05. des. 2011 - 18:30Gunnar Guðbjörnsson

Ritþing og Sjónþing Gerðubergs í rafrænni útgáfu

Frá Gerðubergi

Löng hefð er fyrir listamannaþingum í Gerðubergi en þau hafa nú verið gefin út í rafrænu formi. 

Í tilkynningu segir að Sjónþing hafi hafist árið 1996 og Ritþingin hafið göngu sína árið 1999. Eitt Tónþing var haldið árið 2002.

Þingunum er ætlað að gefa innsýn í íslenska samtímalist og -bókmenntir og gefa fólki kost á að kynnast viðhorfum, áhrifavöldum og lífshlaupi einstakra listamanna og rithöfunda í máli og myndum. Skipulagi þinga er þannig háttað að listamaður situr fyrir svörum um líf sitt og list. Umræðum er stýrt af stjórnanda en auk hans eru tveir spyrlar.
Áheyrendur er hvattir til að koma með innlegg í umræðurnar.

Þingin hafa frá fyrstu tíð verið hljóðrituð af RÚV og gefin út í prentuðu formi. Þingin eru til sölu á skrifstofu Gerðubergs.
Sjónþing frá 2003 og Ritþing frá 2004 verða hér eftir gefin út á rafrænu formi á heimasíðu Gerðubergs en verða framvegis ekki gefin út á prenti.

Rafræna útgáfan er nú aðgengileg öllum án endurgjalds á heimasíðu Gerðubergs www.gerduberg.is.
Í tilefni af því eru öll eldri þing í prentuðu formi á tilboði út desember á kr. 550.- og eru seld á skrifstofu Gerðubergs.



15.maí 2013 - 11:52

Hún er horfin! Sumarsmellurinn er komin út

Gillian Flynn er einn flottasti rithöfundur samtímans Gillian Flynn er einn flottasti rithöfundur samtímans. Þessi þriðja skáldsaga höfundar kom út sumarið 2012 og hefur setið á metsölulista New York Times síðan þá. Bókin kom út á Bretlandi í vor og rauk beint á topp metsölulistans – og sömuleiðis í Noregi.
27.apr. 2013 - 09:12 Ruth Ásdísardóttir

Fullt út úr dyrum á opnun Konubókastofunnar á Eyrarbakka

Anna Jónsdóttir stofnandi Konubókastofunnar. Það var margt um manninn þegar Konubókastofan á Eyrarbakka opnaði á Sumardaginn fyrsta. Fullt var út úr dyrum og margir fluttu erindi á þessum merkisviðburði. Konubókastofan er eingöngu ætluð kvenrithöfundum en það er meðal annars einn liður í því að gefa konum meira vægi í bókmenntasögunni. Anna Jónsdóttir sem á heiðurinn af Konubókastofunni var að vonum hæstánægð með daginn og hversu vel tókst til.
12.apr. 2013 - 19:37

Katrín setur málþing um innleiðingu grunnþáttanna lýðræði, mannréttindi og jafnrétti

Félag heimspekikennara stendur fyrir málþingi á morgun, 13. apríl um innleiðingu grunnþáttanna, lýðræði, mannréttindi og jafnrétti í þverfaglegu skólastarfi. Það er Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra sem setur málþingið sem haldið verður í Réttarholtsskóla.
09.apr. 2013 - 11:30

Bjó til persónuna Þórarinn Gunnarsson til að verjast þunglyndi og óöryggis tilfinningum

Það virð­ist hafa farið fram­hjá mörgum Íslend­ingum að á áttunda og níunda áratugnum gaf Íslend­ingur nokkur, búsettur í Bandaríkjunum, út fjölda vís­inda­skáld­sagna og fant­asíu­bóka á ensku! Hann sagðist heita Þórar­inn Gunnarsson og gaf út að minnsta kosti þrettán bækur, allar á árunum 1988 til 1996.
03.apr. 2013 - 13:00

Denise Epstein er látin: „Ég þarf að skreppa í smá ferðalag”

Denise Epstein, dóttir Irène Némirovsky, höfundar metsölubókarinnar Frönsk svíta, lést mánudaginn 1. apríl á heimili sínu í Toulouse í Frakklandi,  83ja ára að aldri. Hún bjargaði handriti móður sinnar að Franskri svítu frá glötun og gekk frá því til útgáfu. Denise Epstein vann alla tíð hörðum höndum að því að halda minningu og verkum móður sinnar á lofti ásamt því að minna á hrylling helfararinnar.
21.mar. 2013 - 11:18 Ruth Ásdísardóttir

Spennandi kósíkrimmi - Ekki missa af þessari!

Þessi bók er yndisleg frá fyrstu blaðsíðu Vantar þig eitthvað skemmtilegt og spennandi að lesa í flugvélinni? Í Páskafríinu eða bara þegar þú hefur smá stund aflögu fyrir sjálfa þig? Nú er komin út frá Veröld bókin Kaffi og rán eftir Catharina Ingelman-Sundberg.
15.mar. 2013 - 14:26

Sirrý: Gerðu kvíðann að vini og njóttu þess að tjá þig við hvern sem er!

Sirrý hefur kennt fólki tjáningu í fjöldamörg ár. Sirrý Arnardóttir er ein þekktasta fjölmiðlakona á Íslandi og hún kann svo sannarlega að tjá sig. Sirrý er fyrirmynd margra kvenna og hún lítur ekki út fyrir að hræðast að koma opinberlega fram. En hvað þarf til að koma fram og tjá sig á eðlilegan hátt? Hún skrifaði nýja bók sem svarar þessu öllu en bókin kallast Örugg tjáning – betri samskipti en Veröld gefur hana út.
27.feb. 2013 - 16:52

Kuldi eftir Yrsu Sigurðardóttur er komin út í kilju

Yrsa er fyrir löngu orðin einn af ástsælustu sakamálahöfundum á Íslandi.

Kuldi, eftir Yrsu Sigurðardóttur er komin út á kilju. Yrsu þarf vart að kynna en hún er fyrir löngu orðin einn af ástsælustu sakamálahöfundum á Íslandi. Í bókinni segir frá ungri stúlku sem ræðst til starfa á unglingaheimili á áttunda áratug liðinnar aldar en dvöl hennar þar á eftir að umbylta lífi hennar. 

23.feb. 2013 - 17:00

Auður verðlaunuð fyrir bestu kynlífslýsinguna

Karl Blöndal afhendir Auði Övu Ólafsdóttur Rauðu hrafnsfjöðrina Auður Ava Ólafsdóttir hlaut Rauðu hrafnsfjöðrina, verðlaun fyrir forvitnilegustu kynlífslýsingu ársins í íslenskum skáldverkum, á aðalfundi lestrarfélagsins Krumma sem haldinn var á föstudagskvöld. Verðlaunin voru nú veitt í sjöunda sinn.
30.jan. 2013 - 15:12

Fræðslufundaröð Félags heimspekikennara

Á undanförnum misserum hefur komið fram æ háværari krafa um eflingu gagnrýninnar hugsunar á öllum sviðum samfélagsins. Félag heimspekikennara er fagfélag kennara á öllum skólastigum sem hefur meðal meginmarkmiða að vinna að eflingu heimspekikennslu hérlendis og að vera þátttakandi í umræðu um skólaþróun og beita sér fyrir auknum þætti heimspekilegra viðhorfa í því samhengi.
23.jan. 2013 - 13:00

Kolbrún er áhrifamesta fjölmiðlamanneskjan: „Þegar hún missir sig, þá fylgir þjóðin“

Kolbrún Bergþórsdóttir virðist vera áhrifamesta fjölmiðlamanneskja þessa lands þegar kemur að íslenskum bókmenntum. Þegar hún hrífst af skáldverkum og deilir upplifun sinni með þjóðinni í Kiljunni þá skal aldrei standa á því að sala viðkomandi bókar ríkur út af meiri krafti en nokkur auglýsingaherferð gæti áorkað. En þá býr Kolbrún yfir eyðileggingarmætti líka.

 
  

16.des. 2012 - 19:39 Gunnar Bender

Yrkir um veiðiskap og ástir

Þorláks Karlssonar frá Hrauni Ölfusi yrkir um veiðiskap og ástir. Bókin heitir Tuttugu þúsund flóð og nafnið vísar til þess að tuttugu þúsund sinnum hefur fallið að og frá í ósum Ölfusár síðan ungur drengur stóð þar við netaveiðar á laxi sumarið 1974.
14.des. 2012 - 11:13

Sena gefur Fjölskylduhjálp og skorar á önnur fyrirtæki að gera slíkt hið sama

Sena hefur ákveðið eins og síðastliðin tvö ár að gefa ekki jólagjafir til viðskiptavina sinna og styrkja frekar gott málefni. Eins og allir vita eru jólin mikilvægur tími í lífi þeirra yngstu og þar sem fjölmargar fjölskyldur búa við kröpp kjör hérlendis þessa dagana var ákveðið að styrkja aftur Fjölskylduhjálp Íslands með ýmsu fjölskyldu- og barnaefni.
04.des. 2012 - 14:55

Gísli á Uppsölum leggur Arnald og Yrsu á afmælisdegi höfundarins: „Afmælisgjöf frá Gísla“

Bók Ingibjargar Reynisdóttur um Gísla á Uppsölum er söluhæsta bók síðustu viku samkvæmt metsölulista Félags bókaútgefanda. Á þessum árstíma hafa Arnaldur og Yrsa með sínar spennusögur yfirleitt trónað á toppnum en saga Gísla virðist enn heilla nýjar kynslóðir.
28.nóv. 2012 - 14:42

Aðdáandinn skapaði persónu í nýja bók

Ólafur Gunnar Guðlaugsson rithöfundur og listamaður varð í fyrradag fyrir þeirri óvenjulegu reynslu að lesandi tjáði honum að ein persónan í nýrri bók hans væri ekki alveg rétt upp teiknuð. En það kæmi þó ekki að mikilli sök. Það sem meira er, þessi tiltekni lesandi hafði í raun skapað viðkomandi persónu, en ekki Ólafur sjálfur.
27.nóv. 2012 - 08:00

Ævisaga Steve Jobs er komin út í íslenskri þýðingu.

Ástríðufullur og knúinn áfram af einstæðri sýn um samruna tækni og fagurra lista var Steve Jobs sá einstaklingur á síðari hluta tuttugustu aldar sem hafði hvað mest áhrif á mótun samtímans eins og hann snýr við okkur frá degi til dags.
22.nóv. 2012 - 08:00

Hugleikur: Kóraninn er ógeðslega boring

Hugleikur hefur getið sér gott orð fyrir nokkuð grófar myndasögur sem hafa notið vinsælda bæði hér heima og erlendis. Hann sækir nú yrkisefni sitt á nýjar slóðir en Hugleikur nýtir efnivið úr Opinberunarbók Biblíunnar í splunkunýja myndasögu sína.
21.nóv. 2012 - 11:00

Sigurjón Sighvatsson tryggir sér nýja bók Yrsu Sigurðardóttur

Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi hefur tryggt sér réttinn á nýrri spennusögu Yrsu Sigurðardóttur, Kulda, sem kom út nú fyrir helgina. Kuldi er sjálfstæður tryllir í anda verðlaunabókar Yrsu, Ég man þig, sem Sigurjón hefur þegar keypt réttinn á og fer myndin í tökur á næsta ári.
20.nóv. 2012 - 11:30

Yrsu líkt við Stephen King: „Ekki lesa Ég man þig eftir myrkur“

Gagnrýnandi bresta stórblaðsins The Times ráðleggur fólki frá því að lesa bók Yrsu Sigurðardóttur eftir að myrkur er skollið á. Hann segir ennfremur að bókin sé æsispennandi tryllir sem veki taumlausa skelfingu hjá lesandanum.
19.nóv. 2012 - 07:00

Handbók hrekkjalómsins er komin út

Það er algjör misskilningur að innra með Loga Bergmann Eiðssyni búi settlegur fréttaþulur í snyrtilegum jakkafötum. Nei, hans innra sjálf hefur alla tíð verið í meira lagi uppátækjasamt og hrekkjóttara en gengur og gerist. Með aldrinum hefur hann náð að temja örlítið í sér hrekkvísina, þroska hana og þróa, og hrekkir nú samborgara sína af fáheyrðri alúð og umhyggju í þeirra garð. Þeir kunna líka að meta það. Flestir.
15.nóv. 2012 - 18:30

Zlatan Ibrahimovic hefði vel getað orðið glæpamaður

Zlatan Ibrahimovic hefur í mörg ár verið einn mesti snillingur knattspyrnuheimsins en þrátt fyrir að vera 1,92 sentímetrar á hæð er hann ótrúlega lipur með boltann. Þeir sem ekki hafa áttað sig á ótrúlegri getu kappans geta ekki annað en viðurkennt hana og um leið dáðst að einu ótrúlegasta marki knattspyrnusögunnar þegar horft er á fjórða markið sem hann skoraði gegn Englendingum í gær.
12.nóv. 2012 - 18:05

Breyttir tímar í jólabókaflóðinu: Nýjasta saga Yrsu kemur fyrst út sem rafbók í kvöld

Kuldi, nýjasta glæpsasaga Yrsu Sigurðardóttur er komin í forsölu og verður aðeins fáanleg sem rafbók  fyrst um sinn. Undanfarið hefur verið boðið upp á slíkar forsölur á eBókum með ágætum árangri.  Ætla má að Kuldi komi til með að vekja með lesendum hroll, líkt og fyrri sögur Yrsu, en hún átti mest seldu bókina á landinu fyrir síðustu jól.
11.nóv. 2012 - 14:00

Vegurinn um Dimmuheiði

Út er komin ljóðabókin Vegurinn um Dimmuheiði eftir Kristian Guttesen. Bókin er sjöunda ljóðabók höfundar, en meðal fyrri bóka eru Litbrigðamygla frá árinu 2005 og Glæpaljóð frá árinu 2007.
09.nóv. 2012 - 12:00 Kristjón Kormákur Guðjónsson

Stefán Máni heimsótti líkhús og kynntist heimi drauga og andsetninga

Stefán Máni er næmur og segir að sem barn hafi hann séð draug eða anda. Þá skynjar hann oft einhverja nærveru sem hann á erfitt með að útskýra og er ekki af þessum heimi. Nú hefur Stefán sent frá sér sína elleftu skáldsögu og sem fyrr er það myrkrið og illskan sem svífur yfir vötnum. 
08.nóv. 2012 - 16:00

Ófriður í forsölu á eBækur.is

Ófriður, nýjasta bókin í Rökkurhæðabókaflokknum, er komin í forsölu á eBækur.is. Að því tilefni er fyrsta bókin í flokknum ókeypis á eBækur.is, að auki eru aðrar Rökkurhæðabækur á sérstöku tilboði. Áður hafa komið út Rústirnar (2011), Óttulundur (2011) og Kristófer (2012).
04.nóv. 2012 - 07:00

Óútskýrt mannslát lætur hann ekki í friði

Starfið á strætum Reykjavíkur er erilsamt fyrir lögreglumann, umferðarslys, þjófnaðir, heimilisofbeldi, drykkja og smygl. Óútskýrt mannslát lætur hann ekki í friði.
31.okt. 2012 - 09:34

Hobbitinn eftir J.R.R . Tolkien er komin út en bókin hefur verið ófáanleg um árabil

Hobbitinn er forleikurinn að Hringadróttinssögu og kom fyrst út árið 1937 og hefur síðan selst í milljónum eintaka. Sagan er tvímælalaust ein af ástsælustu og áhrifamestu bókmenntum tuttugustu aldar. Útgáfan er í íslenskri þýðingu Þorsteins Thorarensen.
26.okt. 2012 - 14:15

Þorvaldur Davíð fær Snjóblindu

Leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson er þekktastur fyrir leik sinn í kvikmyndinni Svartur á leik. Hann hefur nú tryggt sér kvikmyndaréttinn á glæpasögunni Snjóblindu eftir Ragnar Jónsson.
16.okt. 2012 - 16:37

Hobbitinn í sérstakri forsölu á ebækur.is

Hobbitinn eftir J.R.R . Tolkien fæst nú í sérstakri forsölu á eBækur.is. Um er að ræða rafbókina en bókin kemur í verslanir 22. október.
15.okt. 2012 - 14:00

Ævisaga Ellyjar Vilhjálms fæst nú í sérstakri forsölu á eBækur.is

Margrét Blöndal segir ævisögu Ellyjar Vilhjálms og leitar víða fanga eftir heimildum. Hér er sögð heillandi saga af konu sem bjó yfir óræðri dulúð og töfraði marga, konu sem aldrei gafst upp, sjálfstæð til síðasta dags.

Pressupennarnýjast
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 25.5.2013
Sögur úr kosningum
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 24.5.2013
Sigmundur og Bjarni, stöðvið sjálftökuna!
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 22.5.2013
Að fenginni áminningu
Björgvin G. Sigurðsson
Björgvin G. Sigurðsson - 22.5.2013
Verðlaus gjaldmiðill og verðtrygging í nefnd
Kári Stefánsson
Kári Stefánsson - 22.5.2013
Óheft tjáningarþörf
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 21.5.2013
Umdeildur
Reynir Hjálmarsson
Reynir Hjálmarsson - 21.5.2013
Nútíminn gegn Derrick
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 21.5.2013
Nú er nóg komið!
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 20.5.2013
Golf fyrir alla 3 (Brautarholtsvöllur) 6. hola - Myndband
Fleiri pressupennar