23.apr. 2012 - 14:47
Björgvin G. Sigurðsson
Fyrir nokkru sameinaðist allsherjar- og menntamálanefnd um flutning tillögu um aðgerðir gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Þar er lagt til að Alþingi álykti að fela innanríkisráðherra að undirbúa heildstæða aðgerðaráætlun gegn skipulagðri glæpastarfsemi hér á landi í samvinnu við hlutaðeigandi ráðuneyti og stofnanir, auk allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis. Aðgerðaráætlunin liggi fyrir svo fljótt sem verða má og eigi síðar en 1. október 2012.
20.apr. 2012 - 11:49
Björgvin G. Sigurðsson
Hreyfingin flytur nú tímabæra þingsályktun þar sem lagt er til að Alþingi lýsi þungum áhyggjum af vaxandi ofbeldi og kúgun kínverskra yfirvalda gagnvart tíbesku þjóðinni. Átök sem m.a. leiddu til þess að 33 munkar og nunnur kveiktu í sér frávita af örvæntingu árið 2011. Þá er lagt til að kínversk stjórnvöld hætti að þvinga tíbeskan almenning til aðlögunar að kínverskri menningu og hverskyns hverkví verði tafarlaust aflétt.
30.jan. 2012 - 15:00
Björgvin G. Sigurðsson
Fórnarkostnaður fámennrar þjóðar við að halda úti sjálfstæðri mynt í svo gott sem landamæralausum heimi nútímaviðskipta er hár. Tugmilljarða kostnaður fyrir heimili og fyrirtæki ár hvert, þegar allt leikur í lyndi, en við fall gjaldmiðils í kreppu margafaldast kostnaðurinn við krónuna og kemur fram á mörgum sviðum. Lánin hækka, matur og eldsneyti einnig og almennt dregur úr kaupmætti fólks. Fyrir utan fasta tollinn sem kemur fram í viðvarandi hærri vöxtum á lánsfjármagn.
28.nóv. 2011 - 11:00
Björgvin G. Sigurðsson
Í umræðunni um kauptilboðið í Grímsstaði á Fjöllum hefur aðeins örlað á mikilvægasta viðfanginu að mínu mati sem er ekkihver má kaupa heldur hvað mikið. Eftir aldamótin 2000 hljóp mikil þensla í verð á jarðnæði. Hafði lengi verið of lágt og kvótalaus jörð lítils virði. Afleit afleiðing af þeim miklu mistökum sem lagasetningin um framseljanlegan framleiðslurétt var eftir 1980.
16.nóv. 2011 - 13:00
Björgvin G. Sigurðsson
Sú staðreynd að Sjálfstæðisflokkurinn hefur drottnað yfir íslensku samfélagi meira og minna frá stofnun flokksins fyrir liðlega 70 árum hvílir á þeirri miðsækni og breidd sem forystumenn hans í gegnum tíðina hafa staðsett hann á. Vissulega brunaði flokkurinn langt til hægri á níunda og tíunda áratug síðust aldar. Hann passaði hinsvegar upp tapa ekki alveg tengslunum við kjósendur nær miðju. Til dæmis með því að þenja ríkisbáknið út á sama tíma og einkavætt var af kappi með hægri hendinni.
11.nóv. 2011 - 17:00
Björgvin G. Sigurðsson
Nú þegar heimsbyggðin siglir í gegnum brimskafla skuldakreppu og fjármálaerfiðleika ágerist umræðan um framtíðarstefnu Íslendinga í gjaldmiðils- og peningamálum. Þorra landsmanna er ljóst að ekki er búandi til lengdar við núverandi ástand. Það ógnar fullveldi landsins til lengri tíma litið og það er með engum hætti réttlætanlegt að afhenda komandi kynslóðum landið án þess að skjóta traustum stoðum stöðugs gjaldmiðils undir samfélagið.
05.nóv. 2011 - 14:00
Björgvin G. Sigurðsson
Í því efnahagslega ógnarástandi sem nú er á heimsmörkuðum bærir enn og aftur á sér umræða sem einkennst af þjóðernisöfgum og einangrunarhyggju. Ekki bara á Íslandi heldur um allan hinn vestræna heim. Í mismiklum mæli auðvitað. Sannir Finnar eru nýjasta dæmið um popúlískan hægriflokk sem dró til sín um fimmtung finnskra atkvæða með innihaldslitlu skrumi um finnska þjóðernishyggju og einangrun frá samstarfi evrópskra ríkja.
17.okt. 2011 - 09:30
Björgvin G. Sigurðsson
Fyrir nokkrum dögum mælti ég fyrir þingsályktunartillögu minni og nokkurra þingmanna úr fjórum flokkum um skipan sannleiksnefndar til að rannsaka málsmeðferð í Guðmundar- og Geirfinnsmála. Í framsögu með tillögunni notaði ég tækifærið og fagnaði framkomnum starfshópi innanríkisráðherra undir forystu Arndísar Soffíu lögfræðings og varaþingmanns. Vinna þess hóps verður án efa gott innlegg í starf sannleiksnefndarinnar og mun örugglega falla vel að störfunnar.
04.okt. 2011 - 14:00
Björgvin G. Sigurðsson
Ég hef lengi verið mikill áhugamaður um hin svokölluðu Guðmundar- og Geirfinnsmál. Þegar ég stundaði blaðamennsku meðfram námi var ég svo lánsamur að kynnast Sævari Ciesielski og tala við hann löngum stundum um þetta ömurlega mál og það sem sakborningar í því máttu þola.
