09. feb. 2011 - 11:26Gunnar Guðbjörnsson

"Harpa ógnar engum" - Segir Steinunn Birna

Frá Hörpu

Menningarpressunni hefur borist athugasemd frá Steinunni Birnu Ragnarsdóttur  vegna umfjöllunar um áhyggjur rekstraraðila veislu- og fundarsala af samkeppni frá Hörpunni:

Þær áhyggjur sem fram komu í fjölmiðlum í gær um samkeppni frá Hörpunni eru fullkomlega óþarfar. Íslenskum ráðstefnu- og viðburðahöldurum stafar ekki ógn af Hörpunni – heldur felur hún miklu frekar í sér tækifæri fyrir þá og aðra ferðaþjónustuaðila. Það er vel þekkt að með aukinni nýsköpun og fjölbreytni innan atvinnugreina þá eykst samkeppnishæfni þeirra. Það er ljóst að tilkoma Hörpunnar mun lyfta ráðstefnuhaldi hérlendis á nýtt stig. Þarna verður búnaður og þjónusta sem þekkist ekki í dag, pláss fyrir mun stærri ráðstefnur en áður og auk þess verður húsið markaðssett á markvissan hátt erlendis.

Ég tel að þessar áhyggjur einskorðist við einhverja örfáa aðila. Margir reyndir aðilar úr ráðstefnu- og veitingageiranum hafa rætt við okkur á þeim nótum að þeir fagni tilkomu Hörpu og telja að hún muni fyrst og fremst stækka markaðinn. Tilkoma hennar eigi eftir að koma Íslandi á kortið sem áfangastað fyrir ráðstefnur og stóra viðburði. Það er ljóst að lágt gengi krónunnar gerir Ísland að afar samkeppnishæfum áfangastað um þessar mundir. Það má  því segja að opnun Hörpunnar komi á besta tíma fyrir ferðaþjónustuna. Ekki síst hvað varðar ráðstefnuhald. Horfa verður til þess að ferðamenn sem koma hingað til lands í tengslum við slíka viðburði eru verðmætari en aðrir, því þeir koma yfirleitt utan háannatímans. Fjölgun þeirra mun hafa í för með sér betri nýtingu hótelgistingar og veitingastaða  yfir árið. Íslendingar hafa hingað til ekki getað boðið nægilega hentugt húsnæði undir stærri viðburði, alþjóðlega fundi og ráðstefnur. Tilkoma Hörpunnar er bylting að þessu leyti.
Við þetta er að bæta að talið er hátíðarhöldin í kringum opnun hússins muni hafa mjög jákvæð áhrif á næsta nágrenni og veitingamenn búast við miklum önnum á veitingastöðum í miðbænum næsta sumar.
Þess má til gamans geta að opnun Perlunnar olli samskonar áhyggjum á sínum tíma. Margir veitingamenn töldu þá að hún myndi taka yfir allan markaðinn. Þær áhyggjur reyndust fullkomlega óþarfar eins og menn vita.
Með kveðju,
Steinunn Birna Ragnarsdóttir



12.apr. 2012 - 15:20

Dagskrá Listahátíðar kynnt í dag og miðasala hafin á alla viðburði


Listahátíð í Reykjavík leggur undir sig borgina frá 18. maí til 3. júní og fyllir vorkvöldin löng með glæsilegri og fjölbreyttri dagskrá sem Hrefna Haraldsdóttir, stjórnandi Listahátíðar, kynnti í dag. Dagskrá hátíðarinnar í ár er klassísk og framsækin í senn og verða á hátíðinni frumflutt ný verk í öllum listgreinum og efnt til spennandi samvinnu milli listamanna, listgreina og áhorfenda.
30.mar. 2012 - 12:30

Lögin úr leikhúsinu í Salnum í kvöld

Í kvöld mun ríkja sannkölluð leikhússtemning í Salnum í Kópavogi þegar Jóhann Sigurðarson flytur lög úr söngleikjum og leikritum. 
13.mar. 2012 - 09:00

Lögreglukórinn í Hljómahöllinni

Lögreglukór Reykjavíkur, ásamt Eyþóri Inga Gunnlaugssyni og hljómsveit, mun halda tónleika í Hljómahöllinni, Reykjanesbæ, miðvikudaginn 14. mars kl. 20.30. 
08.mar. 2012 - 15:10

Foxillur Friðrik: Illgirnin svo augljós - Eins og holdgervingar illskunnar - Eru einu vitleysingarnir á verkinu

Rithöfundurinn Friðrik Erlingsson segir gagnrýnendur RÚV holdgervinga illskunnar. Rangfærslur á rangfærslur ofan hafi verið í gagnrýni þeirra á Vesalingana og þau hafi afhjúpað fávisku sína.
28.feb. 2012 - 09:00

Raggi Bjarna með vortónleika í Hörpu

Hinn ástsæli dægurlagasöngvari Ragnar Bjarnason mun halda vortónleika í Eldborgarsal Hörpunnar þann 12. maí næstkomandi. Raggi kemur þar fram ásamt Eivöru Pálsdóttur, Guðrúnu Gunnarsdóttur, Sigrúnu Hjálmtýrsdóttur (Diddú), Birni Jörundi Friðbjörnssyni, Bjarna Arasyni, Álftagerðisbræðrum og Óskari Péturssyni ásamt hljómsveit undir stjórn Jóns Ólafssonar.
27.feb. 2012 - 11:10

Manfred Mann´s Earth Band í Háskólabíó

Hin sögufræga hljómsveit Manfred Mann´s Earth Band munu halda stórhljómleika í Háskólabíói miðvikudaginn 16. maí.
15.feb. 2012 - 14:00

Ísak Óli Sævarsson listamaður hátíðarinnar Listar án landamæra

Verk Ísaks Óla Sævarssonar. Listamaður hátíðarinnar Listar án landamæra 2012 er Ísak Óli Sævarsson en hann hefur getið sér gott orð fyrir verk sín. Ísak hefur sterkan myndheim og kannast margir við myndir hans af Tinna, Einari Áskeli og fleiri þekktum sögupersónum. Verk Ísaks munu prýða allt kynningarefni Listar án landamæra 2012 og mun Ísak sýna ný verk á portrett sýningu í Norræna húsinu sem opnar í lok apríl. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi í Hinu húsinu í dag.
14.feb. 2012 - 09:00

Afturhvarf – Bergþórutónleikar í Salnum og Hofi

Minningarsjóður Bergþóru Árnadóttur söngvaskálds efnir til árlegra tónleika í Salnum, Kópavogi 15. og 16. febrúar kl. 20, og í Hofi á Akureyri 17. febrúar. Að þessu sinni er yfirskrift tónleikanna Afturhvarf, en á efnisskránni verða mörg af þekktari lögum Bergþóru auk laga sem sjaldan hafa heyrst á undanförnum árum. 
02.feb. 2012 - 13:35

Seldist upp á Tull á 7 mínútum - aukatónleikar daginn eftir

Miðar á tónleika Jethro Tull Ian Anderson í Hörpu þann 21. júní næstkomandi seldust upp á aðeins sjö mínútum en miðasala hófst á hádegi í dag. Í kjölfar þessara kröftugu viðbragða hefur verið samið um aukatónleika daginn eftir, 22. júní, og hefst sala á þá kl. 14 í dag í Hörpu og á midi.is.

25.jan. 2012 - 09:00

Myrkir músíkdagar hefjast á morgun í 32. sinn

Myrkir músíkdagar hefjast á morgun og standa til 29. janúar. MMD hafa verið haldnir í 32 ár og eru helsti vettvangur fyrir samtímatónlist á Íslandi. Skipuleggjendur eru Tónskáldafélag Íslands.
19.jan. 2012 - 12:00

Afmælistónleikar Janis Joplin í kvöld á Gauk á stöng

Söngkonan Bryndís Ásmundsdóttir og hljómsveit mun flytja lög eftir Janis Joplin á Gauk á Stöng í kvöld, 19. janúar kl. 22:00.
17.jan. 2012 - 15:50

