10. jún. 2009 - 15:24Ágúst Borgþór Sverrisson

Hvers spyrja þau kennarann?

Ég kenndi í kvöldskóla í vetur. Það var afskaplega skemmtilegt og heppnaðist vel. Það kom fyrir að ég var dálítið taugastrekktur fyrir tímana, sérstaklega í byrjun, en var fljótur að hrista það af mér enda með frábæra og áhugasama nemendur.

Þetta var ekki í Háskólanum í Reykjavík heldur í kvöldskóla eins og ég sagði áður. Og ég var ekki að kenna viðskiptaverkfræði eða neitt svoleiðis heldur smásagnagerð.

Þrátt fyrir að þetta hafi gengið svona eins og í sögu þá fékk ég þarna smjörþefinn af því að það getur verið ákveðið andlegt álag að mæta til kennslu frammi fyrir nýjum hópi. Mín upplifun var sú að ekkert mætti út af bregða svo maður héldi „kúlinu“ og liði vel við kennsluna. Hvers kyns óvænt álag hefði komið sér illa.

Ég á það til að fá fáránlegar hugdettur svona einn með sjálfum mér. Í morgun var ég að velta því fyrir mér hvernig tilfinning það hefði verið að hefja kennsluna ef ég væri búinn að hneppa þjóðina í skuldafjötra. Segjum ef ég hefði stofnað til bankainnlána um alla Evrópu, innlánin hefðu tapast og allt fallið á íslensku þjóðina. Og allir í bekknum vissu það. Væri ekkert stressandi að kenna ókunnugu fólki með slíkt á samviskunni?

Og hvað með nemendurna? Hlýtur ekki að vera a.m.k. einn nemandi í hópnum sem fer að spyrja einhverra spurninga út fyrir efnið. Til dæmis: Hvers vegna gerirðu þetta? (Vinstri sinnaður kvenmaður). Eða: Geturðu kennt okkur að verða ógeðslega rík á kostnað þjóðarinnar? (Ungur tækifærisinnarðu karlmaður).

Kannski eru nemendur í HR svo kurteisir að þeir bera ekki upp svona spurningar. Eða kannski eru þeir svo orðlausir af undrun yfir því að kennari með svona einstætt rekord þori að láta sjá frammi fyrir fullum fyrirlestrarsal að þeir verða kjaftstopp.



08.feb. 2010 - 20:00 Ásdís Rán Gunnarsdóttir

Bak við tjöldin með Ásdísi - MYNDBAND

Ég fór í töku á föstudaginn síðasta fyrir grein í Cosmopolitan Magazine sem flestir þekkja, þetta var svo sem engin merkileg tískutaka heldur bara classy sæt mynd sem fylgir...
08.feb. 2010 - 18:20 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Vofa kommúnismans

Sem kunnugt er, voru tvö helstu stefnumál núverandi vinstristjórnar í skattamálum 1) að hækka skatta og gera þá stighækkandi (fjölþrepa) og 2) að taka upp auðlinda- og umhverfisskatta.
08.feb. 2010 - 17:00 Jóna Á. Gísladóttir

Er ég barnið þitt?

Sá Einhverfi er mikill aðdáandi Ronju ræningjadóttur. Enda, hver er það ekki? Ég hef reyndar ekki séð hann horfa á myndina í langan tíma, en ég fæ reglulega að heyra hana alla, líkt og um útvarpsleikrit væri að ræða. Þá gengur hann hér um gólf og þylur textann úr myndinni frá upphafi til enda.

08.feb. 2010 - 14:25 Ólafur Arnarson

Ritstjórinn sér rautt

Jón Ásgeir á ekkert í Samskipum og því hefur ritstjóri Morgunblaðsins engan áhuga á því. Arion Banki á hrós skilið fyrir að tryggja gegnsæi á sölu hlutar bankans í Högum. Betur væri ef Landsbankinn ástundaði viðlíka gegnsæi í stað þess að byggja laumulega upp stærsta eignarhaldsfélag landsins í Vestia. Hvers vegna skoðar ekki ritstjóri Morgunblaðsins hvað Landsbankinn og Vestia eru að gera með fyrirtæki, sem bankinn sölsar undir sig? Er það kannski óþægilega nálægt Icesave, sem vinir ritstjórans stóðu fyrir? Það eru meira að segja sömu mennirnir og stóðu fyrir Icesave, sem tróna nú yfir stærsta eignarhaldsfélagi landsins.
08.feb. 2010 - 11:00 Sigrún Einars

Frá lesendum: Barnlaus í vandræðum

Ég er einhleyp 33 ára stelpa, barnlaus. Ég ákvað að skrifa þér útaf pistlinum þínum, Hvers eiga börnin okkar að gjalda?

