 

 

21.apr. 2013 - 18:01 Gunnar Bender

Hreindýr við hreindýr og hellingur af gæsum

,,Það vantar ekki hreindýrin í Breiðdal þessa dagana. Þau voru fleiri í fyrravetur en núna. Samt er hellingur af þeim og gæsir líka í hundruðum.

 ,,Hreindýrunum hefur fækkað verulega. Þau voru hérna mikið vetur en það er samt hellingur ennþá og gæsirnar eru um öll tún," sagði veiðimaður í Breiðdal sem hlakkaði mikið til haustsins að veiða hreindýr og helling af gæsum.

Það var sama staða frá Höfn í Hornafirði og austur í Breiðdal, gæsir og hreindýr um allt. Og sumarið á næsta leiti. Og veiðitíminn er langt undan. 

 

 

 

21.apr. 2013 - 17:47 Gunnar Bender

Styttist í að silungsveiðin hefjist - mikill snjór í fjöllum fyrir austan

,,Ég er ekki búin að fá neitt ennþá," sagði þessi pólska kona sem við hittum á veiðislóðum í Breiðdal í morgun en hún sat niður í fjöru og kastaði grimmt fyrir trega fiska.

En það styttist í að silungsveiði byrji í Breiðdalsá en veiðin hefst 1.maí. Það er mikill snjór í fjöllum og vatnið í ánni er gott þessa dagana. Breiðdalurinn skartar sínu fegursta þessa dagana og biðin í veiðiskapnum er á enda eftir nokkra daga.

,,Það er mikil snjór í fjöllum og það verður gaman að sjá hvernig veiðin verður í sumar," sagði Gunnlaugur Stefánsson í Heydölum og formaður Veiðifélags Breiðdalsár. Veiði bar aðeins á góma svona rétt fyrir kosningar. Tvær vikur í bleikjuna í Breiðdalsá, vika til kosninga. Allt jafn spennandi.

 

 

 

20.apr. 2013 - 09:53 Gunnar Bender

Margt að gerast í Veiðihorninu um helgina

Dagana 20. og 21. apríl verða Simmsdagar í Veiðihorninu Síðumúla 8.

Það koma góðir gestir í heimsókn en Gore-tex sérfræðingar frá Simms verða versluninni og leiðbeina með viðgerðir, hreinsun, meðhöndlun og geymslu.  Þeir sem eiga eldri Simms vöðlur og veiðifatnað sem þarfnast viðgerða eru sérstaklega velkomnir þar sem boðið er upp á minni háttar viðgerðir og leiðbeiningar.  Þá verða kynntar nýjungar sumarsins frá Simms en þar er af nægu að taka.

Það verður margt fleira á döfinni um helgina. 

  • Fulltrúar helstu veiðileyfasala landsins verða í Veiðihorninu og kynna veiðileyfin í sumar en þeir eru Hreggnasi, Lax-á, Strengir og Stangaveiðifélag Reykjavíkur.
  • Veiðikortið kynnir vatnasvæðin innan vébanda kortsins auk þess sem sérstakt tilboð verður á Veiðikortinu um helgina.
  • Vefurinn Flugur.is verður kynntur rækilega.  Fréttabréfið Flugufréttir verður galopið öllum á netinu þessa helgi.
  • Snjallir fluguhnýtarar sýna fluguhnýtingar.
  • Nýja Short Belly Taper línan frá Scientific Anglers verður kynnt og fluguveiðimenn hvattir til þess að prófa.
  • Ýmis tilboð verða á Simmsdögum Veiðihornsins auk léttra veitinga.

Veiðimenn eru hvattir til þess að koma í heimsókn á Simmsdaga Veiðihornsins dagana 20 og 21 apríl.

Allir velkomnir og ekki síst þeir sem vilja láta líta á gömlu Simms vöðlurnar sínar.

 

19.apr. 2013 - 16:09 Gunnar Bender

Risalax veiddist í net í Norðfirði

Sú stórfrétt var að berast að risalax hafi veiðst í grásleppunet austur í Norðfirði eins og myndin sem fylgir fréttinni ber vitni um. Fiskurinn er 114 cm að lengd og 63 cm í ummáli og líklega hrygna.

