10. jún. 2010 - 07:00Þórarinn Jón Magnússon

Alfreð Flóki við myndina sem olli uppnámi á lögreglustöðinni í Hafnarfirði fyrir rúmum 40 árum. Mynd: Ástþór Magnússon
Í rúm 40 ár hefur Samúel fengið að dúsa í hirslum lögreglunnar í Hafnarfirði án dóms og laga. Um er að ræða upplag tölublaðs sem dreift var á sölustaði í bænum í janúar 1971. Mynd af Alfreð Flóka við eitt af verkum sínum fór fyrir brjóstið á listfengum rannsóknarlögrelumanni sem gerði blaðið upptækt og varpaði því í steininn þar sem það er enn.Alfreð Flóki lést fyrir rúmlega tuttugu árum. Hann var mikill bóhem og fasmikill þegar hann fór um götur borgarinnar. Hann hafði lagt stund á myndlistarnám við Konunglega Fagurlistaskólann í Kaupmannahöfn og kvæntist danskri konu. Bjuggu þau síðan ýmist í Kaupmannahöfn eða Reykjavík.
Lögregluaðgerðin jók söluna um land alltAlfreð Flóki sýndi í Bogasalnum og fleiri virðulegum sýningarsölum hér og erlendis, en þegar Samúel sló upp viðtali við Alfreð Flóka 1971 og birti með því heilsíðumynd þar sem hann stóð við nýjustu mynd sína var myndlistin allt í einu litin öðrum augum en í Bogasalnum. Sveinn Björnsson, rannsóknarlögreglumaður í Hafnarfirði, sem einnig var þjóðkunnur myndlistarmaður, þótti myndin of djörf og gerði blaðið upptækt í bæjarfélaginu.
Lögregluaðgerðin jók söluna um land alltEkki var útgefendum stefnt í framhaldi og sennilega liggur upplagið, sem ætlað var Göflurunum, enn í kassa á löggustöðunni. Samúel nennti ekki að gera veður út af þessu upphlaupi í heimabæ ritstjórans, Þórarins Jóns Magnússonar. Enda seldist þetta tölublað fyrir bragðið enn betur en ella á öðrum blaðsölustöðum landsins.
Síðan eru liðin rúm 40 ár og enn fær þetta tölublað af Samúel & Jónínu að dúsa í hirslum Hafnarfjarðarlögreglunnar. Samúel þætti fróðlegt að fá fréttir af því hver á umrætt listaverk Flóka í dag. Sjálfsagt hangir það uppi á veg hjá einhverjum broddborgaranum.
Listaverkabækur Flóka ekki gerðar upptækarMyndir Flóka voru flestar afar erótískar og í listaverkabókum sem komu út með myndum eftir hann 1963 og síðar voru ekki ósvipaðar þeirri sem hann stillti sér upp við fyrir myndatöku Samúels. Ekki er þó vitað til þess að rannsóknarlögreglan í Hafnarfirði hafi gert bækurnar upptækar í bókabúðum Olivers Steins eða Böðvars.
Viðtalið við Flóka var skrifað af B. Baldvinsyni og er bráðskemmtilegt aflestrar. Ljósmyndirnar sem viðtalinu fylgdu tók Ástþór Magnússon síðar forsetaframjóðandi og friðarsinni hinn mesti.
Stutt sambúð Samúels og JónínuHver ástæðan er fyrir því að Ástþór var að mynda fyrir Samúel? Hér skal skýrt frá því: Þeir Þórarinn Jón Magnússon og Ástþór Magnússon kynntust á Vísi árið 1970. Þórarinn var þá blaðamaður á Vísi og Ástþór fréttaljósmyndari. Sá fyrrnefndi hafði verið að gefa út popblaðið Samúel en sá síðarnefndi hafði gefið út Táningablaðið Jónínu. Til að gera langt mál stutt fóru leikar þannig, að Ástþór eftirlét Samúel hana Jónínu sína í ársbyrjun 1971 og úr varð tímaritið Samúel og Jónína.
Heimanmundur Jónínu var nokkuð af óbirtu efni og þar á meðal viðtalið við Alfreð Flóka. Sambúð Samúels og Jónínu stóð í um tvö ár.