10. sep. 2011 - 21:00Gunnar Guðbjörnsson

5000 miðar seldir á Töfraflautuna - Aukasýning 20. nóvember

Frá Íslensku óperunni

Í Hörpu hafa nú æfingar hafist fyrir uppfærslu Íslensku óperunnar á Töfraflautu Mozart en frumsýning verður 22. október í Eldborg.

Í tilkynningu Íslensku óperunnar segir:

Hið mikla ævintýri er að hefjast – þegar Íslenska óperan setur á svið sína fyrstu óperusýningu, sjálfa Töfraflautuna eftir W.A. Mozart, í nýjum húsakynnum sínum í tónlistarhúsinu Hörpu.  Allt kapp er lagt á að að gera sýninguna sem glæsilegasta og taka nokkrir af fremstu söngvurum þjóðarinnar þátt í henni, í stærri sem smærri hlutverkum, undir stjórn Daníels Bjarnasonar, sem hefur vakið mikla athygli að undanförnu í hinum íslenska sem hinum alþjóðlega tónlistarheimi. Listrænir aðstandendur sýningarinnar, þau Ágústa Skúladóttir leikstjóri, Axel Hallkell Jóhannesson leikmyndahöfundur, Filippía Elísdóttir búningahönnuður, Páll Ragnarsson ljósahönnuður og  Bernd Ogrodnik brúðuhönnuður, ganga alla leið í að gera sýninguna sem ævintýralegasta úr garði, en verkið, sem er síðasta ópera undrabarnsins Mozarts og skrifuð nokkrum mánuðum fyrir andlát hans, var fyrst fært upp í alþýðuleikhúsi fyrir rúmum 200 árum og hefur heillað áheyrendur af öllum toga æ síðan. Hugmyndauðgi og gleði einkenna uppfærslu Íslensku óperunnar nú, þar sem hið ófyrirsjánlegasta getur gerst!
Í aðalhlutverkum eru þau Þóra Einarsdóttir, Finnur Bjarnason/Garðar Thór Cortes, Ágúst Ólafsson, Jóhann Smári Sævarsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir/Alda Ingibergsdóttir, Snorri Wium, Valgerður Guðnadóttir, Auður Gunnarsdóttir, Hulda Björk Garðarsdóttir, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, Kolbeinn Jón Ketilsson/Hlöðver Sigurðsson og Viðar Gunnarsson, auk þess sem 35 manna Kór Íslensku óperunnar tekur þátt í sýningunni ásamt 48 manna hljómsveit. Þá syngja Pétur Úlfarsson, 11 ára, Álfheiður Erla Guðmundsdóttir, 18 ára, Birta Dröfn Valsdóttir, 15 ára, og Ingibjörg Fríða Helgadóttir, 20 ára, hlutverk drengjanna þriggja, en tugir barna og ungmenna sungu fyrir í byrjun sumars til að spreyta sig á að fá að taka þátt í Töfraflautunni í Hörpu.
Við sögu í sýningunni koma prinsar og prinsessur, fuglatemjarar og æðstuprestar, auk ýmissa annarra persóna jafnt úr dýraríkinu sem og ævintýrum, sem meistari Brúðuheima, Bernd Ogrodnik, sér um að vekja til lífs í Eldborg í Hörpu.
Eins og venja er til með þetta meistaraverk Mozarts er óperan flutt á móðurmáli viðkomandi lands, og var íslensk þýðing í höndum þeirra Þrándar Thoroddsen, Böðvars Guðmundssonar, Þorsteins Gylfasonar og Gunnsteins Ólafssonar, en Þorgeir Tryggvason hefur þýtt og aðlagað leiktextann sérstaklega að sýningunni nú.
Miðasala á Töfraflautuna hefur gengið afar vel frá því að hún hófst í byrjun sumars og hafa þegar selst meira en 5.000 miðar á sýninguna. Sjö sýningar verða á Töfraflautunni, því aukasýningu hefur verið bætt við sunnudaginn 20. nóvember kl. 16 til að mæta eftirspurn eftir miðum og er hún komin í sölu í miðasölu Hörpu.



07.mar. 2013 - 11:30

Komdu og fylgdu Lísu niður í kanínuholuna í beinni útsendingu

Christopher Wheeldon sameinar upplifun leikhússins og ballettsins í þessu einstaka meistaraverki. Háskólabíó ætlar að sýna ballettinn Ævintýri Lísu í Undralandi í beinni útsendingu, fimmtudaginn 28. mars kl. 19.15 Um er að ræða aðeins þessa einu sýningu, en ballettinn er eftir Christopher Wheeldon, en hér sameinar hann upplifun leikhússins og ballettsins í þessu einstaka meistaraverki. Ballettinn hefur fengið frábærar viðtökur og fengið einróma lof gagnrýnenda.
06.nóv. 2012 - 13:49

Epískt stórvirki í fimm hlutum eftir Berlioz í Háskólabíó

Óperan Les Troyens eftir Berlioz verður sýnd í Háskólabíó þann 17. nóvember kl. 16:00 og verður aðeins þessi eina bíósýning. Les Troyens er í leikstjórn David McVicar og fjallar óperan um fall Trojuborgar og ástarsamband þeirra Enée og Didon sem leikin eru af þeim Bryan Hymel og Evu-Mariu Westbroek.  Ítalska sópransöngkonan Anna Caterina Antonacci fer með eitt burðarhlutverkið og hljómsveitinni stjórnar Antonio Pappano.
12.apr. 2012 - 15:20

Dagskrá Listahátíðar kynnt í dag og miðasala hafin á alla viðburði


Listahátíð í Reykjavík leggur undir sig borgina frá 18. maí til 3. júní og fyllir vorkvöldin löng með glæsilegri og fjölbreyttri dagskrá sem Hrefna Haraldsdóttir, stjórnandi Listahátíðar, kynnti í dag. Dagskrá hátíðarinnar í ár er klassísk og framsækin í senn og verða á hátíðinni frumflutt ný verk í öllum listgreinum og efnt til spennandi samvinnu milli listamanna, listgreina og áhorfenda.
14.mar. 2012 - 16:00

Opin kynning á Reykjavík Dance Festival 2012

Talið verður í Reykjavík Dance Festival 2012 á Dansverkstæðinu á morgun, fimmtudaginn 15.mars kl. 21. Haldin verður opin kynning á sérstakri útfærslu hátíðarinnar sem mun bera yfirskriftina A Series of Event. Dans-karókí, bókaútgáfa, drykkir og allir velkomnir.
14.mar. 2012 - 09:00

La Bohème frumsýnd í Eldborg

Ljósmyndari: Gísli Egill Hrafnsson. Hið ódauðlega meistaraverk, óperan La Bohème eftir Puccini, verður frumsýnd föstudaginn 16. mars kl. 20 í Eldborg í Hörpu. Hér er um að ræða aðra sýningu Íslensku óperunnar í hinum nýju húsakynnum, en skemmst er að minnast fyrstu uppsetningarinnar, Töfraflautunnar, sem 13.000 manns sáu síðastliðið haust. 
08.mar. 2012 - 15:10

Foxillur Friðrik: Illgirnin svo augljós - Eins og holdgervingar illskunnar - Eru einu vitleysingarnir á verkinu

Rithöfundurinn Friðrik Erlingsson segir gagnrýnendur RÚV holdgervinga illskunnar. Rangfærslur á rangfærslur ofan hafi verið í gagnrýni þeirra á Vesalingana og þau hafi afhjúpað fávisku sína.
01.mar. 2012 - 13:42

Forstjóri Hörpu hættir: Rétt að sigla á önnur mið - Stýrir þar til nýr forstjóri verður ráðinn

Höskuldur Ásgeirsson hefur sagt upp starfi sínu sem framkvæmdastjóri fasteignafélags og rekstrarfélags Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss í Reykjavík og tengdra félaga frá og með 1. febrúar 2012
07.des. 2011 - 20:00 Gunnar Guðbjörnsson

Töfraflautusöngvarar í Frostrósum Klassík -Hulda Björk og Kolbeinn um jólin og tónleikana

Þó fyrsta umferð Frostrósa sé yfirstaðin í Hörpu eru Frostrósir Klassík enn í undirbúningi en um næstu helgi verða tónleikar þar sem fjölmennur hópur listamanna kemur fram.
03.des. 2011 - 22:18

Klukkur Kvennakórs Garðabæjar klingja á mánudagskvöld í Digraneskirkju

Kvennakór Garðabæjar heldur Aðventutónleika sína í Digraneskirkju mánudagskvöldið 5. desember í Digraneskirkju.
02.des. 2011 - 12:00 Gunnar Guðbjörnsson

Dansgjörningur í dag í Hafnarhúsinu

Í dag, föstudaginn 2. desember kl. 16 sýnir Sigríður Soffía Níelsdóttir dansgjörninginn Hreyfingar flugdreka í D- sal Hafnarhússins en viðburðurinn er hluti af sýningu Bjarkar Viggósdóttur, Flugdrekar.

 

01.des. 2011 - 21:00 Gunnar Guðbjörnsson

Jólatónleikar Kristjáns Jóhannssonar í Hallgrímskirkju 18. desember

Stórsöngvarinn Kristján Jóhannsson heldur sína árlegu jólatónleika í Hallgrímskirkju, sunnudaginn 18.desember kl 20:00


29.nóv. 2011 - 20:00 Gunnar Guðbjörnsson

Erfið ákvörðun að flytja heim en hyggst nota kraftana vel - Elsa Waage alkomin til íslands

Elsa Waage, óperusöngkona,  er flutt  til Íslands en hún hefur verið búsett í 20 ár á Ítalíu.  Elsa kemur fram á afmælisaðventutónleikum Elínar Óskar Óskarsdóttur á morgun ásamt Óperukór Hafnarfjarðar og Menningarpressan fékk að vita aðeins af högum söngkonunnar.


28.nóv. 2011 - 20:00 Gunnar Guðbjörnsson

Á þriðja tug söngvara skipta að meðaltali fjórum sinnum um búninga

Þriðjudaginn 29. og miðvikudaginn 30. nóvember verður sannkölluð tónlistarveisla á dagskrá í Skógarhlíð 20 eða gamla Ýmis húsinu.
27.nóv. 2011 - 19:30 Gunnar Guðbjörnsson

Íslandsvinir og stórstjörnur í uppfærslu Konunglegu Óperunnar af Toscu

Sena klassík og Háskólabíó halda áfram að færa áhorfendum magnaðar uppfærslur Royal Opera House frá Covent Garden í London á miðvikudag.

24.nóv. 2011 - 22:00 Gunnar Guðbjörnsson

Óperuprakkarinn treður upp sem jazzgeggjari - Jón Svavar um tónleika á Rósenberg

Jón Svavar Jósefsson vakti athygli um síðustu helgi fyrir að eiga heiðurinn að prakkarastriki sem olli því að áhorfendur á Töfraflautusýningu Íslensku óperunnar trúðu því að heimsþekktur Hollywoodleikari væri meðal þeirra.


24.nóv. 2011 - 12:13 Gunnar Guðbjörnsson

La Bohème í Íslensku óperunni í vor

Íslenska óperan hefur ákveðið að ráðast í uppsetningu á hinni þekktu óperu La Bohème eftir Giacomo Puccini á vormisseri.
23.nóv. 2011 - 17:00 Gunnar Guðbjörnsson

Björk Viggósdóttir með sýninguna Flugdrekar í D22

Fimmtudaginn 24.nóvember opnar í sýningarsalnum D22 í Hafnarhúsinu sýning Bjarkar Viggósdóttur,  Flugdrekar.

22.nóv. 2011 - 11:15 Gunnar Guðbjörnsson

Ragnar Kjartansson hlýtur Performa´s Malcolm MacLaren verðlaunin fyrir óperugjörning sinn

The New York Observer segir frá því í vefútgáfu sinni í gær að listamaðurinn Ragnar Kjartansson hafi hlotið Performa´s Malcolm MacLaren verðlaunin í gær.
20.nóv. 2011 - 15:06 Gunnar Guðbjörnsson

Fjallað um 12 klukkutíma óperu-gjörning Ragnars Kjartanssonar í NY Times

Bandaríska stórblaðið NY Times lýsir í gærkvöld í netútgáfu sinni  óvenjulegum gjörningi Ragnars Kjartanssonar í New York sem fram fór í gær.


20.nóv. 2011 - 12:00 Gunnar Guðbjörnsson

Uppselt hefur verið á allar sýningar á Töfraflautinni - Síðasta aukasýning 26. nóvember

Uppselt er á sýningu Íslensku óperunnar í dag þegar Bjarni Thor Kristinsson bassasöngvari bregður sér í hlutverk Sarastrós á einni sýningu á Töfraflautunni.

18.nóv. 2011 - 19:00 Gunnar Guðbjörnsson

Söng Sarastro síðast í Monte Carlo - Bjarni Thor á einni sýningu í Töfraflautunni

Söngvarar skiptast á hlutverkum í uppfærslu Íslensku óperunnar á Töfraflautu Mozart en um helgina verður það Bjarni Thor Kristinsson sem syngur hlutverk Sarastrós.
17.nóv. 2011 - 09:00 Gunnar Guðbjörnsson

Reykjavík Dance Festival og Dansverkstæðið auglýsa eftir gestalistamönnum

Reykjavík Dance Festival og Dansverkstæðið auglýsa eftir gestalistamönnum fyrir árið 2012.


08.nóv. 2011 - 20:00 Gunnar Guðbjörnsson

Perluportið - Óperuskemmtun fyrir alla fjölskylduna í Hofi

Íslenska óperan heimsækir Hof fimmtudaginn 10. nóvember kl. 20 með sýningu sína Perluportið.

07.nóv. 2011 - 17:00 Gunnar Guðbjörnsson

Kristinn og Tómas syngja saman í Fidelio í Houston Grand Opera

Í síðustu viku frumsýndi Houston Grand Opera óperuna Fidelio eftir Beethoven.  Ef til vill spyrja einhverjir hvernig það getur verið íslensk menningarfrétt en svo vill til að tveir íslenskir söngvarar gegna veigamiklum hlutverkum í sýningunni.


06.nóv. 2011 - 17:00 Gunnar Guðbjörnsson

Óp-hópurinn hefur vetrardagskrá sína

Óp-hópurinn hefur vetrardagskrá sína  á kvöldtónleikum í Iðnó þann 8. nóvember klukkan átta.
01.nóv. 2011 - 08:00 Gunnar Guðbjörnsson

Í dag er Listalaus dagur

Í dag er Listalaus dagur og því engin menningarumfjöllun í Menningarpressunni.

31.okt. 2011 - 19:30 Gunnar Guðbjörnsson

Jónas Kaufmann í Adriana Lecouvreur í Háskólabiói

Íslendingum gefst kostur að upplifa aftur Jonas Kaufmann sem heillaði tónleikagesti upp úr skónum á síðustu Listahátíð í Reykavík en í þetta sinn verður hægt að sjá og heyra stórstjörnuna í Háskólabíói í beinni útsendingu frá Royal Opera House, Covent Garden í London.
29.okt. 2011 - 15:00 Gunnar Guðbjörnsson

Í hjarta þér

Í HJARTA ÞÉR kallast óperu- og söngleikjatónleikar Nemendaóperu Söngskólans sem haldnir verða  í tónleikasal Söngskólans, Snorrabúð, sunnudaginn 30. okt. kl. 17.00 og kl. 20.00

25.okt. 2011 - 12:24 Gunnar Guðbjörnsson

Sveinn Dúa hlýtur viðurkenningu úr styrktarsjóði Önnu K. Nordal

Sveinn Dúa Hjörleifsson, tenór, hlýtur viðurkenningu úr styrktarsjóði Önnu K. Nordal á morgun miðvikudaginn 26. október í Salnum, tónlistarhúsi Kópavogs. 
24.okt. 2011 - 19:00

Óperustjóri skilur lítið í gagnrýni á íslenska Töfraflautu: Þau sungu sjálf óperuna á íslensku

Stefán Baldursson, óperustjóri, skilur lítið í gagnrýni hjónanna Sigurðar Björnssonar og Sieglinde Kahmann, á að Töfraflautan skuli flutt á íslensku. Þau hafi bæði tekið þátt í fyrstu uppfærslunni á Töfraflautunni - og þá sungið hana á íslensku.

Pressupennarnýjast
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 22.5.2013
Að fenginni áminningu
Björgvin G. Sigurðsson
Björgvin G. Sigurðsson - 22.5.2013
Verðlaus gjaldmiðill og verðtrygging í nefnd
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 22.5.2013
Umsátrinu um heimilin er lokið
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 22.5.2013
Með eiturörvar í hjartastað
Kári Stefánsson
Kári Stefánsson - 22.5.2013
Óheft tjáningarþörf
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 21.5.2013
Umdeildur
Reynir Hjálmarsson
Reynir Hjálmarsson - 21.5.2013
Nútíminn gegn Derrick
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 21.5.2013
Nú er nóg komið!
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 20.5.2013
Golf fyrir alla 3 (Brautarholtsvöllur) 6. hola - Myndband
Fleiri pressupennar