21. jan. 2010 - 20:00

Námsmenn hertóku bjórverksmiðju til að krefjast beinnar leiðslu frá henni

Getty Images

Um fimmtíu sænskir háskólanemar yfirtóku bjórverksmiðju í nágrenni Gautaborgar til leggja áherslu á kröfu sína um að lögðu verði bein bjórleiðsla frá verksmiðjunni að félagsaðstöðu nemenda.

„Vonandi fáum við leiðsluna fljótlega,“ sagði Alexander Westerling, forseti stúdentaráðs, í samtali við Gautaborgarpóstinn. Hann leiddi hóp nemenda úr Chalmers tækniháskólanum inn í verksmiðju Carlsberg í Falkenberg.

Hann hefur samt vart ástæðu til bjartsýni og spurning er hversu mikil alvara er að baki mótmælunum. Þau eru í raun fimmtíu ára gömul hefð.

Hún hófst árið 1959 þegar stúdentaráðið keypti eitt hlutabréf í Pripp & Lyckholm brugghúsinu sem Carlsberg keypti fyrir tíu árum. Hlutabréfið veitti stúdentum rétt til að mæta á aðalfund félagsins þar sem þeir börðust fyrir að lögð yrði ríflega 100 kílómetra löng bjórleiðsla frá verksmiðjunni í aðstöðu nemenda.

Enn sem komið er hafa aðeins tveir metrar verið lagðir, annar við skólann, hinn við yfirgefið brugghús í miðborg Gautaborgar. Ekkert hefur þokast í lagningunni frá árinu 1968 og mótmælin hafa legið niðri í áratug.

Það kann þó að breytast. „Við höfum hlýtt á kröfur þeirra og ætlum að koma á móts við þær. Við byrjum fljótlega á einum metra af leiðslu,“ sagði talsmaður Carlsberg og brosti. Hann sagði mikilvægt að halda góðum samskiptum við stúdentana. Ekki aðeins ættu þau sér langa sögu heldur væru þeir öflugir viðskiptavinir.


12.feb. 2010 - 08:00 Snæfríður Ingadóttir

Veitingastaðurinn Texture í London: Freyðandi kampavín og íslenskur kokkur

Texture er fínn staður með afslöppuðu andrúmslofti. Á veitingastaðnum Texture í Lundúnum er hægt að fá íslenskt lamb, skyr og þorsk. Þar er líka hægt að láta fara vel um sig á sérstökum kampavínsbar og skála í breiðasta úrvali Bretlands af freyðandi vínum.
05.des. 2009 - 17:41

Undarlegt líf helgað kexi: Kex-smakkari fer í gegnum 7.000 stykki á ári eða 472 pakka

Myndin tengist ekki fréttinni - að kexfjallinu undanskildu. Maður að nafni Simon Pope hefur helgað lífi sínu kexi í orðsins fyllstu merkingu. Hann er kex-hönnuður og kex-smakkari sem borðar 472 kexpakka á ári eða 7.000 stykki. Pope, sem er 41 árs eyðir þannig ævidögum sínum í kex.
31.okt. 2009 - 19:30

Seinasti dagur McDonald‘s á Íslandi: Þynnkumaturinn kvaddur

Kvöldmaturinn afgreiddur Örtröð hefur verið á íslensku McDonald‘s stöðunum í dag. Á miðnætti lokar seinasti staðurinn og á morgun verða kynntir til sögunnar nýir staðir undir nafninu Metro. Gestir staðanna í kvöld þurftu að bíða lengi eftir afgreiðslu en þeir létu sig samt hafa það til að kveðja staðinn.
11.sep. 2009 - 16:00 Marta María

Yesmine í Bollywood-stuði

Yesmine kann að búa til alvöru Bollywood-stemningu

Veitingastaðnum Turninum verður umturnað í september þegar Yemine Olsson og hennar gengi mæta á svæðið og rigga upp alvöru Bollywoodteiti með mat og skemmtidagskrá. Bollywood-þema verður út í gegn á þessum ævintýrakvöldum. Skreytingarnar, tónlistin, búningarnir og maturinn verður allur í stíl við þemað. Fyrsta Bollywoodkvöldið fer fram þann 25.september og verða kvöldin alls fjögur. Yesmine Olsson segir að hugmyndin að kvöldunum hafi kviknað því þeim langaði að gera eitthvað skemmtilegt. "Þegar fólk ferðast minna þá er um að gera að koma bara með útlandastemninguna heim til Íslands," segir hún full eftirvæntingar.

27.ágú. 2009 - 21:02 Björg Magnúsdóttir

Íslendingar óstöðvandi í lesningu matreiðslubókar: Vinsældir hennar samfélagsspegill

Matreiðslubók Helgu Sigurðardóttir hefur verið rifin út í ágúst. Það er ekki reifari eða önnur dæmigerð sumarleyfisbók sem er í toppsæti metsölulista Eymundssonar. Þvert á móti heldur matreiðslubók Helgu Sigurðardóttur, Matur og drykkur, efsta sætinu þriðju vikuna í röð. Sigurður Svavarsson útgefandi er glaður og talar um ævintýrið hennar Helgu við Pressuna.
07.júl. 2009 - 16:00 Marta María

Girnilegir réttir fyrir fólk á ferðinni

Skyr í hátíðaútgáfu. Veitingastaðurinn Nítjánda sem er hádegisverðarstaður í Turninum við Smáratorg hefur fært út kvíarnar. Nú er hægt að fá  "take away" frá veitingastaðnum en þeir fast í afgreiðslu Turnsins á annarri hæð. Að sögn Sigurðar Gíslasonar, meistarakokks og einn af eigendum staðarins, eru réttirnir hugsaðir fyrir fólk sem er á ferðinni en kýs hollan, ferskan og góðan mat. Hann segir að hugmyndin af "take away" réttunum hafi kviknað hjá fólkinu sem vinnur í Turninum. "Fólk hafði orð á því að það væri gott að geta gripið eitthvað með sér þegar það komst ekki upp á nítjándu til að fá sér hádegisverð. Við vildum þjónusta það og þess vegna fórum við í að gera þetta," segir Sigurður.
30.jún. 2009 - 12:00 Marta María

Leifur Welding hannaði Fiskfélagið

Leifur Welding hannaði Fiskfélagið.

Á dögunum opnaði veitingastaðurinn, Fiskfélagið, sem er staðsettur í húsi sem nýlega var flutt á torgið við Vesturgötu í Reykjavík. Á staðnum er boðið upp sjávarrétti þar sem lögð er áhersla á að nota sem mest af íslensku hráefni, bæði í fiskmeti og kryddi. Eigendur staðarins eru Lárus Gunnar Jónasson matreiðslumaður og Guðmundur Hansson veitingamaður og fyrrverandi eigandi Lækjarbrekku.

 


Pressupennarnýjast
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir - 11.3.2010
Sverðaglamur innan stjórnarinnar
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 11.3.2010
VBS fallinn ári eftir ríkisstyrk
Ágúst Borgþór Sverrisson
Ágúst Borgþór Sverrisson - 11.3.2010
Kominn tími til að setja á sig sparkskóna með stáltánni?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Opin spurning til nýju bankanna
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit