Menningarpressan

30. jan. 2011 - 11:00

Tónmenntafólk mótmælir með bumbum og básúnum - Erum að tala um framtíð tónlistarkennslu

Getty Images

Tónmenntafólk, kennarar, nemendur og hljóðfæraleikarar, ætla að koma saman við Ráðhúsið í Reykjavík á þriðjudag, þegar borgarstjórn kemur saman á fundi, og mótmæla skerðingum til tónlistarskóla. Niðurskurðinum verður ekki tekið þegjandi og hljóðalaust.

Pressan hefur sagt frá því að til standi að skera niður framlag til tónlistarskóla í Reykjavík um 140 milljónir króna þegar nýir þjónustusamningar taka gildi.

Af því tilefni hefur verið stofnuð Facebook-síða undir yfirskriftinni Samstaða um framhald tónlistarskólanna og spurt:

ER EKKI EITTHVAÐ SEM VIÐ GETUM GERT? EIGUM VIÐ EKKI AÐ MÓTMÆLA ÞESSU?
Næsti fundur borgarstjórnar sé þriðjudaginn 1. febrúar kl. 14 í Ráðhúsinu.
Þið hafið vonandi flest fylgst með ógnvænlegum pistlum á Pressunni síðastliðnar vikur. Lítið hefur birst í öðrum fjölmiðlum um þetta vandamál sem blasir við framtíð tónlistar á Íslandi. [...] Eigum við bara að sitja þegandi og hljóðalaust og láta þetta yfir okkur ganga?

En það stendur ekki til.

Hljóðfæraleikar, tónlistakennarar og nemendur þeirra ætla að mótmæla fyrir utan Ráðhúsið þegar borgarstjórnarfundurinn er haldinn.

Magnús Trygvason Eliassen, einn af aðstandendum Facebook-síðunnar, segir í samtali við Pressuna að leikið verði á skemmtileg hljóðfæri.

Þetta verður ekki hávaði heldur tónlistarflutningur. Það missir enginn heyrnina.

Hann segir fullan skilning ríkja á því að skera þurfi niður eins og nú árar.

En hlutfallið eins og maður hefur séð hjá ykkur er úr öllu korti og aldursviðmiðun tómt kjaftæði, fyrirgefðu orðbragðið. Fólk hefur leyfi til að endurmennta sig í háskólum eftir 24 ára aldur, hvers vegna skyldi það ekki eiga við um tónlist?

Á Facebook-síðunni segir að yfir 30 prósent skerðing á fjárveitingum geri gjörsamlega út af við marga ef ekki flesta tónlistarskóla borgarinnar.

Og hvar endar þetta? Dreifist þetta sem illkynja mein um landsbyggðina?






02.maí 2012 - 21:41

Kristinn Ingvason fór á The Avengers: Fyrsti sumarsmellurinn steinliggur

Myndin rúllar ótrúlega vel og þótt hún sé löng þá verður maður ekkert var við það. Vel útfærð slagsmálaatriði með hæfilega fyndnum one-liners inn á milli gerir myndina afbragðs afþreyingu og vel þess virði að kíkja á.
14.apr. 2012 - 18:37

Söngfuglar boða vorið á morgun: Jana María og Valdimar - Fara með áheyrendur í ferðalag til fortíðar

Söng- og leikkonan Jana María Guðmundsdóttir Söngfuglar syngja sinn fegursta söng hingað til á þessum síðustu tónleikum vetrarins í Salnum á morgun, sunnudaginn 15. apríl klukkan 15.

12.apr. 2012 - 15:20

Dagskrá Listahátíðar kynnt í dag og miðasala hafin á alla viðburði


Listahátíð í Reykjavík leggur undir sig borgina frá 18. maí til 3. júní og fyllir vorkvöldin löng með glæsilegri og fjölbreyttri dagskrá sem Hrefna Haraldsdóttir, stjórnandi Listahátíðar, kynnti í dag. Dagskrá hátíðarinnar í ár er klassísk og framsækin í senn og verða á hátíðinni frumflutt ný verk í öllum listgreinum og efnt til spennandi samvinnu milli listamanna, listgreina og áhorfenda.
11.apr. 2012 - 21:00

Fyrsta úthlutun úr minningarsjóði Vilhjálms Vilhjálmssonar - 3 framúrskarandi söngnemar fá styrk

Söngvarar framtíðarinnar: Jóhann Kristinsson, Unnsteinn Árnason og Björg Birgisdóttir Í dag var í fyrsta sinn úthlutað úr minningarsjóði okkar ástsæla tónlistarmanns, Vilhjálms Vilhjálmssonar. Markmið sjóðsins er að styrkja söngnemendur sem þykja skara fram úr. Styrkurinn mun standa straum af skólagjöldum nemendanna við Söngskólann í Reykjavík næsta vetur.
11.apr. 2012 - 13:15

Kristinn Ingvason fór á American Reunion – Sama formúlan, sem virkar

Myndin er kærkomið framhald, fyrir okkur nostalgíufíklana, maður hlær og skemmtir sér og kemur brosandi út, sem er tilgangur myndarinnar.
04.apr. 2012 - 20:54

Kristinn Ingvason kíkti á The Lorax – Mynd með boðskap

Það er upplagt að eyða smá tíma með smáfólkinu og sjá þessa mynd með þeim. Ekki er verra að boðskapur myndarinnar er skýr og göfugur, fyrir krakkana er það náttúruverndin, maðurinn þarf að vinna í sátt við umhverfið sitt. En fyrir fullorðna fólkið er það einnig græðgi stórfyrirtækja, kannski frekar seint í rassinn gripið í dag, en maður lærir á meðan maður lifir.

30.mar. 2012 - 12:30

Lögin úr leikhúsinu í Salnum í kvöld

Í kvöld mun ríkja sannkölluð leikhússtemning í Salnum í Kópavogi þegar Jóhann Sigurðarson flytur lög úr söngleikjum og leikritum. 
29.mar. 2012 - 09:00

Tengdó – nýtt, sannsögulegt, íslenskt verk frumsýnt á Litla sviðinu í kvöld

Tengdó, nýtt íslenskt verk, verður frumsýnt á Litla sviðinu í kvöld, 29. mars, klukkan 20. Hér er ráðist í gerð heimildaleikhúss þar sem skyggnst verður í persónulega sögu listamannanna. 
26.mar. 2012 - 09:00

Tælingarsöngvar í Hörpu

Ágúst Ólafsson. Baritónsöngvarinn Ágúst Ólafsson og píanóleikarinn Antonía Hevesi freista þess að tæla áheyrendur sína á hádegistónleikum Íslensku óperunnar í Hörpu á morgun, þriðjudag kl. 12.15, en þá flytja þau serenöður og mansöngva eftir W.A. Mozart, Donizetti, Schubert og Tsjækovskí undir yfirskriftinni „Tælingarsöngvar“.
21.mar. 2012 - 10:00

Hornaveisla í Hörpu

f.v. Sturlaugur Jón Björnsson, Anna Sigurbjörnsdóttir, Stefán Jón Bernharðsson og Emil Friðfinnsson. Sinfóníuhljómsveit áhugamanna þreytir frumraun sína í Hörpu með tónleikum í Norðurljósum sunnudaginn 25. mars klukkan 17 og býður til sannkallaðrar hornaveislu.