03. jún. 2009 - 10:31Ágúst Borgþór Sverrisson

Lygilega stikkfrí Samfylking

Samfylkingin hlýtur að eiga miklu flinkari spunameistara en Sjálfstæðisflokkurinn. Rétt fyrir kosningar nötraði þjóðfélagið vegna upplýsinga um að Sjálfstæðisflokkurinn hefði þegið tugmilljóna króna styrki af Baugsfyrirtækjum í kosningasjóði árið 2006. Fráfarandi heilbrigðisráðherra lá undir miklu ámæli, bloggarar í hundruða og jafnvel þúsundavís froðufelldu yfir spillingunni.

Nú hefur verið gert uppskátt að Samfylkingin þáði einnig tugmilljónir í kosningasjóði frá Baugsfyrirtækjum. En nú bregður svo við að öllum er sama. Það eru allir búnir að blása svo út um styrki Sjálfstæðismanna að enginn nennir að tala meira um styrkjamál.

En ekki nóg með það. Fjölmiðlar og bloggarar eyða nú meira púðri í að hæðast að því með hvaða hætti Sjálfstæðisflokkurinn hyggst endurgreiða kosningastyrkina sína en í það að hneykslast á styrkjunum til Samfylkingarinnar. Enda hneykslast enginn á þeim.

Annaðhvort á Samfylkingin í sínum röðum svo framúrskarandi spunamenn að ekki verður til jafnað eða hún nýtur forgjafar hjá fjölmiðlum og almenningsálitinu. Ég hallast að hinu fyrrnefnda – nema það sé í raun búið að skapa hið síðarnefnda.




02.sep. 2010 - 21:30 Björg Magnúsdóttir

DV, þú stöðvar mig ekki!

Svona leit www.dv.is út í dag. Ég sit sveitt á huga, líkama og sál við eitthvað borð. Er ég búin? Nei, alveg langt frá því. Enn eftir að snúa einum kafla við. Plús allt hitt.
02.sep. 2010 - 20:30 Margrét Ó. Morgan

Njóta þess að vera saman

Það er hægt að segja margt um Bandaríkjamenn, bæði gott og vont, en eitt er þó víst, þeir kunna svo sannarlega að skemmta fólki. Hér er allt byggt í kring um orðið “entertainment,” jafnvel íþróttaviðburðir eru ein stór skemmtun. Þegar ég flutti hingað gerði ég mér enga grein fyrir hve mikið er lagt upp úr íþróttum, það skiptir ekki málið hvort þú sért að horfa á amerískan fótbolta, körfubolta, hafnarbolta eða hokkí, því þetta er allt saman ein stór skemmtun.
02.sep. 2010 - 15:19 Aðsend grein

Guðsteinn Einarsson: Viltu bæta kjör þín um 105 þúsund krónur á mánuði?

Umræðan um ESB aðild kosti hennar og galla virðast vekja upp hræðslu við breytingar, þjóðernisrembing og  ofsafengin viðbrögð sérhagsmunahópa.  Hvaða hag við hefðum að samstarfi við önnur Evrópulönd kemst varla eða ekki að.
02.sep. 2010 - 13:16 Eiríkur Bergmann

Trúverðugleikinn fer líka

Haltu vinum þínum nálægt þér en óvinum þó enn nærri, er herbragð sem stjórnmálaforingjum er kennt í bréfaskóla persónustjórnmálanna. Líkast til hafa þau Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon haft þessa amerísku morgunkornspakkaspeki í huga þegar þau véluðu um að fá Ögmund Jónason aftur inn í ríkisstjórnina.
02.sep. 2010 - 12:40 Kolbrún Baldursdóttir

Hvatning til skóla: Einelti líðst ekki!

Sem skólasálfræðingur grunnskóla hef ég ásamt námsráðgjafa gengið í alla bekki frá 4.-10. bekk og fært þeim ákveðin skilaboð í forvarnarskyni. Ég hvet skólayfirvöld á landinu öllu til að gera slíkt hið sama og senda sálfræðing skólans, námsráðgjafa eða annan fagaðila inn í bekki með þau skilaboð sem hér eru birt að neðan.
01.sep. 2010 - 21:00 Ester Ósk Hilmarsdóttir

Kannt þú að vera góður gestur?

