22. feb. 2011 - 22:00Gunnar Guðbjörnsson

Frá Þorsteini Kolbeinssyni
Hljómsveitakeppnin Wacken Metal Battle verður haldin á Sódóma Reykjavík laugardaginn 5. mars.
Í tilkynningu um keppnina segir:
Sex hljómsveitir berjast um heiðurinn af því að komast út til að spila á Wacken Open Air í Þýskalandi og taka þátt í lokakeppni Wacken Metal Battle þar. Til mikils er að vinna, því sigurhljómsveitin fær plötusamning, heilan haug af hljóðfærum og græjum og verður bókuð til að koma fram ári síðar á hátíðinni sem eitt af númerum hennar.
Sigurhljómsveitin í undankeppninni er valin af dómnefnd, skipuð bæði innlendum sem erlendum aðilum, þar á meðal ritstjóra Metal Hammer í Bretlandi.
Þeir sem munu bítast um hnossið í ár eru svo sannarlega með því besta sem landið hefur upp á að bjóða í þungu rokki:
ANGIST - www.myspace.com/angisttheband
ATRUM - www.myspace.com/atrumiceland
GRUESOME GLORY - www.myspace.com/gruesomeglory
OPHIDIAN I - www.myspace.com/ophidiani
GONE POSTAL - www.myspace.com/gonepostalmetal
CARPE NOCTEM - www.myspace.com/carpenoctemiceland
Að auki koma fram þrjár gestasveitir og ber fyrst að nefna:
SKÁLMÖLD - http://www.myspace.com/skalmold
sem eru bókstaflega að endurskrifa íslenska þungarokkssögu þessa dagana, þegar staðfestir á Wacken í sumar og fyrsta upplagið af fyrstu plötu þeirra uppselt og það næsta komið í búðir. Skálmöld loka kvöldinu.
WISTARIA - http://www.myspace.com/wistariatheband
Sigurvegarar íslensku Wacken Metal Battle keppninnar í fyrra. Wistaria spiluðu fyrir u.þ.b. 3000 manns á Wacken síðasta sumar og vöktu mikla eftirtekt. Var m.a. tekið við þá heilsíðuviðtal sem birtist í dagblaðinu sem kemur daglega út á Wacken hátíðinni.
Síðast en ekki síst:
MOLDUN - http://www.myspace.com/moldun sem munu byrja kvöldið. Þessi sveit var hársbreidd frá því að komast í keppnina bæði í ár og í fyrra að það er varla hægt að tala um marktækan mun. Þeir eru því upplagðir til að byrja kvöldið.
Það er því sannkölluð þungarokksveisla hér á ferðinni og tvímælalaust einn af stærstu viðburðunum í þessum geira í ár. Sódóma verður færður í sérstakan búning fyrir þetta tilefni, lýsingarbúnaðurinn nýttur til hins ítrasta og allt gert til að viðburðurinn verði sem flottastur.
http://midi.is/tonleikar/1/6370/
Miðaverð aðeins 1.000 kr (lækkað verð frá því í fyrra).
Húsið opnar 19:45 og fer fyrsta sveit á svið 20:30