28. maí 2009 - 12:53Ágúst Borgþór Sverrisson
Sérhæfingin, hagsmunirnir, skoðanirnar
Það nennir enginn að rökræða um smásögur. Ég bíð þess albúinn alla daga að kjafta hvern þann í kaf sem ekki er sammála mér um hverjir séu bestu smásagnahöfundar heimsins og hver séu lykilatriðin í velheppnaðri smásagnagerð.
Nei, fólk er ekki mikið fyrir að rífast við mig um þetta. En það les oft af áhuga smásögur sem ég bendi því á og sumir skrá sig meira að segja á smásagnanámskeið sem ég held. Þannig að ég kvarta ekki.
En þið skuluð bara reyna að vera ósammála mér. Ég mun kjafta ykkur rænulaus!
Það kemur fyrir að ég viðra stóryrtur á bloggi ýmsar skoðanir á þjóðmálum. Þá getur það gerst (ég tek fram að það er sjaldgæft) að einhver sérhæfður á viðkomandi sviði hafi samband við mig og vill leiða mig af villigötum á braut sannleikans. Sérþekking viðkomandi á málaflokknum gerir mér erfitt um varnir en sé hann að auki hagsmunatengdur þá er viðnám mitt vonlaust, því ástríðuþrunginn málflutningur vopnaður sérþekkingu er ósigrandi.
Í vetur var ég svo heppinn að fá þriggja mánaða starfslaun úr Launasjóði rithöfunda. Ég hafði áður ekki leitt mikið hugann að réttmæti listamannalauna, hafði þó aldrei talað beinlínis gegn þeim svo fyllstu sanngirni gagnvart sjálfum mér sé gætt. En það má undrun sæta hvað hugur minn fylltist af góðum rökum fyrir réttmæti þeirra um leið og ég hafði lesið svarbréfið góða frá launasjóðnum. Hvað það væri mikil vitleysa að skera þau niður jafnvel núna í kreppunni. Ruðningsáhrifin af starfi rithöfunda til dæmis. Ótal önnur rök sem ég útlista ekki hér. Ég efast um að margir hefðu roð við mér í rökræðum um listamannalaun í dag en fyrir nokkrum mánuðum hefði ég getað farið halloka í slíkri rökræðu.
En það er til fólk sem talar óháð hagsmunum. Eða kannski er það bara konan mín. Um daginn sagðist hún ekki skilja hvers vegna sparifjáreigendur voru tryggðir í bak og fyrir eftir bankahrunið en skuldarar rukkaðir upp í topp. Nú vill svo til að við eigum dálítinn sparnað, engar stórupphæðir en okkur munar um hann, og lítið sem ekkert af honum glataðist í hruninu. Og konan mín er viðskiptafræðingur þannig að auk hagsmunanna hefur hún líka eitthvert vit á málaflokknum.
Annars vegar hef ég ekki áhuga á því að borga niður skuldir annarra og mér finnst sorglegt til þess að hugsa hvernig vel gefið og vel menntað fólk gat týnt sér í græðgi og skuldasöfnun vegna þess að það sá leiðina til að styrkja sjálfsmynd sína liggja að of stóru húsi (með kuldalegum, stílhreinum og rándýrum innréttingum) og forljótum risajeppum. Á hinn bóginn er fráleitt að þeir sem selja afnot að peningum eigi einir að sleppa við að blæða nokkuð fyrir kreppuna. Allir hljóta að fórna einhverju. Það hlýtur að vera til millivegur.
Og sérfræðingar. Ekki hringja í mig út af þessum pistli! Ég er upptekinn.
08.feb. 2010 - 20:00
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ég fór í töku á föstudaginn síðasta fyrir grein í Cosmopolitan Magazine sem flestir þekkja, þetta var svo sem engin merkileg tískutaka heldur bara classy sæt mynd sem fylgir...
08.feb. 2010 - 18:20
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Sem kunnugt er, voru tvö helstu stefnumál núverandi vinstristjórnar í skattamálum 1) að hækka skatta og gera þá stighækkandi (fjölþrepa) og 2) að taka upp auðlinda- og umhverfisskatta.
08.feb. 2010 - 17:00
Jóna Á. Gísladóttir
Sá Einhverfi er mikill aðdáandi Ronju ræningjadóttur. Enda, hver er það ekki? Ég hef reyndar ekki séð hann horfa á myndina í langan tíma, en ég fæ reglulega að heyra hana alla, líkt og um útvarpsleikrit væri að ræða. Þá gengur hann hér um gólf og þylur textann úr myndinni frá upphafi til enda.
08.feb. 2010 - 14:25
Ólafur Arnarson
Arion Banki á hrós skilið fyrir að tryggja gegnsæi á sölu hlutar bankans í Högum. Betur væri ef Landsbankinn ástundaði viðlíka gegnsæi í stað þess að byggja laumulega upp stærsta eignarhaldsfélag landsins í Vestia. Hvers vegna skoðar ekki ritstjóri Morgunblaðsins hvað Landsbankinn og Vestia eru að gera með fyrirtæki, sem bankinn sölsar undir sig? Er það kannski óþægilega nálægt Icesave, sem vinir ritstjórans stóðu fyrir? Það eru meira að segja sömu mennirnir og stóðu fyrir Icesave, sem tróna nú yfir stærsta eignarhaldsfélagi landsins.
08.feb. 2010 - 11:00
Sigrún Einars
Ég er einhleyp 33 ára stelpa, barnlaus. Ég ákvað að skrifa þér útaf pistlinum þínum, Hvers eiga börnin okkar að gjalda?
08.feb. 2010 - 09:02
Unnur H. Jóhannsdóttir
Unnur telur enga von til þess að hún verði á lífi þegar dómur fellur um fjárglæfrastarfssemi, skattsvik og aðra plógsstarfssemi þeirra sem voru á toppnum í Hruninu. Það er einfaldlega kalt mat. Unnur lenti nefnilega í skattinum, réttara sagt tók Skattstjórinn í Reykjavík bókhald Unnar til rannsóknar fyrir fimm árum. Til þess að gera langa sögu stutta vann Unnur þá sem verktaki í fjölmiðlageiranum.
08.feb. 2010 - 07:57
Magnús Geir Eyjólfsson
Eitt af því íslenskum útrásarvíkingum hefur verið legið á hálsi er hvernig þeir lifðu meðan góðærið stóð hæst. Snekkjur, einkaþotur, lúxusvillur, gull ofan á brauð, Oxford Street, Gumball kappaksturinn og svo mætti lengi telja.
08.feb. 2010 - 07:00
Sölvi Tryggvason
Ég upplýsti hér á síðunni fyrir stuttu að fjórir lykilráðherrar hefðu enn ekki fengið bréf frá rannsóknarnefnd Alþingis til þess að andmæla því sem þar kemur fram.
07.feb. 2010 - 20:00
Eiríkur Bergmann
Á náttborðinu: Þúsaldarþríleikurinn og Konur Steinars Braga.
Eins og svo margir aðrir jarðarbúar hef ég legið yfir þúsaldarþríleik hins sænska Stiegs Larssons. Fyrstu tvær bækurnar las ég á íslensku en þá þriðju á ensku. Eftir á að hyggja sé eftir að hafa ekki lesið þær á sænsku. Meginvandinn við þessar bækur er að sagan verður ansi fljótt ávanabindandi, svo maður heldur lestrinum stöðugt áfram hvað svo sem gerist í kringum mann. Bálkurinn er mikill vöxtum, líkast til um fimmtán hundruð síður. Það felur því í sér töluverða tímaskuldbindingu að hefja lesturinn.
07.feb. 2010 - 16:20
Sveinn Andri Sveinsson
Fáir hafa verið duglegri við það, en þingmenn Vinstri grænna, að gagnrýna það sem kallað er græðgisvæðing. Þetta hugtak var líklega búið til af einhverjum þingmanna þessa flokks, gott ef það var ekki Ögmundur Jónasson sem fyrst kom fram með það. Á hugtakið að lýsa hinni taumlausu fégræðgi sem heltekið hafi íslenskt athafnalíf undanfarin ár og áratugi, og grasserað í skjóli hinnar skelfilegu markaðshyggju.
07.feb. 2010 - 15:26
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur, fyrrverandi aðstoðarmaður utanríkisráðherra (Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur), skrifar hins vegar skorinorða
grein í
Fréttablaðið í gær, þar sem hún viðurkennir, að samningamenn Íslands í Icesave-deilunni hafi gert stórkostleg mistök.
