21.jan. 2010 - 20:00
Um fimmtíu sænskir háskólanemar yfirtóku bjórverksmiðju í nágrenni Gautaborgar til leggja áherslu á kröfu sína um að lögðu verði bein bjórleiðsla frá verksmiðjunni að félagsaðstöðu nemenda.
05.des. 2009 - 17:41
Maður að nafni Simon Pope hefur helgað lífi sínu kexi í orðsins fyllstu merkingu. Hann er kex-hönnuður og kex-smakkari sem borðar 472 kexpakka á ári eða 7.000 stykki. Pope, sem er 41 árs eyðir þannig ævidögum sínum í kex.
31.okt. 2009 - 19:30
Örtröð hefur verið á íslensku McDonald‘s stöðunum í dag. Á miðnætti lokar seinasti staðurinn og á morgun verða kynntir til sögunnar nýir staðir undir nafninu Metro. Gestir staðanna í kvöld þurftu að bíða lengi eftir afgreiðslu en þeir létu sig samt hafa það til að kveðja staðinn.
11.sep. 2009 - 16:00
Marta María
Veitingastaðnum Turninum verður umturnað í september þegar Yemine Olsson og hennar gengi mæta á svæðið og rigga upp alvöru Bollywoodteiti með mat og skemmtidagskrá. Bollywood-þema verður út í gegn á þessum ævintýrakvöldum. Skreytingarnar, tónlistin, búningarnir og maturinn verður allur í stíl við þemað. Fyrsta Bollywoodkvöldið fer fram þann 25.september og verða kvöldin alls fjögur. Yesmine Olsson segir að hugmyndin að kvöldunum hafi kviknað því þeim langaði að gera eitthvað skemmtilegt. "Þegar fólk ferðast minna þá er um að gera að koma bara með útlandastemninguna heim til Íslands," segir hún full eftirvæntingar.
27.ágú. 2009 - 21:02
Björg Magnúsdóttir
Það er ekki reifari eða önnur dæmigerð sumarleyfisbók sem er í toppsæti metsölulista Eymundssonar. Þvert á móti heldur matreiðslubók Helgu Sigurðardóttur, Matur og drykkur, efsta sætinu þriðju vikuna í röð. Sigurður Svavarsson útgefandi er glaður og talar um ævintýrið hennar Helgu við Pressuna.
07.júl. 2009 - 16:00
Marta María
Veitingastaðurinn Nítjánda sem er hádegisverðarstaður í Turninum við Smáratorg hefur fært út kvíarnar. Nú er hægt að fá "take away" frá veitingastaðnum en þeir fast í afgreiðslu Turnsins á annarri hæð. Að sögn Sigurðar Gíslasonar, meistarakokks og einn af eigendum staðarins, eru réttirnir hugsaðir fyrir fólk sem er á ferðinni en kýs hollan, ferskan og góðan mat. Hann segir að hugmyndin af "take away" réttunum hafi kviknað hjá fólkinu sem vinnur í Turninum. "Fólk hafði orð á því að það væri gott að geta gripið eitthvað með sér þegar það komst ekki upp á nítjándu til að fá sér hádegisverð. Við vildum þjónusta það og þess vegna fórum við í að gera þetta," segir Sigurður.
30.jún. 2009 - 12:00
Marta María
Á dögunum opnaði veitingastaðurinn, Fiskfélagið, sem er staðsettur í húsi sem nýlega var flutt á torgið við Vesturgötu í Reykjavík. Á staðnum er boðið upp sjávarrétti þar sem lögð er áhersla á að nota sem mest af íslensku hráefni, bæði í fiskmeti og kryddi. Eigendur staðarins eru Lárus Gunnar Jónasson matreiðslumaður og Guðmundur Hansson veitingamaður og fyrrverandi eigandi Lækjarbrekku.