Veiðimálstofnun er að rannsaka sýni úr laxinum og nánari fréttir koma svo frá þeim vonandi um uppruna hans fljótlega. Er hann norskur eða var hann kannski einn af þeim stóru á leið í Breiðdalinn?

18.apr. 2013 - 15:40 Gunnar Bender

Sérfræðingar frá Simms í heimsókn

 

Það er orðið að árlegum viðburði að sérfræðingar frá Simms komi í heimsókn þeim tilgangi að sýna viðhald og viðgerðir á Simms vöðlum. Í fyrra komu þeir í byrjun júní en þá var líka ákveðið að í ár kæmu þeir fyrr svo veiðimenn- og konur fengju tækifæri á því að láta yfirfara og gera við vöðlurnar sínar áður en veiðitímabilið færi af stað fyrir alvöru.

Simms dagar í Veiðivon verða haldnir dagana 20. og 21. apríl n.k., laugardag og sunnudag. Þá munu sérfræðingar Simms leiða okkur í sannleikann um viðhald og viðgerðir á Simms vöðlum og við bjóðum ykkur að koma með vöðlurnar ykkar og láta þessa snillinga kíkja á þær.

Það verður heitt á könnunni eins og endranær ásamt því að Skúli Kristinsson og Stefán Hjaltested hnýta flugur og spjalla um flugur og fluguveiði. Veiðifélagið Hreggnasi verður á staðnum ásamt fulltrúa leigutaka Haukadalsár og verða þeir með kynningar á veiðisvæðum sínum og lausum leyfum í sumar.

Að tilefni Simms daga verðum við svo með tilboð á völdum vörum alla helgina, m.a. nýju Short Belly Taper línunni frá Scientific Anglers sem hefur verið að koma ótrúlega vel út. Línan hentar einstaklega vel fyrir íslenskar aðstæður og bjóðum við gestum og gangandi að prófa línuna úti á túni ef veður leyfir.

Búðin verður opin frá kl. 10 – 16 á laugardaginn 20. apríl og frá 12 – 16 sunnudaginn 21. apríl.

15.apr. 2013 - 10:11 Gunnar Bender

Varmá full af fiski

Veiðimenn sem hafa farið í Varmá við Hveragerði eru sammála að mikið sé af fiski í ánni en hann sé ljónstyggur enda lítið vatn í henni.

 ,,Ég veiddi sjö fiska og missti tvo," sagði Halldór Gunnarsson sem var að koma úr læknum. Og veiðimenn sem voru í undan sögðu mikið vera af fiski víða um lækinn en hann tæki afar illa," sagði Halldór

 

 ,,Við settum fluguna nánast uppí hann en það gekk ekki," sagði annar veiðimaður sem reyndi og reyndi heilan dag.

Ef það færi að rigna og vatnið myndi aukast í læknum yrði veisla það er bara verst að enginn veit hvenær mun rigna og veislan verður.

13.apr. 2013 - 11:09 Gunnar Bender

Lítið að frétta af leigumálum Norðurár

Það er fátt að frétta af bökkum Norðurá í Borgarfirði. það styttist í veiðitímann, ekki nema 50 dagar þangað til áin opnar fyrir veiðimenn og að öllum líkindum opnar stjórn Stangaveiðifélags Reykjavíkur ána.

Þó svo að það hafi verið samþykkt að stjórnin mætti selja opnunarhollið  í ár hefur lítið sem ekkert gerst í því máli. Og af leigumálum er lítið að frétta. Það hefur aðeins verið rætt við nokkra aðila en fáir virðast hafa áhuga á ánni. Norðurá í Borgarfirði  er einhver besta veiðiá landsins ensvona getur veiðiheimurinn breyst á stuttum tíma. 

Á þessum tíma fyrir einhverjum árum síðan byrjaði stórlaxinn að ganga í Hvítá, það er líka liðin tíð. 

13.apr. 2013 - 11:05 Gunnar Bender

Fraus í lykkjunum

Veiðimenn eru víða að reyna þessa dagana. Veiðimenn voru í Varmá  fyrir tveimur dögum og sáu helling af fiski en hann tók ekki en lækurinn er  mjög vatnslítill þessa dagana.

 ,,Við sáum fullt af fiski en hann tók ekki, sumir vænir," sagði veiðimaður sem var við Varmá sem oft hefur byrjað betur og það fraus í lykkjunum hjá veiðimönnunum.

Í Laxá í Kjós voru veiðimenn að reyna við sjóbirtinginn í gær var enginn að veiða í henni enda skítakalt en daginn áður veiddust fiskar. Kárnanesfljótið er sterk þessa dagana og ef það myndi hlýna gæti orðið þar fín veiði.

Veiðimenn ætla að reyna um helgina, spáin er kuldaleg og hjá veiðimönnum sem fóru í Búðará fraus í lykkjunum og það er ekki gott. En menn láta sig hafa það. Veiði er della.

12.apr. 2013 - 09:27 Gunnar Bender

Samkomulag um næturveiðar í Þingvallavatni

Samkomulag liggur fyrir á milli þjóðgarðsins á Þingvöllum og stangveiðimanna um veiðar í Þingvallavatni að næturlagi en Þingvallanefnd samþykkti nýverið að banna stangveiðar í landi þjóðgarðsins frá klukkan hálftólf á kvöldin til fimm á morgnana meðal annars vegna slæmrar umgengni og notkunar á óleyfilegri beitu eins og makríl og hrognum sem virtist helst eiga sér stað á nóttunni. Þetta kemur fram á heimasíðu SVFR.


Ólafur Örn Haraldsson, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum, hefur að undanförnu fundað meðal annars með fulltrúum Stangaveiðifélags Reykjavíkur, Landssambandi stangaveiðifélaga og Veiðikortsins og stóðu fundir yfir í allan gærdag. Samkomulag liggur nú fyrir að hans sögn sem verður lagt fyrir Þingvallanefnd sem hefur lokaorð í málinu.


„Samkomulagið felst í auknu veiðieftirliti á nóttunni af okkar hálfu og sömuleiðis að veiðimenn komi einnig til liðs við veiðieftirlitið samkvæmt nánara fyrirkomulagi og Veiðikortið er tilbúið að leggja fram umbun til þeirra sem sinna því með nokkrum veiðikortum. Síðan á að efla upplýsingar, fræðslu og hvatningu til góðra veiða. Þannig að í mínum huga er komin full sátt og niðurstaða gagnvart veiðimönnunum en síðan er lokaorðið hjá Þingvallanefnd,“ segir Ólafur Örn.
09.apr. 2013 - 16:09 Gunnar Bender

Frábær gangur í Tungulæk í kuldanum

Veiðin í Tungulæk hefur gengið vonum framar síðan lækurinn opnaði fyrir veiðimenn. Líklega eru komnir um 250 fiskar á land og margir þeirra vel vænir. Þrátt fyrir kulda og trekk eins og um helgina þegar snjóaði á veiðimenn veiddust margir vænir fiskar.

Hollið fékk næstum 70 fiska og mikið virðist vera af fiski í læknum af öllu stærðum og gerðum. Fiskurinn hefur veiðst víða um lækinn. Opið neðst í læknum, þar sem rennur úr honum, hefur gefið vel enda mikið þar af fiski.

 

 

08.apr. 2013 - 10:28 Gunnar Bender

Fékk fisk í fyrsta kasti

Veiðin er að byrja á fullu þessa dagana, það mætti reyndar vera aðeins hlýrra. Þessi mynd var tekinn skömmu eftir að dóttir mín Eyrún Vala landaði sínum fyrsta fisk sumarsins í Meðalfellsvatni í sínu fyrsta kasti og fékk hún töku strax eftir sirka  10 sek. geri aðrir betur. Þessa sögu hafði veiðimaðurinn Hörður Heiðar Guðbjörnsson að segja sem var á veiðislóðum við vatnið fyrir nokkrum dögum.

,,Við vorum þarna  fyrir nokkrum dögum en ég fékk einnig sjálfur einn fisk fyrsta daginn á sama stað,"sagði Hörður ennfremur.