30. jún. 2009 - 12:00Marta María

Leifur Welding hannaði Fiskfélagið

Leifur Welding hannaði Fiskfélagið.

Leifur Welding hannaði Fiskfélagið. Mynd: Úr einkasafni

Á dögunum opnaði veitingastaðurinn, Fiskfélagið, sem er staðsettur í húsi sem nýlega var flutt á torgið við Vesturgötu í Reykjavík. Á staðnum er boðið upp sjávarrétti þar sem lögð er áhersla á að nota sem mest af íslensku hráefni, bæði í fiskmeti og kryddi. Eigendur staðarins eru Lárus Gunnar Jónasson matreiðslumaður og Guðmundur Hansson veitingamaður og fyrrverandi eigandi Lækjarbrekku.

Fiskfélagið er smekklega innréttað af Leifi Welding. Hann hefur verið viðriðinn hönnunarbransann í tíu ár. Þegar hann er spurður að því hvort þetta sé fyrsti staðurinn sem hann hannar þá segir hann svo ekki vera.

 
„Ég hef verið viðriðinn hönnun á veitingarstöðum og hótelum í rúmlega 10 ár. Ég hef til dæmis hannað, í samvinnu við eigendur hvers og eins staðar, staði eins og Sjávarkjallarann, Fiskmarkaðinn, Silfur ofl. Þetta byrjaði allt á sínum tíma með því að ég var að vinna við að selja húsgögn og innréttingar inn á veitingarhús og hótel sem færðist út í að skipuleggja og hanna staði frá a til ö,“ segir Leifur og bætir við: „Í framhaldinu stofnaði ég Saltfélagið ásamt Pennanum og Lumex,“ segir hann en hann seldi sinn hlut í Saltfélaginu í apríl 2008. „Þetta voru skemmtilegir og frjóir tímar enda voru Íslendingar mjög kaupglaðir á þessum árum og vildu hafa fallega hönnun heima hjá sér.“

Þegar Leifur er spurður út í Fiskfélagið segist hann hafa reynt að búa til hlýlega og skemmtilega stemningu. „Þetta á að vera notalegur staður sem öllum líður vel á. Ég nota mikið af mjúkum og hlýjum hlutum, plussefni og mikið af kertum. Bak við barinn eru tæplega 100 ára gamlir gluggar sem voru upphaflega í Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Þeim átti að henda fyrir átta árum en við náðum að bjarga þeim,“ segir Leifur.

Hann hefur smekk fyrir fallegri hönnun en á veggjum Fiskfélagsins hangir til að mynda elgur frá Northernlighting, risalampinn frá Max Inc, ruggustóllinn frá Hans J. Wegner í bland við verk eftir nema Listaháskóla Íslands.

Síðustu mánuði hefur Leifur unnið að hönnun Arctichótel sem er í smíðum í Brautarholti. Það er 4 stjörnu hótel með 107 herbergjum. „Ég er einnig að vinna með félaga mínum í íbúðarhótel concepti sem heitir Apartment K og Element K. Vorum að bæta við núna 7 íbúðum á Hverfisgötu. Þar erum við með „Boutique“ hótelíbúðir með öllu. Þær íbúðir eru að mestu leiti innréttaðar með húsgögnum og ljósum frá MOOOI, TOM DIXON, FLOS og B&B ITALIA,“ segir Leifur. 

Hvað er það skemmtilegasta við að innrétta hótel og veitingastaði? „Það er að sjá þegar þeir hitta í mark. Að þeir gangi vel og selji vel. Það tekur langan tíma og mikinn undirbúning að hanna veitingarstað sem á að ganga vel. Við Lárus erum til dæmis búnir að vera í tæpt ár að vinna að Fiskfélaginu. Lárus býr á Ítalíu svo að öll okkar samskipti og vinna hafa farið fram á netinu,“ segir Leifur.

Þegar Leifur er spurður að því hvað sé framundan segist hann vera störfum hlaðinn. „Ég hef verið að vinna í svipuðum verkefnum erlendis og mun halda því áfram. Það er margt spennandi í pípunum en allt of snemmt að segja frá því núna,“ segir hann.
 

Left Right


12.feb. 2010 - 08:00 Snæfríður Ingadóttir

Veitingastaðurinn Texture í London: Freyðandi kampavín og íslenskur kokkur

Texture er fínn staður með afslöppuðu andrúmslofti. Á veitingastaðnum Texture í Lundúnum er hægt að fá íslenskt lamb, skyr og þorsk. Þar er líka hægt að láta fara vel um sig á sérstökum kampavínsbar og skála í breiðasta úrvali Bretlands af freyðandi vínum.
21.jan. 2010 - 20:00

Námsmenn hertóku bjórverksmiðju til að krefjast beinnar leiðslu frá henni

Um fimmtíu sænskir háskólanemar yfirtóku bjórverksmiðju í nágrenni Gautaborgar til leggja áherslu á kröfu sína um að lögðu verði bein bjórleiðsla frá verksmiðjunni að félagsaðstöðu nemenda.
05.des. 2009 - 17:41

Undarlegt líf helgað kexi: Kex-smakkari fer í gegnum 7.000 stykki á ári eða 472 pakka

Myndin tengist ekki fréttinni - að kexfjallinu undanskildu. Maður að nafni Simon Pope hefur helgað lífi sínu kexi í orðsins fyllstu merkingu. Hann er kex-hönnuður og kex-smakkari sem borðar 472 kexpakka á ári eða 7.000 stykki. Pope, sem er 41 árs eyðir þannig ævidögum sínum í kex.
31.okt. 2009 - 19:30

Seinasti dagur McDonald‘s á Íslandi: Þynnkumaturinn kvaddur

Kvöldmaturinn afgreiddur Örtröð hefur verið á íslensku McDonald‘s stöðunum í dag. Á miðnætti lokar seinasti staðurinn og á morgun verða kynntir til sögunnar nýir staðir undir nafninu Metro. Gestir staðanna í kvöld þurftu að bíða lengi eftir afgreiðslu en þeir létu sig samt hafa það til að kveðja staðinn.
11.sep. 2009 - 16:00 Marta María

Yesmine í Bollywood-stuði

Yesmine kann að búa til alvöru Bollywood-stemningu

Veitingastaðnum Turninum verður umturnað í september þegar Yemine Olsson og hennar gengi mæta á svæðið og rigga upp alvöru Bollywoodteiti með mat og skemmtidagskrá. Bollywood-þema verður út í gegn á þessum ævintýrakvöldum. Skreytingarnar, tónlistin, búningarnir og maturinn verður allur í stíl við þemað. Fyrsta Bollywoodkvöldið fer fram þann 25.september og verða kvöldin alls fjögur. Yesmine Olsson segir að hugmyndin að kvöldunum hafi kviknað því þeim langaði að gera eitthvað skemmtilegt. "Þegar fólk ferðast minna þá er um að gera að koma bara með útlandastemninguna heim til Íslands," segir hún full eftirvæntingar.

27.ágú. 2009 - 21:02 Björg Magnúsdóttir

Íslendingar óstöðvandi í lesningu matreiðslubókar: Vinsældir hennar samfélagsspegill

Matreiðslubók Helgu Sigurðardóttir hefur verið rifin út í ágúst. Það er ekki reifari eða önnur dæmigerð sumarleyfisbók sem er í toppsæti metsölulista Eymundssonar. Þvert á móti heldur matreiðslubók Helgu Sigurðardóttur, Matur og drykkur, efsta sætinu þriðju vikuna í röð. Sigurður Svavarsson útgefandi er glaður og talar um ævintýrið hennar Helgu við Pressuna.
07.júl. 2009 - 16:00 Marta María

Girnilegir réttir fyrir fólk á ferðinni

Skyr í hátíðaútgáfu. Veitingastaðurinn Nítjánda sem er hádegisverðarstaður í Turninum við Smáratorg hefur fært út kvíarnar. Nú er hægt að fá  "take away" frá veitingastaðnum en þeir fast í afgreiðslu Turnsins á annarri hæð. Að sögn Sigurðar Gíslasonar, meistarakokks og einn af eigendum staðarins, eru réttirnir hugsaðir fyrir fólk sem er á ferðinni en kýs hollan, ferskan og góðan mat. Hann segir að hugmyndin af "take away" réttunum hafi kviknað hjá fólkinu sem vinnur í Turninum. "Fólk hafði orð á því að það væri gott að geta gripið eitthvað með sér þegar það komst ekki upp á nítjándu til að fá sér hádegisverð. Við vildum þjónusta það og þess vegna fórum við í að gera þetta," segir Sigurður.

Pressupennarnýjast
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 12.3.2010
Ákvörðun forsetans breytti stöðunni
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 12.3.2010
Hvar eru afskriftirnar? - hvar er rannsóknin?
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 12.3.2010
Heit á Hótel Borg - Mynd vikunnar!
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 12.3.2010
Lýsið yfir sjálfstæði!
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 12.3.2010
Hvar vegnar lítilmagnanum best?
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit