10. jún. 2010 - 07:00Þórarinn Jón Magnússon

Gunni Þórðar er einn á lífi í dag

Frá afmælisfagnaðinum í Hollywood 1979. Talið frá vinstri: Gunnar Jökull, Karl, Gunni Þórðar og Rúnar.

Frá afmælisfagnaðinum í Hollywood 1979. Talið frá vinstri: Gunnar Jökull, Karl, Gunni Þórðar og Rúnar. Mynd:ÞJM

Liðnir eru rúmir fjórir áratugir síðan Trúbrot gaf út sína fyrstu hljómplötu, en hljómsveitin var stofnuð árið 1969, árið sem Samúel hóf göngu sína. Eins og meðfylgjandi mynd úr Samúel minnir óþægilega á er endurkoma hljómsveitarinnar í upprunalegri mynd óframkvæmanleg þar eð Gunnar Þórðarson er sá eini af strákunum sem er á lífi í dag.

Meðfylgjandi mynd var tekin í Hollywood 31. maí 1979 þegar Steinar Berg hélt upp á tíu ára afmæli fyrstu plötu Trúbrots með útgáfu tveggja platna albúms og lítillar bókar sem hefur að geyma sögu hljómsveitarinnar. Bókina ritaði Ómar Valdimarsson. Fjórmenningarnir mættu til veislunnar en söngkona Trúbrots, Shady Owens, varð að láta nægja að senda kveðju frá London þar sem hún bjó.

Gunni Þórðar kom til afmælisveislunnar beint frá London, þar sem hann hafði verið í um hálfan mánuð að hljóðrita diskóplötu. Rúnar Júlíusson hafði stofnað hljómsveit og hjómplötuútgáfu undir nafninu Geimsteinn. Gunnar Jökull Hákonarson var farin að starfa við verslun og viðskipti og Karl Sighvatsson spilaði með Þursaflokknum og var jafnframt kominn í klassíkina af lífi og sál.

Alls var Trúbrot til í sjö útgáfum. Hún starfaði þar til í marsmánuði 1973. Karl Sighvatsson lést í júlí 1991, Gunnar Jökull í september 2001 og Rúnar í desember 2008.