07. nóv. 2010 - 11:00Gunnar Guðbjörnsson

Frau Aurum
Frá þvi að
Aurum opnaði hönnunar & lífsstíls verslun sína síðastliðið vor hefur fastur liður verið kynningar á valdri vöru eftir íslenska hönnuði. Hönnuðirnir fá þá tækifæri til að kynna vöru sína í einn mánuð í verslun
Aurum við Bankastræti 4. Hönnuður nóvember mánaðar er textíl- og fatahönnuðurinn
Brynja Emilsdóttir og varan sem hún kynnir er
Flækjuljósið.
Flækjuljósin eru lampakúplar handunnir úr tvinna. Brynja hefur um árabil unnið föt, mynstur og nytjahluti úr tvinnaflækjum en hefur að undanförnu unnið úr þeim kúlur sem hún svo gerir úr lampakúpla. Allt að 2.000 metrar af tvinna fara í hvern lampa en þræðina vinnur hún í marglitar flækjur sem gefa töfrandi litbrigði og mynda hálfgagnsætt efni sem gefur frá sér hlýlegt og fallegt ljós. Kúplarnir eru í ýmsum stærðum og litum og má bæði nota þá sem lampa á fæti og sem loftljós.
Brynja útskrifaðist frá textíldeild
Listaháskólans árið 2000 og lagði síðar stund á nám í fatahönnun fyrir iðnframleiðslu við
Guerrero skólann í
Barcelona á
Spáni. Hún hefur síðan unnið að fata- og textílhönnun auk þess sem hún kennir við
Myndlistarskóla Reykjavíkur.Flækjuljósin verða til sýnis og sölu í
Aurum Hönnun & Lífsstíll, Bankastræti 4, út nóvember mánuð.