07.feb. 2010 - 15:00
Anna Claessen
Á pressunni var grein um daginn þar sem fjallað var um að Twitter væri einungis fyrir útvalda en ekki fyrir almenning. Þar sem ég nota báða þessa samskiptamiðla langar mig að benda á nokkur atriði sem útskýra muninn á þessu tvennu.
07.feb. 2010 - 12:00
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Við lendum öll í því að versla okkur fallega litaglaða flík sem við heillumst hreinlega af og verðum að kaupa! Hún fer svo inn í skáp þar sem hún bíður ennþá eftir rétta tækifærinu...
Hér eru nokkrar hagnýtar upplýsingar um litaval áður en verslað er...
07.feb. 2010 - 10:00
Kolbrún Baldursdóttir
Tilkoma barns á heimili er oftast nær tilefni gleði og eftirvæntingar. Þetta á ekki síður við í þeim tilvikum þegar börn eru ættleidd. Nær undantekningarlaust hafa fjölskyldur sem bíða eftir að fá barn ættleitt gengið í gegnum langan biðtíma sem jafnvel er stundum hlaðinn óvissu. Mörg pör eru þá þegar búin að ganga langa þrautargöngu við að reyna að eignast sitt eigið barn og í því sambandi gengið í gegnum erfiðar aðgerðir og tilraunir á sviði tæknifrjóvgunar.
07.feb. 2010 - 08:00
Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir
Designer toys eða Hönnuð leikföng eru fyrirbæri sem hefur ekki verið lengi á sjónarsviðinu. Við könnumst flest við leikfangasafnara, með hillur og veggi fulla af Star Wars leikföngum eða súperhetjum. Þó að þau leikföng hafa upprunalega verið ætluð börnum þá hafa þau öðlast aukin verðmæti í gegnum söfnun og eftirspurn. Designer Toys eru hins vegar hönnuð með söfnun í huga og eru því oft aðeins framleidd í fáum eintökum og ætluð unglingum og fullorðnum.
06.feb. 2010 - 17:15
Björn Þorláksson
Gerir Arion-banki sér ekki grein fyrir því að þjóðin vill að hreinsað verði til í viðskiptalífinu á Íslandi? Hrun Moggans er dæmi um þetta. Fólk kaupir ekki blaðið vegna tengsla ritstjóranna við viðskiptalífið, tengsla þeirra við viðskiptalíf sem brást. Tengsla þeirra við viðskipta- og stjórnmálalíf sem ekki bara skuldsetti þjóðina upp í rjáfur heldur gerði okkur líka að glæpamönnum í huga umheimsins.
06.feb. 2010 - 15:25
Ólafur Arnarson
Baldur seldi Landsbankabréfin sín eftir að hafa sjálfur setið fund með breska fjármálaráðherranum um vanda Landsbankans. Hann var vart kominn heim frá þeim fundi þegar hann seldi bréfin. Sennilega er mál Baldurs eitt skýrasta dæmi um ólögleg innherjaviðskipti, sem hægt er að finna í víðri veröld. Að sama skapi er ljóst að menn þurfa að vera nánast veruleikafirrtir til að taka undir rausið í staksteinahöfundi í dag.
06.feb. 2010 - 14:00
Ágúst Borgþór Sverrisson
Meðal þekktustu frétta liðinnar vinnuviku voru þær sem greindu frá vanda bankamanns er hafði verið að skoða mynd af nakinni eða fáklæddri fyrirsætu á tölvuskjá sínúm á meðan á beinni sjónvarpsútsendingu frá vinnustöð hans stóð.
06.feb. 2010 - 11:58
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Það er stórfurðulegt, að Arion banki skuli veita Baugsfeðgum forkaupsrétt á stórum hluta Haga eftir allt, sem á undan er gengið. Þegar bankastjóri Arion segir, að Jón Ásgeir Jóhannesson komi þar hvergi nærri, heldur aðeins Jóhannes Jónsson, faðir hans, hlýtur hann að tala um hug sér. Allir vita, að Jón Ásgeir stjórnar öllu, sem hann vill innan Baugsveldisins.
06.feb. 2010 - 10:08
Hermann Guðmundsson
Þessa dagana er að koma út bók sem skrifuð er af Hank Paulson fyrrum fjármálaráðherra Bandaríkjanna og þar áður forstjóri virtasta fjárfestingabanka heims, Goldman Sachs.