Af öllum þeim siðum og venjum sem herramenn og dömur eiga að hafa á hreinu, þá er listin að vera góður gestur ein sú mikilvægasta. Það skiptir ekki máli hvort þér er boðið í veislu, í grill, brúkaup eða í sumarhús yfir helgina, það er þitt hlutverk sem góður gestur að vera þakklátur, hugulsamur, vinsamlegur, viðfelldinn og kurteis og mikilvægast af öllu skemmtilegur.
01.sep. 2010 - 16:10 Ólafur Arnarson

Er Hæstiréttur bara gúmmístimpill?

Hæstarétti ber að vera brjóstvörn hins almenna borgara gegn yfirgangi sterkra aðila á borð við stjórnvöld og banka. Það er ekki nóg, að Hæstiréttur standi sig í stykkinu í hinum stærri málum ef hann bregst í hinum smærri. Skuldavandi og gjaldþrot einstaklings er kannski ekki stórmál fyrir samfélagið í heild, en fyrir viðkomandi einstakling skiptir niðurstaða slíks máls öllu. Þá er ófært, að Hæstiréttur Íslands sé einungis gúmmístimpill fyrir niðurstöðu neðra dómstigs. Það gengur ekki að Hæstiréttur sé viljalaust verkfæri fjármálafyrirtækja og erlendra kröfuhafa til að keyra Íslendinga í duftið.
01.sep. 2010 - 15:00 Jón Sigurðsson

Of margir háskólar?

Augljóst virðist að stefna nú að sameiningu háskólastofnana og hagræðingu í verkaskiptingu þeirra.
01.sep. 2010 - 13:45 Róbert Trausti Árnason

Pólitíkin og heimsviðburðir í lífi Halldórs Laxness

Ég les það í Baugsblaðinu að gera á „ekki-dæmigerða-heimildarmynd“ um „um pólitíkina og þá heimssögulegu viðburði“ sem urðu í viðurvist skáldsins og rithöfundarins Halldórs Laxness. Já einmitt.
01.sep. 2010 - 09:00 Þórarinn Jón Magnússon

Björk litla í Samúel fyrir aldarfjórðungi

Það er bráðskemmtilegt að lesa lýsingu Bjarkar á tilurð Tappa tíkarass, viðhorfum til skólans, nýbylgjunnar og nýtilkominnar frægðar 1983.

Pressan rifjar upp viðtal sem Samúel átti við Björku Guðmundsdóttur skömmu fyrir jól 1983, en það var næst fyrsta einkaviðtalið sem hún veitti tímariti. Frægðarsólin var þá aðeins orðin morgunskíma í samanburði við það sem síðar átti eftir að verða. Björk var þá að syngja með Tappa tíkarassi og Kuklinu.

31.ágú. 2010 - 20:16 Sigrún Einars

Að læra að elska - eða bara elska

Fyrr á öldum voru hjónabönd iðulega hagkvæmnisambönd, sértaklega í efri stéttum þjóðfélaga um heim allan.  Í æðstu stéttum voru þetta hrein og klár viðskiptasambönd og ástin látin mæta afgangi. Í lægri stéttum snérist þetta meira um hagkvæmni og sjálfsbjargarviðleitni. Menn völdu sér konur eftir hæfileika þeirra til að ala þeim börn og reka heimili, konur (eða feður þeirra) völdu menn sem gátu veitt þeim og börnum þeirra lífsviðurværi.
31.ágú. 2010 - 16:30 Ólafur Arnarson

Sjálftökuliðið færist í aukana

Nýja yfirstéttin á Íslandi samanstendur af þeim, sem ekki náðu á toppinn í bankakerfinu fyrir hrun, að viðbættum nokkrum innheimtulögfræðingum og endurskoðendum. Framtakssjóðnum stýra útgerðarstjóri og kvótaerfingi. Saman standa þessir aðilar í orrustunni um Ísland. Af þeirra hálfu snerist sú orrusta aldrei um að gera breytingar. Hún snerist um það eitt að ná völdum. Nú stýra þessir menn okkar peningum og kaupa sér völd með þeim.
31.ágú. 2010 - 10:23 Eiríkur Bergmann

Kemur tæplega á óvart

Ekki kemur það nú svo óskaplega og mjög á óvart að LÍÚ telji óþarft að festa í stjórnarskrá ákvæði um sameign þjóðarinnar á auðlindum sjávar, eins og fram kemur á forsíðu Fréttablaðsins í dag.
31.ágú. 2010 - 09:00 Buddy Holly

Frá Gunnari í krossinum til Gunna og Felix!