Saga þjóðar – á Litla sviði Borgarleikhússins

Sýningar á Sjóntónleiknum Saga Þjóðar með hljómsveitinni Hundur í óskilum hefjast þann 27. janúar á Litla sviðinu í Borgarleikhúsinu. Hljómsveitin fer í tali og tónum á hundavaði í gegnum Íslandssöguna frá upphafi til okkar daga. 
05.jan. 2012 - 13:24

Péturs W. Kristjánssonar minnst á laugardag - Sextugsafmæli á SPOT

Nú fer að líða að sextugsafmælistónleikum Péturs W. Kristjánssonar sem haldnir verða á SPOT á afmælisdegi Péturs 7. janúar 2012. Einhugur er að gera þetta að skemmtilegri tónlistarafmælisveislu og mun allur ágóði af kvöldinu renna í Minningarsjóð Péturs sem hefur þann eina tilgang að halda nafni hans á lofti með því að úthluta sigurvegurum í Músíktilraunum ár hvert styrk.
21.des. 2011 - 13:32

Jólalög við kertaljós í Bústaðakirkju 22. desember

Annað kvöld verða jólalög við kertaljós í Bústaðakirkju.


20.des. 2011 - 13:31

Tenórarnir þrír á Ingólfstorgi á Þorláksmessukvöld

Þorláksmessukvöld kl. 21 verða Tenórarnir 3 ásamt Steinunni Birnu Ragnarsdóttur píanista með sína árlegu tónleika á Ingólfstorgi í boði Höfuðborgarstofu.
19.des. 2011 - 11:16

Jólaró í Hörpu á Þorláksmessu

Á Þorláksmessu verður hin hefðbundna „Jólaró“ Íslensku óperunnar haldin í anddyri Hörpu kl. 17-18.30.
16.des. 2011 - 16:14

Jólasöngvar Kórs Langholtskirkju í kvöld og á morgun - Nýtt jólalag Eivarar

Jólasöngvar Kórs Langholtskirkju  verða í kvöld og á morgun en á tónleikunum í ár verður frumflutt nýtt jólalag eftir Eivøru sem hana dreymdi á dögunum. Lagið nefnir hún „Jólaminnir“ en í hrífandi fallegri þýðingu Eyþórs Árnasonar heitir það „Jólaminning.“ Lagið tileinkar hún öllum þeim sem ekki eru með okkur lengur og við söknum og sérstaklega á jólunum. Hún hefur sérstaklega í huga föður sinn sem lést á árinu.

12.des. 2011 - 12:50

Dikta á 8 milljón símtækjum

Stórsmell Diktu, Thank You, er nú að finna í nýjustu tegundum af Blackberry Bold snjallsímum en talið er að um 8 milljón símtæki með laginu verði framleiddir næsta árið. Einnig er að finna einnar mínútu brot úr myndbandi við lag þeirra Goodbye.
10.des. 2011 - 22:30 Gunnar Guðbjörnsson

Lög unga fólksins komin aftur út endurhljóðblönduð

Lög unga fólksins, platan sem er gjarnan var nefnd Hrekkjusvín kom út árið 1977 og hefur lifað góðu lífi síðan á grammófónum og síðar geislaspilurum.
10.des. 2011 - 16:00 Gunnar Guðbjörnsson

1860 í jólaskapi í kvöld

Jólatónleikar hljómsveitarinnar 1860 verða í kvöld, laugardagskvöld á Café Rósenberg.

 



Pressupennarnýjast
Aðsend grein
Aðsend grein - 23.5.2012
Maltölsprósentuvirðing
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 22.5.2012
Marx og Lenín í útgerð á Íslandi?
Fannar Karvel
Fannar Karvel - 22.5.2012
Basic hnébeygja eða hvað...
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 22.5.2012
Rútínurask
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 22.5.2012
Golf í Vestmannaeyjum
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 21.5.2012
Davíð Oddsson og Evrópusambandið
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 21.5.2012
Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 6.hola - Myndband
Vilhjálmur Steinarsson
Vilhjálmur Steinarsson - 19.5.2012
6 verstu mistökin
Fleiri pressupennar