14.sep. 2011 - 10:40
Björgvin G. Sigurðsson
Deilan um staðsetningu öryggisfangelsis tók á sig nýja mynd á dögunum. Þá kom innanríkisráðuneytið óljósum kostnaðarútreikningum við nýbygginguna í Fréttablaðið án þess að kynna þá frekar eða formlega. Átti reikningurinn, að er virtist, að ramma inn vilja ráðherrans með reiknikúnstum að byggt skyldi í Reykjavík en ekki þar sem megin öryggisfangelsi landsins stendur; á Eyrarbakka.
12.sep. 2011 - 20:00
Björgvin G. Sigurðsson
Það er gamalkunnugt og ljótt trix í pólitík að kasta fram rætnum fullyrðingum um fólk og láta því eftir að elta þær uppi og svara. Láta fólk neita. Þessu er stundum beitt þegar fólk eða flokkar eru í þröngri stöðu og vilja beina athygli að öðru.
06.sep. 2011 - 12:30
Björgvin G. Sigurðsson
Nú er samningaferlið á milli Íslands og ESB að komast á hástig. Í júní voru opnaðir fjórir kaflar af tæplega fjörutíu. Tveimur var lokið strax og hinir eru í ferli.
05.sep. 2011 - 15:00
Björgvin G. Sigurðsson
Lengi hefur staðið til af hálfu fangelsisyfirvalda að byggja gæsluvarðahaldsrými og komufangelsi sem leysti af hólmi afdankað húsnæði t.d. á Skólavörðustígnum. Þessi stefnumið eru tilkomin þar sem núverandi húsnæði er úrelt. Hefur að auki verið átalið sem mannréttindabrot af alþjóðastofnunum að hýsa þar menn.
24.ágú. 2011 - 17:00
Björgvin G. Sigurðsson
Nú þegar hyllir undir lok umsóknarferlis Íslands að Evrópusambandinu er gagnlegt að skoða stækkunarsögu sambandins. Össur utanríkisráðherra hefur sagt frá því að hann hafi lagt til að umsóknarferlinu verði hraðað sem kostur er þannig að hægt verði að kjósa um samninginn snemma árs 2013. Innan við fjórum árum frá því að Alþingi ákvað að sækja um aðild að ESB. Þetta eru ánægjuleg tíðindi enda eðlilegt að ljúka málinu áður en starfstími þess þings sem sótti um aðild rennur út.
14.ágú. 2011 - 16:30
Björgvin G. Sigurðsson
Ákvörðunin um aðild Íslands að Evrópusambandinu er líkast til sú mikilvægasta sem við höfum staðið frammi fyrir um árabil. Að minnsta kosti frá því að landið gerðist aukaaðili að sambandinu og hluti af innri markaði þess fyrir að verða sautján árum. Því ber að vanda umsóknarferlið til hins ítrasta og mynda breiða samstöðu um það til að ná sem bestum samningi. Í því felast miklir hagsmunir þjóðarinnar allrar líkt og blasir við.
28.júl. 2011 - 14:00
Björgvin G. Sigurðsson
Skipan stjórnlagaráðs eftir ógildingu hæstaréttar á kosningu stjórnlagaþings var gæfuspor. Ráðið náði þegar góðu skriði við vinnu sína eftir skipan þess. Störf stjórnlagaráðs hafa verið opin og áhugavert að fylgjast með þeim. Starfsemin hefur gengið vel og á skömmum tíma liggur fyrir frumvarp að nýrri stjórnarskrá sem afhent er forseta Alþingis.
20.júl. 2011 - 16:00
Björgvin G. Sigurðsson
Umræðan sem blossaði upp um Guðmundar-og Geirfinnsmálin við fráfall Sævars Ciesielski verður vel mögulega til þess að þau verði tekin upp og rannsökuð að nýju. Seint vissulega og að Sævari látnum, en ástæðan til endurupptöku þeirra er engu minni nú en áður.
16.júl. 2011 - 10:00
Björgvin G. Sigurðsson
Lifshlaup Sævars Ciesielski var harmrænt og dramatísk. Hamfarakennt æði rann á hluta stjórnvalda, fjölmiðla og þjóðarinnar árið 1976 þegar Guðmundar- og Geirfinnsmálin stóðu sem hæst. Í því skelfingarfári kom flest það versta saman í einu úr mörgum áttum sem leiddi til sektardómanna þungu fjórum árum síðar. Málin eru án efa sérstæðustu sakamál sem upp hafa komið hérlendis. Alltaf hefur skuggi þess að í þeim hafi dómsmorð verið framið að gengnum pyntingum og harðræði sem ekki voru dæmi um í íslensku réttarfari öldum saman.
24.maí 2011 - 15:00
Björgvin G. Sigurðsson
Ekki er ofsagt að umsóknin um aðild Íslands að Evrópusambandinu sé mikilvægasta ákvörðun Alþingis í utanríkismálum um áratugaskeið. Aðildarumsóknin er einstakt tækifæri til að komast út úr því samfélagi hafta og sérhagsmuna sem hér hefur myndast. Ekki síður rækileg tiltekt eftir margra áratuga óstjórn og yfirgangs gagnvart almenningi. Út úr ástandi þar sem gjaldmiðillinn er notaður til að gengisfella lífskjör og ráðstöfunarfé fólksins í landinu til þess að hífa útflutningsatvinnuvegina og ríkissjóð upp úr feninu sem myndast hefur hverju sinni.
08.maí 2011 - 17:00
Björgvin G. Sigurðsson
Í júlí verða tvö ár frá því að Ísland sótti um aðild að Evrópusambandinu. Þingmenn úr öllum flokkum nema einum greiddu atkvæði með umsókninni og hefðbundið ferli fór af stað.