11. jún. 2010 - 07:00Þórarinn Jón Magnússon

Samúel átti eftir að naga sig í handarbökin yfir að hafa ekki látið það eftir henni þessari að koma til Íslands til að syngja fyrir hann.
Mörg og ólík erindi berast inn á borð ritstjóra. Samúel fann á dögunum bréf sem honum var sent árið 1985. Þar er spurst fyrir um áhuga tímaritsins á að senda blaðamann til Bandaríkjanna þeirra erinda að eiga viðtal við unga og efnilega söngkonu sem var rétt um það bil að senda frá sér sína fyrstu hljómplötu. Til vara var gefinn kostur á að fá söngkonuna hingað til Íslands en hún var þá búin að leggja drög að ferð til Evrópu þar sem allt kapp yrði lagt á að koma henni sem rækilegast á framfæri.
Til í tónleikahald líkaVar Samúel boðið að skella upp tónleikum með henni í Reykjavík ef hann kærði sig um. Bara að nefna það. En Samúel taldi afar litlar líkur á að það tækist að trekkja að áhorfendur á tónleika söngkonu sem væri að gefa út sína fyrstu hljómplötu.
Sjónvarpið hafnaði henni líkaÁhugi Samúels á því að fá hingað unga og óþekkta söngkonu til að troða upp var því nákvæmlega enginn og ekki höfðu sjónvarpsstöðvarnar heldur nokkurn áhuga á því að gefa henni séns á að sanna sig. Hversu góð sem sem plata stúlkukindarinnar kynni að vera þótti engum dagskrárgerðarmanni fyrirhafnarinnar virði að taka á móti henni í sjónvarpssal. Hún flaug því viðstöðulaust yfir Ísland rúmum tveimur mánuðum síðar.
Besta byrjendaverk sögunnarÍ millitíðinni hafði platan hennar komið á markaðinn austan hafs og vestan. Fimm lög höfðu komist umsvifalaust á toppinn og platan hlaut viðurkenningu fyrir bestu frumraun söngkonu fyrr og síðar. Enda var söngkonunni tekið með miklum fagnaðarlátum er hún kom til Evrópu nokkrum mánuðum síðar. Þessi unga og efnilega söngkona heitir Whitney Houston.