Gunnar Helgason leikstjóri á einum af stólunum góðu fyrir utan Austurbæ. Stólar sem notaðir voru í brúðkaupsveislu Gunnars, kenndur við Krossinn, og Jónínu Ben voru teknir á leigu hjá Laugardalshöllinni. Stólarnir stöldruðu ekki lengi við í höllinni eftir að Gunnar skilaði þeim en þeir fóru rakleitt uppí Austurbæ á mánudagsmorgun þar sem Gunnar Helgason leikstjóri var að hefja æfingar á Buddy Holly söngleiknum, en Felix Bergsson félagi hans fer með eitt aðalhlutverkanna.
30.ágú. 2010 - 18:00 Gabriella Unnur Kristjánsdóttir

Verjum menntun

Fyrirhugaður niðurskurður í fjárlögum til Háskóla Íslands er 15 – 25% næstu tvö ár. Ef bjartsýnustu spár ganga þá sjáum við fram á 672 milljón króna niðurskurð næsta ár.
30.ágú. 2010 - 17:30 Brynjar Eldon Geirsson

Bestu kylfingar Íslands frá upphafi

Ég ætla að taka fram 10 leikmenn sem fram að deginum í dag hafa staðið sig hvað allra best að mínu mati og ætla ekki að tala um þá sem eru að koma upp og munu ráða ferðinni næstu ár.
30.ágú. 2010 - 15:30 Jón Magnússon

Hvað kostar kílóvattstundin?

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur boðað tugaprósenta hækkun á helstu afurðum sínum, heitu og köldu vatni og rafmagni.  Athygli vakti að sjónvarpsstöðvarnar bæði sú ríkisrekna RÚV og ríkisrekna Arion undir stjórn Jóns Ásgeirs, tóku þessum fréttum eins og þetta væri það eðlilegasta í heimi að fyrirtæki hækkaði vörur sínar til neytenda um tugi prósenta á einu bretti.
30.ágú. 2010 - 13:00 Jón Sigurðsson

ESB - undanþágur

Mikið er rætt um undanþágur frá meginreglum Evrópusambandsins og þær taldar skipta máli fyrir Íslendinga. Andstæðingar aðildar Íslands að ESB reyna að skjóta undanþágurnar í kaf. Þessi umræða er full af misskilningi.
29.ágú. 2010 - 17:46 Sigurður G. Guðjónsson

Opið bréf til Hæstaréttar

Hæstiréttur mun á næstunni kveða upp dóm um vexti þeirra gengistryggðu lána, sem rétturinn dæmdi ólögmæt í tveimur dómum sínum þann 16. júní sl. Þeir dómar vöktu von um betri tíð þeirra sem á síðustu þremur árum hafa séð eignir sínar brenna á báli verðbólgunnar.
29.ágú. 2010 - 16:01 Jón Helgi Egilsson

Sem betur fer var Kóperníkus ekki yfirhagfræðingur

Á miðöldum var heimslíkan kirkjunnar að jörðin væri í miðju alheimsins.  Líkanið passaði að vísu ekki við raunveruleikann.  Hugmyndin um að jörðin snúist um sólina þótti kirkju þess tíma andguðleg.  Ptólemíos tjaslaði því upp á vitlausa líkanið og bjó til auka hringi um reikistjörnurnar.  Líkanið skánaði en var engu að síður vitlaust.  Kirkjan blessaði niðurstöðuna.

Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 29.8.2010
Viðbjóðurinn blasir allstaðar við
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 29.8.2010
Opið bréf til Hæstaréttar
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 30.8.2010
Bestu kylfingar Íslands frá upphafi
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 29.8.2010
Móeiður í keppni Samúels
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 31.8.2010
Sjálftökuliðið færist í aukana
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 01.9.2010
Björk litla í Samúel fyrir aldarfjórðungi
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 31.8.2010
Kemur tæplega á óvart
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 30.8.2010
ESB - undanþágur
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 01.9.2010
Er Hæstiréttur bara gúmmístimpill?
Ester Ósk Hilmarsdóttir
Ester Ósk Hilmarsdóttir - 01.9.2010
Kannt þú að vera góður gestur?
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 31.8.2010
Að læra að elska - eða bara elska
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 01.9.2010
Of margir háskólar?
Jón Magnússon
Jón Magnússon - 30.8.2010
Hvað kostar kílóvattstundin?
Björg Magnúsdóttir
Björg Magnúsdóttir - 02.9.2010
DV, þú stöðvar mig ekki!
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir - 30.8.2010
Verjum menntun
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 29.8.2010
Venesúela, Kúba... Ísland?
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 02.9.2010
Trúverðugleikinn fer líka
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit