12.apr. 2012 - 15:20
Listahátíð í Reykjavík leggur undir sig borgina frá 18. maí til 3. júní og fyllir vorkvöldin löng með glæsilegri og fjölbreyttri dagskrá sem Hrefna Haraldsdóttir, stjórnandi Listahátíðar, kynnti í dag. Dagskrá hátíðarinnar í ár er klassísk og framsækin í senn og verða á hátíðinni frumflutt ný verk í öllum listgreinum og efnt til spennandi samvinnu milli listamanna, listgreina og áhorfenda.
26.mar. 2012 - 09:00
Baritónsöngvarinn Ágúst Ólafsson og píanóleikarinn Antonía Hevesi freista þess að tæla áheyrendur sína á hádegistónleikum Íslensku óperunnar í Hörpu á morgun, þriðjudag kl. 12.15, en þá flytja þau serenöður og mansöngva eftir W.A. Mozart, Donizetti, Schubert og Tsjækovskí undir yfirskriftinni „Tælingarsöngvar“.
21.mar. 2012 - 10:00
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna þreytir frumraun sína í Hörpu með tónleikum í Norðurljósum sunnudaginn 25. mars klukkan 17 og býður til sannkallaðrar hornaveislu.
15.mar. 2012 - 08:07
Stjórn LA hafnaði tilboði um samstarf þar sem það fól í sér að öllu starfsfólki yrði sagt upp, starfsemin flutt annað en þó sýnt í nafni þess.
14.mar. 2012 - 09:00
Hið ódauðlega meistaraverk, óperan La Bohème eftir Puccini, verður frumsýnd föstudaginn 16. mars kl. 20 í Eldborg í Hörpu. Hér er um að ræða aðra sýningu Íslensku óperunnar í hinum nýju húsakynnum, en skemmst er að minnast fyrstu uppsetningarinnar, Töfraflautunnar, sem 13.000 manns sáu síðastliðið haust.
17.feb. 2012 - 12:00
Sópransöngkonan Þóra Einarsdóttir og píanóleikarinn Steinunn Birna Ragnarsdóttir bjóða í ferðalag næstkomandi þriðjudag kl. 12.15, en þá flytja þær sönglög Henri Duparc á fyrstu hádegistónleikum Íslensku óperunnar í Hörpu, undir yfirskriftinni „Boðið í ferðalag“.
07.feb. 2012 - 12:00
Auka sýning á „Litla Flugan“ í Salnum fer fram á föstudaginn, 10. febrúar.
21.des. 2011 - 13:32
Annað kvöld verða jólalög við kertaljós í Bústaðakirkju.
20.des. 2011 - 13:31
Þorláksmessukvöld kl. 21 verða Tenórarnir 3 ásamt Steinunni Birnu Ragnarsdóttur píanista með sína árlegu tónleika á Ingólfstorgi í boði Höfuðborgarstofu.
19.des. 2011 - 11:16
Á Þorláksmessu verður hin hefðbundna „Jólaró“ Íslensku óperunnar haldin í anddyri Hörpu kl. 17-18.30.
16.des. 2011 - 16:14
Jólasöngvar Kórs Langholtskirkju verða í kvöld og á morgun en á tónleikunum í ár verður frumflutt nýtt jólalag eftir Eivøru sem hana dreymdi á dögunum. Lagið nefnir hún „Jólaminnir“ en í hrífandi fallegri þýðingu Eyþórs Árnasonar heitir það „Jólaminning.“ Lagið tileinkar hún öllum þeim sem ekki eru með okkur lengur og við söknum og sérstaklega á jólunum. Hún hefur sérstaklega í huga föður sinn sem lést á árinu.
11.des. 2011 - 21:00
Gunnar Guðbjörnsson
Útgáfufyrirtækið Acte Préalable í Varsjá hefur nýlega gefið út hljómdisk þar sem flautuleikararnir Martial Nardeau og Guðrún Birgisdóttir leika í heild sex dúó-sónötur Wilhelms Friedemann Bach á nútíma tréflautur.
11.des. 2011 - 13:29
Gunnar Guðbjörnsson
Söngsveitin Fílharmónía heldur aðventutónleika með yfirskriftinni Hin fegursta rósin er fundin í Langholtskirkju sunnudaginn 11. desember kl. 17 og þriðjudaginn 13. desember kl. 20.00.
11.des. 2011 - 13:00
Kammerkórinn Carmina syngur fyrir alla Evrópu á jólatónleikadegi evrópskra útvarpsstöðva
10.des. 2011 - 13:00
Gunnar Guðbjörnsson
Sunnudaginn 11. desember kl.17 ætla söngvararnir Þóra H. Passauer, Katla Björk Rannversdóttir, Guðrún Helga Stefánsdóttir og Halldór Unnar Ómarsson að bjóða upp á ljúfa jólasöngskemmtun við kertaljós í Seltjarnarneskirkju en meðleikari á tónleikunum er Friðrik Vignir Stefánsson organisti kirkjunnar.
09.des. 2011 - 17:00
Gunnar Guðbjörnsson
Stórtónleikar verða haldnir í Bústaðakirkju 14.desember kl. 20 undir heitinu „Jólaljós 2011“.
09.des. 2011 - 10:30
Jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju stendur fyrir orgeltónleikum fyrir alla fjölskylduna undir yfirskriftinni
"ORGEL FYRIR ALLA- ORGELJÓL" laugardaginn 10. desember kl. 14 ( ath. nýjan tíma).
08.des. 2011 - 18:30
Gunnar Guðbjörnsson
Kennurum í grunnskólum borgarinnar verður í vetur boðið upp á námskeið til að geta leitt þverfagleg þemaverkefni, Biophilia í skólum, fyrir nemendur í 5.-7. bekk.
07.des. 2011 - 20:00
Gunnar Guðbjörnsson
Þó fyrsta umferð Frostrósa sé yfirstaðin í Hörpu eru Frostrósir Klassík enn í undirbúningi en um næstu helgi verða tónleikar þar sem fjölmennur hópur listamanna kemur fram.
07.des. 2011 - 15:00
Gunnar Guðbjörnsson
Voces Thules verða mestmegnis á ljúfu og notalegu nótunum á tónleikum sínum í Langholtskirkju, föstudaginn 9. desember kl. 21.
07.des. 2011 - 14:00
Gunnar Guðbjörnsson
Jólatónleikar á aðventu verða haldnir í Grafarvogskirkju sunnudaginn 11. desemer kl. 20.00
06.des. 2011 - 11:30
Gunnar Guðbjörnsson
Kraumslistinn 2011 hefur verið kynntur.
05.des. 2011 - 19:30
Gunnar Guðbjörnsson
Rússneski píanóleikarinn Arcadi Volodos verður gestur Listahátíðar í Reykjavík á næsta ári og fara fram í Hörpu, Eldborg, sunnudaginn 20. maí 2012 kl. 20.
05.des. 2011 - 17:00
Gunnar Guðbjörnsson
Guðrún Ólafsdóttir kemur fram á tónleikum í Hafnarborg á morgun, þriðjudaginn 6. desember kl. 12:00-12:30.
05.des. 2011 - 09:00
Gunnar Guðbjörnsson
Út er kominn hjá Smekkleysu nýr geisladiskur Kammersveitar Reykjavíkur, Hljómsveitarsvítur I-IV BVW 1066-1069 eftir Johann Sebastian Bach.
04.des. 2011 - 22:53
Gunnar Guðbjörnsson
Jónasi Ingimundarsyni píanóleikara var haldin sérstök móttaka í Salnum í Kópavogi í dag þar sem bærinn gerði hann að heiðursborgara.
04.des. 2011 - 19:00
Gunnar Guðbjörnsson
Steingrímur Þórhallsson er organisti og kórstjóri í Neskirkju. Hann lætur sér þó ekki þau annasömu verk nægja. Í vor lýkur hann tónsmíðanámi frá Listaháskóla Íslands og flytur ásamt 90 manna hóp tónlistarfólks lokaverkefni sitt í Neskirkju á þriðjudag.
04.des. 2011 - 18:00
Gunnar Guðbjörnsson
Íslenski tónlistarhópurinn Tríó lyrico, sem skipaður er þremur íslenskum tónlistarkonum kemur fram í Bláa sal OFF-Theater í Wien í kvöld
04.des. 2011 - 17:00
Gunnar Guðbjörnsson
Söngfjelagið er nýstofnaður kór í Reykjavík sem heldur sína fyrstu aðventutónleika sunnudagskvöldið 11. desember kl. 20.00 í Háteigskirkju.
04.des. 2011 - 15:00
Gunnar Guðbjörnsson
Sónötukvöld er nýr geisladiskur Rutar Ingólfsdóttur, fiðluleikara og Richards Simm, píanóleikara.
04.des. 2011 - 14:00
Gunnar Guðbjörnsson
Þriðjudaginn 6. desember kl. 20.00 verða tónleikar í Neskirkju við Hagatorg en þar verður flutt Magnificat eftir Johann Sebastian Bach ásamt frumflutningi á nýju Magnificat eftir nemanda skólans Steingrím Þórhallsson og er það lokaverk hans frá tónsmíðadeild LHÍ, en hann útskrifast næsta vor.
04.des. 2011 - 09:00
Gunnar Guðbjörnsson
Árlegir aðventutónleikar Kórs Hjallakirkju verða að venju annan sunnudag í aðventu, 4. desember kl. 20.00.
03.des. 2011 - 22:18
Kvennakór Garðabæjar heldur Aðventutónleika sína í Digraneskirkju mánudagskvöldið 5. desember í Digraneskirkju.
03.des. 2011 - 17:30
Gunnar Guðbjörnsson
Brautryðjandinn heitir nýr geisladiskur Kammersveitar Reykjavíkur sem út er kominn hjá Smekkleysu.
03.des. 2011 - 14:00
Gunnar Guðbjörnsson
Kertaljós og klæðin rauð …er daagskrá sem haldin verður um jólaannir í Gamla bænum Laufási 4. desember milli kl 13:30-16:00.
03.des. 2011 - 13:00
Gunnar Guðbjörnsson
Á morgun, sunnudaginn 4. desember kl. 16 verða tónleikar og ljóðaupplestur í Listasafni Einars Jónssonar.
03.des. 2011 - 10:30
Gunnar Guðbjörnsson
Sú hefð hefur skapast hjá Óperukórnum í Reykjavík að flytja Mozart Requiem á dánarstundu tónskáldsins. Stundin er kl 00.30 nú á sunnudag, 4 desember, upp úr miðnætti.
01.des. 2011 - 22:00
Gunnar Guðbjörnsson
Dagur íslenskrar tónlistar var haldinn hátíðlegur um allt land í dag en í fyrsta sinn fór fram átakið Syngjum saman.
01.des. 2011 - 21:00
Gunnar Guðbjörnsson
Stórsöngvarinn Kristján Jóhannsson heldur sína árlegu jólatónleika í Hallgrímskirkju, sunnudaginn 18.desember kl 20:00
01.des. 2011 - 14:37
Gunnar Guðbjörnsson
Kristinn Örn Kristinsson heldur hádegisfyrirlestur við tónlistardeild LHÍ í Sölvhóli föstudaginn 2. desember kl. 12-12:45.