Menningarpressan

18. des. 2010 - 12:20Gunnar Guðbjörnsson

Tilnefningar til Kraumslistans - 12 sleggjur úr tónlistarlífinu velja

Af vef Kraums

Dómnefnd Kraumslistans, skipuð er 12 aðilum sem hafa verið liðtækir við umfjöllun og spilun á íslenskri tónlist á ýmsum sviðum fjölmiðlunar, hafa nú tilnefnt  20 hljómplötur til verðlaunanna.

Tilnefningar eru  kynntur nokkrum dögum áður en eiginlegi listi en það er til mikils að vinna því verðlaunahafar hljóta dyggan stuðning t.d. við kynningu á erlendum vettvangi en auðvitað má ekki gleyma þeim virðingarsess sem verðlaunin hafa skapað sér.

Á heimasíðu Kraums er sagt eftirfarandi um tilgang Kraumlistans:
Að kynna og styðja við íslenska plötuútgáfu, þá sérstaklega verk ungra listamanna og hljómsveita.
Verðlauna og verkja athygli á því sem er nýtt og spenanndi í íslenskri tónlist ár hvert á sviði plötuútgáfu.
Verðlauna og vekja athygli á þeim verkum sem sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika.

 Hér er svo að lokum listinn yfir þá sem tilnefndir eru en við bíðum spennt eftir framhaldinu.

* Agent Fresco - A Long Time Listening
* Amiina - Puzzle
* Apparat Organ Quartet - Pólyfónía
* Daníel Bjarnason - Processions
* Ég - Lúxus upplifun
* Jónas Sigurðsson - Allt er eitthvað
* Kammerkór Suðurlands - Iepo Oneipo
* Miri - Okkar
* Momentum - Fixation, At Rest
* Moses Hightower - Búum til börn
* Nolo - No-Lo-Fi
* Ólöf Arnalds - Innundir skinni
* Prinspóló - Jukk
* Retro Stefson - Kimbabwe
* Samúel Jón Samúelsson Big Band - Helvítis Fokking Funk
* Seabear - We Built a Fire
* Sóley - Theater Island
* Stafrænn Hákon - Sanitas
* Valdimar - Valdimar
* Quadruplos - Quadroplos



02.maí 2012 - 21:41

Kristinn Ingvason fór á The Avengers: Fyrsti sumarsmellurinn steinliggur

Myndin rúllar ótrúlega vel og þótt hún sé löng þá verður maður ekkert var við það. Vel útfærð slagsmálaatriði með hæfilega fyndnum one-liners inn á milli gerir myndina afbragðs afþreyingu og vel þess virði að kíkja á.
14.apr. 2012 - 18:37

Söngfuglar boða vorið á morgun: Jana María og Valdimar - Fara með áheyrendur í ferðalag til fortíðar

Söng- og leikkonan Jana María Guðmundsdóttir Söngfuglar syngja sinn fegursta söng hingað til á þessum síðustu tónleikum vetrarins í Salnum á morgun, sunnudaginn 15. apríl klukkan 15.

12.apr. 2012 - 15:20

Dagskrá Listahátíðar kynnt í dag og miðasala hafin á alla viðburði


Listahátíð í Reykjavík leggur undir sig borgina frá 18. maí til 3. júní og fyllir vorkvöldin löng með glæsilegri og fjölbreyttri dagskrá sem Hrefna Haraldsdóttir, stjórnandi Listahátíðar, kynnti í dag. Dagskrá hátíðarinnar í ár er klassísk og framsækin í senn og verða á hátíðinni frumflutt ný verk í öllum listgreinum og efnt til spennandi samvinnu milli listamanna, listgreina og áhorfenda.
11.apr. 2012 - 21:00

Fyrsta úthlutun úr minningarsjóði Vilhjálms Vilhjálmssonar - 3 framúrskarandi söngnemar fá styrk

Söngvarar framtíðarinnar: Jóhann Kristinsson, Unnsteinn Árnason og Björg Birgisdóttir Í dag var í fyrsta sinn úthlutað úr minningarsjóði okkar ástsæla tónlistarmanns, Vilhjálms Vilhjálmssonar. Markmið sjóðsins er að styrkja söngnemendur sem þykja skara fram úr. Styrkurinn mun standa straum af skólagjöldum nemendanna við Söngskólann í Reykjavík næsta vetur.
11.apr. 2012 - 13:15

Kristinn Ingvason fór á American Reunion – Sama formúlan, sem virkar

Myndin er kærkomið framhald, fyrir okkur nostalgíufíklana, maður hlær og skemmtir sér og kemur brosandi út, sem er tilgangur myndarinnar.
04.apr. 2012 - 20:54

Kristinn Ingvason kíkti á The Lorax – Mynd með boðskap

Það er upplagt að eyða smá tíma með smáfólkinu og sjá þessa mynd með þeim. Ekki er verra að boðskapur myndarinnar er skýr og göfugur, fyrir krakkana er það náttúruverndin, maðurinn þarf að vinna í sátt við umhverfið sitt. En fyrir fullorðna fólkið er það einnig græðgi stórfyrirtækja, kannski frekar seint í rassinn gripið í dag, en maður lærir á meðan maður lifir.

30.mar. 2012 - 12:30

Lögin úr leikhúsinu í Salnum í kvöld

Í kvöld mun ríkja sannkölluð leikhússtemning í Salnum í Kópavogi þegar Jóhann Sigurðarson flytur lög úr söngleikjum og leikritum. 
29.mar. 2012 - 09:00

Tengdó – nýtt, sannsögulegt, íslenskt verk frumsýnt á Litla sviðinu í kvöld

Tengdó, nýtt íslenskt verk, verður frumsýnt á Litla sviðinu í kvöld, 29. mars, klukkan 20. Hér er ráðist í gerð heimildaleikhúss þar sem skyggnst verður í persónulega sögu listamannanna. 
26.mar. 2012 - 09:00

Tælingarsöngvar í Hörpu

Ágúst Ólafsson. Baritónsöngvarinn Ágúst Ólafsson og píanóleikarinn Antonía Hevesi freista þess að tæla áheyrendur sína á hádegistónleikum Íslensku óperunnar í Hörpu á morgun, þriðjudag kl. 12.15, en þá flytja þau serenöður og mansöngva eftir W.A. Mozart, Donizetti, Schubert og Tsjækovskí undir yfirskriftinni „Tælingarsöngvar“.
21.mar. 2012 - 10:00

Hornaveisla í Hörpu

f.v. Sturlaugur Jón Björnsson, Anna Sigurbjörnsdóttir, Stefán Jón Bernharðsson og Emil Friðfinnsson. Sinfóníuhljómsveit áhugamanna þreytir frumraun sína í Hörpu með tónleikum í Norðurljósum sunnudaginn 25. mars klukkan 17 og býður til sannkallaðrar hornaveislu.