05. jan. 2012 - 13:24

Péturs W. Kristjánssonar minnst á laugardag - Sextugsafmæli á SPOT

Nú fer að líða að sextugsafmælistónleikum Péturs W. Kristjánssonar sem haldnir verða á SPOT á afmælisdegi Péturs 7. janúar 2012. Einhugur er að gera þetta að skemmtilegri tónlistarafmælisveislu og mun allur ágóði af kvöldinu renna í Minningarsjóð Péturs sem hefur þann eina tilgang að halda nafni hans á lofti með því að úthluta sigurvegurum í Músíktilraunum ár hvert styrk.

Pétur kom úr bílskúrshljómsveitum og með stofnun sjóðsins getum við haldið nafni hans á lofti hjá tónlistaræsku landsins.

Grunnhljómsveitin verður þannig skipuð.
 
Trommur: Ásmundur Jóhannson
Bassi: Jóhann Ásmundsson
Hljómborð: Ingvar Alfreðsson
Gítar: Sigurgeir Sigmundsson og einnig verður Davíð Sigurgeirs okkur til halds og trausts í nokkrum lögum
 
Söngvarar kvöldsins eru:
Bjartmar Guðlaugsson
Birgir Haraldsson
Jóhann G. Jóhannsson
Magni Ásgeirsson
Matthías Matthíasson,
Páll Rósinkranz
Richard Scobie
Stefán Hilmarsson
 
 
Gestagítarleikarar verða:
Björgvin Gíslason
Guðmundur Jónsson
Birgir Hrafnsson
 
 Kynnir verður Þorgeir Ástavalds

Stefnum að grenjandi stuði á SPOT á afmælisdegi Péturs og með því að skipuleggja okkur vel verðu þetta bæði létt og skemmtilegt. Á meðan tónleikunum stendur verður myndasýning sem Gústi rót hefur tekið saman þannig að kvöldið verður bæði fallegt og skemmtileg



12.apr. 2012 - 15:20

Dagskrá Listahátíðar kynnt í dag og miðasala hafin á alla viðburði


Listahátíð í Reykjavík leggur undir sig borgina frá 18. maí til 3. júní og fyllir vorkvöldin löng með glæsilegri og fjölbreyttri dagskrá sem Hrefna Haraldsdóttir, stjórnandi Listahátíðar, kynnti í dag. Dagskrá hátíðarinnar í ár er klassísk og framsækin í senn og verða á hátíðinni frumflutt ný verk í öllum listgreinum og efnt til spennandi samvinnu milli listamanna, listgreina og áhorfenda.
30.mar. 2012 - 12:30

Lögin úr leikhúsinu í Salnum í kvöld

Í kvöld mun ríkja sannkölluð leikhússtemning í Salnum í Kópavogi þegar Jóhann Sigurðarson flytur lög úr söngleikjum og leikritum. 
13.mar. 2012 - 09:00

Lögreglukórinn í Hljómahöllinni

Lögreglukór Reykjavíkur, ásamt Eyþóri Inga Gunnlaugssyni og hljómsveit, mun halda tónleika í Hljómahöllinni, Reykjanesbæ, miðvikudaginn 14. mars kl. 20.30. 
08.mar. 2012 - 15:10

Foxillur Friðrik: Illgirnin svo augljós - Eins og holdgervingar illskunnar - Eru einu vitleysingarnir á verkinu

Rithöfundurinn Friðrik Erlingsson segir gagnrýnendur RÚV holdgervinga illskunnar. Rangfærslur á rangfærslur ofan hafi verið í gagnrýni þeirra á Vesalingana og þau hafi afhjúpað fávisku sína.
28.feb. 2012 - 09:00

Raggi Bjarna með vortónleika í Hörpu

Hinn ástsæli dægurlagasöngvari Ragnar Bjarnason mun halda vortónleika í Eldborgarsal Hörpunnar þann 12. maí næstkomandi. Raggi kemur þar fram ásamt Eivöru Pálsdóttur, Guðrúnu Gunnarsdóttur, Sigrúnu Hjálmtýrsdóttur (Diddú), Birni Jörundi Friðbjörnssyni, Bjarna Arasyni, Álftagerðisbræðrum og Óskari Péturssyni ásamt hljómsveit undir stjórn Jóns Ólafssonar.
27.feb. 2012 - 11:10

Manfred Mann´s Earth Band í Háskólabíó

Hin sögufræga hljómsveit Manfred Mann´s Earth Band munu halda stórhljómleika í Háskólabíói miðvikudaginn 16. maí.
15.feb. 2012 - 14:00

Ísak Óli Sævarsson listamaður hátíðarinnar Listar án landamæra

Verk Ísaks Óla Sævarssonar. Listamaður hátíðarinnar Listar án landamæra 2012 er Ísak Óli Sævarsson en hann hefur getið sér gott orð fyrir verk sín. Ísak hefur sterkan myndheim og kannast margir við myndir hans af Tinna, Einari Áskeli og fleiri þekktum sögupersónum. Verk Ísaks munu prýða allt kynningarefni Listar án landamæra 2012 og mun Ísak sýna ný verk á portrett sýningu í Norræna húsinu sem opnar í lok apríl. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi í Hinu húsinu í dag.
14.feb. 2012 - 09:00

Afturhvarf – Bergþórutónleikar í Salnum og Hofi

Minningarsjóður Bergþóru Árnadóttur söngvaskálds efnir til árlegra tónleika í Salnum, Kópavogi 15. og 16. febrúar kl. 20, og í Hofi á Akureyri 17. febrúar. Að þessu sinni er yfirskrift tónleikanna Afturhvarf, en á efnisskránni verða mörg af þekktari lögum Bergþóru auk laga sem sjaldan hafa heyrst á undanförnum árum. 
02.feb. 2012 - 13:35

Seldist upp á Tull á 7 mínútum - aukatónleikar daginn eftir

Miðar á tónleika Jethro Tull Ian Anderson í Hörpu þann 21. júní næstkomandi seldust upp á aðeins sjö mínútum en miðasala hófst á hádegi í dag. Í kjölfar þessara kröftugu viðbragða hefur verið samið um aukatónleika daginn eftir, 22. júní, og hefst sala á þá kl. 14 í dag í Hörpu og á midi.is.

25.jan. 2012 - 09:00

Myrkir músíkdagar hefjast á morgun í 32. sinn

Myrkir músíkdagar hefjast á morgun og standa til 29. janúar. MMD hafa verið haldnir í 32 ár og eru helsti vettvangur fyrir samtímatónlist á Íslandi. Skipuleggjendur eru Tónskáldafélag Íslands.
19.jan. 2012 - 12:00

Afmælistónleikar Janis Joplin í kvöld á Gauk á stöng

Söngkonan Bryndís Ásmundsdóttir og hljómsveit mun flytja lög eftir Janis Joplin á Gauk á Stöng í kvöld, 19. janúar kl. 22:00.
17.jan. 2012 - 15:50

Saga þjóðar – á Litla sviði Borgarleikhússins

Sýningar á Sjóntónleiknum Saga Þjóðar með hljómsveitinni Hundur í óskilum hefjast þann 27. janúar á Litla sviðinu í Borgarleikhúsinu. Hljómsveitin fer í tali og tónum á hundavaði í gegnum Íslandssöguna frá upphafi til okkar daga. 
21.des. 2011 - 13:32

Jólalög við kertaljós í Bústaðakirkju 22. desember

Annað kvöld verða jólalög við kertaljós í Bústaðakirkju.


20.des. 2011 - 13:31

Tenórarnir þrír á Ingólfstorgi á Þorláksmessukvöld

Þorláksmessukvöld kl. 21 verða Tenórarnir 3 ásamt Steinunni Birnu Ragnarsdóttur píanista með sína árlegu tónleika á Ingólfstorgi í boði Höfuðborgarstofu.
19.des. 2011 - 11:16

Jólaró í Hörpu á Þorláksmessu

Á Þorláksmessu verður hin hefðbundna „Jólaró“ Íslensku óperunnar haldin í anddyri Hörpu kl. 17-18.30.
16.des. 2011 - 16:14

Jólasöngvar Kórs Langholtskirkju í kvöld og á morgun - Nýtt jólalag Eivarar

Jólasöngvar Kórs Langholtskirkju  verða í kvöld og á morgun en á tónleikunum í ár verður frumflutt nýtt jólalag eftir Eivøru sem hana dreymdi á dögunum. Lagið nefnir hún „Jólaminnir“ en í hrífandi fallegri þýðingu Eyþórs Árnasonar heitir það „Jólaminning.“ Lagið tileinkar hún öllum þeim sem ekki eru með okkur lengur og við söknum og sérstaklega á jólunum. Hún hefur sérstaklega í huga föður sinn sem lést á árinu.

12.des. 2011 - 12:50

Dikta á 8 milljón símtækjum

Stórsmell Diktu, Thank You, er nú að finna í nýjustu tegundum af Blackberry Bold snjallsímum en talið er að um 8 milljón símtæki með laginu verði framleiddir næsta árið. Einnig er að finna einnar mínútu brot úr myndbandi við lag þeirra Goodbye.
10.des. 2011 - 22:30 Gunnar Guðbjörnsson

Lög unga fólksins komin aftur út endurhljóðblönduð

Lög unga fólksins, platan sem er gjarnan var nefnd Hrekkjusvín kom út árið 1977 og hefur lifað góðu lífi síðan á grammófónum og síðar geislaspilurum.
10.des. 2011 - 16:00 Gunnar Guðbjörnsson

1860 í jólaskapi í kvöld

Jólatónleikar hljómsveitarinnar 1860 verða í kvöld, laugardagskvöld á Café Rósenberg.

 



Pressupennarnýjast
Aðsend grein
Aðsend grein - 23.5.2012
Maltölsprósentuvirðing
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 22.5.2012
Marx og Lenín í útgerð á Íslandi?
Fannar Karvel
Fannar Karvel - 22.5.2012
Basic hnébeygja eða hvað...
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 22.5.2012
Rútínurask
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 22.5.2012
Golf í Vestmannaeyjum
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 21.5.2012
Davíð Oddsson og Evrópusambandið
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 21.5.2012
Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 6.hola - Myndband
Vilhjálmur Steinarsson
Vilhjálmur Steinarsson - 19.5.2012
6 verstu mistökin
Fleiri pressupennar