08.feb. 2010 - 09:02 Unnur H. Jóhannsdóttir

Skatturinn rannsakar smábókhald í 5 ár

Unnur telur enga von til þess að hún verði á lífi þegar dómur fellur um fjárglæfrastarfssemi, skattsvik og aðra plógsstarfssemi þeirra sem voru á toppnum í Hruninu. Það er einfaldlega kalt mat.  Unnur lenti nefnilega í skattinum, réttara sagt tók Skattstjórinn í Reykjavík bókhald Unnar til rannsóknar fyrir fimm árum. Til þess að gera langa sögu stutta vann Unnur þá sem verktaki í fjölmiðlageiranum.
08.feb. 2010 - 07:57 Magnús Geir Eyjólfsson

Vorum við einu fíflin?

Ginza-hverfið í Tókýó var mekka góðærisins. Eitt af því íslenskum útrásarvíkingum hefur verið legið á hálsi er hvernig þeir lifðu meðan góðærið stóð hæst. Snekkjur, einkaþotur, lúxusvillur, gull ofan á brauð, Oxford Street, Gumball kappaksturinn og svo mætti lengi telja.
08.feb. 2010 - 07:00 Sölvi Tryggvason

Verstu bréf ársins

Ég upplýsti hér á síðunni fyrir stuttu að fjórir lykilráðherrar hefðu enn ekki fengið bréf frá rannsóknarnefnd Alþingis til þess að andmæla því sem þar kemur fram.
07.feb. 2010 - 20:00 Eiríkur Bergmann

Af hverju hata norrænir menn konur?

Úr kvikmyndinni Karlar sem hata konur.

Á náttborðinu: Þúsaldarþríleikurinn og Konur Steinars Braga.

Eins og svo margir aðrir jarðarbúar hef ég legið yfir þúsaldarþríleik hins sænska Stiegs Larssons. Fyrstu tvær bækurnar las ég á íslensku en þá þriðju á ensku. Eftir á að hyggja sé eftir að hafa ekki lesið þær á sænsku. Meginvandinn við þessar bækur er að sagan verður ansi fljótt ávanabindandi, svo maður heldur lestrinum stöðugt áfram hvað svo sem gerist í kringum mann. Bálkurinn er mikill vöxtum, líkast til um fimmtán hundruð síður. Það felur því í sér töluverða tímaskuldbindingu að hefja lesturinn.

07.feb. 2010 - 16:20 Sveinn Andri Sveinsson

Vinstri græn græðgisvæðing

Árni Þór Sigurðsson. Fáir hafa verið duglegri við það, en þingmenn Vinstri grænna, að gagnrýna það sem kallað er græðgisvæðing. Þetta hugtak var líklega búið til af einhverjum þingmanna þessa flokks, gott ef það var ekki Ögmundur Jónasson sem fyrst kom fram með það. Á hugtakið að lýsa hinni taumlausu fégræðgi sem heltekið hafi íslenskt athafnalíf undanfarin ár og áratugi, og grasserað í skjóli hinnar skelfilegu markaðshyggju.
07.feb. 2010 - 15:26 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Greining Kristrúnar Heimisdóttur

Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur, fyrrverandi aðstoðarmaður utanríkisráðherra (Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur), skrifar hins vegar skorinorða grein í Fréttablaðið í gær, þar sem hún viðurkennir, að samningamenn Íslands í Icesave-deilunni hafi gert stórkostleg mistök.
07.feb. 2010 - 15:00 Anna Claessen

Facebook vs Twitter

Fylgist þú með stjörnunum á twitter?

Á pressunni var grein um daginn þar sem fjallað var um að Twitter væri einungis fyrir útvalda en ekki fyrir almenning.  Þar sem ég nota báða þessa samskiptamiðla langar mig að benda á nokkur atriði sem útskýra muninn á þessu tvennu.

07.feb. 2010 - 12:00 Ásdís Rán Gunnarsdóttir

Lærðu á litina - Tíska

Við lendum öll í því að versla okkur fallega litaglaða flík sem við heillumst hreinlega af og verðum að kaupa! Hún fer svo inn í skáp þar sem hún bíður ennþá eftir rétta tækifærinu...

Hér eru nokkrar hagnýtar upplýsingar um litaval áður en verslað er...

07.feb. 2010 - 10:00 Kolbrún Baldursdóttir

Staða ættleiðingarmála á Íslandi í dag

Í nærveru sálar, ræðir Kolbrún Baldursdóttir við gesti um ættleiðingar á Íslandi

Tilkoma barns á heimili er oftast nær tilefni gleði og eftirvæntingar. Þetta á ekki síður við í þeim tilvikum þegar börn eru ættleidd. Nær undantekningarlaust hafa fjölskyldur sem bíða eftir að fá barn ættleitt gengið í gegnum langan biðtíma sem jafnvel er stundum hlaðinn óvissu. Mörg pör eru þá þegar búin að ganga langa þrautargöngu við að reyna að eignast sitt eigið barn og í því sambandi gengið í gegnum erfiðar aðgerðir og tilraunir á sviði tæknifrjóvgunar.

 

07.feb. 2010 - 08:00 Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir

Leikföng eða list?

Designer toys eða Hönnuð leikföng eru fyrirbæri sem hefur ekki verið lengi á sjónarsviðinu. Við könnumst flest við leikfangasafnara, með hillur og veggi fulla af Star Wars leikföngum eða súperhetjum. Þó að þau leikföng hafa upprunalega verið ætluð börnum þá hafa þau öðlast aukin verðmæti í gegnum söfnun og eftirspurn. Designer Toys eru hins vegar hönnuð með söfnun í huga og eru því oft aðeins framleidd í fáum eintökum og ætluð unglingum og fullorðnum.

06.feb. 2010 - 17:15 Björn Þorláksson

Hrikalegt fordæmi Arion-manna

Gerir Arion-banki sér ekki grein fyrir því að þjóðin vill að hreinsað verði til í viðskiptalífinu á Íslandi? Hrun Moggans er dæmi um þetta. Fólk kaupir ekki blaðið vegna tengsla ritstjóranna við viðskiptalífið, tengsla þeirra við viðskiptalíf sem brást. Tengsla þeirra við viðskipta- og stjórnmálalíf sem ekki bara skuldsetti þjóðina upp í rjáfur heldur gerði okkur líka að glæpamönnum í huga umheimsins.
06.feb. 2010 - 15:25 Ólafur Arnarson

Össur og Árni eru saklausir - en hvað með Baldur?

Baldur seldi Landsbankabréfin sín eftir að hafa sjálfur setið fund með breska fjármálaráðherranum um vanda Landsbankans. Hann var vart kominn heim frá þeim fundi þegar hann seldi bréfin. Sennilega er mál Baldurs eitt skýrasta dæmi um ólögleg innherjaviðskipti, sem hægt er að finna í víðri veröld. Að sama skapi er ljóst að menn þurfa að vera nánast veruleikafirrtir til að taka undir rausið í staksteinahöfundi í dag.
06.feb. 2010 - 14:00 Ágúst Borgþór Sverrisson

Siðferðistíðarandinn II - Þegar nektarfyrirsætan bjargaði bankamanninum

Meðal þekktustu frétta liðinnar vinnuviku voru þær sem greindu frá vanda bankamanns er hafði verið að skoða mynd af nakinni eða fáklæddri fyrirsætu á tölvuskjá sínúm á meðan á beinni sjónvarpsútsendingu frá vinnustöð hans stóð.
06.feb. 2010 - 11:58 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Furðuleg vinnubrögð Arion banka

Það er stórfurðulegt, að Arion banki skuli veita Baugsfeðgum forkaupsrétt á stórum hluta Haga eftir allt, sem á undan er gengið. Þegar bankastjóri Arion segir, að Jón Ásgeir Jóhannesson komi þar hvergi nærri, heldur aðeins Jóhannes Jónsson, faðir hans, hlýtur hann að tala um hug sér. Allir vita, að Jón Ásgeir stjórnar öllu, sem hann vill innan Baugsveldisins.
06.feb. 2010 - 10:08 Hermann Guðmundsson

Á barmi heimskreppu

Þessa dagana er að koma út bók sem skrifuð er af Hank Paulson fyrrum fjármálaráðherra Bandaríkjanna og þar áður forstjóri virtasta fjárfestingabanka heims, Goldman Sachs.

Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 05.2.2010
Skvísuvaktin - Lilja Ingibjargar MYNDIR
Björn Þorláksson
Björn Þorláksson - 06.2.2010
Hrikalegt fordæmi Arion-manna
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 04.2.2010
Er framhjáhald eina leiðin?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 05.2.2010
,,Af hverju treystið þið mér ekki?"
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 04.2.2010
Þórólfur skrökvar sjálfur
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 08.2.2010
Ritstjórinn sér rautt
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 04.2.2010
Milljarðarnir sem mygla
Unnur H. Jóhannsdóttir
Unnur H. Jóhannsdóttir - 08.2.2010
Skatturinn rannsakar smábókhald í 5 ár
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 07.2.2010
Lærðu á litina - Tíska
Hermann Guðmundsson
Hermann Guðmundsson - 06.2.2010
Á barmi heimskreppu
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 06.2.2010
Siðblinda
Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir - 04.2.2010
Ber eins og hinir
Sveinn Andri Sveinsson
Sveinn Andri Sveinsson - 07.2.2010
Vinstri græn græðgisvæðing
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 07.2.2010
Greining Kristrúnar Heimisdóttur
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 08.2.2010
Verstu bréf ársins
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Katrín Brynja Hermannsdóttir - 05.2.2010
Leggðu barnið á bakið!
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 07.2.2010
Af hverju hata norrænir menn konur?
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 06.2.2010
Furðuleg vinnubrögð Arion banka
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit