03.mar. 2010 - 17:34

Íslendingurinn Þór Kristinsson: Tilnefndur til EMCA tónlistarverðlaunanna

Þór bjó um árabil í London þar sem hann lék í hinum ýmsu söngleikjum á West End. Hann er nú búsettur í Kanada þar sem hann sinnir tónlist sinni. Lag eftir íslenska leikarann, söngvarann og tónlistarmanninn Þór Breiðfjörð Kristinsson hefur verið tilnefnt til EMCA- tónlistarverðlaunanna.  Verðlaunin eru ein stærstu verðlaun  í tónlistarbransanum í Kanada.
15.feb. 2010 - 21:57

Móri svarar fyrir sig: Ég startaði ekki þetta shit - Erpur flúði úr húsinu eins og kelling

Móri, til vinstri, segist ekki hafa byrjað átökin við Erp, sem er hægra megin. Rapparinn Móri segir alls ekki allt sem sýnist í átökum hans og Erps Eyvindarsonar. Hann hafi ekki byrjað átökin í húsakynnum útvarpsstöðvarinnar X-ins í dag og segir Erp hafa flúið „húsið eins og kelling.“
15.feb. 2010 - 21:21

Björk minnist hönnuðarins Alexanders McQueen: Takk fyrir allan innblásturinn

„Ég vil þakka þér fyrir allan innblásturinn,“ segir Björk Guðmundsdóttir í kveðju orðum sínum til breska tískuhönnuðarins Alexanders McQueen. Sá hannaði búninga fyrir Björk en hann framdi sjálfsmorð síðastliðinn fimmtudag.
07.feb. 2010 - 15:56

Hera Björk vill helst taka Jógvan með sér: Lofar að vera í einhverju „fabulous“ í Osló

Hera Björk kom sá og sigraði undankeppni Eurovision í gærkvöldi.

Hera Björk Þórhallsdóttir, nývalinn Eurovision-fari fyrir Íslands hönd sagði að tilfinning væri yndisleg, þegar Pressan náði sambandi við hana í dag. Þá var hún á leið í vöffluboð til móður sinnar til þess að fagna sigri með sínum nánustu. Hera segir að gleði og íslenska þrautsegja verði sín leynivopn og lofar að vera í einhverri „fabulous“ íslenskri hönnun á sviðinu í Osló.

06.feb. 2010 - 21:52

Hera Björk og Örlygur Smári fulltrúar Íslands í Evrópu- söngvakeppninni í vor

Hera Björk Þórhallsdóttir og Örlygur Smári sigruðu í kvöld í Söngvakeppni Sjónvarpsins með laginu Je Ne Sais Quoi og taka því þátt í úrslitum Evrópusöngvakeppninnar í Osló í Noregi í vor. Hera hefur ekki áður keppt í keppninni en Örlygur Smári samdi lag Íslands fyrir tveimur árum.
07.des. 2009 - 21:00 Gagnrýni

Ólafur Már hlustar á Húm Stefáns Hilmarssonar: Best er að rækta garðinn sinn

Stefán skrifar í inngangi á plötuumslaginu að hann hafi notið þess að gera þessa plötu og það skín í gegn. Það engu líkara en að Stefán sé laus úr viðjum, hann hefur greinilega tekið sér það frelsi að gera allt eftir sínu höfði í Húminu. Það fer honum vel.

Bækurgagnrýni


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit