10.mar. 2010 - 14:00
Marta María
Langar þig í eitthvað fljótlegt og ljúffengt í morgunmat? Ef þú ert með blandara við höndina tekur innan við fimm mínútur að búa til þennan ljúffenga drykk. Það góða við þennan er að hann bragðast nánast eins og rjómaís. Bananinn gerir morgunhristinginn mjúkan og sætan. Kókosvatnið er mikið notað í hráfæðisuppskriftir og inniheldur góða næringu.
09.mar. 2010 - 14:00
Marta María
Þegar ég fræddi eiginmann minn um að Saffran væri dýrasta krydd veraldar horfði hann á mig og spurði undrandi af hverju í ósköpunum ég notaði það á kjúklingavængi. Honum fannst það alls ekki passa saman. Ég sagði að þetta væri svolítið eins og að blanda húsgögnum úr Epal saman við húsgögn úr IKEA, það gæti ekki klikkað. Þegar hann var hinsvegar búinn að smakka fyrsta bitann skildi hann galdurinn. Nú eru kjúklingavængir víða á tilboði og um að gera að nýta sér þau.
06.mar. 2010 - 12:00
Nennir þú ekki að elda en langar í eitthvað gott? Ef þú átt pítubrauð í frystinum, tómata, mossarella ost, lauk og steinselju þá getur þú útbúið heimsins bestu pítu. Þar spilar tómatasalatið stærsta hlutverkið. Fyrrnefnt tómatasalat er reyndar líka gott eintómt eða sem meðlæti með sunnudagsteikinni.
05.mar. 2010 - 20:00
Víngæðingar
Nú hittust félagarnir yfir 18 vetra Bunnahabhain maltviskíflösku ættaðri úr ÁTVR á dimmu febrúarkveldi við upphaf góu. Samtalið gæti sem best hafa verið einhvern veginn svona:
05.mar. 2010 - 16:42
Víking Páskabjór er uppseldur hjá framleiðanda, en enn er eitthvað magn til í Vínbúðunum og á völdum veitingahúsum.
05.mar. 2010 - 11:00
Ásthildur Sturludóttir
Ég og Inga vinkona mín vorum að ræða um mat í vikunni eins og svo oft áður. Ræddum um gúllas og hvað pottréttir væru góðir, sérstaklega þegar margir eru í mat og kalt er úti eins og núna er. Þá rifjaði ég upp fermingarpottréttinn minn, altsvo þann sem eldaður var í fermingarveislunni minni fyrir 150 árum síðan.
04.mar. 2010 - 14:00
Marta María
Það er fáir réttir eins fjölskylduvænir og hakk og spaghettí. Á þessu lifði maður sem krakki og fannst alltaf jafn gott. Ef mig misminnir ekki þá var hakk og spaghettí fyrsti rétturinn sem ég lærði að matbúa sem barn. Þó flestir séu með sína útgáfu af hakki og spaghettíi þá er um að gera að poppa réttinn upp reglulega og prófa eitthvað nýtt. Hér kemur hugmynd að mjög girnilegum rétti sem fær hvert mannsbarn til að sleikja út um.
04.mar. 2010 - 10:00
Marta María
Fyrir komandi páska verða til sölu sérstök góðgerðarpáskaegg til styrktar UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Um er að ræða lítil súkkulaðiegg frá Nóa Síríus sem eru sérpökkuð í fallegar öskjur, myndskreyttar af Signýju Kolbeinsdóttur, hönnuði. Signý er annar eiganda hönnunarfyrirtækisins Tulipop, sem á veg og vanda af sölu eggjanna.
01.mar. 2010 - 17:26
Víngæðingar
Bjór- og viskýgæðingar vefritsins Pressunnar hittust á köldu febrúarkvöldi og settu sig í smökkunarstellingar. Viðfangsefnið voru nokkrar hrímaðar flöskur af Kalda frá Árskógssandi.
01.mar. 2010 - 08:15
Danski matreiðslumaðurinn Allan Paulsen var um helgina valinn Food and fun kokkur ársins 2010. Allan er yfirkokkur á Henne Kirkeby Kro á Jótlandi sem er lúxus veitingastaður í flottu gömlu húsi við Atlantshafið.