11. sep. 2009 - 16:00Marta María

Yesmine í Bollywood-stuði

Yesmine kann að búa til alvöru Bollywood-stemningu

Yesmine kann að búa til alvöru Bollywood-stemningu Mynd: Gassi

Veitingastaðnum Turninum verður umturnað í september þegar Yemine Olsson og hennar gengi mæta á svæðið og rigga upp alvöru Bollywoodteiti með mat og skemmtidagskrá. Bollywood-þema verður út í gegn á þessum ævintýrakvöldum. Skreytingarnar, tónlistin, búningarnir og maturinn verður allur í stíl við þemað.

Fyrsta Bollywoodkvöldið fer fram þann 25.september og verða kvöldin alls fjögur. Yesmine Olsson segir að hugmyndin að kvöldunum hafi kviknað því þeim langaði að gera eitthvað skemmtilegt. "Þegar fólk ferðast minna þá er um að gera að koma bara með útlandastemninguna heim til Íslands," segir hún full eftirvæntingar.

Yesmine setti matseðilinn saman ásamt kokkunum í Turninum. Það er sama þema í matreiðslunni og í bókinni hennar, Framandi & Freistandi 2,  sem kom út fyrir síðustu jól. Í bókinni var indverskt og arabískt þema og hefur bókin fengið ógurlega góðar viðtökur. Þegar hún er spurð að því hvort önnur bók sé í smíðum segir hún svo ekki vera. "Mig langar til að láta gefa bókina út í fleiri löndum og er að einbeita mér að því þessa dagana. Ef það gengur vel þá er aldrei að vita nema ég skrifi aðra."

Þegar Yesmine er spurð út í Bollywoodkvöldin segir hún að það verði mikill dans og mikil gleði eins og einkennir Bollywood kvikmyndir. "Þetta verður mikið flipp, rosalegir búningar og mikið af blómum. Ég held að fólk sé alveg tilbúið fyrir Bollywoodævintýri eftir að kvikmyndin Viltu vinna milljarð sló í gegn," segir Yesmine.
 



12.feb. 2010 - 08:00 Snæfríður Ingadóttir

Veitingastaðurinn Texture í London: Freyðandi kampavín og íslenskur kokkur

Texture er fínn staður með afslöppuðu andrúmslofti. Á veitingastaðnum Texture í Lundúnum er hægt að fá íslenskt lamb, skyr og þorsk. Þar er líka hægt að láta fara vel um sig á sérstökum kampavínsbar og skála í breiðasta úrvali Bretlands af freyðandi vínum.
21.jan. 2010 - 20:00

Námsmenn hertóku bjórverksmiðju til að krefjast beinnar leiðslu frá henni

Um fimmtíu sænskir háskólanemar yfirtóku bjórverksmiðju í nágrenni Gautaborgar til leggja áherslu á kröfu sína um að lögðu verði bein bjórleiðsla frá verksmiðjunni að félagsaðstöðu nemenda.
05.des. 2009 - 17:41

Undarlegt líf helgað kexi: Kex-smakkari fer í gegnum 7.000 stykki á ári eða 472 pakka

Myndin tengist ekki fréttinni - að kexfjallinu undanskildu. Maður að nafni Simon Pope hefur helgað lífi sínu kexi í orðsins fyllstu merkingu. Hann er kex-hönnuður og kex-smakkari sem borðar 472 kexpakka á ári eða 7.000 stykki. Pope, sem er 41 árs eyðir þannig ævidögum sínum í kex.
31.okt. 2009 - 19:30

Seinasti dagur McDonald‘s á Íslandi: Þynnkumaturinn kvaddur

Kvöldmaturinn afgreiddur Örtröð hefur verið á íslensku McDonald‘s stöðunum í dag. Á miðnætti lokar seinasti staðurinn og á morgun verða kynntir til sögunnar nýir staðir undir nafninu Metro. Gestir staðanna í kvöld þurftu að bíða lengi eftir afgreiðslu en þeir létu sig samt hafa það til að kveðja staðinn.
27.ágú. 2009 - 21:02 Björg Magnúsdóttir

Íslendingar óstöðvandi í lesningu matreiðslubókar: Vinsældir hennar samfélagsspegill

Matreiðslubók Helgu Sigurðardóttir hefur verið rifin út í ágúst. Það er ekki reifari eða önnur dæmigerð sumarleyfisbók sem er í toppsæti metsölulista Eymundssonar. Þvert á móti heldur matreiðslubók Helgu Sigurðardóttur, Matur og drykkur, efsta sætinu þriðju vikuna í röð. Sigurður Svavarsson útgefandi er glaður og talar um ævintýrið hennar Helgu við Pressuna.
07.júl. 2009 - 16:00 Marta María

Girnilegir réttir fyrir fólk á ferðinni

Skyr í hátíðaútgáfu. Veitingastaðurinn Nítjánda sem er hádegisverðarstaður í Turninum við Smáratorg hefur fært út kvíarnar. Nú er hægt að fá  "take away" frá veitingastaðnum en þeir fast í afgreiðslu Turnsins á annarri hæð. Að sögn Sigurðar Gíslasonar, meistarakokks og einn af eigendum staðarins, eru réttirnir hugsaðir fyrir fólk sem er á ferðinni en kýs hollan, ferskan og góðan mat. Hann segir að hugmyndin af "take away" réttunum hafi kviknað hjá fólkinu sem vinnur í Turninum. "Fólk hafði orð á því að það væri gott að geta gripið eitthvað með sér þegar það komst ekki upp á nítjándu til að fá sér hádegisverð. Við vildum þjónusta það og þess vegna fórum við í að gera þetta," segir Sigurður.
30.jún. 2009 - 12:00 Marta María

Leifur Welding hannaði Fiskfélagið

Leifur Welding hannaði Fiskfélagið.

Á dögunum opnaði veitingastaðurinn, Fiskfélagið, sem er staðsettur í húsi sem nýlega var flutt á torgið við Vesturgötu í Reykjavík. Á staðnum er boðið upp sjávarrétti þar sem lögð er áhersla á að nota sem mest af íslensku hráefni, bæði í fiskmeti og kryddi. Eigendur staðarins eru Lárus Gunnar Jónasson matreiðslumaður og Guðmundur Hansson veitingamaður og fyrrverandi eigandi Lækjarbrekku.

 


Pressupennarnýjast
Birkir Jón Jónsson
Birkir Jón Jónsson - 10.3.2010
Ögmundi svarað
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 10.3.2010
Hagsmunaárekstur eða vanhæfni?
Olga Björt Þórðardóttir
Olga Björt Þórðardóttir - 10.3.2010
Jarðaði vinnuna!
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit