07. okt. 2010 - 14:13Gunnar Guðbjörnsson
Áhrifavaldur endurfæddist : Viðtal við Indiru Mahjal sópransöngkonu

Sinfonia.is
„Ég held að Bess sé flókin og viðkvæm og á vissan hátt má sjá hana í neikvæðu ljósi. Hún er brotin og Gershwin gefur henni ekki sína eigin aríu, eins og langflestar kvenhetjur óperubókmenntana fá, af ástæðu. Það er hans leið til að segja hlustandanum að einverustundirnar eru það sem hún vill fyrir alla muni forðast. Líf hennar er stöðug leit af félagskap og þegar öllu er á botninn hvolft gildir einu hvort hann er góður eður ei.“ Þessi orð velur Indira til að lýsa fyrir mér Bess en það verður á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem bandaríska söngkoman kemur fram í kvöld kl 19.30 í Háskólabíói.
Indira hefur áralanga reynslu sem óperusöngkona og hún er sérlega reynd í hlutverki Bess enda hefur hún sungið hlutverk þessarar ólánskonu um allan heim. Við tölum um ástæður þess að óperan skyldi í raun ekki ná flugi fyrr en árið 1976 þegar Houston Grand Opera flutti hana eftir langt hlé og þá í þeirri upprunalegu mynd sem Gershwin hafði hugsað sér.
Ástæða þess að verkið lá svo lengi óhreyft er ef til vill sú að þegar óperan var fyrst sviðsett árið 1935 lifðum fólk í ólíkum heimi. Enn var aðskilnaður milli svartra og hvítra og allir söngvarar sýningarinnar svartir. Vegna aðskilnaðarstefnunnar var óperunni valinn sýningarstaður sem ekki gat boðið upp á allan þann sviðsbúnað og hljómsveitaraðstöðu sem verkið krafðist af hendi höfundar ,
segir Indira og hún bætir við
en ætli það hafi ekki einnig spilað inn í ótti við pólitísk áhrif sem sköpuðust eftir að frjálslynt hvítt fólk sótti sýninguna og þar af leiðandi sat fólk með ólíkan litarhátt hlið við hlið í leikhúsinu. Ótti skapaðist við afleiðingar þess. Frumflutningur þessarar óperu var vissulega ákveðið upphaf í bandarískri sögu og frjálslynt hvítt fólk fór að samþykkja svarta söngvara í auknum mæli, þetta markaði hugsanlega upphafið að lokum aðskilnaðarstefnunnar.
Þessar breytingar áttu eftir að taka langan tíma en Indira þakkar það því hve undurfögur tónlistin í Porgy and Bess er að hún skuli ekki hafa orðið gleymskunni að bráð. Það eru lög eða aríur sem hafa lifað og þó stíll verksins sé klassískur þarf hlustandinn ekki að vera í vafa þegar hann heyrir áhrif frá þjóðlagatónlist og jazz.
Engu að síður gerir verkið sönglega og túlkunarlega nákvæmlega jafnmiklar kröfur og stór ítölsk ópera. Ég finn engan mun á mér eftir að hafa klárað kvöld af Bess og t.d. Madame Butterfly
segir Indira. Þó segir hún að ekki geri öll hlutverkin í Porgy and Bess sömu kröfur.
Stóru einsöngshlutverkin gera klassískar söngkröfur til flytjenda en í sum af þeim smærri er jafnvel betur passandi að nota reynda og vel skólaða söngleikja-söngvara.
Raddir þess efnis að merkja megi kynþáttahatur í verkinu er ef til vill erfitt að bæla. Til þess eru staðalímyndir af svörtu lágstéttarfólki of áberandi en það er tónlistin sem nær að halda áhorfendum við efnið og vissulega er sagan dramatísk og tragísk. „Summertime“ og „It ain´t necessarily so“ náðu fótfestu hjá almenningi en eins og áður sagði var það ekki fyrr en Houston Grand Opera setti hana á svið árið 1976 sem hún sló rækilega í gegn.
Indira á ættir að rekja til Indlands þar sem faðir hennar er fæddur en móðir hennar er frá Suður-Karolínu. Indira er hinsvegar er fædd í New York þar sem foreldrar hennar kynntust við nám í Julliard. Porgy and Bess reynist hafa verið áhrifavaldur í Indiru. Hún var nefnilega ásamt móður sinni þáttakandi í uppfærslunni frægu í Houston og fór með óperunni á söngferðalag. Hún drakk í sig tónlistina milli þess sem hún söng litla betlarastúlku og tónlistin og uppfærslan höfðu þau áhrif á hana að ekki varð aftur snúið – ævistarfið var valið.
Þetta voru ekki aðeins mín fyrstu kynni af stóróperu heldur allra áhorfenda sömuleiðis af Porgy and Bess og sú uppfærsla var svo sannarlega vel heppnuð. Hún hafði áhrif á allt mitt líf.
Sagði Indira að lokum
07.mar. 2013 - 11:30
Háskólabíó ætlar að sýna ballettinn
Ævintýri Lísu í Undralandi í beinni útsendingu, fimmtudaginn 28. mars kl. 19.15 Um er að ræða aðeins þessa einu sýningu, en ballettinn er eftir Christopher Wheeldon, en hér sameinar hann upplifun leikhússins og ballettsins í þessu einstaka meistaraverki. Ballettinn hefur fengið frábærar viðtökur og fengið einróma lof gagnrýnenda.
06.nóv. 2012 - 13:49
Óperan Les Troyens eftir Berlioz verður sýnd í Háskólabíó þann 17. nóvember kl. 16:00 og verður aðeins þessi eina bíósýning. Les Troyens er í leikstjórn David McVicar og fjallar óperan um fall Trojuborgar og ástarsamband þeirra Enée og Didon sem leikin eru af þeim Bryan Hymel og Evu-Mariu Westbroek. Ítalska sópransöngkonan Anna Caterina Antonacci fer með eitt burðarhlutverkið og hljómsveitinni stjórnar Antonio Pappano.
12.apr. 2012 - 15:20
Listahátíð í Reykjavík leggur undir sig borgina frá 18. maí til 3. júní og fyllir vorkvöldin löng með glæsilegri og fjölbreyttri dagskrá sem Hrefna Haraldsdóttir, stjórnandi Listahátíðar, kynnti í dag. Dagskrá hátíðarinnar í ár er klassísk og framsækin í senn og verða á hátíðinni frumflutt ný verk í öllum listgreinum og efnt til spennandi samvinnu milli listamanna, listgreina og áhorfenda.
14.mar. 2012 - 16:00
Talið verður í Reykjavík Dance Festival 2012 á Dansverkstæðinu á morgun, fimmtudaginn 15.mars kl. 21. Haldin verður opin kynning á sérstakri útfærslu hátíðarinnar sem mun bera yfirskriftina
A Series of Event. Dans-karókí, bókaútgáfa, drykkir og allir velkomnir.
14.mar. 2012 - 09:00
Hið ódauðlega meistaraverk, óperan La Bohème eftir Puccini, verður frumsýnd föstudaginn 16. mars kl. 20 í Eldborg í Hörpu. Hér er um að ræða aðra sýningu Íslensku óperunnar í hinum nýju húsakynnum, en skemmst er að minnast fyrstu uppsetningarinnar, Töfraflautunnar, sem 13.000 manns sáu síðastliðið haust.
08.mar. 2012 - 15:10
Rithöfundurinn Friðrik Erlingsson segir gagnrýnendur RÚV holdgervinga illskunnar. Rangfærslur á rangfærslur ofan hafi verið í gagnrýni þeirra á Vesalingana og þau hafi afhjúpað fávisku sína.
01.mar. 2012 - 13:42
Höskuldur Ásgeirsson hefur sagt upp starfi sínu sem framkvæmdastjóri fasteignafélags og rekstrarfélags Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss í Reykjavík og tengdra félaga frá og með 1. febrúar 2012
07.des. 2011 - 20:00
Gunnar Guðbjörnsson
Þó fyrsta umferð Frostrósa sé yfirstaðin í Hörpu eru Frostrósir Klassík enn í undirbúningi en um næstu helgi verða tónleikar þar sem fjölmennur hópur listamanna kemur fram.
03.des. 2011 - 22:18
Kvennakór Garðabæjar heldur Aðventutónleika sína í Digraneskirkju mánudagskvöldið 5. desember í Digraneskirkju.
02.des. 2011 - 12:00
Gunnar Guðbjörnsson
Í dag, föstudaginn 2. desember kl. 16 sýnir Sigríður Soffía Níelsdóttir dansgjörninginn Hreyfingar flugdreka í D- sal Hafnarhússins en viðburðurinn er hluti af sýningu Bjarkar Viggósdóttur, Flugdrekar.
01.des. 2011 - 21:00
Gunnar Guðbjörnsson
Stórsöngvarinn Kristján Jóhannsson heldur sína árlegu jólatónleika í Hallgrímskirkju, sunnudaginn 18.desember kl 20:00
29.nóv. 2011 - 20:00
Gunnar Guðbjörnsson
Elsa Waage, óperusöngkona, er flutt til Íslands en hún hefur verið búsett í 20 ár á Ítalíu. Elsa kemur fram á afmælisaðventutónleikum Elínar Óskar Óskarsdóttur á morgun ásamt Óperukór Hafnarfjarðar og Menningarpressan fékk að vita aðeins af högum söngkonunnar.
28.nóv. 2011 - 20:00
Gunnar Guðbjörnsson
Þriðjudaginn 29. og miðvikudaginn 30. nóvember verður sannkölluð tónlistarveisla á dagskrá í Skógarhlíð 20 eða gamla Ýmis húsinu.
27.nóv. 2011 - 19:30
Gunnar Guðbjörnsson
Sena klassík og Háskólabíó halda áfram að færa áhorfendum magnaðar uppfærslur Royal Opera House frá Covent Garden í London á miðvikudag.
24.nóv. 2011 - 22:00
Gunnar Guðbjörnsson
Jón Svavar Jósefsson vakti athygli um síðustu helgi fyrir að eiga heiðurinn að prakkarastriki sem olli því að áhorfendur á Töfraflautusýningu Íslensku óperunnar trúðu því að heimsþekktur Hollywoodleikari væri meðal þeirra.
24.nóv. 2011 - 12:13
Gunnar Guðbjörnsson
Íslenska óperan hefur ákveðið að ráðast í uppsetningu á hinni þekktu óperu La Bohème eftir Giacomo Puccini á vormisseri.
23.nóv. 2011 - 17:00
Gunnar Guðbjörnsson
Fimmtudaginn 24.nóvember opnar í sýningarsalnum D22 í Hafnarhúsinu sýning Bjarkar Viggósdóttur, Flugdrekar.
22.nóv. 2011 - 11:15
Gunnar Guðbjörnsson
The New York Observer segir frá því í vefútgáfu sinni í gær að listamaðurinn Ragnar Kjartansson hafi hlotið Performa´s Malcolm MacLaren verðlaunin í gær.
20.nóv. 2011 - 15:06
Gunnar Guðbjörnsson
Bandaríska stórblaðið NY Times lýsir í gærkvöld í netútgáfu sinni óvenjulegum gjörningi Ragnars Kjartanssonar í New York sem fram fór í gær.
20.nóv. 2011 - 12:00
Gunnar Guðbjörnsson
Uppselt er á sýningu Íslensku óperunnar í dag þegar Bjarni Thor Kristinsson bassasöngvari bregður sér í hlutverk Sarastrós á einni sýningu á Töfraflautunni.
18.nóv. 2011 - 19:00
Gunnar Guðbjörnsson
Söngvarar skiptast á hlutverkum í uppfærslu Íslensku óperunnar á Töfraflautu Mozart en um helgina verður það Bjarni Thor Kristinsson sem syngur hlutverk Sarastrós.
17.nóv. 2011 - 09:00
Gunnar Guðbjörnsson
Reykjavík Dance Festival og Dansverkstæðið auglýsa eftir gestalistamönnum fyrir árið 2012.
08.nóv. 2011 - 20:00
Gunnar Guðbjörnsson
Íslenska óperan heimsækir Hof fimmtudaginn 10. nóvember kl. 20 með sýningu sína Perluportið.
07.nóv. 2011 - 17:00
Gunnar Guðbjörnsson
Í síðustu viku frumsýndi Houston Grand Opera óperuna Fidelio eftir Beethoven. Ef til vill spyrja einhverjir hvernig það getur verið íslensk menningarfrétt en svo vill til að tveir íslenskir söngvarar gegna veigamiklum hlutverkum í sýningunni.
06.nóv. 2011 - 17:00
Gunnar Guðbjörnsson
Óp-hópurinn hefur vetrardagskrá sína á kvöldtónleikum í Iðnó þann 8. nóvember klukkan átta.
01.nóv. 2011 - 08:00
Gunnar Guðbjörnsson
Í dag er Listalaus dagur og því engin menningarumfjöllun í Menningarpressunni.
31.okt. 2011 - 19:30
Gunnar Guðbjörnsson
Íslendingum gefst kostur að upplifa aftur Jonas Kaufmann sem heillaði tónleikagesti upp úr skónum á síðustu Listahátíð í Reykavík en í þetta sinn verður hægt að sjá og heyra stórstjörnuna í Háskólabíói í beinni útsendingu frá Royal Opera House, Covent Garden í London.
29.okt. 2011 - 15:00
Gunnar Guðbjörnsson
Í HJARTA ÞÉR kallast óperu- og söngleikjatónleikar Nemendaóperu Söngskólans sem haldnir verða í tónleikasal Söngskólans, Snorrabúð, sunnudaginn 30. okt. kl. 17.00 og kl. 20.00
25.okt. 2011 - 12:24
Gunnar Guðbjörnsson
Sveinn Dúa Hjörleifsson, tenór, hlýtur viðurkenningu úr styrktarsjóði Önnu K. Nordal á morgun miðvikudaginn 26. október í Salnum, tónlistarhúsi Kópavogs.
24.okt. 2011 - 19:00
Stefán Baldursson, óperustjóri, skilur lítið í gagnrýni hjónanna Sigurðar Björnssonar og Sieglinde Kahmann, á að Töfraflautan skuli flutt á íslensku. Þau hafi bæði tekið þátt í fyrstu uppfærslunni á Töfraflautunni - og þá sungið hana á íslensku.